Morgunblaðið - 26.06.2007, Page 29
✝ Friðfinnur AnnóBjörgvin
Ágústsson fæddist á
Bás í Hörgárdal 3.
nóvember 1941.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 14. júní síðast-
liðinn. Hann var
yngstur barna Jón
Ágústs Jónssonar
og Hallfríðar Stef-
aníu Axelsdóttur.
Systkini hans eru
Reynir Ölversson
hálfbróðir, Ólafur
Ágústsson og Matthildur Ágústs-
dóttir.
Árið 1968 kynntist hann Helgu
Hafberg f. 3. júní 1939, þau gengu
í hjónaband 3. maí 1969. Þau eiga
þrjá syni, þeir eru: 1) Engilbert
Ólafur, f. 25.8. 1969, sambýliskona
Guðbjörg Gísladóttur, þau eiga
tvö börn, Jón Ágúst f. 21.9. 1996
og Stefaníu Ósk f. 15.4. 1999, 2)
Hafsteinn Ágúst, f. 4.10. 1970,
kvæntur Kolbrúnu Birnu Hall-
dórsdóttur, þau eiga þrjú börn,
Halldór Frank f. 21.11. 1998,
Katrínu Eir f. 28.3. 2002 og Rann-
veigu Birnu f. 31.12. 2004 og 3)
Ara f. 14.6. 1975, kvæntur Þuríði
Kristínu Sigurðar-
dóttur, þau eiga
þrjú börn, Helgu
Sóley f. 13.6. 1996,
Karen Birnu f. 23.4.
1998 og Einar
Bjarka f. 15.1. 2004.
Fyrstu 22 ár ævi
sinnar bjó Friðfinn-
ur á Básum í Hörg-
árdal. Hann hjálpaði
þar til við sveita-
störfin, hann var
duglegur strákur,
rólegur og nægju-
samur. Árið 1964
fluttist hann í Kópavoginn að
Hlaðbrekku 1 og bjó þar hjá for-
eldum sínum. Friðfinnur giftist
Helgu Hafberg 3. maí árið 1969.
Þau bjuggu á Hverfisgötu, Skipa-
sundi og Spítalastig en fluttust ár-
ið 1970 í Mávahlíð 24. Í fyrstu
vann hann í byggingarvinnu við
Kópavogshæli en bróðurpart æv-
inar vann hann hjá Slippnum/
Stálsmiðjunni eða ca 40 ár. Síð-
ustu sex vikur ævi sinnar dvaldist
Friðfinnur á Landspítalanum í
Fossvogi þar sem hann lést.
Útför Friðfinns verður gerð frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Það er svo sárt að hugsa til þess að
þú sért farinn. Það í raun ótrúlegt að
svo sé. Þú og mamma pössuðuð
börnin mín tveimur dögum áður en
þú ákvaðst að leggjast inn á Land-
spítalann í Fossvogi með þeim orð-
um að þú ætlaðir ekki að fara þaðan
út fyrr en eitthvað yrði gert í kvið-
verkjum þínum. Aldrei óraði mig þá
fyrir því að þú værir deyjandi. Lífið
getur verið svo óútreiknanlegt.
Á þessari stundu hugsa ég til
baka. Ég man hversu harðduglegur
þú varst í vinnu og vannst á öllum
tímum sólarhringsins. Þú varst ekki
mikið fyrir að kvarta og kveina. Ég
man þegar þú varst að horfa á mig
keppa í fótbolta á Hlíðarenda þegar
ég spilaði með yngri flokkunum hjá
Val. Ég man eftir þeirri rútínu á
sunnudögum þegar við fórum í bíltúr
og keyptur var ís. Oftast lá leiðin nið-
ur á höfn að skoða þar skipin. Ég
man hversu mikið þú hlóst þegar við
bræðurnir komum heim eftir að hafa
keypt okkar fyrsta bíl en það fyrsta
sem þú sást af honum var stuðarinn
einn og sér. Ég man eftir því þegar
ég flutti út til Danmerkur sem full-
orðinn maður ásamt konu minni og
syni og þú, mamma og Engilbert
bróðir minn og fjölskyldan hans
komu í heimsókn. Þú undir þér þar
svo vel og mér finnst sárt að hugsa til
þess að við getum ekki farið aftur til
útlanda saman. Ég man eftir þegar
við fórum saman að veiða í Hreða-
vatni og veiddum þar báðir nokkra
silunga. Það var frábær stund og við
vorum hvorugir til í að fara aftur í
bústaðinn sem þú leigðir í Svigna-
skarði þó að komið væri fram á nótt.
Þú hefur verið duglegur að vinna í
gegnum tíðina og það er sárt að
hugsa til þess að þú fáir ekki að njóta
þess að hætta að vinna eftir rúmt ár
og njóta lífsins enn frekar. Það er
svo margt sem við hefðum getað gert
saman. Krakkarnir mínir sakna þín
líka mikið og finnst skrítið að koma í
Mávahlíðina og þar sitji ekki afi og
fagni komu þeirra.
Þegar í ég hugsa um þig á þessari
stundu fyllist ég samt þakklæti fyrir
að hafa fengið þó þetta langan tíma
með þér, að þú t.d. fékkst að kynnast
konunni minni og sjá öll börnin mín
og njóta margra góðra stunda með
þeim. Þú fékkst líka að upplifa brúð-
kaup okkar Kollu á síðasta ári.
Ég veit líka að þú ert á góðum stað
með foreldrum þínum og ég veit að
þú munt vaka yfir mér og minni fjöl-
skyldu. Guð verði með þér, pabbi
minn. Ég kveð þig með þessum orð-
um:
Með þökk fyrir hafa átt þig að, /
minn faðir og minna barna afi. / Þú
hefur það gott á góðum stað / á því
leikur enginn vafi.
Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson.
Elsku besti pabbi minn. Ég get
varla trúað því að ég sitji hér og
skrifi til þín á þessum nótum. Það er
jafn fjarstæðukennt og óraunveru-
legt og síðustu vikur hafa verið. Þær
voru þér erfiðar en þú stóðst þig eins
og hetja í þessari baráttu og barst
þig alltaf vel.
Þegar ég hugsa stutt aftur í tím-
ann, t.d. þegar þú og mamma komuð
í mat til okkar á föstudaginn langa,
þá óraði mig ekki fyrir því að aðeins
rúmlega tveimur mánuðum síðar
yrðir þú að berjast fyrir lífi þínu á
spítala. Og svo til að gera þetta allt
saman ennþá undarlegra, kvaddir þú
á afmælisdaginn minn.
Hún er skrýtin þessi tilvera. Ég er
þess fullviss að núna líður þér vel og
þú ert líka búinn að hitta foreldra
þína. En ég get yljað mér við að rifja
upp allar góðu minningarnar. Á
sunnudögum fórum við stundum í
bíltúr og þá var keyptur ís og svo
keyrðir þú ósjaldan niður á höfn að
skoða skipin. Þú gast frætt okkur
mikið um þau, sem var eðlilegt í ljósi
þess að þú hefur unnið við málun og
annars konar viðhald á skipum í
slippnum í tæplega 40 ár.
Þú varst gríðarlega duglegur í
vinnu. Bæði í þinni atvinnu og ann-
arri sem þú tókst þér fyrir hendur.
Það eru ekki mörg ár síðan þú hjálp-
aðir mér að mála heima, þar sem þú
rúllaðir yfir hvert herbergið á fætur
öðru.
Ég er þakklátur fyrir ferðina sem
þú fórst í með okkur stórfjölskyld-
unni, sumarið 1999. Þá sýndir þú
okkur æskustöðvarnar þínar í Hörg-
árdal og þar er gamli bærinn Bás
sem þú ólst upp í.
Með þessum orðum kveð ég þig
með þakklæti og virðingu.
Ari Friðfinnsson.
Friðfinnur Annó
Björgvin Ágústsson
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 29
hópnum þurfti hann ekki annað en
birtast til að allt dytti í dúnalogn.
Aldrei verður þó fullþakkað að
þau Kristín tóku inn á heimilið Egg-
ert móðurbróður minn, síðustu fimm
árin af þeim hundrað sem hann lifði.
Hrafnkell reyndist óskiljanlega nat-
inn við Eggert og varð nánast eins
konar einkahjúkrunarmaður hans.
Síðustu vikurnar fékk Hrafnkell
að njóta sams konar hlýju fjölskyldu
sinnar og vina, og tók því sem að
höndum bar af æðruleysi. Guð veri
með honum og öllu hans fólki.
Hildur Bjarnadóttir.
Við Hrafnkell kynntumst í for-
skóla Austurbæjarskóla vorið 1943
áður en við settumst í 7 ára bekk
það haust. Þá voru engir leikskólar
til að herða feimnar og hlédrægar
sálir. Vinátta okkar varð fljótt svo
náin að við vorum saman flestum
stundum. Sumarið 1945 létust Sig-
urður, faðir Hrafnkels, frá fimm
börnum og móðir mín, Droplaug,
einnig frá fimm börnum. Áslaug,
móðir Hrafnkels, hélt sínu heimili af
frábærum dugnaði, fyrst að
Skeggjagötu og síðar Bólstaðarhlíð.
Heimili föður míns leystist hins veg-
ar upp og börnunum var komið í
fóstur hjá ættingjum, nema mér
sem varð áfram hjá föður okkar.
Það heimilishald varð þó fábrotið og
því laðaðist ég að heimili Hrafnkels
og varð þar heimagangur og nánast
fóstursonur Áslaugar allt til hausts-
ins 1948 að faðir minn kvæntist aft-
ur og stofnaði heimili að nýju. Ég
hef alla ævi staðið í mikilli þakk-
arskuld við Áslaugu og börn hennar
fyrir þá alúð og umhyggju sem ég
naut á heimili þeirra á þessum ár-
um. Samvera með Hrafnkatli, systk-
inum hans og frændgarði réð miklu
um þroska minn til frambúðar.
Eldri systkinin urðu okkur fyrir-
mynd í mörgu, einkum Örnólfur. Á
fyrstu árum í menntaskóla stóð
hann að útgáfu bekkjarblaðsins
Hauks með öðrum bekkjarfélögum.
Það varð okkur fyrirmynd að Mjölni
sem við gáfum út í 11 og 12 ára bekk
í félagi við Jón og Þór Jakobssyni,
en þeir áttu sína fyrirmynd í eldri
bróðurnum Jökli sem þá var orðinn
flinkur myndasöguhöfundur.
Ábyrgðarmaður blaðsins var Stefán
Jónsson kennari okkar en það var
fjölritað á vél stjórnarráðsins í skjóli
Birgis sjálfs. Hrafnkell var ómiss-
andi í þessu starfi, einstaklega
drátthagur, ritfær og hagmæltur.
Þetta gekk svo alla okkar skólatíð til
stúdentsprófs, Blysið í gagnfræða-
skóla, Plágan í 3. bekk MR, Blómi í
4. bekk og síðan Skólablaðið. Í hóp-
inn bættust drjúgir liðsmenn, Gylfi
Gröndal, Ólafur Jónsson, Dagur
Thoroddsen og Garðar Jökulsson.
Hrafnkell varð einn aðalteiknara
skreytinga vegna Jólagleði og
Faunu. Það kom því fáum á óvart að
hann skyldi fara í nám í arkitektúr
þegar leiðir okkar í skóla skildi vorið
1956.
Aðrir munu lýsa störfum Hrafn-
kels sem arkitekts. Þar lágu leiðir
okkar aðeins einu sinni saman þegar
hann var fenginn til að gera forsögn
að náttúruhúsi sem ætlað var að
hýsa náttúrugripasafn en vera jafn-
framt sýningar- og fræðsluhús fyrir
Reykjavíkurborg og Háskóla Ís-
lands. Hrafnkell leysti þennan
vanda af mikilli fagmennsku. Borgin
og Háskólinn vildu ráðast í bygg-
ingu en málið strandaði í ríkisstjórn
og svo stendur enn.
Við höfðum báðir kvænst skóla-
systrum úr menntaskóla og það gaf
tilefni til tíðra endurfunda. Þegar
skólafélagarnir höfðu skilað sér
heim að loknu háskólanámi erlendis
þótti réttur tími til að endurvekja
briddshóp frá skólaárunum og innan
hans hafa ræktast vináttu- og fjöl-
skyldutengsl við briddsfélagana og
eiginkonur þeirra í 40 ár.
Við Guðlaug þökkum áratuga vin-
áttu og sendum Kristínu og börnum,
aldraðri móður, systkinum og
frændgarði, dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Sveinbjörn Björnsson.
Fleiri minningargreinar
um Hrafnkel Thorlacius bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu á
næstu dögum.
Fleiri minningargreinar um Frið-
finn Annó Björgvin Ágústsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu á
næstu dögum.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LÁRA SIGFÚSDÓTTIR,
Skipagötu 8,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 24. júní.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 29. júní kl. 13.30.
Bjarni Konráðsson, Anna Bjarkan,
Helgi Konráðsson, Birna Ketilsdóttir,
Konráð S. Konráðsson, Guðbjörg Ófeigsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn
✝
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
JÓN P. ANDRÉSSON,
Klapparstíg 1a,
Reykjavík,
sem andaðist á Vífilstöðum 15. júní, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni, föstudaginn 29. júní
kl. 15.00.
Sveinsína Ásdís Jónsdóttir,
Kristrún Ólöf Jónsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir, Jónas Lúðvíksson,
Bryndís Jónsdóttir, Guðjón Einarsson,
Ólafur H. Jónsson, Guðrún Árnadóttir,
Jón Pétur Jónsson, Jónína Rútsdóttir,
Olga Björk Ómarsdóttir,
Sigurður Ingimar Ómarsson, Berglind Gísladóttir
og afabörn.
✝
Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð með nærveru sinni og hlýjum kveðjum við
andlát og útför minnar elskulegu móður, ömmu,
langömmu og systur okkar,
ÁSTU MARÍUSDÓTTUR,
Skúlagötu 76,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki
öldrunardeildar B4, Landspítala í Fossvogi fyrir
einstaka umönnun og einnig sérstakar þakkir til Gunnars Halldórssonar
fyrir einlæga vináttu og aðstoð.
Ingvar Már Pálsson,
Ásta Sigríður Ingvarsdóttir,
Shane Kristófer Mapes,
Elín Maríusdóttir, Ólafur Björn Guðmundsson,
Guðbjörg Lilja Maríusdóttir,
Jóhann Már Maríusson, Sigrún Gísladóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra mörgu sem sýndu
okkur samúð og heiðruðu með nærveru sinni,
blómum, krönsum og öðrum hlýjum kveðjum við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HELGU SIGRÍÐAR KRISTINSDÓTTUR
frá Miðtúni,
Melrakkasléttu.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks og heimilisfólks
að Hvammi - heimili aldraðra á Húsavík, fyrir
frábæra umönnun og glaðlegt og gott viðmót.
Þar leið móður okkar vel.
Maríus Jóhann Lund, Ásdís Karlsdóttir,
Kristinn Lund, Guðný Kristín Guttormsdóttir,
Níels Árni Lund, Kristjana Benediktsdóttir,
Benedikt Lund, Anna Vigdís Ólafsdóttir,
Sveinbjörn Lund, Jóhanna Hallsdóttir,
Grímur Þór Lund, Eva Nöregaard Larsen.
✝
Frændi okkar,
ÓLAFUR JÓHANNSSON,
Þangbakka 10,
áður til heimilis á
Leifsgötu 26,
lést fimmtudaginn 21. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Ólafsdóttir.