Morgunblaðið - 26.06.2007, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jóhanna KristínJónasdóttir
fæddist á Sauðár-
króki 22. maí 1932.
Hún andaðist á
heimili sínu í
Reykjavík 16. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Indíana Gísladóttir,
f. 6. desember 1904,
d. 14. ágúst 1990 og
Jónas Jóhannsson f.
12. janúar 1896, d.
10. maí 1982. Jónas
og Indíana stunduðu
búskap á Lýtingsstöðum í Lýtings-
staðahreppi og á Ytri- Kotum í
Norðurárdal í Akrahreppi í Skaga-
firði en fluttust síðan til Akureyrar
þar sem Jónas stundaði ýmis störf
en varð síðan bóksali og rak bóka-
verslun í bænum um árabil. Jó-
hanna var elst sex systkina. Systk-
ini hennar eru: 1) Jóhann Lárus
Jónasson, f. 12. júní 1934, maki
Margrét Ákadóttir, f. 1. febrúar
1938, d. 6. febrúar 2003, 2) Þórunn
Sólveig Ólafsdóttir, f. 13. október
1937, maki Gylfi Eldjárn Sigur-
linnason, f. 17. mars 1936, d. 7. jan-
úar 2006, 3) Stefán Jónasson, f. 11.
febrúar 1941, maki Rósa Gunn-
arsdóttir, f. 10. september 1940, 4)
Anna Guðrún Jónasdóttir, f. 2. des-
ember 1942, maki Bo Jonsson, f.
25. ágúst 1935, og 5) Rannveig
Jónasdóttir, f. 8. nóvember 1948.
Jóhanna giftist 28. nóvember
1952 Jóni Sveinbirni Arnþórssyni,
f. 3. nóvember 1931. Þau slitu sam-
vistum 1961. Börn þeirra eru: 1)
Guðbjörg, f. 26. júní 1953, maki
Ægir S. Guðlaugsson. Börn Guð-
bjargar eru Hrafn, Sölvi Snær,
Berglind Mjöll og Eydís Ögn. 2)
Elna Katrín Jónsdóttir, f. 21. októ-
ber 1954, maki Jón Ingi Eldon
og trúnaðarstörfum. Hún gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Fé-
lag ungra framsóknarmanna í
Kópavogi frá stofnun þess 1958 og
til ársins 1961, var m.a. í stjórn,
varaformaður og formaður um
skeið. Hún sat í undirbúningsnefnd
fyrir stofnun Meinatæknafélags Ís-
lands 1967 og var formaður félags-
ins 1974-79, var fulltrúi félagsins í
deildarstjórn meinatæknadeildar
Tækniskóla Íslands 1971-74 og var
fulltrúi í laganefndum MTÍ 1974,
1984 og 1988. Jóhanna var fulltrúi
félagsins á alþjóðamótum í Chi-
cago og Amsterdam 1982, ritari
Norðurlandasamtaka meinatækna
1982-83. Jóhanna var ritari stjórn-
ar Samtaka heilbrigðisstétta 1971-
75 og sat í laganefnd samtakanna
1988. Hún ritaði greinar m.a. um
félagsmál í Blað meinatækna frá
árinu 1971.
Jóhanna og Jón, fyrri eigin-
maður hennar voru samstúdentar
frá MA árið 1951. Þau bjuggu á
Akureyri, í New York og í Kópa-
vogi en árið 1961 slitu þau sam-
vistum og flutti þá Jóhanna með
börnin til Akureyrar og bjó þar og
starfaði sem meinatæknir við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
um nokkurra ára skeið. Jóhanna
bjó síðan lengst af í Reykjavík og
starfaði þar sem meinatæknir að
frátöldum náms- og starfsdvölum
erlendis. Hún starfaði lengst á
Landakotsspítala og var deildar-
meinatæknir þar og yfirmeina-
tæknir frá árinu 1988. Síðustu
starfsárin vann Jóhanna á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi í Foss-
vogi eftir að rekstri rannsókn-
arstofu á Landakotsspítala var
hætt. Jóhanna og Bjarni seinni
maður hennar bjuggu lengi á Ás-
vallagötu 46 en síðustu árin á
Laugavegi 132 í Reykjavík þar
sem Jóhanna bjó áfram með
Bjarna yngsta syni sínum eftir
andlát Bjarna Sumarliðasonar árið
2004.
Útför Jóhönnu verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Hannesson. Börn
Elnu eru Bernhard
Jónas og Kjartan
Þór. 3) Arnþór Jóns-
son, f. 9. ágúst 1958,
maki Nanna Baldurs-
dóttir 4) Jónas Jóns-
son, f. 9. desember
1959, maki Bryndís
Lárusdóttir. Sonur
Jónasar er Mads og
dóttir Jónasar og
Bryndísar er Aldís.
Jóhanna giftist 27.
desember 1969
Bjarna Sumarliða-
syni, f. 7. nóvember 1925, d. 15.
apríl 2004. Sonur þeirra er Bjarni,
f. 18. janúar 1977.
Jóhanna bjó fyrstu æviárin á
Ytri-Kotum í Skagafirði en fluttist
síðan með foreldrum sínum til
Akureyrar þar sem fjölskyldan bjó
lengst af í Lækjargötu 13 í inn-
bænum. Hún gekk í skóla á Akur-
eyri og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1951.
Hún stundaði síðan nám í meina-
tækni á rannsóknarstofum í
Reykjavík, á Landspítala, Landa-
kotsspítala og Rannsóknarstofu
próf. Jóns Steffensen undir hand-
leiðslu Bjarna Konráðssonar sér-
fræðings í lækningarannsóknum.
Námið var bæði verklegt og bók-
legt. Síðar sótti Jóhanna frekara
nám og aflaði sér starfsþjálfunar
erlendis bæði í Bandaríkjunum þar
sem hún starfaði á New York
Hospital, Cornell Medical Center
1953-54 og í Englandi þar sem hún
starfaði á St. Helier Hospital í
London 1967-68 en hafði áður ver-
ið í 3 mánaða námsdvöl við sama
sjúkrahús á vegum Rannsóknar-
stofu Borgarspítala (þá Heilsu-
verndarstöð) árið 1966.
Jóhanna tók virkan þátt í félags-
Andlát móður okkar, Jóhönnu Jón-
asdóttur, kom snöggt og óvænt. Hún
var nýbúin að halda upp á sjötíu og
fimm ára afmælið sitt með okkur á
Vesturgötunni hjá Elnu og var bara
býsna kát með það. En það er
skammt á milli lífs og dauða og eng-
inn veit hvenær kallið kemur.
Mamma átti erilsamt og viðburðaríkt
líf, hafði fyrir allstóru heimili að sjá
og sinnti ábyrgðarmiklu starfi sem
meinatæknir eða lífendafræðingur
eins og það heitir í dag.
Mamma var tvígift og eignaðist
fjögur börn með fyrri manni sínum en
einn son með seinni manni sínum.
Mamma bjó fyrstu æviárin á Ytri-
Kotum í Skagafirði og átti fyrstu
bernskuminningarnar úr baðstofunni
þar. Hún dvaldi í New York við nám
og störf 1953-1955 og hlýtur það að
hafa verið sem annar heimur fyrir
unga konu ofan af Íslandi. Guðbjörg,
elsta barnið, var þá fædd, og dvaldi í
umsjá föðurforeldranna Guðbjargar
og Arnþórs, en næstelsta barnið,
Elna, fæddist ytra. Eftir heimkom-
una dvaldi mamma um hríð á Akur-
eyri en síðan fluttust hjónin til
Reykjavíkur og bjuggu á Ásvallagötu
10A en síðar í Kópavogi þar sem Arn-
þór og Jónas bættust í hópinn.
Við systurnar eigum minningar allt
aftur til frumbýlingsáranna í Kópa-
vogi. Síðan tóku við árin á Akureyri
þar sem mamma var fyrst ein með
okkur fjögur börnin ung en fjölskyld-
an hafði mikinn stuðning af Indu
ömmu, Jónasi afa og móðursystkin-
um okkar. Við bjuggum öll á Brekku-
götu 4 og 6. Afi og amma á Bjarma-
stíg 11 voru ekki langt undan né
heldur föðursystkini okkar. Stoð og
stytta og góður vinur mömmu og okk-
ar krakkanna var þá og alla tíð Dóra á
Krabbastígnum og foreldrar hennar
voru okkur sem afi og amma.
Mamma bjó frá 1964 í Reykjavík en
nam og starfaði í London á árunum
1966-1968. Mamma og Bjarni, seinni
maður hennar, eignuðust soninn
Bjarna árið 1977, hann bjó með for-
eldrum sínum uns yfir lauk en Bjarni
faðir hans lést árið 2004.
Heim komin vann mamma lengst
af sem meinatæknir á rannsóknar-
stofu Landakotsspítala sem Jóhann
Lárus bróðir hennar rak um árabil og
tók hún þar þátt í að byggja upp
blómlegt starf. Hún var frumkvöðull
sem hafði einlægan og lifandi áhuga á
fagi sínu og starfi, kom að stofnun
Meinatæknafélags Íslands og hafði
áhrif á mótun náms í meinatækni.
Hún var vakandi yfir nýjungum og
reiðubúin að tileinka sér nýja þekk-
ingu. Meðal lífeindafræðinga er talað
um ,,Jóhönnukristalla“ í höfuðið á
mömmu en hún uppgötvaði þá fyrst
allra hér á landi árið 1983 og kom
ásamt Þresti Laxdal barnalækni því
til leiðar að sýni voru send til grein-
ingar og greindur arfgengur hættu-
legur sjúkdómur, sem eftir það mátti
meðhöndla.
Mamma var afburðanámsmaður,
las mikið og allt lék í höndum hennar
sem sneri að því að hanna, sníða og
sauma föt. Mamma var dálítil pjatt-
rófa og hafði gaman af því að klæðast
fallegum fötum og skóm. Hún var
ákveðin og sjálfstæð kona, úrræða-
góð, fylgin sér, frekar stórlynd en
raungóð.
Við kveðjum mömmu okkar í dag
og minning hennar lifir með okkur
hverju um sig.
Elna, Guðbjörg, Bjarni,
Jónas og Arnþór.
Elsku mamma. Þú ert farin frá
okkur svo skyndilega og ég sakna þín
strax svo mikið, þú hafðir svo mikla
orku og sjálfstraust, þú vissir svo
margt og fylgdist svo vel með öllu.
Þú hafðir þín vandamál eins og aðr-
ir, en andlegur styrkur þinn fleytti
Jóhanna Kristín
Jónasdóttir
30-50% afsláttur
af granít legsteinum
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar bróður okkar,
GÍSLA GUÐJÓNSSONAR
frá Hrygg.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Guðjónsdóttir,
Þorbjörg Guðjónsdóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
NJÁLS HALLDÓRSSONAR,
Vik,
Bakkafirði.
Guðrún M. Árnadóttir,
Reynir Njálsson, Sigþrúður Rögnvaldsdóttir,
Halldór Njálsson, Brynhildur Óladóttir,
Hilma Hrönn Njálsdóttir, Áki Guðmundsson,
Árni Bragi Njálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
SVANHILDAR MARÍU JÚLÍUSDÓTTUR,
áður til heimilis á
Kirkjuteigi 17,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar,
Kópavogi.
Bolli A. Ólafsson,
Hildur Bolladóttir, Ófeigur Björnsson,
Gunnar Bollason, Svala Ágústsdóttir,
Gunnar Svanberg,
barnabörn og barnabarnabörn
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SVANHVÍTAR INGVARSDÓTTUR,
Syðri-Leikskálaá.
Ingibjörg Jónasdóttir, Haukur Gunnlaugsson,
Sigurrós Jónasdóttir, Óskar Gunnlaugsson,
Þórólfur Jónasson, Esther Gísladóttir,
Sveinn Valdimar Jónasson,
barnabörn, makar og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, bróður, afa og langafa,
EINARS HALLDÓRSSONAR
frá Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Hrafnistu,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-3 á
Hrafnistu, fyrir góða umönnun.
Sigrún Bjarnadóttir,
Þórunn Einarsdóttir, Richard Kelley,
Halldór Einarsson, Esther Magnúsdóttir,
Elín Einarsdóttir, Jón Gunnlaugsson,
Ingibjörg Einarsdóttir,
Birna Einarsdóttir, Guðmundur Helgi Þorsteinsson,
Súsanna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Sendum
myndalista