Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 1
Í HNOTSKURN »Fjarðaál virðist hafa fylltAustfirðinga sóknarkrafti, enda mun störfum beint og óbeint fjölga um 1.000. »Byggðirnar sem fjærst eruReyðarfirði horfa þó fram á mikla erfiðleika með minnk- andi veiðiheimildum. »Um 120 manns starfa hjáEskju á Eskifirði, þar af um 40 í frystihúsinu. Þar eins og víðar eru skiptar skoðanir um ágæti kvótakerfisins. Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is EIGENDUR Eskju á Eskifirði, hjónin Björk Aðalsteinsdóttir og Þorsteinn Jónsson, undirbúa nú sölu á öllum bolfiskkvóta fyrirtæk- isins, samtals 4.600 þorskígildis- tonnum. Haukur Björnsson, fram- kvæmdastjóri Eskju, segir í sam- tali við Morgunblaðið í dag að hjón- in hafi nýverið keypt Kristin Aðalsteinsson, bróður Bjarkar, út úr fyrirtækinu og fyrirhuguð sala kvótans eigi m.a. að fjármagna þau kaup. „Meginhugsunin er sú að skipta fyrirtækinu upp, þannig að bolfisk- vinnslan verði sér fyrirtæki í eigu annarra … og auðvitað er reynt eftir megni að finna kaupendur sem vilja vera hér í rekstri,“ segir Haukur. Breytingar í atvinnumálum með Fjarðaáli Eskja er með megnið af veiði- heimildum sínum í uppsjávarfiski og hefur á milli 70% og 80% af tekjum sínum af uppsjávarveiðum og vinnslu. Með tilkomu Fjarðaáls í Reyð- arfirði eru íbúar svæðisins í Fjarðabyggð, einkum á Reyðar- firði, Eskifirði, Neskaupstað og Fáskrúðsfirði, á grænni grein hvað varðar atvinnuástand, enda munu hátt í eitt þúsund ný störf skapast, eftir að Reyðarál er komið í fullan gang. Það eru firðirnir sem fjærst eru Fjarðabyggð sem eiga í erfiðleik- um og við niðurskurð á fiskveiði- heimildum munu kröggur þeirra bara aukast. Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Austfirðinga og fjallað um viðhorf þeirra og at- vinnuástand.  Firðirnir fjærst | 11 Undirbúa sölu á kvóta  Eskja á 4.600 tonna kvóta í bolfiski  Fiskverkendur segja að 30% niður- skurður á þorskveiðiheimildum jafngildi þriggja mánaða vinnustöðvun STOFNAÐ 1913 178. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ENDURKOMA CROFT NÝIR, BREYTTIR, BETRUMBÆTTIR TÖLVULEIKIR – DÓMAR OG UMFJÖLLUN >> 40 FJÓRÐUNGSMÓTIÐ Á AUSTURLANDI HESTAMENN OG GÆÐINGAR >> 27 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞAÐ hafa aldrei verið betri aðstæður fyrir Íslendinga að flytja út mjólkurduft og ef gengi krónunnar lækkar, eins og flestir spá að gerist á næstunni, batna þær enn. Ástæðan fyrir þessu er að heimsmark- aðsverð á mjólk hefur hækkað mikið að undanförnu og er nú í sögulegu hámarki. Samkvæmt tölum frá bandaríska landbún- aðarráðuneytinu hefur verð á smjöri hækk- að um 95% það sem af er þessu ári og verð á undanrennudufti hefur hækkað um 71%. Ástæðan fyrir þessum hækkunum er aukin eftirspurn í heiminum eftir mjólk- urvörum samhliða miklum þurrkum í Ástr- alíu. Nýja-Sjáland, sem er ásamt Ástralíu mesta mjólkurframleiðsluland í heimi, virð- ist ekki geta aukið framleiðsluna mikið meira. Þó að sú mjólk sem seld er á alþjóð- legum markaði sé ekki nema 8% af allri mjólk sem framleidd er í heiminum leiðir skortur á heimsmarkaði til þess að mjólk- urverð hækkar á öllum mörkuðum. Langan tíma tekur að auka framleiðslu á mjólk og því bendir flest til að verðið eigi áfram eftir að vera hátt. Það er fleira sem stuðlar að hækkun á mjólkurverði. Að undanförnu hefur sífellt meira af korni verið notað til að framleiða etanól til að knýja bíla. Bæði ESB og Bandaríkin hafa sett sér markmið varðandi aukna notkun á etanóli. Þetta hefur leitt til hærra verðs á korni sem aftur hefur aukið kostnað við framleiðslu á landbún- aðarvörum og skapað þrýsting um hækkun. Margir telja að þessi ákvörðun iðnveldanna að auka notkun á etanóli eigi eftir að hafa mikil áhrif á matvælaverð í heiminum. Útflutningur frá Íslandi að verða raunhæfur? Þessi verðþróun leiðir til þess að munur á verði mjólkurafurða hér á landi og í ná- grannalöndum okkar hefur minnkað. Þó verðið sé enn hærra hér á landi er það ekki lengur fráleitur möguleiki að flytja út mjólk frá Íslandi. Nú er MS að fá 29 kr. á lítra fyr- ir undanrennuduft sem flutt er frá Íslandi. Í upphafi þessa árs skilaði útflutningurinn 15 kr. og ekki þarf að fara nema 6 ár aftur í tímann þegar verðið var vel innan við 10 kr. Núna er MS að selja undanrennuduft á inn- anlandsmarkaði fyrir 35 kr. Talsmenn í mjólkurframleiðslu telja þó ólíklegt að Íslendingar fari í stórfelldan út- flutning á mjólk. Þurrkar í Ástralíu stuðla að hærra mjólkurverði Kýr Verð á útfluttum mjólkurafurðum hefur hækkað mikið að undanförnu. Mjólkur- verð í hámarki EINSTÖK veðurblíða var í Hraunsfirði á Snæfellsnesi um helgina. Systurnar Hugrún Egla og Elínborg Una nutu þess að vaða í vatninu og skoða bleikj- urnar sem sýndu sig allt í kring um þær. Veðrið í júní hefur verið ein- stakt; sól og blíða dag eftir dag. Slíkt veður er óvenjulegt á suð- vesturhorni landsins þar sem mönnum þykir tíðindi ef sól og hiti varir lengur en þrjá daga í einu. Veðurstofan spáir áfram- haldandi veðurblíðu, en þó gæti farið að skúra um miðja vikuna. Bretar eru hins vegar að gefast upp á rigningunni, en þar hefur rignt nær látlaust undanfarnar vikur.Morgunblaðið/Einar Falur Bleikjur allt um kring Hugrún Egla og Elínborg Una nutu helgarinnar í einstakri veðurblíðu Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is REYKJANESBÆR hefur lykil- stöðu í samningaviðræðum um kaup á Hitaveitu Suðurnesja, en fundað verður í dag hjá bæjar- stjórnum Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar, en áhugi er hjá þeim að nýta sér forkaupsrétt. Fresturinn rennur út á morgun. Gunnar Svavarsson segir að Hafnarfjarðarbær heyi varnarbar- áttu um hlut sinn í Hitaveitunni og bíði eftir útspili Reykjanesbæjar. „Við sem annar stærsti hluthafi er- Árni Sigfússon segist munu fara yfir stöðuna í rólegheitum ásamt bæjarstjórn í dag en þau séu mjög opin fyrir samstarfi við einkaaðila. Hann segist að mörgu leyti telja að rekstur orkuvera fari betur í hönd- um einkaaðila en sveitarfélaga. „Við erum mjög ásátt um að Geysir Green komi inn í fyrirtækið og nýti sér þau 15% sem ríkið er að selja. Um skipulagningu fyrirtækisins í framhaldinu viljum við bara ræða við væntanlega samstarfsaðila og þá með Hafnarfirði ef Hafnarfjörð- ur hefur hug á að vera í fyrirtæk- inu.“ | 4 um að reyna að passa upp á að lokast ekki inni og til þess þurfum við að komast upp í 34% en við munum aldrei geta það nema með hjálp Reykjanesbæjar.“ Þau vilja því ná sátt við Reykjanesbæ um að ná þeirri viðbót sem þeim sé nauð- synleg. „Þetta er verkefni dagsins, því forkaupsrétturinn er að renna út og ef við stökkvum ekki á hann þá er Geysir Green Energy komið inn og þá þurfum við að semja við tvo aðila, þar af annan sem er þeg- ar búinn að gera tilboð í alla hina hlutina, svo það yrði í sjálfu sér engin samningsstaða fyrir okkur.“ Bæjarfélögin funda um kaupin á Hitaveitu Suðurnesja Hver mun eiga HS? GEORGE W. Bush hugsaði eflaust með sér að skynsamlegt væri að slaka vel á áður en kunningi hans Vladímír Pútín kæmi í heim- sókn. Hélt Bush út á bát með karli föður sín- um, en ekki vildi betur til en svo að þeir feðgar festu akkeri sitt í grjóti og urðu að kalla leyniþjón- ustuna til bjargar er leikar stóðu hæst. Stund milli stríða er allt lék í lyndi. Bush í klandri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.