Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 20
 Besti hvolpur eldri flokki Enska cocker spaniel-tíkin Þöll Hnotudóttir var besti hvolpurinn í eldri flokki. Eigandi hennar og ræktandi er Agnes Geirdal. Rakel Ósk Þrastardóttir sýndi tíkina og dómarinn er Harry Vella frá Möltu. Eftir Ingu Björk Gunnarsdóttur Aldrei áður hafa jafnmargirhundar verið skráðir ásumarsýningu HRFÍ en637 hundar á aldrinum fjögurra mánaða til 13 ára af 75 teg- undum háðu keppni. Þátttaka í keppni ungra sýnenda var einnig góð en 39 ungmenni voru skráð til leiks. Í anddyri reiðhallarinnar voru kynn- ingarbásar fyrir hinar ýmsu tegundir og vörur tengdar hundahaldi. Dómarar að þessu sinni voru Eug- ene Yerusalimsky frá Rússlandi, Fernando Madeira Rodrigues frá Portúgal, Harry Vella frá Möltu, Gör- an Bodegård frá Svíþjóð og Michel Mollegård frá Danmörku sem dæmdi yngri flokk ungra sýnenda. Allir dóm- arar sem dæma á sýningum HRFÍ eru með réttindi frá FCI og er mikil áhersla lögð á að fá færa og reynda dómara til að dæma á sýningum fé- lagsins. Á sýningunni var keppni meðal ungra sýnenda en þar er verið að dæma samvinnu sýnanda og hunds, hversu vel hundurinn er sýndur og hversu mikla almenna þekkingu ungi sýnandinn hefur á hundum. Mikill áhugi er á þessari keppni og að þessu sinni kepptu 39 ungmenni í tveimur aldursflokkum, 10-13 ára og 14-17 ára. Michel Møllegård og Harry Vella voru mjög hrifnir af frammistöðu unga fólksins hér á landi. Sigurveg- arar að þessu sinni voru Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir úr yngri flokki, sem sýndi amerískan cocker spaniel, og Rakel Ósk Þrastardóttir úr eldri flokki, sem sýndi boxer. Unga fólkið hefur að miklu að stefna því á haustsýningum Hunda- ræktarfélagsins, sem haldnar eru í október, eru veitt verðlaun fyrir besta samanlagðan árangurinn yfir árið í hvorum aldursflokki. Að auki hlýtur stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokknum þátttökurétt til að keppa í alþjóðlegri keppni ungra sýn- enda sem haldin er í mars ár hvert í Bretlandi. Nánari úrslit sýningarinnar er hægt að sjá á heimasíðu Hundarækt- arfélags Íslands http://www.hrfi.is. Besti ungi sýnandi í yngri og eldri flokki Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir sýndi amerískan cocker spaniel og var best í yngri flokki barna. Rakel Ósk Þrastardóttir sigraði í eldri flokki ungra sýnenda en hún sýndi boxer.  Annar besti hundur sýningar Þýski fjárhundurinn BH SCHH1Geldiw- angens’s Istan var ann- ar bestur á sýningunni. Eigandi og ræktandi eru Leif og Hilde Wangberg. F.v.: Jóna Th. Viðarsdóttir, for- maður HRFÍ, sænski dómarinn Göran Bode- gård, Hjördís Ágústs- dóttir, sem sýndi hund- inn, og Gunnlaugur Valtýsson. Síðastliðna helgi hélt Hundaræktarfélag Íslands sumarsýningu félagsins í reiðhöll Fáks í Víðidal. hundar 20 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Jónsmessan er sá tími þegar sumarið stendur sem hæst á Íslandi. Sólargangurinn er hvað lengstur og birtan lifir allan sólarhringinn. Við þessar aðstæður er komin á sú hefð hjá Grund- firðingum að ganga á fjallið Klakk við aust- anverðan Grundarfjörð um miðnæturbil á Jóns- messunótt, en einnig hefur skapast sá siður að syngja messu í hinni öldnu Setbergskirkju áður en gangan hefst. Síðastliðið laugardagskvöld var boðað til messu á Setbergi og óskaði sókn- arprestur eftir því að þeir sem gætu því við- komið kæmu ríðandi til messu. Nokkrir hesta- menn komu ríðandi til messunnar og var reiðskjótunum komið á beit meðan á messu stóð. Eftir messuna var haldið að upphafsreit göngunnar við bæinn Suður-Bár og þaðan lagt í göngu á Klakk í þeirri von að í þetta sinn myndu óskasteinar fljóta á Klakkstjörn um miðnæt- urbil. Fjöldi fólks gekk á Klakk þessa Jóns- messunótt en þótt fjölmargir hefðu gengið þetta áður voru þó nokkrir að ganga í fyrsta sinn, en öllum þótti jafntilkomumikið að horfa á útsýnið um Breiðafjörð í sólbliki sumarnæturinnar.    19. júní er samkomudagur kvenfélaganna á Snæfellsnesi. Skiptast félögin á um að bjóða til fagnaðar í tilefni dagsins en í þetta sinn var það Kvenfélagið Gleym-mér-ei í Grundarfirði, sem um þessar mundir fagnar 75 ára afmæli, sem var gestgjafinn. Um 50 konur úr Grundarfirði og frá kvenfélögunum í nágrannabyggðarlög- unum áttu saman kvöldstund í samkomuhúsi Grundarfjarðar í tilefni kvenréttindadagsins og þema kvöldsins var bleikt. Kvenfélögin hvert á sínum stað hafa í gegnum tíðina verið meg- instoð í mörgum líknar- og velferðarmálum í viðkomandi sveitarfélagi og konurnar unnið mikið og óeigingjarnt starf. Um það er helst rætt nú innan raða kvenfélagskvenna hversu meðalaldur félagsmanna sé orðinn hár. Kven- félagskonur velta því fyrir sér hverjar séu ástæður þess að kvenfélögin og þeirra starf höfði ekki lengur til yngri kvenna og sýnist hverri sitt.    Ferðamenn eru að verða partur af lífi og tilveru Grundfirðinga yfir sumartímann. Skemmti- ferðaskipin eiga viðkomu á Grundarfirði hvert af öðru og farþegar þeirra sjást á ferli um bæinn meðan skipin staldra við. Tíu skip eiga viðkomu þetta sumarið. Á Hótel Framnesi er allt upp- pantað í sumar og sömu sögu er að segja af Far- fuglaheimili Grundarfjarðar. Umferð ferða- manna um Snæfellsnes virðist stöðugt vera að aukast og afþreyingarmöguleikar sömuleiðis. Margir leggja leið sína í Sögumiðstöðina í Grundarfirði sem auk þess að gegna hlutverki upplýsingamiðstöðvar hefur upp á bjóða sýning- arsali, þar sem kynnast má lífi og starfi íslenskr- ar alþýðu á 19. öld. Hugmynda- og þúsundþjala- smiðurinn Ingi Hans Jónsson, sem sett hefur upp þessar sýningar, er um þessar mundir að setja upp eina sýningu til viðbótar og snýr hún að verslunarháttum í Grundarfirði. Ingi er að smíða eftirlíkingu Þórðarbúðar sem Þórður Pálsson bifreiðarstjóri átti og rak um árabil um miðja síðustu öld sem sjoppu og verslun sem varð hvað umfangsmest í kringum jólin ár hvert. Saga Úr Sögumiðstöðinni Grundarfirði. GRUNDARFJÖRÐUR Gunnar Kristjánsson fréttaritari úr bæjarlífinu St. Bernharðs-hundur bestur Besti hvolpur yngri flokki Chinese crested-rakkinn Inya Dreams Eye of the Tiger var besti hvolpur sýn- ingarinnar 4-6 mánaða. Eigandi hans og ræktandi er Sigríður Sólveigardóttir sem jafnframt sýndi. Dóm- arinn er Harry Vella frá Möltu. Besti hundurinn St. Bernhards-rakkinn SUCH NUCH Tit- anerna Atlas. Stoltur eigandi hans er Guðný Vala Tryggvadóttir. Ljósmynd/Inga Björk Gunnarsdóttir Michel Møllegård og Harry Vella voru mjög hrifnir af frammistöðu unga fólksins hér á landi Ljósmynd/Johan Frick-Meijer Ljósmynd/Johan Frick-Meijer Ljósmynd/Johan Frick-MeijerLjósmynd/Johan Frick-Meijer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.