Morgunblaðið - 23.07.2007, Qupperneq 36
Það er frábært að vita
til þess að hár mitt
komi að góðum notum… 38
»
reykjavíkreykjavík
buxur, setti upp svörtu „intelligensíu“-
gleraugun og vippaði sér inn í reyktjaldið fyrir
utan staðinn. Eitt skelfilegt augnablik fannst
henni sem hún væri stödd í indíána-„svetti“ en
þegar mesti reykurinn leið út um tjaldopið
kom í ljós að um tjúttlegustu togarastemningu
var að ræða. Bara ekta íslenskur sviti. Og þar
sem flugan býr í hafnarborg og kallar ekki allt
ömmu sína settist hún á meðal hinna reyndari
og kneyfaði úr krús. Kollegarnir Magnús
„mandólín“ Einarsson og Lísa Pálsdóttir úr
útvarpi allra landsmanna heilsuðu hress upp á
tjaldbúa. Enda ku Grand Rokk vera helgistað-
ur peða jafnt sem stórmenna sem blóta reglu-
lega leiklistar- og skákgyðjuna.
… Alþingismaður í aldingarði …
Sýningin Miðbaugur og Kringla: Leisure,
Administration and Control var opnuð með
stæl í Kringlunni á laugardaginn þegar ellefu
ungir norrænir myndlistarmenn leiddu saman
fáka sína. Fluga mætti á seinni opnunina sem
haldin var í Ráðhúsinu síðar sama dag en týnd-
ist í fjölbreyttri flóru ferðamanna og sá mest
lítið. Alvöruherramenn eins og John Benedikz
læknir sprönguðu um í Pósthússtræti þegar
nýgift hjón streymdu unnvörpum út úr Dóm-
kirkjunni. En laglegir læknar leynast víðar en
í miðbænum; fyrrverandi landlæknir, Ólafur
Ólafsson, fyrirmyndar- og eldriborgari, gæddi
sér á blómkálssúpu í kaffistofu Domus Medica
rétt fyrir helgi og gantaðist við afgreiðsludöm-
urnar. Fluguskvísa skellti sér út á land þegar
sólin hvarf og áði í Eden í Hveragerði og var
svo ljónheppin að hitta Pétur Blöndal alþing-
ismann í aldingarðinum. Segi nú bara: „Af
ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.“
Kolfinna Baldvinsdóttir og Bryndís Schram.Þórólfur Árnason og Margrét Baldursdóttir.Herdís Þorvaldsdóttir og
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Svanhildur Björnsdóttir, Kristján Davíðsson og Valgerður Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Niels P. Sigurðsson og Sigurður A.Magnússon.
Morgunblaðið/Eggert
Sigríður Arngrímsdóttir, Díana Rafnsdóttir og Hjörtur
Matthías Skúlason.
Gunnar Helgi Guðjónsson og Eyþór Árnason.
Berglind Jóna Hlynsdóttir og Úlfhildur
Dagsdóttir.
Guðmundur Steinn Gunnarsson og Jóna
Hjaltadóttir.
Jóna Lilja Guðjónsdóttir og Arna Ósk Óskarsdóttir.
Sóley Kristjánsdóttir, Svana Sveinsdóttir og
Margrét Ómarsdóttir.
… Miðaldra miðbæjar-
rottur í massavís …
...mættu á magnaða
menningarviðburði...
» SýninginÓ-náttúra
var opnuð
í Listasafni
Íslands.
» Sýningin Miðbaugur og Kringla: Leisure,
administration and control
var opnuð í Kringlunni.
» Carnival var haldið á Café Oliver alla helgina.
Morgunblaðið/Eggert
Hekla Flókadóttir og Rína Alma Zogaj. Guðbjörg Árnadóttir og Gyða Rán Árnadóttir.
Flugan
Bjarki Bragason og
Birgitta Jónsdóttir.
Villtir Vesturbæingar og miðaldra mið-bæjarrottur mættu í massavís á opnunkínverska staðarins Great Wall (Kína-
múrsins) á Vesturgötu á fimmtudagskvöldið
en þeir hafa einmitt beðið uppvægir eftir að
upplifa framandi fæði í gamla Naustinu. Hjón-
in Jón Baldvin Hannibalsson stjórnmálaspe-
kúlant og Bryndís Schram umhverfissinni og
Karl Steingrímsson í Pelsinum gæddu sér á
„spæsí“ og spennandi veitingum af hlaðborð-
inu. Framkvæmdastjórinn, hann Tan M.C.
Alaam, sem hefur rekið slíka staði víða um
Evrópu, og hefur sést á miklum hlaupum und-
anfarið í miðbænum, tók á móti gestum af alúð
og höfðingsskap. Þegar skorað var á flugu að
mæta á alvörudrykkju-gáfumannabúlluna
Grand Rokk um kvöldmatarleytið á föstudag-
inn herti okkar kona upp hugann, fór í galla-