Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 38
Á einu af kaffihúsum borg-arinnar rakst ég á útgáfuaf tímaritinu Stíl frá síð- asta ári og fletti þar upp á ágætis viðtali við Hlaðgerði Írisi Björns- dóttur. Hlaðgerður þessi er list- málari sem málar í ljósmynda- eða ofurraunsæisstíl og vakti það sérstaka athygli mína þegar hún gaf í skyn um mitt viðtalið að slík raunsæismálverk væru tabú. Rifj- aðist þá upp fyrir mér samskonar yfirlýsing Þuríðar Sigurðar- dóttur, sem einnig málar í raunsæisstíl, í viðtali ekki löngu áður. Nú hafa ekki margir lista- menn útskrifast frá LHÍ síðast- liðin 5-6 ár sem einbeita sér markvisst að málverki og ef eitt- hvað er þá er raunsæismálverk nokkuð áberandi þeirra á meðal. Fyrir utan Hlaðgerði og Þuríði hefur Aron Reyr, eiginmaður Hlaðgerðar, fengist við þess hátt- ar málverk og síðast er ég vissi notaði Markús Örn Antonsson ljósmynda- eða ofurraunsæi út frá forsendum rýmis. Ef ég rifja síð- an upp listamenn sem hafa sinnt málverkinu í enn lengri tíma þá málar Þorri Hringsson í þessum raunsæisstíl, margar vatnamyndir Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar mætti flokka sem ljósmynda- eða ofurraunsæi sem og frásagna- myndir Kristins G. Harðarsonar og vissulega má hengja þessa skilgreiningu utan á skugga- myndir Sigurðar Árna Sigurðs- sonar. Af hverju ætli þetta sé þá tabú?    Ljósmyndaraunsæi (Photoreal-ism) var fyrst skilgreint sem liststefna af Louis K. Meisel árið 1970 með bandaríska listamenn á borð við Richard Estes, Chuck Close og Don Eddy í broddi fylk- ingar, en þeir höfðu um árabil málað af nákvæmni eftir ljós- myndum þannig að strúktúr og yfirborð voru í forgrunni í stað áferðar eða efniskenndar. Þess má geta að á sama tíma voru list- málarar frá Evrópu eins og Mal- colm Morley (Bretland), Franz Gertsch (Þýskaland), Gerhard Richter (Þýskaland) og Vija Celmins (Lettland/Bandaríkin) að fást við álíka hluti. Algeng mótíf ljósmyndaraunsæis eru: Fólk við hversdagslegar aðstæður, húsa- og götumyndir, landslag ásamt einhverju manngerðu, hlutir og landslag í nærmynd og yfirborð hluta eða fyrirbæra (s.s. krumpur í klæðum, gárur á vatni o.s.frv.). Póstmódernisminn hleypti svo af stað annarri bylgju af ljós- myndaraunsæi á tíunda áratugn- um með listamönnum eins og Bertrand Meniel (Frakkland), Roberto Bernardi (Ítalía) og Raphaellu Spence (Bretland/ Ítalía) í fararbroddi og var þá sérstaklega áberandi í Evrópu. Nú á 21. öldinni, eftir að tölvu- tæknin bættist við sem hjálp- arhella við nákvæmnisvinnu, er heill hellingur af listamönnum sem vinna á þessum nótum, oft undir formerkjum ofurraunsæis (hyperealism/superrealism), sem er í grunninn það sama og ljós- myndaraunsæi. Þekktir ofur- raunsæislistamenn eru til að mynda Jacques Bodin (Frakk- land), Karin Kneffel (Þýskaland), Lisa Milroy (Bretland) og mynd- höggvarinn Ron Mueck (Bret- land).    Ljósmyndaraunsæi var stimpl-að tabú um leið og það kom fram á sjónarsviðið í Bandaríkj- unum því margur tók málverkinu illa eftir áratuga yfirráð ab- strakt-expressjónismans. Mál- verkin þóttu kaldræn samanborið við það sem á undan var gengið og fjarlæg raunveruleikanum þótt þau sýndu nákvæma eftir- mynd af honum. Þ.e. þessi vinnu- aðferð gefur ekki áþreifanlega mynd af umhverfinu sökum þess að listmálararnir eru að líkja eft- ir ljósmyndum. Þeir mála mynd af mynd af umhverfi. Ég get vel ímyndað mér að Hringur Jóhannesson, sem er Ís- lendingum kunnastur fyrir slíkt raunsæi, hafi upplifað það tabú, enda stóð listamaðurinn utan við þær tvær meginstefnur sem réðu á Íslandi á hans tíma, þ.e. konk- retmálverkið og lýrísku hug- myndalistina. Í dag virðist tabúisminn aftur á móti hafa fest við ljósmyndaraun- sæið, annars vegar sem goðsögn og hins vegar sem varnagli. Þess vegna er mér mikil ánægja að lýsa yfir að ljósmynda- og ofur- raunsæi er allt annað en tabú. Og ef eitthvað er, þá er það í bull- andi tísku. Þetta með ljósmyndaraunsæið » Þess vegna er mérmikil ánægja að lýsa yfir að ljósmynda- og ofurraunsæi er allt annað en tabú. Og ef eitthvað er, þá er það í bullandi tísku. Sjórinn Þetta raunsæismálverk frá árinu 1977 eftir lettnesku listakonuna Viju Celmins sýnir yfirborð hafsins í svarthvítu. ransu@mbl.is AF LISTUM Jón B.K. Ransu Raunsæi Estes er meðal allra færustu raunsæismálara. Verkið Central Savings er borgarmynd eins og hún birtist þegar maður horfir á rúðu. 38 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Premonition kl. 8 - 10 B.i. 12 ára Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10 The Last Mimzy kl. 6 Premonition kl. 5.45 - 8 - 10.15 B.i. 12 ára Fantastic Four 2 kl. 6 - 8.20 - 10.30 The Hoax kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 12 ára 28 Weeks Later kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára Shrek 3 m. ensku tali kl. 3 - 5 - 7 - 9.10 - 11.10 Shrek 3 m. ensku tali kl. 3 - 5 - 7 - 9.10 - 11.10 LÚXUS Shrek 3 m. ísl. tali kl. 3 - 5 - 7 - 9.10 - 11.10 Fantastic Four 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 Hostel 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 18 ára The Last Mimzy kl. 3 Spider-Man 3 kl. 5 B.i. 10 ára - Kauptu bíómiðann á netinu Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * “...besta sumar- afþreyingin til þessa.” eee MBL - SV SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SANDRA BULLOCK MARTRÖÐ EÐA RAUNVERULEIKI? eee Ó.H.T - Rás 2eeee L.I.B. - Topp5.is eeee H.J. - MBL QUENTIN TARANTINO KYNNIR eee D.V. GABBIÐ ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST eeee - H.J., Mbl eeee - Blaðið eeee - L.I.B., Topp5.is eeee - K.H.H., FBL MÖGNUÐ SPENNUMYND UM KONU SEM MISSIR EIGIN- MANN SINN Í BÍLSLYSI... EÐA EKKI? “Grípandi atburðarás og vönduð umgjörð, hentar öllum” eee Ó.H.T. - Rás 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.