Morgunblaðið - 23.07.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 43
Eftir Gunnar Gunnarsson
zunderman@manutd.is
Listahátíð ungs fólks áAusturlandi, LungA,lauk um helgina. Hátíðinvar haldin í áttunda sinn,
en hún hefur verið haldin á hverju
ári frá árinu 2000. Í ár tóku 130
þátttakendur þátt í listasmiðjunum,
sem voru sjö, þar af var um helm-
ingurinn erlendur. Smiðjurnar
voru í tónlist, leik- og sirkuslist,
danslist, fatahönnun, hreyfimynda-
gerð, stompi og myndlist. Frítt var
fyrir alla þátttakendur í smiðj-
urnar. Ýmsir viðburðir voru opnir
almenningi í vikunni, hægt var að
fylgjast með listasmiðjunum, boðið
var upp á fyrirlestra, „opið svið“,
bíósýningar og fleira. Hátíðinni
lauk á laugardag með uppskeruhá-
tíð, þar sem smiðjurnar sýndu af-
rakstur vinnunnar. Þema þeirra
var barátta góðs og ills og byggð-
ust sögurnar sem sagðar voru á
ævintýrum frá heimalöndum þátt-
takenda, sem voru meðal annars
frá Eistlandi, Svíþjóð, Danmörku
og Finnlandi. Um kvöldið voru tón-
leikar þar sem fram komu hljóm-
sveitirnar Bloodgroup, Skátar, Jeff
Who?, Mínus og Trabant.
Allt í öllu og ekkert í engu
Þátttakendur á hátíðinni í fyrra
voru um eitt hundrað og á fyrstu
hátíðinni um fimmtíu, mest Seyð-
firðingar. Sigríður Eir Zophonías-
ardóttir var í hópi fárra aðkomu-
manna á fyrstu hátíðinni. „Hún
hefur vaxið gríðarlega. Hátíðin var
frekar lítil í fyrstu en seinustu tvö
ár höfum við verið með ungmenna-
skiptiverkefni í gangi og þá hefur
hún hreinlega sprengt allt utan af
sér.“
Sigríður Eir var þátttakandi
fyrstu fjögur árin á LungA en í dag
er hún í framkvæmdanefnd hátíð-
arinnar. „Ég get því miður ekki
tekið þátt í námskeiðunum því það
eru ýmsir hnappar sem þarf að
hneppa. Mitt hlutverk er að sjá til
þess að allir séu kátir. Ég er allt í
öllu og ekkert í engu en fæ að kíkja
á námskeiðin og smakka smá á
öllu.
Mér fannst hátíðin í ár ganga
ótrúlega vel og ég tók sérstaklega
eftir hvað allt var afslappað. Það
var ekkert stress í gangi og á tíma-
bili var ég orðin stressuð yfir hvað
það var lítið stress.“
Langar ekki aftur heim
Sigríður Eir hefur nýlokið fyrsta
ári sínu í Commedia-trúðaskól-
anum í Danmörku. Tólf nemendur
úr skólanum hennar tóku þátt í
LungA. Þeirra á meðal var Linda
Nygaard, sem var þátttakandi í
sirkus- og leiklistarsmiðju. „Þetta
er búið að vera skemmtilegt en erf-
itt. Við æfðum í fimm tíma á dag
sem tók mjög á okkur líkamlega og
ég var aum. Ég hef verið í leikhúsi
frá því ég var barn og er nýút-
skrifuð úr leiklistarskóla.
Mér finnst frábært að koma til
Íslands, mér finnst náttúran yf-
irþyrmandi í hvert skipti sem ég
fer út úr húsi. Ég hlakka ekki til að
fara aftur heim til leiðindalandsins
þar sem engin fjöll eru. Ég held
líka að ég gæti aldrei fundið fyrir
stressi hér. Það er stóísk ró yfir
öllu.“
Í sömu smiðju var Þórhallur Jó-
hannsson en hann hafði ekki áður
tekið þátt í LungA. „Það er alveg
pottþétt að ég kem aftur á næsta
ári. Vikan er búin að vera mjög
skemmtileg. Það eru allir rosalega
hressir, kátir og opnir. Það er
hægt að labba upp að hverjum sem
er og spjalla við hann.“
Eitt sinn skáti... Hlómsveitin Skátar var á meðal þeirra sveita sem komu fram. Aðalmaðurinn Braulio frá Portúgal var meðal tólf nemenda Commedia-skólans á LungA.
Fallið á kné Þeir Bjarni Lárus Hall og Elís Pétursson úr hljómsveitinni Jeff Who? fóru á kostum.
Fjandinn laus Púkar tóku á móti gestum uppskeruhátíðarinnar en
þemað var barátta góðs og ills í ævintýraheimum.
Flottur Ragnar Kjartansson og félagar í hljómsveitinni
Trabant voru seinasta hljómsveitin á tónleikunum.
Stress yfir stressleysi
Nóg var um að
vera á Listahátíð
ungs fólks á Aust-
urlandi um
helgina
Leikið á bílhurð Stomphópurinn fór á ruslahaugana og
fann sér eitthvað sem nýtilegt væri til ásláttar.