Morgunblaðið - 08.08.2007, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
BYGGING nýs húsnæðis við Barna-
og unglingageðdeild (BUGL) við
Dalbraut, gengur vel, að sögn Þrá-
ins Sigurðssonar, aðstoðarforstjóra
Framkvæmdasýslu ríkisins.
Um er að ræða fyrsta áfanga af
fjórum í viðbyggingu við deildina,
en fyrsta skóflustungan að fram-
kvæmdunum var tekin í febrúar á
þessu ári og hafa þær staðið frá
þeim tíma.
Þráinn segir að uppsteypu húss-
ins sé lokið að mestu, aðeins eigi
eftir að steypa portveggi á þaki
hússins. „Þetta er á áætlun og ef
eitthvað er þá er þetta aðeins á
undan áætlun,“ segir Þráinn. Það
er Framkvæmd ehf. sem annast
verkið og Þráinn segir að gert sé
ráð fyrir að því ljúki í júní á næsta
ári.
„Verktakinn á að skila fullbúnu
húsi á þeim tíma og síðan tekur ein-
hvern tíma að flytja í það,“ segir
Þráinn. Húsið sem verið er að reisa
er á tveimur hæðum.
Drög að stækkun 1998
Fyrst var byrjað að leggja drög
að stækkun á húsnæði BUGL árið
1998. Þegar framkvæmdir við
fyrsta áfangann hófust á þessu ári
var búið að fjármagna hann að fullu
en þá átti enn eftir að fjármagna
viðbyggingaráfanga númer tvö til
fjögur.
Morgunblaðið/Sverrir
Vel gengur að byggja við BUGL
Mosfellsbær | Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, bæjarstjóri Mosfells-
bæjar, lætur af störfum 1. septem-
ber næstkomandi, og tekur
Haraldur Sverrisson þá við stöðu
bæjarstjóra. Þetta var samþykkt á
fundi bæjarráðs í síðustu viku.
Ragnheiður var kjörin á þing í al-
þingiskosningunum í vor og sagði að
kosningunum loknum að hún hygðist
hætta sem bæjarstjóri áður en þing
tæki til starfa í haust. Hún tók við
embætti bæjarstjóra í Mosfellsbæ að
loknum bæjarstjórnarkosningunum
árið 2002. Ragnheiður mun sitja
áfram sem bæjarfulltrúi í Mos-
fellsbæ, samhliða þingstörfum.
„Þetta leggst mjög vel í mig, þetta
er spennandi, gefandi og ábyrgðar-
mikið starf,“ segir Haraldur Sverr-
isson, sem tekur við starfi bæjar-
stjóra í september. Haraldur er
fæddur árið 1961 og hefur gegnt
stöðu skrifstofustjóra rekstrar- og
upplýsingaskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins, en lætur af þeim störfum
þegar hann tekur við starfi bæjar-
stjóra.
Haraldur var annar maður á lista
Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar sem fram fóru
í fyrra. Hann hefur verið formaður
bæjarráðs Mosfellsbæjar og skipu-
lags- og bygginganefndar frá því
2002, en kjörtímabilið 1998-2002 var
hann varabæjarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og sat í skipulags- og
bygginganefnd.
Haraldur tekur
við 1. september
Haraldur
Sverrisson
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Á SÍÐASTA fundi borgarráðs var
lagt fram bréf skrifstofustjóra fram-
kvæmdasviðs, þar sem lagt var til að
eftirtöldum aðilum verði úthlutað
byggingarrétti á lóðum við Lamb-
hagaveg í Úlfarsárdal fyrir starf-
semi sína.
Fyrirtækin eru:
Lóð nr. 1: Johan Rönning hf.
Lóð nr. 3: Vídd ehf.
Lóð nr. 5: Þ. Þorgrímsson & co ehf.
Lóð nr. 6: Leiguhús ehf.
Lóð nr. 7: A. Wendel ehf.
Lóð nr. 8: Ofnasmiðjan hf.
Lóð nr. 9: Eirvík – heimilistæki ehf.
Lóð nr. 10: Þ.G. Verktakar ehf.
Lóð nr. 11: Fálkinn hf.
Lóð nr. 13: Rafkaup hf.
Lóð nr. 15: Búgarður ehf.
Lóð nr. 33: Byggingarfélag
Gylfa og Gunnars hf.
Tillagan var samþykkt, enda verði
tekið fram í skilmálum að ef sam-
þykktir verði stærri byggingarreitir
á lóðunum síðar, greiði bygging-
arrétthafar, auk viðbótargatnagerð-
argjalds, uppreiknað kaupverð
byggingarréttar.
Atvinnulóðum úthlutað
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Í KVÖLD verður boðið til sögusiglingar
með Húna II. Farið verður frá Torfu-
nefsbryggju við Kaupvangsgilið kl. 19.30.
Allir eru velkomnir.
Hanna Rósa Sveinsdóttir, sérfræðingur
hjá Minjasafninu á Akureyri, mun sjá um
leiðsögnina, en siglingin er í boði Akureyr-
arstofu, Minjasafnsins á Akureyri og Holl-
vina Húna II. Á meðal þeirra spurninga
sem leitast verður við að svara eru: Hvar
standa Gránufélagshúsin og hvað fór fram
þar? Hvenær er fyrstu mannaferða getið á
Oddeyrinni? Hvernig lítur Akureyri út frá
sjó? Hvar er elsta hús Akureyrar? Húni II
var smíðaður á Akureyri árið 1963 og er
130 tonna eikarbátur. Alls voru smíðaðir
meira en 100 slíkir eikarbátar á árunum
1940 til 1970 en Húni II er eini óbreytti
báturinn af þessari stærð sem til er á Ís-
landi. Hann var gerður út til fiskveiða í 30
ár en er nú notaður til sjóstangveiðiferða,
kvöldsiglinga og hvalaskoðunarferða.
Kvöldsigling Í kvöld verður boðið til sigl-
ingar með leiðsögn um borð í Húna II.
Sögusigling
með Húna II
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
FISKIDAGURINN mikli er hand-
an við hornið og Handverkshátíðin í
Eyjafjarðarsveit einnig. Báðar
þessar hátíðir verða haldnar um
næstkomandi helgi.
Búist er við tugum þúsunda gesta
á Eyjafjarðarsvæðið vegna þessa,
og því hafa forsvarsmenn hátíðanna
tekið höndum saman við marga að-
ila á svæðinu og skipulagt mikla
dagskrá viðburða. Markmiðið er að
kynna á skipulegan hátt framboð á
ýmiss konar afþreyingu og skemmt-
un á svæðinu.
Viðburðir í öllum Eyjafirði
Dagskráin ber heitið „Húllumhæ
– viðburðavika í Eyjafirði.“ Húll-
umhævikan stendur yfir frá 8.-15.
ágúst og hefst því í dag, annars veg-
ar með uppsetningu sérstakrar
þrautabrautar fyrir börn í Dýra-
garðinum Krossum á Árskógs-
strönd, og hins vegar sögusiglingu á
eikarbátnum Húna II. Margt verð-
ur á boðstólum að sögn Dórótheu
Jónsdóttur framkvæmdastjóra
Uppskeru og handverks 2007:
„Óhætt er að segja að mikið verði
um að vera á svæðinu þessa daga.
Auk hátíðanna á Dalvík og í Eyja-
fjarðarsveit verða golfmót á nokkr-
um völlum á Eyjafjarðarsvæðinu,
tveir húsdýragarðar opnir, knatt-
spyrnumót stúlkna á Siglufirði,
handverkshús opið í Eyjafjarð-
arsveit, jólaís kynntur í Eyjafjarð-
arsveit, söfn opin og þannig mætti
áfram telja.“
Gestir safna stimplum
og taka þátt í léttum leik
Allt í allt eru rösklega 20 við-
burðir hluti af viðburðavikunni og
því geta allir fundið eitthvað við sitt
hæfi. Auk þess sem minnst er á hér
að framan mun Rúnar Júlíusson
taka slagara á Hótel Sóley á Dalvík,
Loðinlumpa hennar Grýlu verður
afhjúpuð og Dimmuborgajólasvein-
arnir koma við í Jólagarðinum. Í Ís-
landsbænum við Hrafnagil verður
kjötsúpugerð kynnt og módelflug-
koma á Melgerðismelum frá kl. 13-
17.
Að auki geta heppnir gestir unnið
glaðninga. „Á 9 af þeim stöðum sem
bjóða upp á viðburði geta gestir
fengið stimpil sem kvittun fyrir að
þeir hafi komið,“ segir Dóróthea.
„Með því að safna fimm stimplum
geta gestir svo tekið þátt í léttum
leik þar sem góðir vinningar verða í
boði.“
Á meðal þeirra vinninga sem í
boðir eru, eru leikhúsmiðar hjá
Leikfélagi Akureyrar og áskrift-
arkort í leikhúsið. Einnig verða
flugmódel og sérstakir gripir frá
Gamla í Laufási í boði, auk að-
göngumiða á eyfirsku söfnin og í ey-
firsku dýragarðana.
Húllumhævika fer í hönd
Meira en tuttugu viðburðir á dagskrá á Eyjafjarðarsvæðinu næstu daga
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Húllumhæ! Margt verður á boðstólum á Eyjafjarðarsvæðinu, t.a.m. fiskidagurinn mikli og fiskisúpukvöld á
Dalvík, pæjumót á Siglufirði, fjórar opnanir í Safnasafninu og Uppskera og handverk við Hrafnagil.
Í HNOTSKURN
»Húllumhævikan er sam-starfsverkefni ferðaþjón-
ustuaðila á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Verkefnið naut styrks
frá Vaxtarsamningi Eyja-
fjarðarsvæðisins.
» Í vikunni er boðið upp áýmsa viðburði á Eyja-
fjarðarsvæðinu og þeir
kynntir sérstaklega fyrir
gestum.
AF 155 tekjuhæstu íbúum Akureyr-
arbæjar eru einungis 6 konur. Þetta kem-
ur fram á vef Vikudags, www.vikudag-
ur.is. Andres E. Andrésdóttir læknir
kemst hæst á listanum, í 27. sæti. Sjómenn
og læknar eru algengastir meðal þeirra
tekjuhæstu.
Örfáar konur
meðal tekjuhæstu
♦♦♦