Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 31 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur 'DOLLHOUSE' BÓKAHILLA Til sölu örfá stykki af þessum hillum. H: 119 cm, B: 110 cm, D: 30 cm. Verð kr. 21.800 m/vsk. Uppl. í s: 891 9668 eftir kl. 16.00 Heilsa Gjafaegg óskast. Við erum hjón sem getum ekki eignast barn saman nema einhver góðhjörtuð kona gefi okkur egg. Viðkomandi þarf að vera 35 ára eða yngri. Þær sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða með þessum hætti geta snúið sér til Art Medica í síma 515- 8100. Nudd Klassískt nudd. Árangursrík olíu- og smyrslameðferð með ívafi íslenskra jurta. Steinunn P. Hafstað félagi í FÍHN, s. 586 2073, 692 0644. Húsgögn Húsgögn til sölu vegna flutninga Sófi, sjónvarpsborð, glerskápur, bókahilla og tvö lítil borð til sölu vegna flutninga. Fyrstur kemur, fyr- stur fær. Uppl. eru í síma 699 7340. Húsnæði í boði Leigusali auglýstu frítt Leigjandi leitaðu frítt Leiga.is býður  Leiguráðgjöf  Mat á leigjendum  Gerð leigusamninga og trygginga Leiga.is Löggild leigumiðlun Geymslur Stafnhús Eyrarbakka. Geymsla - vöktun - viðgerðir. Erum núna að taka á móti ferðabílum, hjólhýsum o.fl. Verð m² X 3.500 yfir veturinn. Upplýsingar og móttaka í sími 899 1128. Getum bætt við okkur í geymslu nokkrum tjaldvögnum og fellihýsum. Uppl. í síma 421 5452 og 867 1282. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Tékkneskar og slóvenskar kristalsljósakrónur. Mikið úrval. Frábær verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. www.skkristall.is. Human touch nuddstóll, lítið notaður, til sölu á sanngjörnu verði. Upplýsingar í síma 899 7177. Verslun SALTLAMPAR - SKRAUTSTEINAR Róandi - slakandi - sefjandi. Bjóðum frábært úrval saltlampa, skrautsteina og eðalsteinsljósa. Nánar: www.gos- brunnar.is. Gosbrunnar.is - Langholts- vegi 109, bakvið - 517-4232. Þjónusta Traktorsgrafa Case 590 K 4x4. Tek að mér skurðgröft og aðra jarðvinnu . Uppl. í síma 567 2424 og 892 9011. ER VEISLA Í VÆNDUM? Við erum 3 stúlkur um tvítugt sem bjóðum fram aðstoð í minni og stærri samkvæm- um, við þjónustustörf, frágang o.fl. Uppl. gefur Ása í s. 823 4336. Byggingavörur Hjallabrekku 1 • Kópavogi Símar: 564 3000 – 564 0030 www.loft.is Ekið inn Dalbrekku PÍPULAGNIR GIRAIR Nútíma lausnir Þrýstiloftslagnir Kaldsuða Járnamenn ath! Eigum til beygivélar og klippur frá Kóreu, einnig bindivír og MAX bindivélar. HB Innflutningur, Drangahrauni 6, 220 Hafnarfirði. S: 895 3198/544 2055. hbnet.is. Ýmislegt Hágæða- plastvörubretti fyrir allan iðnað Einnig bjóðum við upp á sorptunnur, box o.fl. Aukabónus ehf. s. 892 2028 • sund@hive.is Þægilegir herraskór á til- boðsverði aðeins kr. 1.000.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Mjög smart haustlitir í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,- Létt fylltur og flottur í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,-” Virkilega gott snið í D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 5.990,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Mjúkir og þægilegir inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 37 - 42. Verð: 6.550.- og 6.885- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Vélar & tæki Til sölu Zedor 4718 árg.´74. Verð 70.000 þús. Uppl. í síma 697 5850. Bílar Toyota Rav 4, árg 2005 Ekinn 23 þúsund km, vetrar og sumardekk, leður á sætum, topplúga, dráttarkúla, hraðastillir. Upplýsingar í síma 862 855. Iveco Eurocard ókeyrður til sölu Með fullt af aukahlutum , glæsilegur bíll. Sími 693 3730. BMW 540ia árg. '97 ek. 165 þús. km. Virkilega góður og skemtilegur bíll sem sér ekkert á og nýkominn úr skoðun án athugasemda. Leður og allur pakkinn. Uppl. í síma 862 2029. BMW 540 árg. 1996, ek. 177 þús. Gullfallegt eintak, 8 cyl. 286 hestöfl. Leðurinnrétting. Allt nýtt í hjólastelli og búið að skipta út öllu sem slitnað getur. Vetrar- og sumar- dekk, allt á BMW álfelgum. Verð 1.290 þús. Skoða öll skipti. Sími 899 2005. Hjólbarðar Góð Goodyear nagladekk notuð tæpan vetur. Stærð 175/70 með felgum sem passa undir Polo og Skoda Fabia. Verðtilboð 45.000 kr. Upplýsingar í síma 892 7828. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Kristófer Kristófersson BMW. 861 3790. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Mótorhjól Hippar Á afmælistilboði 298.000 þús, með götuskráningu. 250 cc, með fjarstarti, þjófavörn, rollbar, töskum, abs brem- sur, 2 litir, svart og vínrautt. Ítalskar vespur 50cc, með fjarstarti og þjófavörn, abs bremsukerfi, breið dekk, 4 litir. Verð 188.000 þús, með hjálmi, götu- skráningu og boxi að aftan. Skoðið vefsíðu okkar: www.motorog sport.is Mótor og sport ehf. Stórhöfði 17 110 Reykjavík Sölusímar 567 1040, 845 5999 Varahlutir og viðgerðaþjónusta 567 1040. Smáauglýsingar sími 569 1100 að hjóla sér til heilsubótar, það var nú ekki algengt á þeim tíma að húsmæð- ur á þeim aldri sæjust úti hjólandi. Þegar Magga og Óskar fluttu á Afla- grandann fór Magga að iðka sund reglulega og fannst ómögulegt ef hún af einhverjum ástæðum komst ekki í sund. Einnig man ég eftir því að eitt sinn þegar ég var stödd í verslunarer- indum á Eiðistorgi um jólaleytið, þá svifu Magga og Óskar þar í dansi saman með hópi eldri borgara sem voru þar að sýna dans. Það var svo gaman að fylgjast með Möggu hvað hún virkilega naut þess að taka þátt í leik og starfi alveg fram á það síðasta. Fæturnir voru aðeins farnir að stríða henni svo hún átti ekki eins auðvelt með að fara allra sinna ferða eins og áður, svo sem í sund og í búð- ina til að versla. Það vafðist ekkert fyrir henni að leysa þann vanda, hún fékk sér rafknúna skutlu og fór allra sinna ferða á henni. Ég dáðist að framsýni hennar og sjálfstæði, en hjá Möggu frænku var þetta ekkert til að tala um, henni fannst þetta bara svo sjálfsagt og eðlilegt. Magga frænka var alltaf fastur punktur í lífi okkar systkinanna á Skeiðarvoginum. Þær eru eins og æv- intýri í minningunni heimsóknirnar á Skólavörðustíginn, afi að dútla í eld- smiðjunni sinni í bakgarðinum, bolta- leikirnir í portinu og bakkelsið henn- ar Möggu, frændfólkið á neðri hæðinni, súkkulaðijólasveinarnir sem Gummi frændi gaf okkur, Didda frænka í heimsókn frá Ameríku með bleikar orlonpeysur að gefa okkur stelpunum. Svona væri lengi hægt að telja, en það sem maður fann alltaf hjá Möggu frænku er umhyggjusemi og kærleikur í garð okkar allra. Ekki fækkaði ferðunum eftir að þau fluttu í nágrenni við okkur í Álf- heimana, þar brölluðum við mikið saman frænkurnar, Hrefna, Dísa, Rut og ég. Aldrei man ég að Magga hafi skammað okkur á nokkurn hátt, þó að ég viti að við höfum örugglega oft átt það skilið að sussað væri á okk- ur. Magga var einstaklega þolinmóð og jafnlynd manneskja þó að hún hafi alls ekki verið skaplaus, en kunni ætíð mjög vel með það að fara. Það er ekki nema mánuður síðan ég heimsótti Möggu frænku og Óskar þegar við mamma og Gunnu systir áttum yndislega stund saman með þeim hjónum. Að sjálfsögðu var Magga búin að baka pönnukökur þar sem von var á gestum og borðið hlað- ið heimabökuðu góðgæti. Ekki átti ég von á að þetta yrði okkar síðasta sam- verusund í þessu lífi því Magga kvaddi okkur hress og kát eins og venjulega. Við systkinin á Skeiðarvoginum og mamma þökkum Möggu frænku samfylgdina. Við sendum Óskari, Rikka, Hrefnu, Hallgrími, Diddu frænku og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hallfríður Jónasdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.