Morgunblaðið - 02.07.2007, Page 17

Morgunblaðið - 02.07.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2007 17 ERLENT Þriðjudagskvöldið 3. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð um Elliðaárdal undir leiðsögn Stefáns Pálssonar, sagnfræð- ings. Dalurinn á sér merka sögu allt frá komu Ketil- bjarnar gamla landnáms- manns. Gengið verður um og sagðar sögur. Gangan hefst kl. 19:30 við Minjasafnið í Elliðaárdal. • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is Sögur og sagnir í Elliðaárdal ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 80 05 0 6. 2 0 0 7 Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is „VIÐ HVIKUM hvergi, við látum ekki ógna okkur og við leyfum eng- um að grafa undan breskum lífs- háttum,“ sagði Gordon Brown, ný- skipaður forsætisráðherra Bretlands, í sjónvarpsviðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, í gær. Það má með sanni segja að valda- tíð Browns hefjist með látum. Á föstudaginn fundust tvær virkar sprengjur í miðborg Lundúnaborg- ar og síðdegis á laugardag óku tveir menn logandi bifreið inn í anddyri Glasgow-flugvallar. Sérfræðingar fullyrða að árásirnar séu tengdar, því að sprengiefnið í bílnum sem ek- ið var inn í Glasgow-flugvöll hafi verið af sama toga og það sem fannst í bílunum í London. Menn segja að Brown sé þegar farinn að skapa sér sérstöðu með viðbrögðum sínum við árásinni. Breska þjóðin hefur undanfarið ár vanist hinum mjúkmælta Blair sem var þekktur fyrir að geta lesið við- brögð almennings mjög hratt og brugðist við í samræmi við þau. Brown er öllu harðari í sínum við- brögðum og boðar styrka stefnu. Skotar rólegir Klukkan rúmlega þrjú síðdegis á föstudaginn var logandi jeppa ekið í gegnum glerhurð og inn í anddyri Glasgow-flugvallar. Mikill eldur braust strax út, aðeins í fárra metra fjarlægð frá farþegum sem biðu við innritunarborð flugstöðvarinnar. Mikið var að gera á flugstöðinni, því skólum í Skotlandi var víðast hvar slitið á föstudaginn. Lögreglu tókst að ná tveimur mönnum út úr bifreiðinni og eru þeir nú báðir í haldi. Annar þeirra dvelur nú á sjúkrahúsi, en hann er í lífshættu vegna brunasára. Alls eru fimm aðilar í haldi vegna málsins, því auk ökuþóranna tveggja greip lögregla par á M6- þjóðveginum í Cheshire í fyrrinótt og 26 ára gamall karlmaður var handtekinn í Liverpool. Talið er að lögregla sé á hælunum á hugsanleg- um sökudólgi. Sigurður Arent, nemi í Glasgow, sagði í samtali við Morgunblaðið að almenningur í borginni hefði ekki áttað sig strax á því hversu alvarleg árásin var. Í fyrstu hefði jafnvel virst sem um slys hefði verið að ræða. Sigurður sagði að þegar í ljós kom að um hryðjuverkaárás hefði verið að ræða, tengda þeim í London, hefðu Glasgow-búar engu að síður haldið ró sinni. „Ég talaði við stúlku sem var í vinnu á flugvellinum núna í morgun. Hún var mætt í vinnuna klukkan fimm, eða um 14 klukkustundum eftir að árásin var gerð,“ sagði Sig- urður, en hann flaug til Íslands í gegnum Glasgow-flugvöll í morgun. Hann sagði að miklar raðir hefðu verið á flugvellinum og nokkuð um tafir en viðmót allra hefði verið ákaf- lega vinsamlegt. Öryggisgæsla hefði vitanlega verið mikil en herinn hefði verið kallaður til þess að sinna henni. Rannsókn gengur vel Peter Clarke, yfirmaður hryðju- verkadeildar bresku lögreglunnar, sagði í gær að rannsókn málsins gengi mjög vel. „Ég dreg það ekki í efa að á næstu dögum og vikum munum við öðlast næman skilning á því hvernig árásirnar voru skipu- lagðar og hvaða samtökum árásar- mennirnir tilheyra,“ sagði Clarke. Hann sagði að tengslin milli árás- anna yrðu æ augljósari og að sönn- unargögn sem aflað hefði verið af vettvangi væru mjög upplýsandi, að sögn AFP-fréttastofunnar. Raunar virðist lögreglunni bókstaflega liggja lífið á að leysa málið hið snar- asta, enda búast yfirvöld við frekari árásum. Það er því nokkur titringur í lofti, þó að almenningur haldi ró sinni. Í gær kom upp grunur um að bifreið sem lagt var fyrir utan sjúkrahúsið þar sem annar ökumað- ur bílsins í Glasgow er í haldi væri hlaðin sprengiefni. Sérfræðingar lögreglu komu af stað stýrðri sprengingu í bílnum. Í Liverpool var John Lennon-flugvelli lokað um stund á laugardag vegna tortryggi- legs farartækis sem var þar fyrir ut- an og í gærkvöldi var flugstöðvar- byggingu þrjú á Heathrow-flugvelli lokað vegna dularfulls bögguls sem fannst þar. Hún var opnuð aftur um klukkustund síðar. Enn hafa lögregluyfirvöld ekki nefnt hvaða samtök gætu tengst árásunum, en Gordon Brown sagði að almennt séð væri ljóst að um væri að ræða hóp sem hefði tengsl við Al-Qaeda. Árásarmennirnir sem tendruðu sprengjurnar sem sprungu í London fyrir tveimur árum höfðu alið allan sinn aldur í Bretlandi og æ oftar heyrast þær raddir að mesta ógnin gegn Bretlandi stafi innan frá. Skoska lögreglan lagði því ríka áherslu á það að mennirnir tveir sem óku inn á Glasgow-flugvöll hefðu ekki verið skoskir. Bretar láta þó ekki auðveldlega koma sér úr jafnvægi og leyfa lífinu að ganga sinn vanagang. Á laugar- daginn flykktust þúsundir í gleði- göngu samkynhneigðra og í gær komu 60.000 manns saman á minn- ingartónleikum um Díönu prinsessu. Hryðjuverk ógna Bretlandi  Óhugur grípur Breta eftir að tvær bílasprengjur voru aftengdar í London á föstudaginn og ráðist var á Glasgow-flugvöll á laugardag  Talið er að sömu aðilar standi á bak við báðar árásirnar AP Hatursbál Þessi mynd af brennandi bílnum í anddyri Glasgow-flugvallar náðist á öryggismyndavél á laugardag. Í HNOTSKURN »Aðfaranótt föstudags vartveimur bifreiðum hlöðnum sprengjum komið fyrir í mið- borg Lundúna, en hægt var að koma í veg fyrir sprengingu. »Hæsta stigi varúðarástandshefur verið lýst yfir í Bret- landi, en í því felst að yfirvöld vænti þess að hryðjuverka- árása verði freistað í náinni framtíð. »Lögreglan vinnur nú að rannsókn sönnunargagna úr bílunum þremur og skoðar mörg þúsund klukkustunda langar upptökur úr örygg- ismyndavélum, en óvíða eru þær jafnmargar og í Bret- landi. »Aðalritari Sameinuðu þjóð-anna, Ban Ki-moon, for- dæmdi árásirnar í gær. »Ekki stendur til að aukaviðbúnað í Bandaríkjunum. DÓTTIR Friðriks krónprins Dana og Mary krónprinsessu var skírð í hallarkapellunni í Fredensborg í gær og hlaut nafnið Ísabella Henríetta Ingiríður Margrét. Síð- ustu þrjú nöfnin eru nöfn mæðra foreldra hennar, auk nafns móð- urömmu Friðriks, Ingiríðar drottningar. Nafnið Ísabella kom á óvart, en það hefur þó lengi verið til í evrópskum konungsfjöl- skyldum. Ísabella Henríetta Nöfnur Mary heitir Elizabeth að millinafni, en Isabella er spænska útgáfan af því nafni. Kennebunkport. AP. AFP. | Það hefði ef- laust verið fróðlegt að vera fluga á vegg þegar fjandvinirnir George W. Bush, Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín, Rússlandsforseti settust sam- an að borðum í sumarhúsi hins fyrr- nefnda í kvöld. Samband stórveldanna hefur ver- ið nokkuð stirt – ef ekki stormasamt – síðustu mánuði og er fundurinn til- raun til þess að lappa upp á það. Staðsetning fundarins þykir táknasáttavilja Bandaríkjaforseta. Hann býður hinum rússneska starfs- bróður sínum til sumardvalarstaðar síns í Kennebunkport í Maine, en þangað hefur engum opinberum gesti verið boðið áður. Forsetarnir hafa þó löngum ræðst við á persónu- legu nótunum þegar mikið hefur leg- ið við og heilsuðust þeir með miklum kærleikum við komu Pútíns í gær. Undanfarið hafa forsetarnir helst deilt um eldflaugavarnir þær sem Bush vill setja upp í Evrópu, en Pút- ín telur þeim beint gegn Rússlandi. Málefni Kosovo og mannréttindamál hafa einnig valdið deilum þeirra á milli síðustu mánuði. Báðir gerðu forsetarnir lítið úr ágreiningi sínum fyrir fundinn og Pútín sagði áður en hann lagði upp frá Rússlandi að samskipti hans við Bush hefðu alltaf verið vinsamleg. Mótmælendur hafa flykkst á stað- inn og voru orðnir allt að 1.700 í gær- kvöldi. Umkvörtunarefni þeirra voru fjölbreytt – sumir mótmæltu stríðinu í Írak, aðrir andmæltu Pútíns í Tjetsníu og enn aðrir skertum borg- araréttindum í Bandaríkjunum. Stefnumót stórvelda Bush og Pútín hittast í sumarhúsi Bush Reuters Mótmæli Eftirmynd Frelsisstytt- unnar í líkkistu í Kennebunkport.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.