Morgunblaðið - 26.06.2007, Qupperneq 19
|þriðjudagur|26. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Sóley Ó. Elídóttir hefur skrifað
bók með 100 leikjum fyrir
krakka „á öllum aldri“ eins og
segir á bókarkápunni. » 21
tómstundir
Alls voru 637 hundar á aldr-
inum fjögurra mánaða til 13 ára
skráðir á sumarsýningu HRFÍ
um síðustu helgi. » 20
hundar
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
ÍJL-húsinu vestast í Vest-urbænum grúfa níu lista-menn sig yfir rennibekki oghorfa einbeittir ofan í lítinn
klump sem smám saman tekur á
sig form í höndum þeirra. Þar eru
á ferð krakkar á leirnámskeiði
Myndlistaskólans í Reykjavík sem
eru heldur betur búnir að vera af-
kastamiklir frá því þeir settust
niður við leirmótunina í byrjun síð-
ustu viku.
Meðal listamannanna eru Hera
Þöll Árnadóttir, 11 ára að verða
12, sem kemur alla leið frá Sauð-
árkróki og Hólmfríður Benedikts-
dóttir, átta að verða níu ára Vest-
urbæjarmær. „Þetta er ofsalega
gaman,“ segja þær með innilegri
áherslu. „Og alls ekki eins flókið
og manni finnst þegar maður horf-
ir á aðra gera þetta,“ bætir Hólm-
fríður við. Hún viðurkennir þó að
stundum geti verið dálítið snúið að
hafa stjórn á leirnum. „Júúú,“ seg-
ir hún með semingi, „hann dettur
stundum út af þegar bekkurinn fer
of hratt og maður gleymir að passa
upp á að hafa kúluna jafna.“
Ekkert vantar upp á fram-
leiðnina hjá þessum tveimur leir-
listarkonum. „Ég er búin að gera
skál og bolla sem er eins og bikar,
disk og aðra skál,“ segir Hera og
Hólmfríður er ekki síður afkasta-
mikil. „Ég er búin með tvær skál-
ar, einhyrningshorn – óvart (ég
ætlaði að gera turn en svo varð
hann að einhyrningshorni) og tvo
kertastjaka.“
Þar með er þó bara hálf sagan
sögð því þær stöllur upplýsa að
þær séu líka búnar að vera að
móta leirmuni í höndunum án þess
að rennibekkurinn hafi komið við
sögu. „Við erum búnar að gera
brjóstmyndir og fornmuni,“ upp-
lýsir Hera en þegar Hólmfríður
sér spurnina í andliti blaðamanns
sér hún sig knúna til að útskýra
málið aðeins betur. „Við búum til
muni sem við setjum svo í
brennslu eins og var gert í gamla
daga. Þannig að þetta eru eig-
inlega svona falsaðir fornmunir.“
Þær lofa þó hátíðlega að ekki
standi til að grafa umrædda gripi í
jörð og villa þannig um fyrir forn-
leifafræðingum.
Eins skemmtilegur og leirinn nú
er er þó fleira á dagskránni þessa
daga en leirmótun. „Við eigum eft-
ir að fara út að mála myndir og svo
ætlum við að skoða hús sem kenn-
aranum finnst vera skrýtnasta
húsið í bænum,“ segir Hera og
Hólmfríður kinkar kolli. „Það er
víst svolítið eins og skip í laginu.“
Það stendur ekki á svari þegar
vinkonurnar eru spurðar að því
hvað þær ætli svo að gera við alla
gripina sína. „Bara gefa mömmu
og pabba og fjölskyldunni,“ segir
Hólmfríður og undir það tekur
Hera. „Ég ætla a.m.k. að gefa
mömmu bikarinn.“
Hreinlega dáleiðast
Að sögn Guðbjargar Káradóttur,
kennara stelpnanna, er þetta í
annað sinn sem þetta námskeið er
haldið. „Við leggjum áherslu á leir-
inn og þau æfa sig í að renna, fá að
koma við leirinn og finna fyrir hon-
um. Svo förum við út og málum
landslagsmálverk í fjörunni og
teiknum hús héðan úr hverfinu á
meðan leirinn er brenndur.“
Hún segir krakkana virkilega
njóta sín við leirmótunina. „Þau
hreinlega dáleiðast og eru mjög
einbeitt, tala lítið heldur eru eins
og í eigin heimi.“
Undir þetta tekur Hildur
Bjarnadóttir, deildarstjóri barna-
og unglingadeildar Myndlistaskól-
ans. „Þetta er líka svo „alvöru“
fyrir þeim því þau fá að vera í
sömu aðstöðu og með sömu tæki
og fullorðna fólkið. Þau taka þetta
því mjög alvarlega og eru ákaflega
mannaleg.“
Guðbjörg bætir því við að krakk-
arnir séu fljótir að læra á tækin og
verða öruggir með sig. „Þeir eru
ekki eins krítískir og fullorðna
fólkið sem vill hafa gripina svo
fullkomna og jafna, sem tekst
sjaldnast fyrr en eftir svolítinn
tíma. Krakkarnir eru meira til í að
gera bara eitthvað skrýtið. Núna
vilja þau til dæmis öll gera turna
sem eru alla vega. Ég heyri krakk-
ana a.m.k. sjaldan kvarta undan
því að þeir geti þetta ekki en svo-
leiðis athugasemdir detta hins veg-
ar stundum upp úr fullorðna fólk-
inu.“
Framundan hjá Myndlistaskól-
anum eru sumarnámskeið í ágúst
en í lok september hefjast svo al-
menn námskeið að nýju.
Dáleidd Krakkarnir njóta þess að horfa ofan í iðandi bekkinn og finna fyr-
ir efninu í höndunum enda góð tilbreyting að fá að skíta sig svolítið út.
Einbeitt Allskyns turnar eru vinsælt viðfangsefni á leirnámskeiðinu og hér er einn slíkur í smíðum hjá Hólmfríði.
Snúsnú Fingur finna bekkinn iða.
Falsaðir
fornmunir og
hús eins og
skip í laginu
Morgunblaðið/Ásdís
Afköst Hera Þöll er búin að gera a.m.k. tvær skálar, bikar og disk fyrir utan brjóstmyndir og fornmuni.
Afraksturinn Glæsilegir leirmunir sem bíða þess að fara í brennslu.
TENGLAR
.....................................................
www.myndlistaskolinn.is