Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 9
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Laugavegi, s. 561 1680
Kringlunni, s. 588 1680
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
30%
AFSLÁTTUR
Stórútsala
Glæsilegt úrval
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Útsala Útsala
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. í Bæjarlind kl. 10-15, í Eddufelli kl. 10-14.
®
Kanaríeyjahátíð 2007
Kanaríflakkarar í Árnesi,
Gnúpverjahreppi, 6.-8. júlí
Harmónikuball föstudagskvöld
Hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar og Sigurðar Hannessonar
ásamt söngvaranum Þorvaldi Skaptasyni
Laugardagur:
Hátíðarhlaðborð hjá Begga kl. 19.00.
Hinn frábæri Örn Árnason skemmtir matargestum kl. 20.30
Happdrætti - Glæsilegir vinningar.
Danshljómsveit Geirmundar Valtýssonar kl. 23.00.
Góð tjaldstæði - Allir velkomnir
Takið með ykkur gesti í Kanarístuðið!
Stjórnin.
Arkitekt eða verkfræðingur
Til að teikna einbýlishús og löggildar teikningar strax.
Upplýsingar veitir Hreinn í síma 893 4526 eða á
netfangið: annaoskars@simnet.is
Ó
S
K
A
S
T
Mjódd, sími 557 5900
Síðasti Dagur útrýmingar-
sölunnar í Álfabakka 16
Verið velkomnar
Útsala heldur áfram
50% afsláttur
Iðu-húsinu Lækjargötu 2, sími 552 7682
www.glingglo.is
FORSETI Íslands,
Ólafur Ragnar Gríms-
son, átti í gærmorgun
ítarlegan fund með
Kadir Topbas borg-
arstjóra Istanbúl og yf-
irmönnum borgarinnar
í félags- og heilbrigðis-
málum. Viðfangsefni
fundarins var baráttan
gegn fíkniefnum.
Í frétt frá forseta-
embættinu kemur fram
að Istanbúl er í hópi
fimmtán evrópskra
borga sem tekið hafa
saman höndum um
viðamikið for-
varnaverkefni sem
byggt er á rannsóknum við Háskóla
Íslands og Háskólann í Reykjavík og
reynslu Reykjavíkurborgar á þessu
sviði. Forseti Íslands er verndari
þessa evrópska forvarnaverkefnis
sem ber heitið Ungmenni í Evrópu:
Gegn fíkniefnum.
Í fréttinni segir að þótt al-
þjóðavæðing, opnari landamæri og
bylting í upplýsingatækni hafi haft
fjölmargt jákvætt í för með sér hafi
þessi þróun jafnframt auðveldað
glæpahringum dreifingu og sölu
fíkniefna til ungmenna um Evrópu
alla. Sameiginleg varnarbarátta sé
því brýn nauðsyn.
Hinar íslensku rannsóknir hafi
leitt í ljós hvaða áherslur eru væn-
legastar í öflugum forvörnum og
voru þær m.a. kjarninn í For-
varnadeginum sem efnt var til á Ís-
landi síðastliðið haust.
Forseti Íslands lýsti ítarlega hin-
um íslensku rannsóknum og reynsl-
unni af forvarnadeginum og fagnaði
því að Istanbúl hefði ákveðið að taka
öflugan þátt í þessari baráttu. Fyrir
rúmum mánuði var haldinn í Ist-
anbúl samráðsfundur borganna
fimmtán sem þátt taka í verkefninu.
Borgarstjóri Istanbúl ítrekaði
persónulegan stuðning sinn og borg-
aryfirvalda við verkefnið og kynnti
ýmsar hugmyndir sem
nú væri unnið að í Ist-
anbúl til að efla for-
varnir meðal ungs
fólks.
Lyfjafyrirtækið
Actavis veitir þessu
evrópska for-
varnaverkefni öflugan
stuðning og sat for-
stjóri fyrirtækisins í
Tyrklandi Melih
Gürsoy fundinn í
morgun.
Að loknum fund-
inum með borgarstjóra
heimsótti forseti höf-
uðstöðvar Actavis í
Tyrklandi og ræddi við
forystumenn í lyfjaiðnaði landsins.
Þar kom fram að Actavis hefur ríku-
leg sóknarfæri á tyrkneskum lyfja-
markaði og fóru hinir tyrknesku
stjórnendur lofsamlegum orðum um
samvinnu við Íslendinga.
Ræddi loftslags-
breytingar á OECD
Forseti Íslands Ólafur Ragnar
Grímsson flutti í fyrradag, fimmtu-
daginn 28. júní, ræðu á þingi Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
(OECD) sem nú stendur yfir í Ist-
anbúl í Tyrklandi. Í ræðu sinni
fjallaði forseti um aðgerðir gegn
loftslagsbreytingum og þá lærdóma
sem draga megi af nýtingu Íslend-
inga á endurnýjanlegum orkugjöf-
um, ekki síst jarðhita. Hann vék
einnig að fjölmörgum alþjóðlegum
verkefnum í orkuvinnslu sem Íslend-
ingar taka nú þátt í víða um heim.
Þá átti forseti fund með Angel
Gurría, framkvæmdastjóra OECD,
þar sem nánar var fjallað um það
hvernig reynsla Íslendinga gæti
nýst í hinu víðtæka alþjóðlega sam-
starfi sem framkvæmdastjórinn
taldi brýnt að eflt yrði á komandi ár-
um ef takast ætti að koma í veg þær
hörmungar sem loftslagsbreytingar
gætu leitt til.
Ólafur Ragnar Grímsson í viðræðum
um baráttuna gegn fíkniefnum
Fundir í Istan-
búl um evr-
ópskt samstarf
Ólafur Ragnar
Grímsson
Fréttir
í tölvupósti
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt karlmann á fertugsaldri til
átján mánaða fangelsisvistar fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás á
fyrrverandi unnustu sína. Honum
var að auki gert að greiða henni
800 þúsund krónur í skaðabætur.
Maðurinn réðst að konunni á
heimili móður hennar, hann sló
hana m.a. í andlitið og lamdi höfði
hennar í gólfið. Þá tók hann hana
kverkataki og vafði sæng um höfuð
hennar þannig að lá við köfnun.
Hjá lögreglu sagðist maðurinn
lítið muna eftir atvikum, hann hafi
verið ölvaður auk þess að hafa not-
að mikið af amfetamíni og rivotril
daginn sem árásin var framin. Fyr-
ir dómi sagðist maðurinn ekki efast
um að lýsing fórnarlambsins væri
rétt. Einnig kom fram að hann væri
í meðferð og gengi vel.
Í niðurstöðu dómsins segir að
árásin hafi verið hrottaleg, stór-
hættuleg og heiftúðleg. Ákærði eigi
sér engar málsbætur auk þess sem
hann hafi áður brotið af sér.
Héraðsdómarinn Símon Sig-
valdason kvað upp dóminn. Sigríð-
ur J. Friðjónsdóttir, saksóknari hjá
ríkissaksóknara, sótti málið en
Hilmar Ingimundarson hrl. varði
manninn.
Dæmdur fyrir
heiftúðlega
líkamsárás HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt sextugan karlmann í sjö
mánaða fangelsi, en frestað fulln-
ustu refsingarinnar í tvö ár haldi
hann skilorð, fyrir brot gegn lögum
um ávana- og fíkniefni. Hann þarf
jafnframt að greiða nærri 1,5 millj-
ónir króna í sakarkostnað.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa ræktað og haft í vörslu sinni
163 kannabisplöntur, 1,3 kg af
marijúana og 4,3 kg af kannabis-
laufum sem ekki höfðu verið þurrk-
uð. Auk þess tengdi maðurinn
framhjá rafmagnsmælum og hag-
nýtti sér 15.309 kílówattstundir af
raforku vegna ræktunarinnar.
Maðurinn hefur ekki sætt refs-
ingu áður og var tekið tillit til þess
en einnig að hann játaði greiðlega.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn, Gunnar Örn
Jónsson fulltrúi sótti málið en Guð-
jón Ægir Sigurjónsson hrl. varði
manninn.
Stal rafmagni
til ræktunar