Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 21 MENNING Á FIMMTU tónleikum sum- artónleikaraðar veitingahúss- ins Jómfrúarinnar við Lækj- argötu í dag leikur kvartett saxófónleikarans Jóels Páls- sonar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Eðvarð Lárusson gít- arleikari, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Fluttir verða standardar og minna þekkt efni í bland. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Leikið verður utandyra á Jómfrúartorginu ef veð- ur leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Kvartett Jóels á Jómfrúnni í dag Jóel Pálsson KRISTJÁN Steingrímur opn- ar sýningu á nýjum teikningum og málverkum í Jónas Viðar Gallery á Akureyri í dag. Á undanförnum árum hefur Kristján Steingrímur í verkum sínum skyggnst undir yfirborð. Hann hefur dregið upp myndir af hinu smágerða og oftast ósýnilega í umhverfi okkar með því að stækka það upp og gefa því merkingu. Auk vinnu að listsköpun hefur Kristján unnið við kennslu og stjórnunarstörf, nú síðast sem deildarforseti við Listaháskóla Íslands. Sýning Kristjáns Stein- gríms stendur til 19. júlí. Myndlist Kristján Steingrím- ur neðan yfirborðs Kristján Steingrímur Í DAG verður opnuð í Lista- safni ASÍ sýning á verkum í eigu safnsins. Það var Ragn- ar Jónsson, forstjóri Smára, sem gaf ASÍ 120 listaverk að gjöf sem stofn í Listasafn ASÍ hinn 17. júní 1961 og hefur safnið verið í stöðugum vexti síðan. Sumarsýningin er í öllu húsinu og spannar breitt tímabil í íslenskri lista- sögu. Í Ásmundarsal verða sýnd málverk eftir listamennina Jóhannes Kjar- val og Jón Stefánsson. Sýningin er opin frá kl. 13-17 alla daga nema mánudaga og stendur til 26. ágúst. Myndlist Fjallamjólkin á sumarsýningu Jóhannes Kjarval Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ þarf stórt hljóðfæri til að geta talað við foss. Verkið heitir Vocal, því þarna fara fram ákveðin tjáskipti fossins og hljóðinnsetningarinnar,“ segir Rúrí, sem hefur smíðað eitt stærsta hljóðfæri sem sögur fara af hér á landi. Rúrí er í Frankfurt í Þýskalandi, og í kvöld fremur hún gjörninginn VOCAL III – End- angered við forna borgarmúra Frankfurt-Höchst, á listahátíðinni Schlossfest Frankfurt-Höchst. Gjörningurinn átti að verða opnunar- atriði hátíðarinnar, 9. júní, en vegna ofsafengins þrumuveðurs sem gekk skyndilega yfir rétt fyrir opnunarhá- tíðina varð að fresta gjörningnum. En hvernig talar maður við foss? „Fossinn er svo máttugur að ég sá ekki fram á annað en að ég yrði að búa til hljóðinnsetningu sem hægt væri að leika á, og ætti í fullu tré við fossinn þegar leikið væri á hana,“ segir Rúrí, sem segir að tónlist- armennirnir sem leika með henni, Steingrímur Guðmundsson, Jón Geir Jóhannsson og Tjörvi Jónsson, kalli þetta hljóðfæri, þótt myndlistarmenn myndu eflaust kalla það hljóð- innsetningu. „Hljóðverkið er smíðað á Íslandi og ég hef lagt mikið upp úr því að verkin mín séu smíðuð heima verði því komið við. Við eigum fullt af góðu fagfólki sem kann margt fyrir sér, hvort sem það eru smiðir, tækni- fræðingar, kvikmyndamenn, verk- fræðingar, tölvufræðingar, tónlist- armenn eða aðrir, og það gefur mér óskaplega mikið að vinna með slíku fólki og njóta hæfileika þeirra. Tón- listarmennirnir sem eru með mér núna leggja til dæmis allir sína þekk- ingu, reynslu og sköpun í verkið.“ Himnafossinn tók völdin Í gjörningnum birtist fossinn í risastórri mynd á tjaldi. „Það var nú einmitt það sem gerðist við opnunina – náttúran tók sjálf aðalhlutverkið í þrumuveðrinu. Og þetta getur maður nú ekki alltaf pantað. Þetta var mjög sérstakt, og hefði verið gaman ef við hefðum getað performerað með nátt- úrunni. En rafmagnið datt út, og þá var ekkert hægt að gera – það var enginn viðbúinn þessum möguleika,“ segir Rúrí. Hallarhátíðin í Höchst er fjölmenn og vinsæl og stendur í rúman mánuð í bæjarhluta Frankfurt sem heitir Höchst og liggur við ána Rín. Reykjavík er sérstakur gestur á Hallarhátíðinni og yfirskrift hátíð- arinnar að þessu sinni er Halló Reykjavík. Rúrí fremur gjörning með hljóði og mynd á Hallarhátíðinni Höchst í Frankfurt Hvernig talar maður við foss? Fossaföll Verk eftir Rúrí sem var á sýningu hennar Fossi á Kjarvalsstöðum í vetur. „Ég er enn að fjalla um foss- inn og held mikið upp á hann,“ segir Rúrí. Nú glímir hún við fossa í Frankfurt. Æfing Hljóðheimur hljóðfærisins kannaður fyrir Þýskalandsferð. TORSTENAndersson fær Carneg- ieverðlaunin í ár fyrir árið 2008. Þetta kunngjörði Carnegie- stofnunin í gær, en verðlaunin eru með stærstu verðlaunum sem myndlistarmönnum hlotnast. Dómnefnd var samdóma í áliti sínu um að Andersson fengi fyrstu verðlaun, en verðlaunaféð nemur andvirði ríflega þrettán og hálfrar milljónar króna. Torsten Andersson er vel þekkt- ur og virtur listmálari og þykja verk hans sérdeilis kraftmikil. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars: „Með sitt sérstæða mynd- mál hefur Torsten Andersson verið í stöðugri framþróun á löngum starfsferli.“ Kvikmyndir verðlaunaðar Önnur verðlaun að andvirði lið- lega fimm milljóna króna fær hinn viðurkenndi danski listamaður Jesper Just fyrir kvikmyndina Vic- ious Undertow sem í skerpu og ná- kvæmni minnir á málverkið. Just hefur áður vakið athygli fyrir kvik- myndir þar sem hann meðal annars hefur tekið til meðferðar kynbund- in hlutverk og félagslega kóða í Hollywood-kvikmyndum. Daninn John Kørner hlýtur þriðju verðlaun að andvirði þriggja og hálfrar milljónar króna fyrir sín leikandi og glóandi málverk sem sækja fyrirmyndir í daglegt líf. Hann setur fram pólitískar spurn- ingar í listsköpun sinni þar sem grunnlitirnir gult og bleikt ein- kenna verk hans. Styrk til yngri listamanns að andvirði 900 þúsund króna, hlýtur listamaðurinn Nath- alie Djurberg fyrir sjónræna frá- sagnarhæfileika í kvikmyndinni New Movements in Fashion. Verð- launin verða afhent við opinbera at- höfn í Kiasma-nútímalistasafninu í Helsinki þann 25. október 2007. Samtímis verður sýning á verkum listamannanna 26, sem dómnefndin hefur valið úr hópi 143 tilnefndra, opnuð. Íslenskir þátttakendur í sýn- ingunni eru þau Þórdís Aðalsteins- dóttir og Þór Vigfússon. Sýningin kemur í Listasafn Kópavogs að ári. Andersson sá heppni Tilkynnt um Carnegie- listverðlaunin Andersson Svona málar hann leiðið. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is NORSKI grafíklistamaðurinn Martin Due sýnir þessa dagana ætingar og þurrnál- armyndir í sýningarsal félagsins Íslensk graf- ík, undir yfirskriftinni Form – sögur af lands- lagi. Martin er mikill siglingagarpur og sigldi ásamt fimm öðrum á skútu til Íslands og kom að landi í fyrradag. Martin mun sitja yfir sýningunni í dag og um helgina, og verður því hægt að spyrja hann út í grafíktækni verkanna beint. Myndefni Due er norskt landslag, fjöll og einnig bæir grafnir í koparplötur af hárfínni alúð og nákvæmni. Due segir grafíkina kallast á við mótun landslagsins, það hafi verið sorfið til og grafið í árþúsundir. Á sama hátt með- höndli hann efnivið grafíkmiðilsins, í þessu til- felli koparplötuna, grafi í hana línur og dali. „Málmurinn er unninn úr bergi og mynd- listarmaðurinn vinnur svo í hann, líkt og öflin móta landslagið,“ segir Due. Myndlist í blóðinu Due lauk mastersnámi í myndlist og hönn- un frá háskólanum í Ósló og lærði graf- íklistina af föður sínum, aldagamlar aðferðir á borð við línuætingu og akvatintu. Afi hans var listmálari og faðir hans grafíklista- maður. Due á því myndlistarhæfileika sína ekki langt að sækja. „Ég er alinn upp í síðmódernískri myndlist- arhefð, sem felur í sér að myndin eigi alltaf að vera áhugaverð að forminu til, ekki aðeins sagan á bakvið hana,“ segir Due. Salur Íslenskrar grafíkur er við Tryggva- götu 17, hafnarmegin. Sýningu Due lýkur 8. júlí og er salurinn opinn kl. 14-17, frá fimmtu- degi til sunnudags. Morgunblaðið/Eyþór Sægarpur Myndefni Martin Due er norskt landslag, fjöll og einnig bæir grafnir í koparplötur af hárfínni alúð og nákvæmni. Grafíkin kallast á við mótun landslagsins. Kom siglandi til sýningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.