Morgunblaðið - 30.07.2007, Side 8

Morgunblaðið - 30.07.2007, Side 8
8 MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is KARLMAÐUR á fertugsaldri lést af sárum sínum eftir skotárás á Sæbraut á tólfta tímanum í gær- dag. Árásarmaðurinn, sem er á svipuðum aldri, fannst á Þingvöll- um nokkru síðar; hann hafði svipt sig lífi. Málið telst upplýst og er aðdragandinn sá að maðurinn sem varð fyrir skotárásinni hafði ný- verið tekið upp samband við fyrr- verandi eiginkonu árásarmannsins. Í bréfi stíluðu á lögreglu var tilefni árásarinnar staðfest. Fá vitni höfðu í gærkvöldi gefið sig fram við lögreglu og er því margt á huldu hvað skotárásina varðar. Vitað er að sprungið dekk var á bifreið fórnarlambsins og af ummerkjum á vettvangi mátti sjá að náð var í varadekk í farang- ursgeymslu bílsins, en ekki lengra komist. Hvort árásarmaðurinn veitti fórnarlambinu eftirför eða röð tilviljana réð því að þeir hittust á þessum tiltekna stað fæst ekki staðfest, né heldur hvað þeim fór á milli. Samskipti þeirra enduðu með því að árásarmaðurinn hleypti af 22 kalíbera rifli og byssukúla hafn- aði í vinstra brjósti fórnarlambs- ins. Bílstjóri sendibifreiðar, og jafn- framt helsta vitnið um aðstæður á vettvangi, var á leið um Sæbraut þegar stórslasaður maðurinn stöðvaði ferð hans og bað um hjálp. Ekki náðist í bílstjórann en lögregla höfuðborgarsvæðisins staðfesti að árásarmaðurinn hefði þá enn verið á staðnum og með skotvopnið á lofti. Sá gerði hvorki tilraun til að stöðva fórnarlamb sitt né hafði hann uppi ógnandi tilburði í garð bílstjórans. Fannst á Þingvöllum Bílstjóri sendibifreiðarinnar ók með manninn að Laugardalslaug og gerði jafnframt lögreglu við- vart. Tveir starfsmenn laugarinnar komu að og reyndu björgunarað- gerðir, en maðurinn var þá varla með lífsmarki. Sjúkraliðar komu að stuttu síðar, hófu endurlífgun- araðgerðir og fluttu manninn í skyndi á bráðamóttöku Landspít- ala – háskólasjúkrahúss. Maðurinn gekkst undir aðgerð en ekki reyndist unnt að bjarga lífi hans. Hann var úrskurðaður látinn rétt fyrir klukkan eitt. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu hélt blaðamannafund um miðj- an dag í gær þar sem greint var frá helstu atvikum. Þar kom m.a. fram að þegar í stað hafi grunur fallið á ákveðinn aðila. Einu tengsl þeirra voru þau að hinn látni hefði nýlega tekið upp samband við fyrr- um konu árásarmannsins. Leit var gerð að manninum og stóð yfir þegar tilkynnt var um látinn mann í bifreið við Hrafnagjá á Þingvöll- um, það var laust eftir klukkan eitt. Maðurinn svipti sig lífi með sama skotvopni. Hann ritaði bréf fyrir sjálfsvígið og stílaði á lögreglu. Hörður Jó- hannesson yfirlögregluþjónn vildi ekki upplýsa um efni bréfsins að fullu en sagði það staðfesta tengsl- in milli skotárásarinnar og sjálfs- vígsins. Málið er því talið upplýst. Ýmsum spurningum ósvarað Hvorugur mannanna á að baki sakarferil og lögregla hefur ekki upplýsingar um hvort deilur hafi staðið milli þeirra. Þá vildi Hörður ekki greina frá högum fólksins, sagði málið vera harmleik og eng- um tilgangi þjóna að upplýsa um einkahagi fólksins. Þrátt fyrir að málið sé talið upp- lýst heldur rannsókn áfram og er ýmsum spurningum ósvarað, s.s. um aðdraganda árásarinnar. Lög- regla hefur óskað eftir vitnum en staðið hefur á viðbrögðum. Lést eftir skotárás á Sæbraut Morgunblaðið/Sverrir Sendibíllinn Ökumaður sendibifreiðar flutti manninn að Laugardalslaug þar sem starfsmenn reyndu endurlífgun. Sæbraut Sprungið dekk var á bíl mannsins og hafði varadekkið verið tekið úr farangursgeymslunni. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfarið  Málið talið upplýst og rakið til afbrýðisemi Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Nýr vegur Í framtíðinni liggur ökuleiðin að Hreðavatni í gegnum Bifröst. Göngustígur Neðan við núverandi veg að Hreðavatni verður lagður göngustígur niður Grábrókarhraun þar sem nýja vatnslögnin er. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is AFLEGGJARINN að Hreðavatni verður sameinaður aðkomunni að Bifröst og lagður þar sem nýja vatns- æðin var lögð á milli núverandi veg- ar að Hreðavatni og Bifrastar. Neð- an vegarins að Hreðavatni verður gerður göngustígur þar sem vatns- æðin liggur yfir Grábrókarhraun auk aðkomuleiðar að borholunum. Byrjað var að bora eftir vatni í miðju Grábrókarhrauni neðan Bif- rastar árið 2005 og lagnir einkum lagðar þar árið eftir. Vel gekk að leggja um 30 km nýja vatnsæðina frá Bifröst í Borgarnes og var hún vígð í byrjun janúar í ár. Samfara lagningu vatnsæðarinnar varð þónokkurt rask á hrauninu og miklu meira en landeigendur höfðu gert ráð fyrir, að sögn Birgis Hauks- sonar, eins af eigendum Hreðavatns. Hann segir að í samráði við landeig- endur hafi verið reynt að bregðast við jarðraskinu með því að hreyfa við því þannig að ekki væri hægt að Göngustígur og vegur í Grábrókarhrauni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.