Morgunblaðið - 26.06.2007, Page 35

Morgunblaðið - 26.06.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 35 Krossgáta Lárétt | 1 smjaður, 8 miðla málum, 9 baul, 10 nægilegt, 11 mólendið, 13 gljái, 15 kjána, 18 korn, 21 guð, 22 ósveigjanlega, 23 hlíf- ir, 24 heilluð. Lóðrétt | 2 standa gegn, 3 húsdýrið, 4 skarp- skyggn, 5 ljúka, 6 fiskum, 7 jurt, 12 eyktamark, 14 meis, 15 eru föl, 16 kvenmannsnafns, 17 vinna, 18 angi, 19 málmi, 20 líffæri. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 felds, 4 forði, 7 öflum, 8 læðan, 9 díl, 11 drag, 13 ærin, 14 áburð, 15 sumt, 17 aska, 20 fas, 22 ertur, 23 klökk, 24 lúrir, 25 pokar. Lóðrétt: 1 fjöld, 2 lalla, 3 sæmd, 4 féll, 5 róður, 6 innan, 10 íhuga, 12 gát, 13 æða, 15 svell, 16 mítur, 18 skökk, 19 askur, 20 frár, 21 skip. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú þarfnast mikils öryggis þessa dagana, og ert að gera eitthvað jákvætt í því. Kannski þú sannfærir þig um að vinir þínir séu sannir. Aðrir elska að finna að þú þarfnist þeirra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Til þess að hafa áhrif á heiminn þarf að vera opinn fyrir öllum möguleikum, ekki bara þeim augljósu. Hittu vin sem alltaf fær klikkuðustu hugmyndirnar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Treystu á innsæið. Það segir þér hvaða samninga á að samþykkja, leggur þér rétt orð í munn eða finnur leið til að eiga við viðskotaillan starfsfélaga. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Ást á sjálfum sér er ein flóknasta lexían sem lögð er fyrir okkur. Elskaðu sjálfan þig nógu mikið til að fá alltaf það sem þú átt rétt á og skilið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Frægð er alltaf að hluta til uppspuni og að hluta til sannleikur. Þú ræður við það og svo hefurðu persónuleikann í aðal- hlutverkið. Fólk fílar þig! (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Tvær manneskjur sem þú elskar þola ekki að vera nálægt hvor annarri. Og þú ert fastur á milli tveggja elda. Bíddu nú við! Kannski geturðu alveg gengið í burtu? (23. sept. - 22. okt.)  Vog Taktu við því sem aðrir eru svo góðir að gefa þér. Vertu svo elskulegur að ekki mæla og reikna út fyrirhöfn miðað við ár- angur. Það er dónalegt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Augu þín munu opnast í dag. Frá þínum sjónarhóli virðist úlfakreppa nokkur óleysanleg. En með réttan mann þér við hlið skilur þú betur og þroskast mikið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Allt í einu viltu losa þig við allt aukadót í lífi þínu. Taktu til í ísskápnum. Eyddu óþörfu símanúmerum úr síman- um. Komdu þér á réttan kjöl í veröldinni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Á meðan þú óskar þess að vera ekki þar sem þú ert eyðirðu tímanum í óþarfa. Þú ræður hvernig þú eyðir lúx- usvörunni tímanum. Ekki láta hann fram hjá þér fara. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Óþægilegar kringumstæður fá þig – alla vega innan í þér – til að hoppa af reiði. Reiði er mjög hvetjandi. Svona verða margar góðar uppfinningar til. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Skapandi hæfileikar þínir eru litlir í sér og viðkvæmir og vita ekki hvar þeir eiga best heima. Komdu þeim því á fram- færi. Byrjaðu á skrifblokk og penna. stjörnuspá Holiday Mathis 1. e4 e5 2. Rf3 d6 3. Bc4 h6 4. Rc3 Rc6 5. 0–0 Bg4 6. d3 Rd4 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Myzliborz í Póllandi. Vilhjálmur Pálmason (1.892) hafði hvítt gegn Ryszard Wlo- dawski. 7. Rxe5! Bxd1?? 8. Bxf7+ og svartur gafst upp enda mát eftir 8. … Ke7 9. Rd5#. Vilhjálmur fékk helming vinn- inga á mótinu eins og flestir félaga hans í Laugalækjarskóla. Þeir sitja nú að tafli í Búlgaríu á Evrópu- meistaramóti grunnskólasveita ásamt liði grunnskóla Vestmanna- eyja. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. EM í Tyrklandi. Norður ♠KD65 ♥ÁDG106 ♦97 ♣94 Vestur Austur ♠8732 ♠G109 ♥K532 ♥9874 ♦G5 ♦106 ♣ÁG2 ♣D1053 Suður ♠Á4 ♥– ÁKD8432 ♣K876 Suður spilar 6♦. Þessa dagana stendur yfir umfangs- mikil bridshátíð í Antalya í Tyrklandi. Mótshaldari er Bridssamband Evrópu, en þátttaka er öllum opin og er keppt í fjölmörgum greinum og flokkum. Spil dagsins kom upp í parasveitakeppn- inni (mixed teams). Báðir sagnhafar í leik Norðmanna og Frakka enduðu í tígulslemmu: sá norski fékk samninginn á silfurfati með hjartaútspili, en franska konan Bessis þurfti að glíma við trompútspil frá Tor Helness. Hún tók sex slagi á tromp og Tor hélt í áttuna fjórðu í spaða, Kx í hjarta og blankan laufás. Nú má vinna slemmuna með því að spila laufi í bláinn (og fella ásinn), eða taka einfaldlega síðasta trompið og þvinga vestur í þremur litum. En Bessis rataði ekki réttu leiðina – treysti á laufás í austur og fór einn nið- ur. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Hvað heitir hverinn í Haukadal sem ungur ferðamað-ur varð fyrir skvettu úr og brenndist? 2 Tveir af vinsælustu dægurlagasöngvurum landsinsvoru að taka upp lag saman í fyrsta sinn? Hverjir? 3 Af hvaða tengund var flottasti hundur hundasýning-arinnar um helgina? 4 Hver var verndari Alþjóðaleika ungmenna sem laukum helgina? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Hver er þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu? Svar: Sig- urður Ragnar Eyjólfsson. 2. Hvaða varningur var í boði á útsölu í Kringlunni fyrir helgi þar sem lá við handalögmálum? Svar: Saumavélar. 3. Sian Pearce hætti á dögunum störfum sem kór- stýra karlakórs í Wales. Hvaða ástæðu gaf hún? Svar: Karlrembu. 4. Hvar gekk sæhesturinn á land sem kom syndandi af hafi og sagt var frá á föstudaginn? Svar: Í Straumfirði á Mýrum. Spurter… ritstjorn@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR Rangt feðraður Í Morgunblaðinu 25. júní á bls. 8, þar sem sagt var frá minningarathöfninni við Látrabjarg, var presturinn sem fór með blessunarorðin rangt feðr- aður, hann heitir Sveinn Valgeirsson. LEIÐRÉTT SNARFARI, félag sportbátaeig- enda, og R. Sigmundsson ehf. hafa tekið höndum saman og munu halda sportbátakeppni undir heitinu Brautarkeppni R. Sigmundssonar á Rauðarárvík sem liggur meðfram Sæbrautinni næstkomandi laugar- dag, 30. júní, kl. 14. Í fréttatilkynningu segir að 3–4 bátar verði í brautinni í einu, en hún er um 4,5 km löng. Rásmark er út af Kringlumýrarbrautinni og er siglt að bauju sem sett hefur verið út af Laugarnestanga. Þar er tekin vinstri U-beygja að annarri bauju, sem tekin er hægri beygja við og stefnan tekin á hafnarmynni Reykjavíkurhafnar. Þar er tekin kröpp vinstri beygja við bauju og siglt í átt að Sólfarinu og þaðan fylgja keppendur ströndinni (Sæ- brautinni) að rásmarki. Sport Snarfari, félag sportbátaeigenda og R. Sigmundsson ehf. hafa tekið höndum saman og munu halda keppni undir heitinu Brautarkeppni. Sportbátakeppni haldin meðfram Sæbrautinni SAMSKIP hafa óskað eftir að fá birt eftirfarandi athugasemd. „Í fréttum Stöðvar 2 að kvöldi 24. júní var fjallað um flutninga á líkum hér innanlands. Framsetning máls- ins var með þeim hætti að skapað gæti tortryggni og jafnvel sársauka hjá þeim sem málið varðar. Af því til- efni skal eftirfarandi tekið fram: 1. Landflutningar-Samskip hafa um árabil veitt aðstandendum og út- fararstofum þá þjónustu að flytja lík milli landshluta. Það mun fyr- irtækið gera áfram og fylgja ná- kvæmlega öllum reglum þar að lútandi, hér eftir sem hingað til. 2. Engar athugasemdir hafa verið gerðar að hálfu opinberra aðila um framkvæmd líkflutninga á vegum fyrirtækisins. Starfsemi Landflutninga er gæðavottuð og tekin út reglulega í samræmi við það. 3. Landflutningar kosta kapps um að standa þannig að líkflutningi að sýnd sé tilheyrandi nærgætni og virðing gagnvart minningu hinna látnu og aðstandendum þeirra.“ Sýna nærgætni LANDHELGISGÆSLAN vísaði færeyskum fiskibáti til hafnar í Þorlákshöfn um helgina þar sem rannsakað var meint brot skipstjór- ans gegn íslenskri fiskveiðilöggjöf. Var skipstjórinn grunaður um að hafa veitt ólöglega á lokuðu svæði á Kötlugrunni. Fulltrúar Landhelgis- gæslunnar og Lögreglustjórans á Selfossi fóru um borð í bátinn að morgni laugardags til rannsóknar og skipstjórinn kom síðan ásamt lögmanni sínum á lögreglustöðina á Selfossi til yfirheyrslu. Skipstjórinn var látinn leggja fram tryggingu fyrir andvirði aflans og hugsan- legri sekt. Grunur um brot í landhelgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.