Morgunblaðið - 23.07.2007, Side 9

Morgunblaðið - 23.07.2007, Side 9
svindla á ísprósentunni í gögnum, sem eru send Fiskistofu. Þessi gögn eru ekki send til okkar. Þau eru send á hafnarvogirnar og hafnaryfirvöldum ber skylda til að fylgjast með hvort ísprósentan sé óeðlileg. Komi þar eitthvað óeðli- legt í ljós ber þeim skylda til að láta Fiskistofu vita og hún kannar síðan málið. Fylgjast með endurvigtun Við reynum að standa yfir vigt- un hjá þeim sem endur- og heima- vigtunarleyfi hafa, en þeir eru 147, einu sinni og helzt tvisvar á ári, hjá þeim sem eru með endurvigt- unarleyfi og helzt oftar hjá þeim sem eru með heimavigtunarleyfi. Við erum með og eigum þetta for- rit sem notað er til endurvigtunar og unnið er eftir. Fiskurinn í end- urvigtuninni fer yfir hafnarvog. Hann er tegundagreindur og hann er vigtaður inni í húsinu eftir ákvæðum um lágmarksúrtak, sem ráðuneytið hefur gefið út. Vigtarmenn vinna vigtareið þeg- ar þeir ljúka námskeiðum. Þeir leggja heiður sinn að veði að vigt- unin hjá þeim sé rétt. Vigtarmenn sem endurvigta eiga að taka vigt- arútakið af handahófi til að það gefi sem réttasta mynd af aflan- um. Við reynum eins og við getum að fylgjast með þessu ferli með því að koma án þess að gera boð á undan okkur og fylgjast með vigt- uninni og að ísprósentan sé rétt reiknuð út. Það hefur komið fyrir að menn hafa ekki staðið rétt að vigtun og verið sviptir leyfinu. Þá ber þeim að vigta allan afla á hafn- arvog sem endanlega vigtun eftir leyfissviptingu. 37 tonn af fiski á einum bíl! Þá segir í lok greinar Agnesar Bragadóttur að enn einn maðurinn hafi hringt í hana og segi að vini sínum sem er fiskflutningamaður, sem hafi þurft að taka þátt í svindlinu, sé löngu ofboðið. Hann segist hafa sýnt honum afrit af pappírum til Fiskistofu sem sýndu fiskfarm upp á 28 tonn, en þegar komið var á leiðarenda vigtuðu 36 tonn af fiski út úr bílnum. Hið rétta er að bílstjórar eru ekki með neina pappíra sem sendast eiga til Fiskistofu. Og í öðru lagi: Hvaða fiskflutningabíll á Íslandi getur flutt 36 tonn nettó af fiski? Ef svo er er Agnes komin með mál, sem hægt væri að skrifa um. Hvar eru eftirlitsmenn með þungaflutning- um frá Vegagerð ríkisins? Þetta snýr að eftirliti á landi, en við erum líka með menn sem sem fara út á sjó. Þeir eru um borð alla veiðiferðina og fylgjast með brott- kasti. Einnig loka þeir veiðisvæð- um vegna smáfisks í afla og er það okkar skoðun að það minnki líkur á brottkasti á smáfiski. Það er ný- komin út brottkasstskýrsla, sem Ólafur Karvel Pálsson, fiskifræð- ingur, hefur tekið saman. Menn geta þar séð hvernig staðan á því er. Ekkert eftirlit er fullkomið Ég vil að það komi sérstaklega fram hér að ég er ekki að tala um að eftirlit Fiskistofu sé fullkomið og það sé ekki um neitt svindl að ræða. Við höfum aldrei gefið það út að eftirlit Fiskistofu sé 100% skothelt. Hér eru menn sem reyna að vinna sitt starf af kostgæfni. Hér eru menn sem eru að vinna erfitt staf og hér eru menn sem vilja fá hið rétta fram. Ég fullyrði það að allir okkar starfsmenn gera sitt ýtrasta til að sinna starfi sínu sem bezt. Öllum ávirðingum um mútur og annað slíkt vísa ég beint til föðurhúsanna. Ég hef aldrei heyrt um slík mál á 14 ára ferli mínum hér og ef menn hafa ein- hverjar upplýsingar um slíkt, ber þeim að láta okkur vita af því. Hér er velkomið að veita allar þær upplýsingar um eftirlitið, hvernig það starfar og árangur þess. Það hefur hins vegar enginn haft sam- band við mig út af þessu eftirliti í tengslum við þessar greinar í Morgunblaðinu. Það hefði verið hægur vandi og svörin hefðu verið greið,“ segir Þórhallur Ottesen. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 9 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Allt á hálfvirði LAGERSALA 23. JÚLÍ - 3. ÁGÚST Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 M argir hafa kallað mótvæg- isaðgerðir vegna niðurskurðar aflaheimilda í þorski lítilfjörlegar og jafnvel hlægilegar. Nið- urskurður um ríflega 60.000 tonn, eða þriðjung aflaheimilda er ekkert smá- ræði fyrir hvern sem er er fyrir slíku verður. Þeir sem hafa hlutfallslega litlar aflaheimildir í þorski en meiri í öðrum tegundum geta auðvitað betur búið við slíkan niðurskurð. Það kemur engu að síður ekkert í stað 60.000 tonna af þorski. Bættar samgöngur eða tilflutningur starfa breytir þar litlu sem engu. Það er hins vegar staðreynd að við núverandi aðstæður er ekki unnt að nota fisk- veiðistjórnun til að halda uppi byggð með því að færa heimildir frá einum stað til annars. Annað verður að koma til. Hvers vegna var stóraukin áherzla á þorskeldi ekki ein af mótvægisaðgerðunum. Datt mönnum ekki í hug að bæta upp þorsk með þorski. Af hverju er ekki lagt verulegt fé og orka í fram- leiðslu á þorskseiðum til áframeldis? Framleiðsla á þorskseiðum er lítil hér á landi, aðeins um 200.000 á ári. Vafalítið er hægt að auka þá fram- leiðslu verulega og þá ala seiðin upp á stöðum, þar sem annars vegar aðstæður eru góðar og hins vegar þar sem áhrif skerðingarinnar eru mest. Norðmenn eru komnir miklu lengra en við Ís- lendingar í þorskeldinu og framleiða líklega um 10.000 tonn á ári. Hjaltlendingar eru einnig lengra komnir. Það er ljóst að með því að stór- auka framleiðslu þorskseiða til áframeldis og selja þau á viðráðanlegu verði er hægt að milda áfallið vegna niðurskurðarins. Það skiptir líka mjög miklu máli í ljósi þess að það er mikilvægt fyrir Íslendinga að halda mörkuðum sínum fyrir þorskinn. Þegar framboðið dregst saman um þriðjung á einu ári og eykst líklega afar hægt á ný, er næsta ljóst að aðrir verða búnir að fylla í glufurnar og erfitt verður að vinna markaðina á ný. Það er reyndar staðreynd að seiði verður ekki að fullorðnum fiski á einu ári. Líklega þarf að minnsta kosti þrjú til fjögur ár til að þau nái hæfi- legri sláturstærð. Því mun aukning í framleiðslu seiða ekki skila sér í útflutningshæfum fiski fyrr en eftir þrjú til fjögur ár. Þorskeldið mun því ekki lina sárustu þjáningarnar vegna niðurskurðarins, en með tíð og tíma verður það bæði góð og nauð- synleg búbót, sem stjórnvöld geta hugsanlega nýtt í þágu sjávarbyggðanna. Það er líka stað- reynd að 200.000 seiði, til dæmis, verða aldrei að 200.000 fiskum. Afföllin eru mikil. Það þarf marg- ar milljónir seiða á ári til að framleiða þúsundir tonna. En er ekki rétt að fara í málið? Það mætti líka huga að því að gefa innlendum fiskverkendum betri aðgang að þeim fiski, sem fer utan í gámum. Kannski leiðir samdrátturinn einfaldlega til þess að verð á fiskmörkuðum hækkar það mikið að þeir, sem flytja nú út í gám- um sjái sér betri kost í sölu innan lands en utan. Skerðingin mikla mun hafa miklar breytingar í för með sér eins og eðlilegt er. Þær munu koma misjafnlega niður á útgerðum og útgerðarstöðum. Sumar þessar breytingar verða varanlegar, ein- hverjar ganga til baka. Staðan þegar þorskstofn- inn hefur náð sér á strik, vonandi ekki síðar en eftir þrjú til fimm ár verður líklega mikið breytt frá því sem nú er. Aukið þorskeldi? BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason » Það er reyndar staðreynd að seiði verður ekki að full- orðnum fiski á einu ári hjgi@mbl.is TÆPUM 50.000 tonnum af fiski var landað í Færeyjum fyrstu fimm mán- uði ársins. Þetta er um 5.700 tonnum minna en á sama tíma í fyrra og nem- ur samdrátturinn um 10%. Minna var landað af nánast öllum fiskitegund- um, en mestur var samdrátturinn í botnfiski. Sé aðeins litið á maímánuð kemur í ljós að landanir á botnfiski hafa aukizt miðað við sama mánuð í fyrra. Land- að var 500 tonnum meira en í fyrra, sem er 9% aukning. Aukningin stafar nær eingöngu af aukinni ufsaveiði sem fór úr 2.700 tonnum í maí í fyrra í 3.400 tonn í ár. Vegna hækkandi fiskverðs er verð- mæti landaðs afla, þrátt fyrir sam- dráttinn, nú nærri hið sama og í fyrra eða 5,6 milljarðar íslenzkra króna nú á móti 5,8 milljörðum í fyrra. Sam- drátturinn er aðeins ríflega 1%. &+, + -  +  .         %&   #       ' #  #    (#)#           *          * *  ! +  ! ! +  +      . $,   /       Minna landað í Færeyjum FRÉTTIR frá sjómönnum sem róa í Faxaflóa bera með sér að lífríki sjávar hafa tekið kipp nú undanfarna daga. Sandsíli sem varla hefur sést á yf- irborðinu undanfarin misseri er komið. Frá þessu er sagt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. „Að sögn Eymars Einarssonar skipstjóra og útgerðarmanns Ebba AK á Akranesi varð hann var við þessa breytingu sl. miðvikudag. Það var eins og hendi væri veifað, skyndilega kraumaði yfirborðið af sandsíli og fuglinn kominn um leið, einkum kría, sem varla hefur sést, og lundi. Eymar sagði að ekki hefði lóðað á sílið þannig að það virtist alfarið halda sig á yfirborðinu. Það kæmi og heim og saman við síli í maga fisksins sem er ekki meira en undanfarin ár. „Hin skyndilega breyting mun örugglega skila sér til hans, á því er enginn vafi“ sagði Eymar. Aðspurður hvað hann haldi að valdi þessari jákvæðu breytingu, sagðist hann álíta að einhverjar snöggar breytingar í lífríkinu hefðu átt sér stað sem kannski hefðu vaknað við stærsta straum sem var sl. föstudag 13. júlí,“ segir á heimasíðunni. Yfirborðið í Faxaflóa kraumar af sandsíli Morgunblaðið/Ómar Lífríkið Lundinn við Faxaflóa hefur væntanlega nóg að éta núna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.