Morgunblaðið - 23.07.2007, Side 23

Morgunblaðið - 23.07.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 23 nýtur Verkamannaflokkurinn stuðnings meirihluta almennings en í efnahags- og öryggismálum nýtur samsteypustjórnin meira trausts enn sem komið er. Þá hrósar alrík- isstjórnin sér af aðeins rúmlega 4% atvinnuleysi. Að þreyja þorrann og góuna Peter Costello fjármálaráðherra er aðaltromp stjórnarinnar enda virðast peningarnir í kistu fjár- málaráðherra flæða út um allt og sérstaklega rétt fyrir kosningar. Sér hvergi í botn kistunnar þrátt fyrir gífurleg útgjöld til varnarmála og vopna. Costello segir Verkamannaflokk- inn ekkert kunna að fara með pen- inga og Kevin Rudd muni fara sér og þjóðinni allri að voða við stjórn þeirra mála, ástandið sé viðkvæmt og ekki megi mikið út af bera til að allt fari fjandans til. En er stjórn Peters Costellos á fjármálunum þá, eftir því að dæma, svo ábyrgðarfull og örugg þegar allt kemur til alls? Costello hefur beðið lengi eftir að fá að taka við sem forsætisráð- herra, ekki ósvipað og Gordon Brown í Bretlandi, en Howard vill ólmur freista gæfunnar eina ferðina enn og getur Costello ekkert gert nema þreyð þorrann og góuna því hann skortir jafnt fylgi almennings sem flokksfélaga. Forsætisráðherra er enn ungur og sprækur, hleypur á hverjum morgni og nýtur þess að vera í svið- ljósi hins vestræna heims enda verður hann ekki nema 68 ára gam- all í þessum mánuði. Kjötbaka auðmýkingarinnar Nú ber svo við í fyrsta sinni síðan innrásin í Írak var framin að John Howard er kominn í vörn í Íraks- málinu. Hingað til hefur fólk tekið rök hans góð og gild um að dvölin þar sé nauðsynleg til verndar lýð- ræði og frelsi. Aðeins 550 ástralskir hermenn eru í Írak, hafa þeir ekki tekið þátt í bardögum heldur haldið sig í suðurhluta landsins og hefur ekki orðið mannfall í liði þeirra. Hins vegar hafa sex Ástralar sem störfuðu við öryggisgæslu fallið í valinn. Nú sjá hins vegar allir þeir, sem vilja sjá og skilja, að hernám Íraks hefur vakið öflugt starf al- Qaeda í landinu en engir slíkir hryðjuverkamenn voru þar fyrir, og hefur þetta aukið hættu á hermd- arverkastarfsemi hér heima fyrir. Varnarmálaráðherra Ástralíu, Brendan Nelson, varð það á að segja í viðtali alveg nýlega að olían í Írak væri ástæða þess að Ástralar gætu ekki horfið þaðan, þeir þyrftu að tryggja hinum vestræna heimi olíu. Náðu ummæli þessi til heim- pressunnar og ruku forsætis- og ut- anríkisráðherra strax upp til handa og fóta. Varð Brendan Nelson að kyngja þessum ummælum sínum strax daginn eftir frammi fyrir al- þjóð („a humble pie“ eins og sagt er á enskri tungu). Annars er Brendan Nelson fræg- ur fyrir að hafa hlotið ókeypis menntun eins og aðrir háskólanem- ar á sínum tíma en meðan hann hef- ur setið í alríkisstjórninni í hinum ýmsu embættum hefur hann séð svo til að þeir sem vilja læra í há- skólum landsins þurfa að borga himinhá gjöld. Svo mikill skortur er nú orðinn á verk- og tæknifræðingum, læknum og hjúkrunarfræðingum, að ekki sé minnst á tannlækna, að öll spjót eru úti til þess að fá fólk með þessa menntun inn í landið erlendis frá. Verkamannaflokkurinn vill fá áströlsku hermenninga heim frá Írak og einbeita sér að þeim verk- efnum sem eru ærin hér í næsta ná- grenni Ástralíu eins og t.d. á Aust- ur-Tímor og Salómonseyjum. Síðasta skoðanakönnun sýndi líka að 62% almennings styðja það að kveðja hermennina heim. Hins veg- ar á John Howard erfitt með að framkvæma þennan vilja þjóð- arinnar þegar kosningar eru á næsta leiti og sýna þannig að Verkamannaflokkurinn hafi rétt fyrir sér. Hann gæti þó átt það til að spinna nýja vef um málið. Kosningakanína Alþýða manna hefur beðið spennt eftir því hvað John Howard tæki til bragðs til þess að vinna þessar kosningar. Oft hefur verið talað um að engu sé líkara en hann dragi sérstaka kosningakanínu upp úr hatti sínum líkt og töframaður (The Vizard of Oz!) nokkrum vikum fyrir kosningar, kanínu eða réttara sagt málefni sem fær fólk til að kjósa hann. Þetta hefur honum tek- ist hingað til enda stjórn hans setið að völdum í 11 ár. Nú bregður hins vegar svo við að áróður þess eðlis að John Howard sé orðinn „maður gærdagsins“ og skorti nýjar og ferskar hugmyndir sé að bera árangur. Hins vegar má einnig segja að fólk sé farið að sjá í gegnum lygavefina eftir ellefu ár. Fólk er ekki búið að gleyma norska skipinu Tampa, lyginni um að flóttamenn hafi hent börnum sínum fyrir borð, blindri fylgispekt við for- seta Bandaríkjanna, GST- söluskattinum sem John Howard lofaði forðum að aldrei („never ever“) yrði settur á í Ástralíu, og í tíð núverandi alríkisstjórnar hafa vextir á húsnæðislánum hækkað átta sinnum og kemur það illa við fjölskyldufólk sem hefur tekið há lán sem auðfengin eru úr bönkum á þessum síðustu og bestu tímum. „Lítil börn eru heilög“ Nýleg skýrsla sem kölluð var Lít- il börn eru heilög leiddi í ljós hin gífurlegu vandamál sem trufla allt eðlilegt líf í byggðum frumbyggja í Northern Territory (nyrst í Ástr- alíu) og miklu víðar. Nú er þetta ekki nýtt fréttaefni, skýrslur um skelfilegt heilsufar, ofnotkun áfeng- is, ofbeldi og kynferðislega mis- notkun á börnum allt niður í þriggja ára aldur hafa borist stjórnvöldum um langan aldur, ein 30 ár. Í ellefu ár hefur alríkisstjórnin sinnt þeim með hangandi hendi eða látið þau sigla sinn sjó að mestu. Nú bregst John Howard og stjórn hans hins vegar harkalega við og með fyrr- verandi hermann, en núverandi ráðherra málefna frumbyggja, Mal Brough, sér við hlið, tekur alrík- isstjórnin yfirstjórn um 70 byggða frumbyggja í NT í sínar hendur með því að senda fjölda hermanna og lögreglu á vettvang. Með því ennfremur að takmarka sölu áfeng- is, fyrirskipa læknisskoðun á börn- um, endurskipuleggja atvinnuleys- is- og aðrar tryggingarbætur með tilliti til þess hvort foreldrar sendi börn sín í skóla eða sé peningunum eytt í vín eða spilakassa en ekki í mat handa börnum þá … Frumkvæði Johns Howards er gott að mörgu leyti og sýnir visst pólitískt hugrekki. Styður Kevin Rudd og flokkur hans þessa fram- kvæmd. Þeir vilja hins vegar lang- tímalausn og samráð við frum- byggjana en ekki eingöngu yfirgang og fyrirskipanir að ofan. Margar frumbyggjakonur flúðu til fjalla með börn sín er þær heyrðu fyrst um aðgerðirnar. Slíkt er sambandsleysið milli fólksins og skrifstofubákns alríkisstjórn- arinnar. Skýrslan um litlu börnin bætir í sjálfu sér ekki miklu við það sem vitað var fyrir en titillinn er góður og krafan í skýrslunni um að eitt- hvað sé gert nú þegar datt beint í hendur forsætisráðherra. Kannski verður þetta málefni að kosn- ingakanínu „töframannsins“? Það á eftir að koma í ljós. Atvinna og sómasamlegt húsnæði Margir eru þó uggandi um þann pólitíska vilja sem að baki býr. Ef John Howard er að nota skýrsluna sem átyllu til þess að seilast eftir landi frumbyggjanna annars vegar og hins vegar eftir atkvæðum hinna hvítu sem vissulega styðja valdbeit- inguna þá sýnir Galaxy Poll að 58% kjósenda álíta hann einvörðungi bregðast við í þessu máli vegna komandi kosninga. Fyrir þá sem ekki vita betur þá eru í NT ómæld auðæfi í iðrum jarðar, t.d. gas og úraníum. Kemur sér þá illa ef ólæsir frumbyggjar segjast eiga landið. Lögfræðingurinn Rex Wilde, QC, einn þeirra sem sömdu skýrsluna taldi þurfa sex milljarða dala árlega til að mæta þörfum frumbyggjanna en forsætisráðherra hefur hingað til talað um kostnað upp á nokkrar milljónir dala. Áður fyrr voru börn frumbyggj- anna tekin af þeim með valdi og tal- að er um kynslóð stolnu barnanna. Á nú að stela réttindum frumbyggj- anna til lands þeirra? Þannig spyrja margir. Það sem vantar í frumbyggja- byggðunum er fyrst og fremst at- vinna. Hvers vegna fara í skóla ef engin atvinna bíður þín? Það vantar sárlega húsnæði, barnaheimili, heilsugæslustöðvar, lækna, lög- reglu – alla þá þjónustu sem við tökum sem gefna. Án atvinnumöguleika, skóla- göngu og eðlilegs fjölskyldulífs er engin von fyrir frumbyggja þess- arar álfu. Að þeir lifi 17 árum skem- ur en hinir hvítu íbúar álfunnar, hrynji niður úr sykursýki og hjarta- sjúkdómum, er skelfileg skömm fyrir eitt ríkasta land heimsins. Nú birtast myndir af John How- ard og Mal Brough með fallegum frumbyggjabörnum í blöðum og sjónvarpi, hins vegar sjáum við aldrei stjórnmálamann halda á særðu eða látnu barni í Írak. Framhaldssagan. Besti vinur Osama? Hinn ástralski fangi Bandaríkja- stjórnar, David Hicks, er nú loks kominn heim frá Quantanamo-flóa það er að segja hann afplánar nú nokkurra mánaða fangelsisdóm í Adelaide í S-Ástralíu en verður lát- inn laus um áramótin. Mikill þrýst- ingur almennings olli því að mál hans var loks tekið fyrir herdómstól þar sem hann játaði á sig að hafa tekið þátt í æfingum með her- sveitum talibana. David sá fram á áralanga bið í kóngulóarvefjum lagakrókanna að öðrum kosti svo lái honum hver sem vill. Rúmlega fimm ár í Quantanamo og maður játar á sig hvað sem er til að losna, jafnvel eitthvað álíka og að vera besti vinur Osama Bin Ladens. „Þeir þurfa aðeins að segja við munum vernda ykkur og valdið er þeirra“ Einhvern veginn þannig hljóðar ljóð Nóbelsverðlaunahafans Harold Pinters; Lýðræði. Það er aðeins fjórar línur og hann orti það þegar hann frétti af innrásinni í Írak. Fáir efast um að John Howard og alríkisstjórn hans muni nota ótta al- mennings við hryðjuverkamenn til þess að kjósa stjórnina. Ástæðu ótt- ans þarf ekki að skilgreina svo gjörla. Enginn efast um kænsku þessa gamalreynda stjórnmálarefs, síst af öllum Kevin Rudd og forysta Verkamannaflokksins. Verður nú hart látið mæta hörðu á næstu mán- uðum – ekki síst í ljósi úrslita skoð- anakannananna. Ef til vill er fólk ekki alveg eins auðtrúa lengur og John Howard forsætisráðherra hefur drjúgan farangur eftir ellefu ár á stjórn- arstóli, of margar lygar og hálf- sannleik í farteskinu. Því verður spennandi og fróðlegt að sjá vilja alþýðu manna koma í ljós á kjör- dag. solveig.einarsdottir@gmail.com Reuters vatnsskortur Þurrkarnir komu illa við nautgripabændur eins og marga aðra, en eftir að John Howard forsætisráðherra bað biðja drottin allsherjar um regn fór sums staðar að rigna. oks hefur alríkisstjórnin brugðist við skelfilegu gis, ofbeldi og kynferðislegri misnotkun á börn- a, aðallega nyrst í áflunni. egn, hveitibrauðsdagar ur forsætisráðherra - að- Klúður Ummæli Brendans Nelsons varnarmálaráðherra þóttu óheppi- leg. þykir manna- Þaulsetinn John Howard hefur setið manna lengst í stóli forsætis- ráðherra. » Að þeir [frumbyggj- arnir] lifi 17 árum skemur en hinir hvítu íbúar álfunnar, hrynji niður úr sykursýki og hjartasjúkdómum, er skelfileg skömm fyrir eitt ríkasta land heims- ins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.