Morgunblaðið - 23.07.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til
Fuerteventura í 1 eða 2 vikur 7. eða 14. ágúst. Þú bókar og
tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú
gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á besta tíma á
frábærum kjörum á þessum vinsæla áfangastað.
Stökktu til
Fuerteventura
7. eða 14. ágúst
frá kr. 29.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Aukavika kr. 10.000.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í
viku. Aukavika kr. 10.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
REYKHREINSIVIRKI Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga sló út í gær með þeim afleið-
ingum að reykur slapp út úr
verksmiðjunni og streymdi út í and-
rúmsloftið í 10 mínútur. Hreinsi-
virkinu sló út þar sem of mikill hiti
myndaðist í einum þremur ofna
verksmiðjunnar.
Deildarstjóri framleiðsludeildar
Járnblendisverksmiðjunnar, Þórður
Magnússon, segir að mistök hafi
orðið þess valdandi að reykurinn
streymdi út í svo langan tíma.
Reykurinn er hins vegar algjörlega
skaðlaus að hans sögn. Hann sam-
anstendur aðeins af gufu og kís-
ilryki, sem undir venjulegum kring-
umstæðum er framleiðsluafurð
verksmiðjunnar. Því sé um nokkurt
framleiðslutap fyrir verksmiðjuna
að ræða.
Þórður segir að hin mannlegu
mistök hafi fyrst og fremst valdið
sjónmengun en fyrirtækið leggi
mikinn metnað í það að halda henni
í lágmarki, líkt og allri annarri
mengun.
Reykur slapp út
á Grundartanga
HVERFIN í kringum Laugardalinn voru fegruð og
hreinsuð á laugardaginn og mátti víða sjá íbúa og borg-
arstarfsmenn í sérmerktum vestum að störfum. Tiltekt-
ardeginum lauk klukkan tvö með grillhátíð við Þrótt-
arheimilið í Laugardalnum. „Ég er alsæl með daginn,
það var yndislegt veður og samkennd meðal fólksins í
Laugardalnum,“ sagði Aðalbjörg Traustadóttir, fram-
kvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háa-
leitis.
„Verkefnið er liður í því átaki að fegra og hreinsa
borgina,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
sem lagði íbúum í Laugardal og nágrenni lið sitt. Hann
gróðursetti m.a. blátopp, sultartopp og reyniblöðkur
við Engjaveg á laugardagsmorgun.
„Það eru ótal verkefni framundan, m.a. á skólalóð-
um og leiksvæðum, þetta tekur allt sinn tíma en er um
leið góð fyrirmynd fyrir unga fólkið. Ég átti fund í
fyrradag með nemendum og stjórnendum Vinnuskóla
Reykjavíkur og þar kom fram að unglingarnir vita
hvernig á að taka til hendinni.
Það er mikilvægt að almenningur í borginni komi af
fullum krafti inn í þetta verkefni,“ segir borgarstjóri.
Margir lögðu hönd á plóg í blíðunni
við fegrun Laugardalsins
Grænir fingur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri lagði íbúum Laugardals lið við gróðursetninguna.
ÓLYMPÍULEIKUNUM í eðl-
isfræði lauk um helgina, en þeir
voru nú haldnir í 38. skipti. Skil-
yrði fyrir þátttöku eru þau að
keppendur séu undir tvítugu og
stundi ekki háskólanám.
Alls mættu 327 keppendur til
leiks að þessu sinni, þar á meðal
MR-ingarnir Arnar Þór Hallsson,
Einar Bjarki Gunnarsson, Gunnar
Atli Thoroddsen, Hafsteinn Ein-
arsson og Tómas Pálsson. Tómas
varð efstur íslensku keppendanna
í 158. sæti og reyndar langefstur
þeirra keppenda sem Norð-
urlandaþjóðirnar sendu á leikana.
Úrslit fóru annars á þann veg
að Youngjoon Choi frá Kóreu var
efstur, næstur á eftir honum kom
Xingyue Peng frá Kína og í
þriðja sæti varð Kanadamaðurinn
Tony Zhu. Efsta stelpan í keppn-
inni var Ksenya Soloyeva frá
Rússlandi.
Keppendur frá Kína náðu
hæsta meðalstigafjölda, því næst
komu Kóreumenn og loks Rússar.
Tómas
efstur
Norður-
landabúa
Keppendur frá
Kína hæstir
KIRKJUGESTIR í Viðey upplifðu
sérstaka guðsþjónustu í gær en þar
var messað með miðaldasniði fyrir
fullu húsi. Þetta hefur verið gert
einu sinni á sumri undanfarin ár en
í eynni er helgihald oft mjög sér-
stakt og tilefnisbundið.
Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson
prestur í Dómkirkjunni þjónaði
fyrir altari enda er löng hefð fyrir
því að dómkirkjuprestar sinni
messuhaldi í Viðey. „Við höfum
verið með ýmsar guðsþjónustur
sem tengjast náttúru og sögu í
gegnum árin. Nú bar svo vel í veiði
að við fengum Voces Thules til að
syngja í messunni. Þeir sungu lat-
neskan messusöng og við tengdum
það þeim gregórsöng sem við erum
vön.“
Sönghópurinn Voces Thules hef-
ur sérhæft sig í íslenskri miðalda-
tónlist. Meðal þess sem þeir hafa
tekið sér fyrir hendur er að leita að
fornri tónlist sem leynist í íslensk-
um handritum en hefur fallið í
gleymsku.
Lesið uppúr Hómilíubókinni
„Ásamt messusöngnum höfðum
við sálma úr sálmabókinni sem eru
svo gamlir að þeir gætu hafa verið
sungnir á þessm tíma. Við eigum
nefnilega nokkra sálma sem eru frá
kaþólskum tíma og eru með fornum
texta og lagi,“ sagði séra Jakob.
Tónlistin var ekki það eina sem
bar svip fortíðar í messunni. „Við
notuðum elstu texta sem við eig-
um,“ sagði séra Jakob. „Í ritning-
arlestrinum notuðum við Oddsbók
og forna sálmaþýðingu. Síðan las
ég predikun uppúr íslensku Hóm-
ilíubókinni.“
„Markmiðið með þessari messu
var að leyfa fólki að ganga inn í
anda fortíðar,“ segir séra Jakob.
En það vakti líka fyrir skipuleggj-
endum að heiðra minningu Við-
eyjar sem helgi- og sögustaðar. „Í
Viðey var mikill helgistaður sem
þjónaði byggðunum hér í kringum
sundin. Þar í klaustrinu voru prest-
ar sem sinntu helgihaldi í landi í
hinum ýmsu kirkjum. Út í eyna
komu menn til að halda stórhátíðir,
eins og brúðkaup og jafnvel útfarir.
Svo var þetta ekki síður lærdóm-
smiðstöð og menningarsetur og á
það viljum við minna.“
Messuskrúði Jakobs var með
sérstöku sniði í tilefni dagsins. „Ég
brúkaði það af helgiskrúða sem
okkur var tiltækt. Til dæmis notaði
ég messuserk og hálslín með gömlu
sniði og rómanskan hökul sem
minnti á þessa tíma til þess að
skapa stemmningu.“
Saga Viðeyjar sem helgistaðar heiðruð með sérstakri guðsþjónustu
Messa í anda
miðalda í Við-
eyjarkirkju
Morgunblaðið/Sverrir
Við altarið Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson flutti forna messutexta og Voc-
es Thules sungu kirkjulega miðaldasöngva við messu í Viðey í gær.
Prósessía Voces Thules hófu upp raddir sínar á göngunni frá Viðeyjarstofu
til kirkju. Sönghópurinn hefur sérhæft sig í flutningi miðaldatónlistar.