Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
MARGIR eiga stefnumót við Revu
Shayne og fleiri tilbúna íbúa Spring-
field við sjónvarpsskjáinn á hverjum
degi þegar Leiðarljós (Guiding
Light) er á dagskrá. Færri vita
kannski hversu lífsseig sápuóperan
vinsæla er en í dag eru 55 ár frá því
að fyrsti þátturinn var sýndur í sjón-
varpi. Fram að því hafði Leiðarljós
reyndar verið til í formi útvarps-
leikrita frá árinu 1937. Talnaglöggir
lesendur hafa því þegar getað reikn-
að út að 70 ára afmæli þáttanna er í
ár. Það er ekki að ástæðulausu að
Leiðarljós er í Heimsmetabók Guin-
ness fyrir að vera lengsta sápuópera
sögunnar.
Fyrstu sjónvarpsþættirnir voru að
sjálfsögðu í svarthvítu og voru 15
mínútur að lengd. Þeir lengdust þó
með árunum og er hver þáttur í dag
45 mínútur.
Vandalaust reyndist að fá dygga
útvarpshlustendur til að kveikja í
staðinn á sjónvarpinu til að fylgjast
með Leiðarljósi.
Dáin í fríi í Nova Scotia
Eins og sápuópera er von og vísa
hefur gengið á ýmsu hjá söguhetj-
unum í gegnum tíðina. Skilnaðir,
dauðsföll, minnistap, framhjáhald,
brúðkaup og svik eru nær daglegt
brauð.
Leikurum er reglulega skipt út og
það er afar spaugilegt í byrjun nýs at-
riðis að heyra þul segja: „Alan
Spaulding er nú leikinn af …“.
Raunveruleikanum er oftar en ekki
talsvert hnikað í atburðarásinni. Per-
sónan Roger Thorpe er til að mynda
svo ólánsamur að hafa dáið þrisvar
sinnum í þáttunum. Leikarinn Mich-
ael Zaslow fór upphaflega með hlut-
verk Thorpes en þegar hann lést einu
sinni sem oftar í þáttunum var leik-
arinn beðinn um að taka að sér hlut-
verk Alan Spaulding, annarrar per-
sónu í þáttunum. Zaslow afþakkaði
reyndar boðið en biðlaði til ráða-
manna að vekja Thorpe upp frá dauð-
um í staðinn. Það varð úr.
Handritshöfundar þáttanna hafa
ekkert alltaf rokið upp til handa og
fóta þegar leikararnir hrökkva upp
af. Til dæmis má nefna leikkonuna
Mary Stuart sem lést árið 2002. Enn
þann dag í dag er persóna hennar,
Meta Bauer, í fríi í Nova Scotia.
Leiðarljós í 55 ár á skjánum
Drama Það gengur á ýmsu í hinu víðsfræga Leiðarljósi.
Í HNOTSKURN
»Í gær komust sýndir þætt-ir af Leiðarljósi upp í
15.205.
»Nokkrum sinnum stóð tilað hætta útsendingum á
Leiðarljósi en æstir aðdáendur
þáttanna náðu að koma í veg
fyrir það með mótmælum.
»Daglega horfa rúmlegaþrjár milljónir Bandaríkja-
manna á Leiðarljós.
ÓKRÝND drottn-
ing Leiðarljóss
síðustu ár hlýtur
að teljast Reva
Shane, sem Kim
Zimmer leikur.
Reva Shane
(sem einnig hefur
í gegnum tíðina
ansað nöfnunum
Reva Lewis, Reva
Spaulding, Cat-
herine Winslow
og Reva Cooper) státar af æviferli
sem hver sápupersóna gæti verið
stolt af.
Hún hefur gifst föður og báðum
sonum hans, þar af öðrum (Josh)
fjórum sinnum. Reva á að baki níu
hjónabönd og hefur eignast fimm
börn. Hún hefur glímt við þung-
lyndi, verið prinsessa á ókunnu eyj-
unni San Cristobel, ferðast um tím-
ann, stjórnað spjallþætti og verið
miðill svo fátt eitt sé nefnt.
Árið 2006 greindist Reva með
krabbamein og lést síðar sama ár.
Ekki leið þó á löngu áður en áð-
urnefndur Josh fór að finna sterkt
fyrir nærveru eiginkonunnar sem
náði á undraverðan hátt að rísa upp
frá dauðum.
Reva birtist fyrst á skjánum árið
1983 og hefur verið órjúfanlegur
hluti Leiðarljóss æ síðan, ef frá er
talið fimm ára brotthvarf hennar úr
þáttunum á tíunda áratugnum.
Reva Shane
Reva Shane
Ókrýnd drottning
Leiðarljóss.
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Die Hard 4.0 kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 B.i. 14 ára
Premonition kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
Fantastic Four 2 kl. 4 - 6
Die Hard 4.0 kl. 3 - 5.40 - 8.20 - 11 B.i. 14 ára
Premonition kl. 3 - 5.45 - 8 - 10.15 B.i. 12 ára
Fantastic Four 2 kl. 3 - 6 - 8.20 - 10.30
The Hoax kl. 3 - 5.30 - 8 B.i. 12 ára
28 Weeks Later kl. 10.30 B.i. 16 ára
Die Hard 4.0 kl. 2 - 5 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Die Hard 4.0 LÚXUS kl. 2 - 5 - 8 - 10.45
Shrek 3 m. ensku tali kl. 1 - 3 - 5 - 7 - 9.10 - 11.10
Shrek 3 m. ísl. tali kl. 1 - 3 - 5 - 7
Fantastic Four 2 kl. 1.30 - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
Hostel 2 kl. 9 B.i. 18 ára
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
“...besta sumarafþreyingin til þessa.”
eee
MBL - SV
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU
MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SANDRA BULLOCK
MARTRÖÐ EÐA RAUNVERULEIKI?
eee
Ó.H.T - Rás 2eeee
L.I.B. - Topp5.is
eeee
H.J. - MBL
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR eee
D.V.
GABBIÐ
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR
SÝNING MYNDAR HEFST
eeee
- H.J., Mbl
eeee
- L.I.B., Topp5.is
MÖGNUÐ SPENNUMYND UM KONU SEM MISSIR
EIGINMANN SINN Í BÍLSLYSI... EÐA EKKI?
“Grípandi atburðarás og vönduð
umgjörð, hentar öllum”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eee
S.V. - MBL.
Heimsfrumsýning
Yippee Ki Yay Mo....!!
Þorir þú að mæta?
eeee
- Blaðið
eeee
- K.H.H., FBL
John McClane er
mættur aftur!
POWERS
ÝNING
Í DOLBY
DIGITAL
KL. 10.4
5 Í SMÁ
RABÍÓI
KL. 11 Í
REGNBO
GANUM
KL. 10.2
0 Í BOR
GARBÍÓ
I
AKUREY
RI