Morgunblaðið - 26.06.2007, Side 8

Morgunblaðið - 26.06.2007, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NOTKUN rafhlaðna er mikil yfir sum- artímann þegar fólk er á faraldsfæti og hefur við höndina margs konar raf- tæki sem oftar en ekki ganga fyrir rafhlöðum. Úrvinnslusjóður vill hvetja landsmenn til þess að skila inn ónýtum rafhlöðum á ferðalögum sínum um landið í sumar Á vef úrvinnslusjóðs, www.urvinnslusjodur.is, er hægt að nálgast upplýsingar um staðsetningu söfnunarstöðva á landinu öllu. Ef hættulegu efnin sem fyrirfinnast í sumum rafhlöðum sleppa út í náttúr- una getur það haft alvarlegar afleið- ingar. Áminning Raffa og Batti minna á úrvinnslu ónýtra rafhlaðna. Mikið notað af rafhlöðum yfir sumartímann YFIR 300 manns tóku þátt í Jóns- messugöngu Ferðafélags Íslands og SPRON á Þverfellshorn Esju á laugardagskvöld. Áður en gangan hófst flutti Árni Björnsson pistil um Jónsmessuna og Þjóðdansafélagið sýndi nokkra dansa. Þjóðleg stemning var á fjallinu og voru þátttakendur á öllum aldri. Á toppi Þverfellshorns var bál- hvasst og því ekki unnt að kveikja í brennunni eins og til stóð. Það kom þó ekki í veg fyrir að menn tækju lagið rétt fyrir néðan toppinn og einnig mátti hlýða á fjörugan harm- onikkuleik á niðurleiðinni. Björg- unarsveitin Ársæll var til aðstoðar. Þjóðleg á Þverfellshorni Á Jónsmessu Fararstjórarnir Páll Guðmundsson og Vilborg Arna Gissurardóttir klæddust íslenskum búningum í göngunni. GERVIHNATTAMYNDIR sýna græna slikju á hafinu suðvestur af landinu. „Það er ekki ólíklegt að þarna sé á ferðinni gamall kunningi, kalksvifþörungur. Hann myndar kalkskeljar og kemur venjulega upp á þessum tíma, sérstaklega þegar veður er bjart eins og núna,“ segir Kristinn Guðmundsson, sjávarlíf- fræðingur á Hafrannsóknastofnun- inni. „Þörungarnir eru að fjölga sér á yfirborðinu en til þess þurfa þeir sól- arljósið og lagskiptingu sjávar. Í júní fer hafsvæðið fyrir opnu hafi að verða nokkuð lagskipt vegna upphit- unar. Þessir þörungar leita upp í ljósið þannig að seint í blómgunar- ferli þeirra verður mjög mikið af þeim við yfirborðið. Af því að þeir eru með kalkskeljar verður endur- varp frá þeim mjög sterkt og það kemur svo fram á gervihnattamynd- um. Þarna getur bæði verið um ljós- græna slikju og dekkri slikju að ræða. Svona sést oft í Norðursjón- um,“ segir Kristinn. Hann segir að þörungarnir skaði dýralíf ekki á nokkurn hátt. Þetta sé raunar merkilegur þörungur því þarna eigi sér stað einhver mesta kalkmyndun í heiminum, milli Bret- lands og Íslands. Væri grunnt þarna gæti þetta meðal annars orðið upp- hafið að kalkseti, jafnvel kalkbergi. Hins vegar sé svo djúpt þarna að lítil hætta sé á setmyndun, þar sem kalk- ið leysist upp, þegar komið sé á meira dýpi og þrýstingur sé orðinn mikill. „Þarna er kalk að bindast og ef þetta sezt niður og losnar ekki upp aftur er þetta ein af leiðunum til var- anlegrar bindingar á koltvísýringi, en kalk er myndað úr kalsíum og kol- sýringi,“ segir Kristinn Guðmunds- son. Ísland Græn slikja kemur á hafið vegna mikillar þörungamyndunar og hún sést vel á gervihnattamyndum. Mikil þörungamyndun í hafinu út af landinu Í HNOTSKURN »Þarna er kalk að bindastog ef þetta sezt niður og losnar ekki upp aftur er þetta ein af leiðunum til varanlegrar bindingar á koltvísýringi. »Þessir þörungar leita upp íljósið þannig að seint í blómgunarferli þeirra verður mjög mikið af þeim við yf- irborðið. »Þetta er merkilegur þör-ungur því þarna á sér stað einhver mesta kalkmyndun í heiminum, milli Bretlands og Íslands. Mjög mikil kalkmyndun sem bindur koltvísýring UTANRÍKISRÁÐHERRA, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, er nýlega snúin heim úr tveggja daga op- inberri heimsókn til Noregs. Hún átti þar fundi með bæði Jens Stol- tenberg, forsætisráðherra Noregs, og starfsbróður sínum Jonas Gahr Støre, þar sem rætt var um sameig- inleg hagsmunamál ríkjanna á sviði umhverfis-, öryggis og Evrópumála og hvernig þjóðirnar tvær geta sem best staðið vörð um hagsmuni sína gegn samrunaþróun Evrópu. Hyggja ráðherrarnir tveir á nánara samstarf á því sviði í framtíðinni. Norski forsætisráðherrann kynnti Ingibjörgu og nýja loftslags- stefnu norsku ríkisstjórnarinnar. Utanríkisráðherra átti einnig fund með varnarmálaráðherra Noregs, Anna-Grete Ström- Erichsen, þar sem rætt var sam- starf þjóðanna á varnar- og örygg- ismálasviði, á grundvelli sam- komulags þjóðanna frá því í apríl síðastliðnum. Ráðherraþing í Noregi Landvættir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Anna-Grete Ström-Erichsen, varnarmálaráðherra Noregs, hittust til að ræða varnarmál ríkjanna. Umhverfis- og öryggismál meðal umræðuefna MAGNÚS Árni Skúlason hagfræð- ingur segir að þegar krónan sé sterk sé varhugavert að taka há erlend lán, því falli gengið hækki þessi lán mjög fljótt. Falli gengið um 10% hækki til dæmis 20 milljóna króna lán um tvær milljónir ásamt því að greiðslubyrði aukist. Rétt sé að taka fram að geng- isþróun hafi áhrif á verðlag að hluta þar sem innfluttar neysluvörur hækki í verði og auki þar með verð- bótaþátt verðtryggðra lána. Í Morgunblaðinu í gær var sagt að kaupendum ákveðinna fasteigna á Flórída í Bandaríkjunum byðust mun hagstæðari lán hjá þarlendum lánastofnunum en hérlendis og mun- aði þar mestu að erlendu lánin væru óverðtryggð og á 6% vöxtum til 30 ára. Heildargreiðsla af 24 millj. kr. láni væri tæpar 58 millj. kr. en endur- greiðsla á sambærilegu láni hjá Íbúðalánasjóði næmi rúmum 105 millj. kr. Að sögn Magnúsar er gengið út frá því að gengi dollarsins breytist ekk- ert og gert ráð fyrir um 4 til 5% verð- bólgu hérlendis til allrar framtíðar. Ekki sé hægt að staðhæfa þetta og hækki dollarinn um 10% hækki er- lenda lánið líka um 10%. Eigna- hliðin sé í doll- urum og því hækki eignin á sama hátt og lánið, en greiðslubyrðin aukist falli gengið. Magnús segir að verðtryggð lán séu betri fyrir þá sem hafi lítið á milli handanna og gengisbundin lán geti skapað verulega erfiðleika, því það geti verið miklar sveiflur í greiðslu- byrði, allt eftir upphæð lánanna. Meginþorri almennings falli undir þessa skilgreiningu og segja megi að þeir sem séu efnalitlir njóti ekki hag- ræðisins sem fylgi erlendum lánum. Þeir sem séu betur stæðir geti tekið erlend lán þegar gengið fellur og greitt þau hraðar upp þegar gengið er hagstætt eins og nú. Segir óverðtryggð lán ekki endilega hagstæðari Magnús Árni Skúlason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.