Morgunblaðið - 26.06.2007, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ræddu Urriðafossvirkjun
Fjölmenni var á fundi sem haldinn
var í Þjórsárveri í Flóahreppi í gær-
kvöld um Urriðafossvirkjun, skipu-
lagsmál og viðræður við Lands-
virkjun sem vill liðka fyrir
framkvæmdunum með ýmsum að-
gerðum. Hörð gagnrýni kom fram á
tilboð Landsvirkjunar og þótti
mörgum það rýrt í roðinu. »Forsíða
Ríkið efli strætó
Ríkið á að koma að rekstri stofn-
leiða strætisvagnakerfisins á höf-
uðborgarsvæðinu, létta skattbyrði af
almenningssamgöngum og setja
markmið um forgang strætisvagna
og leigubíla í umferðinni, segir í til-
lögu Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu. »2
Gagnrýnir lögregluna
Erlend kona, fórnarlamb íslensks
nauðgara, gagnrýnir lögregluna fyr-
ir að taka kæru hennar ekki strax al-
varlega. Meðan dóms Hæstaréttar
yfir manninum var beðið misþyrmdi
hann enn einni konu og fékk fimm
ára dóm í héraði vegna þess máls.
»Forsíða
Færri banaslys
Banaslysum hefur fækkað umtals-
vert á fyrstu fjórum mánuðum árs-
ins miðað við sama tíma í fyrra en
slæmu fréttirnar eru þær að alvar-
legum slysum fjölgaði ískyggilega
mikið. Fjölgun þeirra nemur 60%
milli ára, eða úr 30 í 48. »Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ráðherrar og …
Forystugreinar: Nóg komið |
Fagþekking í stað tískusveiflna
Ljósvaki: Lifi myndbandaleigan!
Af listum: Þetta með …raunsæið
UMRÆÐAN»
Jákvæð áhrif hækkunar
fasteignaverðs
Bréf til heilbrigðisráðherra
.
:&
- *
;
$/
3
3
3 3
3
3 3 3 3 3
3 , < "4 &
3 3 3 3
=>11?@A
&BC@1A5;&DE5=
<?5?=?=>11?@A
=F5&<<@G5?
5>@&<<@G5?
&H5&<<@G5?
&9A&&5/0@?5<A
I?D?5&<BIC5
&=@
C9@?
;C5;A&9*&AB?1?
Heitast 20°C | Kaldast 6°C
Strekkings norðan-
átt. Léttskýjað sunnan
og vestan til, skýjað að
mestu fyrir norðan og
stöku skúrir. » 10
Í bígerð er mynd um
skrautlega ævi
Hughs Hefner og
óprúttna ræningja
sem ræna Donald
Trump. »43
KVIKMYNDIR»
Hefner
og Trump
TÓNLIST»
Sinfó og Dúndurfréttir
leika The Wall. »41
SkjárEinn stendur
fyrir sólarhrings
langri útsendingu
frá Live Earth-
tónleikunum sem
fram fara 7. júlí. »43
TÓNLIST»
Tónleikar
í 24 tíma
FÓLK»
Bruce Willis safnar
örum og sárum. »41
TÓNLIST»
Sala á tónleika Jethro
Tull að hefjast. »37
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Maður sem festist í niðurfalli látinn
2. Lést á leið í sjúkraflugið
3. Fimm villur á Flórída boðnar …
4. Murphy er pabbinn
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
RÚNAR Kristinsson, fyrrverandi
atvinnumaður í knattspyrnu og nú
leikmaður KR, segir að staða KR-
inga í Landsbankadeildinni í knatt-
spyrnu sé hörmu-
leg en með sam-
stöðu allra
KR-inga sé hægt
að snúa taflinu
við. Eftir sjö um-
ferðir sitja KR-
ingar einir og yf-
irgefnir á botni
deildarinnar –
þeir hafa ekki
unnið leik og hafa
einungis eitt stig en fyrir mótið
spáðu margir því að þeir yrðu í bar-
áttunni við FH-inga um Íslands-
meistaratitilinn.
,,Það hafa fleiri sagt það en ég að
ef við vissum hvað væri að þá væri
búið að leysa málin. Við KR-ingar
verðum að vinna okkur sjálfir út úr
vandamálunum og reyna að fá það
fram í leikjunum sem við gerum á
æfingunum. Staða okkar í deildinni
er hrein hörmung en það er ekki
hægt að skella skuldinni á einn eða
neinn, hvorki einstaka leikmenn né
þjálfara. Það þurfa allir að snúa bök-
um saman og vinna sem ein liðs-
heild,“ sagði Rúnar í samtali við
Morgunblaðið. | Íþróttir
Staða okkar
er hörmuleg
Rúnar Kristinsson
ENGAN sakaði þegar eldur varð
laus í vélarrúmi hvalaskoðunarskips-
ins Hafsúlunnar á sjötta tímanum í
gær. 71 farþegi, mestmegnis erlend-
is ferðamenn, var um borð ásamt
fjögurra manna áhöfn þegar mikill
reykur og megn dísilolíufnykur
gerðu vart við sig. Hafsúlan var þá
stödd við Lundey í Kollafirði. Skip-
verjum tókst fljótt að ráða niðurlög-
um eldsins, sem kviknaði við það að
svokallað spíssarör í vélarrúminu
brast og olía sprautaðist á heita
pústgrein skipsins.
Hafsúlunni var snúið við og sigldi
hún í land fyrir eigin vélarafli. Far-
þegarnir virtust hvergi bangnir
þrátt fyrir skakkaföllin þegar þeir
komu í land. Var farþegunum boðið
að stíga um borð í Eldingu, annað
hvalaskoðunarskip Hvalaskoðunar
Reykjavíkur, og láta í haf á nýjan
leik. Langflestir þáðu boðið og að
sögn Rannveigar Grétarsdóttur,
eins eigenda Hvalaskoðunarinnar,
gekk sú ferð með eindæmum vel;
allir sáu hval og voru ánægðir með
ævintýrin sem þeir höfðu lent í.
Þrátt fyrir að farþegar hafi aldrei
verið í raunverulegri hættu var mik-
ill viðbúnaður á láði og legi. Björg-
unarskip Slysavarnafélagsins
Landsbjargar í Reykjavík og Hafn-
arfirði voru kölluð út auk Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins og hafnsögu-
báta Reykjavíkurhafnar. Þyrla
Landhelgisgæslunnar fór jafnframt í
loftið og fylgdi Hafsúlunni þar til
hún komst klakklaust á leiðarenda í
Reykjavíkurhöfn.
Farþegar Hafsúlunnar sem blaða-
maður ræddi við voru sammála um
það að skipverjar og björgunaraðilar
hefðu staðið mjög fagmannlega að
verki og skelfing hefði því aldrei
gripið um sig um borð.
„Takið nú myndir af sjúkrabílun-
um og fjölmiðlafólkinu og segið vina-
fólki ykkar söguna um það þegar þið
fóruð í hvalaskoðun á Íslandi þegar
þið komið heim,“ sagði leiðsögukon-
an þegar Elding lét úr höfn og upp-
skar mikinn hlátur hvalunnendanna.
Voru fljót að slökkva
eld í hvalaskoðunarbát
Engan sakaði þegar eldur kom upp í Hafsúlunni, en um
borð var 71 farþegi Mikill viðbúnaður var á láði og legi
Morgunblaðið/Eyþór
Hvalaskoðun Farþegar sem voru um borð í Hafsúlunni í gær létu brunann í vélarrúminu ekki á sig fá. Þeir fóru
flestir yfir í annan hvalaskoðunarbát þegar þeir komu að landi í Reykjavíkurhöfn og luku ferðinni.
Í HNOTSKURN
»Hafsúlan er 25 metra löngtvíbytna, sett saman úr
tveimur skipskrokkum.
»Skipið nær allt að 24 mílnahraða og því tekur aðeins
20 mínútur að komast á því
inn í Hvalfjörð frá Reykjavík.
»Hafsúlan hefur leyfi til aðflytja 146 farþega. 150
björgunarvesti eru um borð í
skipinu og björgunarbátar
fyrir álíka fjölda.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
♦♦♦
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Árborgar hefur lagt til við bæjar-
stjórn Árborgar að tillaga að breyttu
deiliskipulagi miðbæjar Selfoss verði
auglýst og að aðalskipulagi Bæjar-
garðs verði breytt á þann veg að
svæðið verði skilgreint sem íbúða- og
útivistarsvæði.
Tillagan var samþykkt með þrem-
ur atkvæðum nefndarmeirihluta
gegn tveimur atkvæðum fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins á fundi nefndar-
innar í gærkvöldi. Fundargerð
nefndarinnar verður tekin fyrir á
bæjarráðsfundi á fimmtudaginn og á
föstudag verður haldinn aukafundur
um málið í bæjarstjórn.
Bárður Guðmundsson, skipulags-
og byggingafulltrúi Árborgar, segir
að tillögur nefndarinnar séu tvíþætt-
ar þar sem í raun sé um að ræða tvo
áfanga. Fyrst þurfi að breyta aðal-
skipulagi og fá samþykki Skipulags-
stofnunar til að auglýsa breytinguna.
Þegar það samþykki liggi fyrir verði
fyrst hægt að auglýsa tillögu að
breyttu deiliskipulagi miðbæjarins.
Tillaga að
skipulagi
auglýst