Morgunblaðið - 08.08.2007, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GÆÐI,
GÆÐI,
GÆÐI,
GÆÐI...
GÆÐI,
GÆÐI,
GÆÐI,
RUSL,
GÆÐI
BÍDDU NÚ VIÐ...
ÉG FÓR OF LANGT
ÞÚ GETUR EKKI FALIÐ
SMÁKÖKUHLJÓÐ MEÐ
ÍSKRINU Í VAGNINUM ÞÍNUM!
ÞAÐ ER EITTHVAÐ SVO
FULLKOMIÐ VIÐ ARINELD
BRESTIRNIR, FLÖKTANDI
LJÓSIÐ... ALLT ER SVO
ÖRUGGT OG ÞÆGILEGT
ÞEGAR MAÐUR SITUR
FYRIR FRAMAN
ARINELD
SÉRSTAKLEGA EF
MAÐUR Á MJÚKT
TÍGRISDÝR
HRÓLFUR ER VONLAUS!
NÚ
?
ÉG SAGÐI HONUM
AÐ HANN ÆTTI
EKKI AÐ NOTA
HENDURNAR Á SÉR
TIL AÐ BORÐA
OG HANN SAGÐI: „HVAÐA HENDUR
Á ÉG ÞÁ AÐ NOTA?“
GRÍMUR, ÞÚ ERT AÐ
VERÐA OF SEINN Í
HLÝÐNISSKÓLANN
NÚ NÆRÐ
ALDREI AÐ
TEMJA MIG! ÉG
ÆTLA AÐ VERÐA
VILLIDÝR!
ÉG ÆTLA AÐ BÚA
Í SKÓGINUM,
HLAUPA UM
SLÉTTURNAR OG
SOFA UNDIR
SJÖRNUNUM
UM LEIÐ OG
ÉG ER BÚINN
AÐ ATHUGA
HVERNIG
VEÐRIÐ
VERÐUR...
ÉG SÉ 150.000 KRÓNURNAR
HANS OG HÆKKA UM 300.000!
ÞÚ GETUR EKKI PLATAÐ
MIG, FÉLAGI!
ÉG ER MEÐ FULLT
HÚS! HAFÐU ÞETTA
AUMINGINN ÞINN!
HANN
ER MEÐ
FERNU! BAAHH!
ELSKAN, ER
ALLT Í LAGI?
ÉG VERÐ AÐ
FINNA M.J.
MÉR ER SAMA ÞÓTT
FÓLK ÁTTI SIG Á ÞVÍ
HVER ÉG ER...
SVO LENGI
SEM M.J. ER
ÓHULT
Á SAMA TÍMA...
ELDUR!
dagbók|velvakandi
Tölvur og sjónvarp
Í HRAÐVAXANDI samfélögum,
þar sem alltaf er lögð áhersla á
tækni og framfarir, fer óneitanlega
um mann hrollur þegar maður hugs-
ar um hvað slíkir hlutir geta verið
hættulegir. Börn niður í neðstu stig
skólaaldurs eru komin með tölvur og
sum hver hreinlega einangra sig og
eiga takmarkað samneyti við for-
eldra og jafnaldra vegna þessa
ósóma. Þetta hentar sumum full-
orðnum ákaflega vel því þeir eru svo
gagnteknir af því að vinna og þurfa
með einhverjum hætti að vita til
þess að þeir geti haft ofan af fyrir
börnum sínum. Þeim eru skaffaðir
tölvuleikir og sjónvarp til að sinna
þeim á víxl.
Ég mótmæli þessu og óska eftir
að fullorðið fólk dragi úr neysluþörf
sinni og snúi sér að börnunum sínum
á jákvæðan og heilbrigðan hátt eins
og mamma mín gerði í gamla daga
og allt fólkið í kringum hana. Það
valdi frekar fátækt, án sjónvarps og
tölva, og fór þess í stað í risagöngu-
túra með börnin, mögulega í bíó, las
fyrir börnin, fór með þau á bóka-
safnið eða önnur söfn og naut þess
að vera samvistum við börnin sín
sem eru svo fljót að vaxa og þroskast
ef við beinum ekki athyglinni að því.
Barnamessur, skátastarf og íþróttir
voru allsráðandi. Auðvitað er ég ekki
að segja að þetta sé ekki við lýði í
dag en samt er allt of stór hópur lít-
illa kríla sem fer úr dagvistun og
skóla inn í heim sem er óeðlilegur,
fráhrindandi og býður ekki upp á
annað en vandamál síðar á ævinni.
Jóna Rúna Kvaran.
Vitni á svörtum jeppa
gefi sig fram
FÖSTUDAGINN 13. júlí sl. átti sér
stað umferðaróhapp rétt fyrir utan
Blönduós. Ég mætti stórum bíl og
fékk spýtu, sem stóð út af stóra bíln-
um, í hliðina hjá mér með þeim af-
leiðingum að hálf hlið af bílnum mín-
um fór af. Vitni á svörtum jeppa
náðu að stoppa manninn á stóra bíln-
um en hann neitar nú sök.
Nú lýsi ég eftir þessum vitnum á
svarta jeppanum en mér láðist að
skrifa niður bílnúmer hjá þeim. Vin-
samlegast hafið samband í síma 567
7056 eða 895 0212.
Þórhallur Bjarnhéðinsson.
Til kattaeigenda á Álftanesi
ÞESSI steingráa
kisa hefur verið á
flakki síðustu
daga í og við Há-
tún á Álftanesi.
Kisan ber þess
merki að hafa
verið með þrönga
hálsól sem hefur
sært hana á háls-
inum. Hún er
frekar lítil og kannski ekki fullvaxin,
en er mjög mannelsk og hengir sig á
þá sem gefa sig að henni. Hún græt-
ur hástöfum úti á næturnar og vill
komast heim til sín. Þeir sem kann-
ast við þennan kött geta haft sam-
band í síma 669 1323.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
SIGMAR Þór Sveinbjörnsson hefur þessa skemmtilegu mynd af bíl fyrir
utan hús BSR í fórum sínum. Hann biður um upplýsingar um bílinn í gegn-
um tölvupóst nafar@simnet.is.
Kannast einhver við bílinn?
FRÉTTIR
Árnes | Félagar í félagi harmon-
ikkuunnenda í Reykjavík héldu veg-
lega 30 ára afmælishátíð í Árnesi í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi nú um
verslunarmannahelgina. Talið er að
um 500 manns hafi verið á staðnum
en hátíðin fór vel fram að sögn Frið-
jóns Hallgrímssonar, formanns fé-
lagsins. Meðal dagskráratriða var
leikur hins kunna sænska harmon-
ikkuleikara Lars Ek en með honum
léku Gunnar Pálsson á bassa og Þor-
steinn Þorsteinsson á gítar. Hús-
fyllir var á tónleikunum hjá þessum
frábæra harmonikkuleikara. Lars
kom fyrst hingað til Íslands 1985 og
á hann marga vini hér á Íslandi.
Hann hefur komið alls sex sinnum til
landsins og glatt marga með snilli
sinni.
Nikkan þanin í Árnesi
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Tónlist Lars Ek heillaði áheyrendur með snilldarlegum harmonikkutónum.