Morgunblaðið - 08.08.2007, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Slæmt fyrir skuldsettar
yfirtökur Íslendinga?
Órói á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum síðustu vikur getur haft áhrif
á skuldsettar yfirtökur íslenskra
fyrirtækja en þau verða ekki endi-
lega verr stödd en erlend fyrirtæki í
sömu sporum. Landsbankinn mælir
nú með sölu á bréfum FL Group og
Citigroup mælir með að fjárfestar
haldi bréfum sínum í Kaupþingi.
» Forsíða
Rafmagnsleysi víða í gær
Íbúar víðsvegar á landinu voru
rafmagnslausir í rúma klst. í gær er
skammhlaup varð í spennustöð
Landsnets í Hvalfirði. Rafnmagn fór
af í álverum og umferðarljósum í
Reykjavík en engar tilkynningar um
tjón hafa borist. » 2
Rússar neita árás
Stjórnvöld í Georgíu fullyrða að
rússneskar árásarþotur hafi skotið
eldflaug inn í landið. Rússar þver-
taka fyrir það og segja Georgíumenn
hafa skotið flauginni sjálfir til að ná
höggstað á Rússum. » 14
Styttist í veiðileyfi
Minnst 140 hreindýraveiðimenn
hafa hætt við veiðar í haust og stytt-
ist því biðin fyrir þá sem ekki enn
hafa fengið leyfi. 25% aukning er á
veiðikvóta á hreindýrum frá síðasta
ári. » 4
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Biðlisti á hjarta-
deild | Dýrð byggð á rústum
Staksteinar: Kostnaðurinn eykst
Ljósvaki: Því fleiri stöðvar, því …
UMRÆÐAN»
Annar lífsstíll – annað líf
Blaðaskrif og áhrif blaðaskrifa
Æskudraumar Jóns Inga …
Hugsjónaeldur yfir moldum …
4 ' #:;;;)9
<
2 2 2 2
2
1
2 2
2
2 2
2
2
1
2 2 - =)9 $ 2
2 2 2 2 2
1
2
>?@@8AB
$CDA@BE<$FGE>
=8E8>8>?@@8AB
>HE$==AIE8
E?A$==AIE8
$JE$==AIE8
$3B$$EKA8E=B
L8F8E$=CLDE
$>A
D3A8
<DE<B$3+$BC8@8
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
Suðaustan 8-13 m/s
og rigning eða súld
sunnan- og vestan-
lands en annars hæg-
ari og þurrt. » 10
Söngvarinn, laga-
höfundurinn, fram-
leiðandinn og plötu-
snúðurinn Lee
Hazlewood og
Nancy Sinatra. » 37
AF LISTUM»
Hazlewood
og Sinatra
BÆKUR»
Pönkari hverfur með dul-
arfullum hætti. » 37
Sérstakur þema-
flokkur verður helg-
aður kvikmyndum
frá Norðurlönd-
unum á San Sebast-
ian-hátíðinni. » 36
KVIKMYNDIR»
Á köldum
klaka
TÓNLIST»
Apparat Organ Quartet
bætist í hópinn. » 38
BÍÓLISTINN»
Simpsons-teiknimyndin
sú mest sótta. » 43
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Telja að Madeleine hafi verið myrt
2. Angelina brjáluð við Brad
3. Dóttirin verði ekki fyrirsæta …
4. Tæklað í nafni ástarinnar
FÝSI þig að vita hve mikið er af
alkóhóli, sykri, prótíni, fitu eða jafn-
vel þungmálmum í þeirri fæðu sem
þú neytir þá er
svarið líklega að
finna í gagna-
grunninum Ís-
gem, sem finna
má á vef Matís.
Alls er nú að
finna þar upplýs-
ingar um 900
fæðutegundir og
er gagnagrunnurinn ætlaður jafnt
almenningi sem sérfræðingum.
„Ég held að við getum státað af
því að vera búin að taka saman upp-
lýsingar um flest þau matvæli sem
aðgengileg eru í landinu,“ segir Ólaf-
ur Reykdal, verkefnastjóri hjá Mat-
ís, en Ísgem geymir upplýsingar um
næringarinnihald jafn ólíkra fæðu-
tegunda og prins póló-súkku-
laðistykki, matarkex, kjötfars og
appelsínusafi eru. | 20
Hve mikil
fita er í
bjórnum?
SUMARIÐ hefur verið smáfuglum
hagstætt, enda árferði gott. Spor-
tittlingur hefur verpt á sunn-
anverðum Vestfjörðum og þetta er í
fyrsta sinn sem varp þeirrar teg-
undar er staðfest hérlendis að sögn
Jóhanns Óla Hilmarssonar fugla-
fræðings. Þá hefur fjallkjói, náskyld-
ur en smávaxinn ættingi kjóa, verpt
á Norðurlandi. Hann er auðþekkj-
anlegur af sérlega löngum mið-
fjöðrum í stéli. Brandönd er einnig í
mikilli sókn, mestri í Borgarfirði.
Hún hóf fyrst varp hér um 1990.
Auðnutittlingur, steindepill og
glókollur hafa dafnað vel í sumar.
Auðnutittlingurinn nærist mikið á
birkifræjum sem gnótt hefur verið
af undanfarið. Þá er glókollurinn að
ná sér eftir hrun sem varð í stofn-
inum árið 2004. Að sögn Jóhanns Óla
má skýra uppgang hans út frá greni-
lús, sem mikið var af í vetur, en hún
er aðalfæða glókollsins að vetri til.
Nýjar teg-
undir verpa
Ljósmynd/Jóhann Óli
Sportittlingur Kemur við hér á landi
á leið sinni til Grænlands frá Evrópu.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
ÞÓTT verslunarmannahelgin sé að
baki þurfa skemmtanaglaðir Íslend-
ingar ekki að örvænta. Næstu helgi
eru tvær stórar hátíðir í boði og gæti
verið erfitt fyrir marga að gera upp
við sig hvora eigi heim að sækja, því
þær eru hvor í sínum landshlutan-
um. Þetta eru að sjálfsögðu Fiski-
dagurinn mikli á Dalvík og Hinsegin
dagar í Reykjavík.
Hinsegin dagar er nú haldnir í ní-
unda sinn og stendur hátíðin yfir
dagana 9.-12. ágúst með ýmsum við-
burðum, en hápunkturinn er Gleði-
gangan litríka sem farin verður nið-
ur Laugaveginn kl. 14 á laugar-
daginn. Þá tekur við hátíðardagskrá
sem að þessu sinni verður haldin við
Arnarhól. Heiðursgestur Hinsegin
daga er bandaríska djass- og revíu-
söngkonan Miss Vicky. Hún er
óvenjuleg fyrir þær sakir að hún er
komin hátt á níræðisaldur en
skemmtir þó enn eftir rúmlega sjötíu
ára langan feril.
Á Fiskideginum mikla verður
gestum og gangandi sem fyrr boðið
að gæða sér á ljúffengum fiskréttum
á laugardaginn. Kvöldið áður opna
bæjarbúar heimili sín og bjóða upp á
heimalagaða fiskisúpu. Í ár verða
vináttubönd hátíðargesta styrkt því
á föstudagskvöldinu verður mynduð
Vináttukeðja út frá Dalvíkurkirkju, í
hring sem tákna á jörðina.
Hátíðir í sjónmáli
Landinn heldur áfram að skemmta sér á útihátíðum
Næstu helgi eru Hinsegin dagar og Fiskidagurinn mikli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litagleði Hinsegin dagar eru sívinsælir og setja svip sinn á borgina. Ár-
lega sækja yfir 50 þúsund manns Gleðigönguna og aðra skemmtidagskrá.
HÚN er augljós einbeitingin í andlitum piltanna sem
æfa nú af miklu kappi með 8. flokki Þróttar. Hér eru ef-
laust á ferðinni fótboltamenn framtíðarinnar sem hugs-
anlega munu feta í fótspor þeirra Íslendinga sem gert
hafa það gott í atvinnumennsku á erlendri grund. Í það
minnsta vantar ekki leikgleðina og áhugann.
Fótboltamenn framtíðarinnar
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta
um boltann
♦♦♦