Morgunblaðið - 02.07.2007, Blaðsíða 20
Hárautt
Þessi
klæðnaður
er hluti af
sumarlín-
unni 2008.
Óhefðbundin jakkaföt
|mánudagur|2. 7. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Sá er oft ríkastur sem
skemmtir sér við minnstan
kostnað í sumarfríinu segir
Unnur H. Jóhannsdóttir »25
fjármál
Hitinn sem frá hundum streym-
ir er töluvert meiri en hitinn
sem maðurinn gefur frá sér
segir Fríða Björnsdóttir. »24
gæludýr
Þegar Lillý Karen Pálsdóttirhélt upp á afmælið sitt ádögunum afþakkaði húngjafir en óskaði þess í stað
að veislugestir létu andvirði þeirra
renna til góðs málefnis. Það sem ger-
ir uppátæki hennar svolítið merki-
legt er að hún varð bara sjö ára
þennan dag.
„Það komu 12 krakkar úr bekkn-
um mínum og ein stelpa sem var með
mér í leikskóla,“ segir Lillý Karen á
línunni að norðan þar
sem hún er stödd í
fríi ásamt for-
eldrum sínum.
„Þetta var samt
bekkjarafmæli
mitt. Ég hélt það í Björnslundi, sem
er svona skógur eða útivistarsvæði
skólans míns, Norðlingaskóla.“
Hún viðurkennir að sennilega hafi
óskalistinn þetta árið verið svolítið
óvenjulegur. „Ég bað um klink og
var með bauk sem ég bjó til og gest-
irnir áttu að setja klinkið í. Svo skrif-
aði ég á baukinn „Handa börnum í
Mósambík.“ Mér tókst að safna
7.050 krónum sem verða notaðar í
brunn svo börnin í Mósambík geti
nálgast vatn betur,“ segir afmæl-
isbarnið sem sér ekkert eftir þeim
pökkum sem hún hefði annars fengið
frá félögum sínum. „Mig langaði
ekki að vera eigingjörn,“ útskýrir
hún. „Ég fæ bara dót í fjölskyldu-
afmælinu. Mamma og pabbi gáfu
mér t.d. línuskauta, diskinn með
Birgittu Haukdal og Minnu mús-
nælu.“
Pizza og ballett
Þrátt fyrir gjafaleysið vantaði
ekkert upp á fjörið í veislunni. „Við
fórum í leiki og settum upp danssýn-
ingu. Við erum nefnilega með áhuga-
svið í skólanum og sumir hafa áhuga
á dansi og mitt áhugasvið er ballett.
Svo borðuðum við pizzu og snakk og
nammi og ís,“ segir hún og það fer
ekki milli á mála að afmælið hafi ver-
ið stórvel heppnað.
Undir þetta tekur mamma hennar
Auður Ögn Árnadóttir sem er að
vonum stolt af þeirri stuttu. „Þegar
ég stakk upp á því að gefa andvirði
gjafanna til góðs málefnis varð hún
hissa og spurði hvort það væri hægt.
Hún var strax til þegar ég sagði
henni að hún gæti einfaldlega óskað
eftir því í boðskortinu.“ Í framhald-
inu kynntu þær mæðgur sér á Net-
inu ýmis hjálparverkefni. „Síðan
valdi hún sjálf verkefnið sem hún
vildi styrkja.“
Áhugi Lillýjar kemur mömmu
hennar þó ekki á óvart. „Hún setur í
alla söfnunarbauka sem hún sér eða
suðar um pening til að setja í þá.
Hún ætlar nefnilega að verða góð-
verkakona þegar hún verður stór.
Sennilega var afmælishaldið bara
liður í því.“
Hugsjón „Mér tókst að safna 7.050 krónum sem verða notaðar í brunn svo börnin í Mósambík geti nálgast vatn
betur,“ segir Lillý Karen Pálsdóttir sem sjálf valdi verkefnið sem hún vildi styrkja.
Langaði
ekki að vera
eigingjörn
Góðverkakonan Lillí Karen Pálsdóttir má ekkert
aumt sjá og getur ekki gengið fram hjá söfn-
unarbauk öðruvísi en að láta eitthvað af hendi
rakna. Hún sagði Bergþóru Njálu Guðmunds-
dóttur frá 7 ára afmælinu sínu á dögunum.
ben@mbl.is
Sumar Herraskyrtan og hatturinn
minna kannski dálítið á tískuna sem
var á nýlendutímanum?
Reuters
Öðruvísi Framúrstefnulegar buxur sem
Agnes B kynnti til sögunnar í gær.
Reffilegur Skrautlegur hattur
setur punktinn yfir i-ið.
Franski hönn-uðurinn AgnesB kynnti sum-
arlínu sína á tískupöll-
unum í París nú um
helgina. Hún sýndi sí-
gild herraföt en þau
voru meira áberandi
óhefðbundnu jakkaföt-
in og þótt gráir og
svartir tónar væru
áberandi leyndust á
milli hárauðar flíkur
og fatnaður í mildum
jarðlitum.
Rautt Franski hönn-
uðurinn Agnes B tók á
móti blómavendi í lok
sýningarinnar.