Morgunblaðið - 26.06.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8-16 smíði/
útskurður, kl. 9 leikfimi, kl. 9.45 boccia.
Dalbraut 18-20 | Félagsvist alla þriðjudaga í
sumar frá kl. 14 í félagsmiðstöðinni á Dalbraut
18-20. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd |
Þriggja daga Vestmannaeyjaferð 2.-4. júlí. Skrán-
ingarlistar og nánari ferðalýsing í Gullsmára og
Gjábakka. Gist á Hótel Þórshamri. Boðið upp á
skoðunarferðir um Heimaey og á sjó umhverfis
Heimaey. Brottför frá Gullsmára kl. 10 og Gjá-
bakka kl. 10.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur með far-
astjóra vegna Austfjarðaferðar á morgun, mið-
vikudag 27. júní, kl. 14. Dagsferð í Land-
mannalaugar 7. júlí. Skráning hafin, uppl. í s.
588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin
og heitt á könnunni til kl. 16. Hádegisverður kl.
11.40. Ganga kl. 14. Í Gjábakka getur þú kíkt í
blöðin, tekið í spil eða bara spjallað við náung-
ann.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 myndlist
og ganga, kl. 11.40 hádegisverður. Félagsheimilið
er opið frá kl. 9-15 alla virka daga í sumar, nema
miðvikudaga, þá til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergs | Opið kl. 9-16.30, m.a.
perlusaumur fyrir hádegi. Kl. 10.30 létt ganga um
nágrennið. Kl. 13 hefst leiðsögn á púttvelli við
Breiðholtslaug, umsj. Vinnuskóli Reykjavíkur, að-
staða, kylfur, kúlur og leiðsögn að kostnaðar-
lausu. Allir velkomnir. Strætisvagnar S4, 12 og 17.
S. 575-7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, opin
vinnustofa. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur. Kl. 10
boccia (Bergþór). Kl. 11 leikfimi (Bergþór). Kl. 12
hádegismatur. Kl. 12.15 verslunarferð (Bónus). Kl.
13 pútt (Bergþór). Kl. 14 kubb (Bergþór). Kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11 Björg F. Böðun
fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Helgistund
kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Fóta-
aðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Gönguferðir, heitur kaffisopi á
morgnana, pútt, félagsvist. Listasmiðjan opin.
Tölvusveitin hittist reglulega, hádegismatur, síð-
degiskaffi, bridshópur, fótaaðgerðarstofa, hár-
greiðslustofa. Upplýsingar í s. 568-3132, asdis-
.skuladottir@reykjavik.is.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og
bókastofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Sum-
arferðin á fimmtudaginn, munið að skrá ykkur í s.
552-4161. Hárgreiðslustofa s. 552-2488. Fótaað-
gerðastofa s. 552-7522. Dagblöðin liggja frammi.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaað-
gerðir. Kl. 9-15.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45
hádegisverður. Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarstofur opnar frá kl. 9, handa-
vinnustofan opin allan daginn, félagsvist kl. 14.
Allir velkomnir óháð aldri. Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera.
Kl. 12 bónusbíllinn. Kl. 16.45 bókabílinn.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni. Kvöldbænir kl. 20. Verið velkomin.
Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30.
Beðið er fyrir bænarefnum sem berast kirkjunni
sem og hverjum þeim bænarefnum sem liggja á
hjörtum fólks. Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta alla
þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
KFUM og KFUK | Í sumar verða samfélags- og
bænastundir á þriðjudögum kl. 20 á Holtavegi
20. Beðið verður sérstaklega fyrir sumarstarfi
félagsins vítt og breitt um landið, ásamt öðrum
bænaefnum sem berast. Verið öll velkomin.
Vídalínskirkja Garðasókn | Í dag, þriðjudag, fer
opið hús Vídalínskirkju í vettvangsferð á Byggð-
arsafn Akraness. Lagt af stað kl. 13 frá Vídalíns-
kirkju, áætluð heimkoma kl. 17. Upplýsingar í
síma 895-0169.
70ára. Í dag, 26. júní, erBirna Axelsdóttir frá
Hellissandi, Jötunsölum 2,
Kópavogi, sjötug. Hún verður
að heiman á afmælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morg-unblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni".
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 26. júní, 177. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn.
(II Sam. 4, 1.-2.)
Hópurinn Ungt fólk með ung-ana sína og ungar bumburhefur starfað um nokkurraára skeið á vegum Hins
hússins og kemur saman hvern mið-
vikudag. Harpa Guðmundsdóttir stýrir
hópnum: „Hópurinn er ætlaður for-
eldrum á aldrinum 15 til 25 ára, bæði
þeim sem eignast hafa barn og þeim
sem eiga von á barni,“ segir Harpa. „Við
hittumst og ræðum saman, miðlum
reynslu og þekkingu. Þetta er líka vett-
vangur fyrir fræðslu um börn og upp-
eldishlutverkið, en við fáum reglulega
til okkar aðila úr ýmsum áttum sem t.d.
kenna okkur ungbarnanudd og skyndi-
hjálp ungbarna, allt eftir óskum foreldr-
anna.“
Aðrar spurningar og þarfir
Harpa segir töluverða þörf fyrir þá
þjónustu sem hópurinn veitir: „Þetta er
sérstakur hópur, og á þeim sem í honum
eru brenna aðrar spurningar en á eldri
foreldrum sem jafnvel eru að eignast
sitt annað eða þriðja barn,“ segir hún.
„Eins og við er að búast kemur fólk og
fer úr hópnum, en þó myndast iðulega
góður og hæfilega stór hópur. Hópurinn
kemur saman á miðvikudögum milli kl.
14 og 16 í Hinu húsinu í Pósthússtræti.“
Harpa segir jafnt ungar mæður sem
unga feður ganga í hópinn: „Við leggj-
um líka áherslu á að verðandi foreldrar
séu ófeimnir að koma til okkar. Hópur-
inn er opinn og er allt starf á hans veg-
um ókeypis,“ segir hún og bætir við að
hægt sé að fá upplýsingar á heimasíðu
Hins hússins um komandi viðburði á
vegum hópsins.
„Næstu þrjá miðvikudaga ætlum við
að bregða út af vananum og hittast í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Um
er að ræða samstarfsverkefni Hins
hússins og Fjölskyldu- og húsdýra-
garðsins, en nánari upplýsingar er hægt
að finna á www.hitthusid.is,“ segir
Harpa að lokum.
Hitt húsið var opnað árið 1991 sem
hluti af starfi íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur. Þar er boðið upp á tóm-
stundaaðstöðu, ráðgjöf, fræðslu, stuðn-
ing og margskonar menningarstarf fyr-
ir ungt fólk.
Fjölskylda | Félagsskapur fyrir unga foreldra og verðandi mæður
Ungt fólk með ungana sína
Harpa Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1969. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MH 1989, stundaði
hjúkrunarnám við
HÍ, lauk nuddnámi
í Danmörku og
hlaut meistarabréf
frá Nuddfélagi Íslands. Hún lauk námi
í Alexandertækni í Lundúnum 1999.
Harpa rak nuddstofu í tvö ár, en hefur
frá árinu 2001 starfrækt ásamt fleir-
um Heilsumiðstöðina Heilsuhvol. Hún
hefur stýrt hópnum Ungt fólk með
ungana sína og ungar bumbur frá
2005. Harpa er gift Karli Petersson
ljósmyndara og eiga þau dótturina
Heru Katrínu.
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Túngötu 7, Reykjavík.
Fundir fyrir aðstandendur fólks
með geðraskanir eru haldnir alla
þriðjudaga kl. 18-19.30. Aðstand-
endur eru hvattir til að mæta.
Hugleiðslu- og friðarmiðstöðin |
Grensásvegi 8, 4. hæð, suðurhlið.
Í dag kl. 20 heldur Dagmar Vala
Hjörleifsdóttir hugleiðslukennari
fyrirlesturinn Hugleiðsla og ham-
ingja (the 4th noble truth). Fyrir-
lesturinn er ókeypis og öllum op-
inn. Frjáls framlög. Opin hug-
leiðsla alla miðvikudaga kl. 20.
Útivist og íþróttir
Viðey | Í kvöld mun Örvar B.
Eiríksson sagnfræðingur fjalla
um þorp Milljónafélagsins í Viðey
sem stóð frá 1907-1943. Fjöldi
íbúðar- og fiskverkunarhúsa reis í
þorpinu. Þar bjuggu mest um 140
manns og var höfnin ein sú um-
svifamesta á landinu. Gangan
hefst í Sundahöfn kl. 19.15 og er
ókeypis utan ferjutolls.
ÞESSIR tveir kettir eru á meðal þeirra 660 sem leita hælis í
athvörfum fyrir munaðarlaus dýr í Berlín.
Að sögn sérfróðra eru öll athvörf af þessu tagi yfirfull í
Berlín og ekkert lát virðist vera á flæði munaðarlausa hús-
dýra út á götur borgarinnar. Óttast er að ástandið eigi eftir
að versna þegar líða tekur á sumarið en það er staðreynd
að margir losa sig við gæludýrin sín þegar haldið er í
sumarfrí.
Kettir í búri
Reuters
FJÖRUTÍU ár voru liðin frá lokum
Surtseyjargossins fyrir skömmu. Af
því tilefni var undirritaður samn-
ingur milli Toyota á Íslandi og
Náttúrufræðistofnunar Íslands um
stuðning við rannsóknir í Surtsey.
Samningurinn kveður á um að
Toyota styrki árlegar vöktunar-
ferðir Náttúrufræðistofnunar til
Surtseyjar næstu þrjú árin.
Surtsey hefur verið vöktuð síðan
gosinu lauk. Jarðvísindamenn hafa
einkum fylgst með kólnun eyjar-
innar, móbergsmyndun, sjávarrofi
og landmótun. Líffræðingar hafa
farið til Surtseyjar um miðjan júlí
ár hvert og leitað að nýjum teg-
undum plantna, smádýra og fugla.
Þeir hafa fyglst náið með þróun líf-
ríkisins sem hefur tekið miklum
stakkaskiptum á síðustu árum eftir
að þétt mávabyggð tók að myndast
í eynni. Á hverju ári finnast þar nýj-
ar tegundir og lífríkið verður fjöl-
breyttara. Allar líkur eru á að sú
þróun haldist áfram næstu áratug-
ina og að lífríki Surtseyjar taki á
sig svipaða mynd og í öðrum út-
eyjum Vestmannaeyja. Árið 2004
verpti lundi, einkennisfugl eyjanna,
í fyrsta sinn í Surtsey og fylgjast
vísindamenn vel með því hvernig
honum gengur að ná þar fótfestu.
Rannsóknir í
Surtsey styrkt-
ar af Toyota
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Ís-
lands lýsa eindregnum stuðningi
við fyrri skipulagstillögu hrepps-
nefndar Flóahrepps sem samþykkt
var á fundi hennar 13. júní síðast-
liðinn. Ekki er gert ráð fyrir Urr-
iðafossvirkjun í samkvæmt þeirri
tillögu. Niðurstaða hreppsnefndar-
innar er mikilvæg fyrir verndun
Þjórsár og Flóamönnum til sóma,
segir í ályktun frá samtökunum.
Samtökin harma hinsvegar að til-
lögurnar skuli hafa orðið tvær eftir
að heimsókn Landsvirkjunar í Fló-
ann tveimur dögum seinna.
Náttúruverndarsamtökin telja
óeðlilegt að Landsvirkjun beiti
sveitarstjórnir þrýstingi í skipu-
lagsmálum, meðal annars með
gylliboðum um almannafram-
kvæmdir á svæðinu.
Stuðningur
við fyrri skipu-
lagstillögu
Flóahrepps
ALÞJÓÐLEGT og norrænt vísinda-
þing um mænuskaða verður haldið
á hótel Nordica dagana 27. til 30.
júní. Í fréttatilkynningu segir að á
ráðstefnunni verði kynntar niður-
stöður u.þ.b. 200 rannsókna í erind-
um og á veggspjöldum. Sjónum
verði beint sérstaklega að mögu-
leikum raförvunar til að bæta færni
lamaðra vöðva, m.a. í höndum, fót-
um og þind, og rætt um gæði og
stöðu rannsókna m.t.t. endurgerðar
mænu. Forvarnir, aðlögun og
heilsuefling fá ítarlega umfjöllun
ásamt greiningu og meðferð alvar-
legra fylgikvilla. Af Íslands hálfu
verður m.a. fjallað um forvarnir
m.t.t. umferðarslysa og hesta-
mennsku. Ráðstefnugestir verða
um 600 talsins frá fimm heims-
álfum.
Miðvikudaginn 27. júní kl. 13
verður málþing um gildi hreyfingar
sem heilsuefling fyrir fatlaða. Mál-
þingið er öllum opið og kostar 2.700
kr.
Nánari upplýsingar, dagskrá og
skráning eru aðgengileg á
www.sci-reykjavik2007.org. Einnig
verður mögulegt að skrá sig á
staðnum.
Möguleikar
raförvunar til
að bæta færni
lamaðra vöðva
FRÉTTIR