Morgunblaðið - 08.08.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF hækkuðu lítillega í
verði í Kauphöll Íslands í gær. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 0,09% og
var 8409 stig við lokun markaða.
Bréf Teymis hækkuðu um 1,6%, bréf
Landsbankans um 1,26% og Trygg-
ingamiðstöðvarinnar um 1,01%. Bréf
Century Aluminum lækkuðu um ein
5,32% og Bréf Føroya Banka um
3,86%.
Krónan lækkaði um 0,17% í gær,
en velta á millibankamarkaði var
31,7 milljarðar króna. Gengi Banda-
ríkjadals er nú 64,10 kr. og gengi
evrunnar er 88,13 kr.
Hækkun í kauphöll
● ALMENNT
hækkuðu hluta-
bréf í kaup-
höllum heimsins
í gær og í sum-
um tilfellum var
um verulegar
hækkanir að
ræða. Þannig
hækkaði breska
FTSE-vísitalan um 1,93% og
franska CAC-vísitalan um 1,58%.
Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði
um 0,04% og í Bandaríkjunum
hækkaði Dow Jones um 0,26% og
Nasdaq-vísitalan um 0,56%.
Norrænar vísitölur hækkuðu all-
ar, sú sænska um 1,06%, sú
danska um 0,69% og sú norska
um 1,4%.
Almennar hækkanir í
erlendum kauphöllum
● GREININGARDEILD Landsbank-
ans mælir með því við fjárfesta að
þeir minnki hlut sinn í fjárfesting-
arfélaginu FL Group og undirvogi fé-
lagið í eignasafni sínu. Þetta kemur
fram í nýju verðmati á félaginu sem
birt var í gær. Samkvæmt matinu er
tólf mánaða verðmatsgengi FL Group
27,7 krónur á hlut en hinn 1. ágúst
sl. var gengi FL Group í kauphöll OMX
á Íslandi 27,85 og miðast ráðgjöfin
við það. Við lokun markaðar í gær
var gengi FL Group 27,0.
Mælt með sölu á
hlutabréfum FL Group
GREININGARDEILD bandaríska
fjárfestingarbankans Citigroup
mælir ekki lengur með því að fjár-
festar kaupi hlutabréf Kaupþings en
mælir með því að þeir haldi í þau
bréf sem þeir eiga fyrir. Hefur
Citigroup með öðrum orðum hætt að
mæla með yfirvogun á bréfunum og
mælir nú með markaðsvogun.
Telur greiningardeildin að áhætta
tengd bréfunum hafi aukist og nefnir
þeirri skoðun til stuðnings óstöðug-
leika krónunnar og sveiflur á ís-
lenskum hlutabréfamarkaði undan-
farin misseri. Þá geti titringur
undanfarinna daga á alþjóðlegum
lánamarkaði haft óæskileg áhrif á
viðskiptamódel bankans.
Segir í greiningunni að í náinni
framtíð geti Kaupþing aukið veru-
lega hagnað sinn en áhættan í
rekstrinum hafi aukist og erfiðara sé
að sjá hana fyrir.
Citigroup lækkaði einnig viðmið-
unarverð á hlutabréfum Kaupþings
úr 1.500 krónum í 1.250. Gengi bréfa
Kaupþings við lok viðskipta í gær
var 1.183 krónur.
Aukin áhætta
tengd Kaupþingi
Citigroup lækkar viðmiðunarverð
kjör fáist fyrir ábatasöm og vænleg
verkefni. Þá muni vega þyngst gæði
undirliggjandi eignar, styrkur og
orðspor kaupenda. Útrás íslensku
fyrirtækjanna hafi í flestum tilfell-
um gengið vel og það ætti að hjálpa
þeim í áframhaldandi fjárfestingum.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Glitnis, segir að aðalat-
riðið í þessari stöðu sé að fjármagn
verði dýrara. Hins vegar sé enn gott
aðgengi að lánsfé á lánamörkuðum.
„Það leiðir af sér að skuldsettar yf-
irtökur verða óhagstæðari, en hvort
þetta mun koma í veg fyrir eða tefja
skuldsettar yfirtökur er hins vegar
erfitt að segja.“
Yfirtökur Íslendinga
finna fyrir óróanum
Greiningardeildir telja áhrifin gilda um öll fyrirtæki í útrás
Morgunblaðið/Golli
Yfirtökur Íslenskir fjárfestar hafa verið á flugi erlendis, líkt og Ofur-
mennið á efstu hæð leikfangaverslunar Hamley’s við Oxford-stræti.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FORSTÖÐUMENN greiningar-
deilda bankanna, sem rætt var við í
gær, voru sammála um að óróinn á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum síð-
ustu vikur og mánuði myndi hafa
áhrif á skuldsettar yfirtökur ís-
lenskra fyrirtækja.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings, segir
að umhverfið almennt fyrir skuld-
settar yfirtökur hafi versnað. Hins
vegar sé ekki endilega víst að um-
hverfið sé miklu verra fyrir íslensk
fyrirtæki en önnur. Það hafi í öllu
falli ekki gerst á einni nóttu.
„Fyrir ári síðan lentu eingöngu ís-
lensku bankarnir í því að skulda-
álagið á þá hækkaði. Núna hefur
þetta bitnað meira á erlendum bönk-
um en hinum íslensku, þannig að að
því leyti til hefur samkeppnisstaða
íslenskra banka ekki versnað varð-
andi fjármögnun á yfirtökum,“ segir
Ásgeir. Hann bendir á að skulda-
álagið hafi verið í sögulegu lágmarki
að undanförnu og fáir reiknað með
að það myndi haldast þannig lengi.
Ýkt áhrif til skamms tíma
Katrín Friðriksdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, segir að óróinn að undan-
förnu geti haft áhrif á skuldsettar
yfirtökur íslenskra fyrirtækja líkt
og annarra sem starfa á alþjóða-
markaði. Hún segir áhrifin til
skamms tíma oft geta verið ýkt,
þegar markaðirnir verða fyrir ófyr-
irsjáanlegu áfalli. Núna séu dæmi
þess að illa gangi hjá bönkum að
selja frá sér lán í tengslum við
skuldsettar yfirtökur, nema með
miklum afföllum.
„Þetta veldur því að aðrir halda
að sér höndum í einhvern tíma en
síðan jafnar þetta sig út. Lánakjör
hækka og skuldsetningarhlutföllin
geta breyst,“ segir Katrín.
Hún bendir á síðustu misseri hafi
verið um kjöraðstæður að ræða og
því ekki óeðlilegt að slíkt gerist.
Annars muni það gilda áfram að góð
EIVIND Reiten, forstjóri Norsk
Hydro, hefur afsalað sér 8 af 28
milljónum norskra króna (um 90 af
300 milljónum íslenskra króna), sem
stjórn félagsins ákvað að greiða hon-
um í bætur fyrir að kaupréttarsamn-
ingnum, sem hann hafði gert, verður
rift. Stjórnarformaður Hydro sagði
af sér á sunnudag vegna málsins en
eftirlitsstjórn félagsins hefur hins
vegar lýst yfir trausti á stjórninni.
Vill vinnufrið í fyrirtækinu
Í viðtali við Finansavisen neitar
Reiten því að hann hafi nokkuð haft
með gerð kaupréttarsamningsins að
gera. Hann segist einbeita sér nú að
því að skapa vinnufrið í fyrirtækinu
og afsali sér hluta uppbótarinnar í
því skyni, en ekki vegna þess að
hann hafi ekki rétt á fénu.
Stjórn Hydro hefur viðurkennt að
það væri gagnrýnivert að áætlun um
að greiða 35 æðstu stjórnendum
Hydro uppbót vegna kaupréttar-
samninga, sem verður rift, var ekki
kynnt á hluthafafundi félagsins.
Norska ríkið á 44% hlut í Norsk
Hydro, en fyrirtækið hefur í langan
tíma sýnt stóriðjuframkvæmdum á
Íslandi áhuga. Norska ríkisstjórnin
hafði ákveðið að afnema kaupréttar-
samninga stjórnarmanna ríkisfyrir-
tækja og í Noregi er deilt um hvort
ákvörðun stjórnar Hydro hafi verið í
samræmi við lög.
Deilur vegna kaupréttar
Forstjóri Hydro afsalar sér 8 milljónum norskra króna
Morgunblaðið/RAX
Hydro Eivind Reiten ásamt sam-
starfsmönnum við Stjórnarráðið.
ÓRÓLEIKI á
fjármálamörk-
uðum heimsins
undanfarnar vik-
ur og hremm-
ingar þær sem
fjárfesting-
arbankinn Bear
Stearns hefur
lent í í kjölfarið,
hafa neytt for-
stjóra bankans til
þess að hringja persónulega í
stjórnendur nokkurra helstu fjár-
málafyrirtækjanna á Wall Street til
þess að fullvissa þá um að bankinn
sé í stakk búinn til þess að takast á
við erfiðleikanna.
Financial Times greinir frá því
að James Cayne, forstjóri Bear
Stearns, hafi þegar hringt í Stan
O’Neal, forstjóra Merrill Lynch, og
pantað fund með Chuck Prince, for-
stjóra Citigroup. Auk þess mun
hann hafa þurft að róa ýmsa aðra
forstjóra sem áhyggjufullir
hringdu að fyrra bragði.
Þeir sem til þekkja segja fjár-
hagsstöðu Bear Stearns sterka og
helsta vandamálið sé því trúverð-
ugleikavandi sá sem bankinn þarf
nú að berjast við.
Gengi Bear Stearns fór mikla
rússíbanareið á mánudag eftir að
fréttir bárust af uppsögn Warrens
Spector, framkvæmdastjóra verð-
bréfasviðs fyrirtækisins. Í upphafi
viðskipta lækkuðu þau verulega en
þegar leið á daginn tóku þau að
hækka verulega og við lokun höfðu
þau hækkað um 5% frá því fyrir
helgi.
Hringir út
til að róa
menn niður
James Cayne stýrir
Bear Stearns.
*
+ &
%"
,
)%"-
+(-./-0% 1
2#-% 45 6 1 7, ,1!6
(& 8 & 92#
A-/ 8 & 92#
BC(2#
+8 & 92#
8( 7 2#
4#B9#3!
DE 8 & 92#
" 90 !7 2#
+ 7 2#
*&E
2& 2#
( <A .
. #72#
:62#
F 2#
8"" &5 / 9. !
2#
E(-8 & 92#
#E2#
( (EG( & G
BA
!8 & 92#
H &6A
DE E8 & 92#
* 2#
IJ2 2#
: 6!! ! (/ 2#
K (/ 2#
4! :!+ / ; "#
L ( 6 L&
4A8 2#
49 2#
<. =!>
, .
$
$
$
$
$
$ $
$
$
$
$
$ $
$
$
$ $
$
K 9(
!
:7& ,&!5
" 9
<
<
<
<
<
<
<
/
- 9(
<
<
<
<
<
<
<
M!( !
- -
N*O?
N*O@
%$
%
$
?
?
N*O-
AAO
%
$
%
$
?
?
M&PQ&
IR
%$
%$
?
?
:B
MO
%
$
%$
?
?
N*OB
N*O:
%$
%$
?
?
● HOLLENSKI bankinn Rabobank
gaf í gær út jöklabréf fyrir 25 millj-
arða króna og er það næststærsta
útgáfa jöklabréfa frá upphafi. Sú
stærsta, sem var upp á 40 milljarða,
var einnig á vegum Rabobank.
Í Vegvísi greiningardeildar Lands-
bankans segir að heildarupphæð úti-
standandi jöklabréfa sé nú um 400
milljarðar króna. Greiningardeild tel-
ur miklar líkur á að stærstur hluti
þeirra jöklabréfa sem falla á gjald-
daga í september verði framlengdur.
Veiking krónunnar að undanförnu
auki aðeins líkur á að svo verði.
Jöklabréf upp á 25
milljarða króna
GISTINÆTUR á hótelum hér á
landi í júní sl. voru nærri 154 þúsund,
samanborið við tæplega 133 þúsund í
sama mánuði 2006. Er þetta fjölgun
um 16% milli ára, samkvæmt nýjum
tölum frá Hagstofunni. Aukning
varð bæði á gistingu erlendra og inn-
lendra ferðamanna. Fjölgaði gisti-
nóttum í öllum landshlutum nema á
Austurlandi, þar sem þeim fækkaði
um 8% milli ára. Mesta aukningin
var á höfuðborgarsvæðinu, eða 22%.
Á Norðurlandi nam aukningin tæp-
um 17%. Þá jókst gistirými hótela í
júnímánuði, miðað við sama tíma í
fyrra, eða um 10%. Gistinætur á hót-
elum fyrstu sex mánuði ársins voru
564 þúsund, borið saman við 484 þús-
und eftir sama tímabil á síðasta ári.
Fjölgun
gistinátta
SEÐLABANKI Bandaríkjanna
ákvað í gær að halda stýrivöxtum
sínum óbreyttum, eða 5,25%, þrátt
fyrir samdrátt á lánamörkuðum og
erfiðleika á húsnæðismarkaði þar í
landi. Sagði í yfirlýsingu banka-
stjórnarinnar að þrátt fyrir ofan-
greinda þætti væri allt útlit fyrir að
hagkerfi Bandaríkjanna héldi áfram
að vaxa næstu misseri. Seðlabankinn
telur enn sem fyrr að mesta hættan
sem að hagkerfinu steðji sé verð-
bólga og því hafi hann ákveðið að
halda stýrivöxtum óbreyttum.
Greinendur búast flestir við því að
stýrivextir muni haldast óbreyttir
næstu mánuði og nefnir Wall Street
Journal það sem dæmi að markaðir
ganga út frá því nú að aðeins séu um
5% líkur á því að vextir verði lækk-
aðir um 0,25 prósentustig í septem-
ber.
Óbreyttir
stýrivextir