Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Margrét Hall-grímsdóttir fæddist á Patreks- firði 11. september 1919. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Halldóra Guðbrandsdóttir húsfreyja frá Mó- bergi í Rauðasands- hreppi, f. 27. sept- ember 1878 , d. 7. október 1937 og Hallgrímur Guðmundsson járn- smiður frá Bóli í Biskupstungum, f. 8. júlí 1881, d. 14. október 1973. Börn Halldóru og Hallgríms voru átta: Adolf, f. 18.11. 1907, Jónas, f. 26.12. 1908, Helgi, f. 4.11. 1911, Guðmundur, f. 14.3. 1914, Magnús, f. 17.7. 1917, Margrét, f. 11.9. 1919, Ríkarð, f. 17.12. 1922, og Krist- björg, f. 17.9. 1926. Eftirlifandi systir Margrétar er Kristbjörg, bú- sett í Bandaríkjunum. Hinn 4. ágúst 1947 giftist Mar- grét Óskari Guðmundssyni stýri- manni frá Kvígindisfelli í Tálkna- firði, f. 24. júní 1917. Foreldrar hans voru Þórhalla Oddsdóttir húsfreyja, f. 12. júlí 1899, d. 3. ágúst 1997 og Guðmundur Kr. Guðmundsson bóndi, f. 6. maí 1890, d. 6. febrúar 1969. Börn Mar- grétar og Óskars eru: 1) Ríkharð, f. 23. desember 1947, dóttir hans er Margrét Hrefna, f. 13. apríl 1983, maki Steinn Braga- son, f. 8. september 1982, sonur þeirra er Matthías Bragi, f. 4. ágúst 2006. 2) Hrefna Karonina, f. 15. desember 1954, maki Georg Karon- ina, f. 2. apríl 1953, dætur hans eru Anna Klara, f. 1. apríl 1980 og Eva, f. 7. febrúar 1983. 3) Hallgrímur, f. 7. júní 1961, sam- býliskona Ágústa Ragnars, f. 29. nóvember 1960, börn Hallgríms eru tvíburarnir Alexía Erla og Margrét Ósk, f. 4.ágúst 1993. Margrét ólst upp á Patreksfirði en hóf nám við Héraðsskólann að Laugarvatni 17 ára að aldri. Hún fór aftur heim ári síðar, þegar móðir hennar lést, til að annast heimili föður síns. Árið 1941 flutt- ist fjölskyldan til Reykjavíkur og bjó Margrét þar til æviloka. Hún stundaði nám við Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1944 og auk hús- móðurstarfsins vann hún ýmis þjónustu- og verslunarstörf. Eftir að Margrét og Óskar giftu sig var heimili þeirra áfram miðstöð fjöl- skyldu hennar og annaðist hún föð- ur sinn þar til hann lést. Útför Margrétar verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag kveð ég kæra tengdamóður og traustan vin. Á kveðjustund rifjast upp góðar stundir sem við áttum saman og ég fyllist þakklæti fyrir all- ar þær minningar sem ég á. Fyrir níu árum, þegar ég varð hluti af fjölskyldunni, eignaðist ég einstak- lega hressa og lífsglaða tengdamóð- ur. Hún tók mér strax opnum örmum og sambandið við tengdaforeldra mína þróaðist fljótt í vináttusamband og við brölluðum margt saman, fórum í ferðalög og fleira. Oft undraðist ég hversu hress Mar- grét var þrátt fyrir aldur sinn. Í einni af okkar fyrstu bílferðum nefndi hún, þegar við ókum fram hjá spegilsléttri tjörn, að hana langaði til að fara á skauta. Mér til mikillar undrunar hafði hún síðast farið á skauta nokkr- um árum áður! Þegar Margrét fór að eiga erfitt með að ganga lengri leiðir, ákvað hún að kaupa sér rauða raf- skutlu til að komast í sundlaugarnar og aðra staði sem hún var vön að fara á í nágrenninu. Margrét var mjög skilningsrík og þolinmóð, og bjó yfir mikilli kímnigáfu sem hún beitti með- al annars þegar þolinmæðin var upp- urin til að gera gott út öllum aðstæð- um. Fréttir af veikindum Margrétar komu öllum að óvörum. Fram að því hafði hún verið heilsuhraust og stundaði sund og leikfimi fram á síð- asta dag. En hún hafði óskað sér þess að leggjast til hvílu að kvöldi og kveðja friðsamlega í svefni, þegar að hennar kveðjustund kæmi, og sú ósk hennar rættist. Við huggum okkur við það þegar við kveðjum Margréti og þökkum fyrir þær góðu stundir sem okkur gáfust með henni. Hvíl í friði, kæra tengdamóðir, Georg. Kæra amma. Við systur fundum einn sálm fyrir þig sem okkur finnst segja allt sem segja þarf. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Guð blessi þig. Margrét og Alexía. Elsku amma mín. Mig langar að skrifa nokkur orð um þig. Ég sit hérna í sófanum og er enn að melta það að þú sért virkilega farin. Þú sem varst svo hress og vel á þig komin fyrir nokkrum vikum þeg- ar ég, Steini og Matthías Bragi kom- um til þín í heimsókn. Þú stjanaðir svoleiðis við okkur eins og þú gerðir alltaf þegar maður kíkti inn. Þú varst auðvitað með allt það sem mér þykir svo gott á boðstólum, heimalöguðu súpuna þína, pönnukökur og epla- köku. Svo sagðirðu alltaf reglulega yfir matarborðið: ,,Þið verðið nú að borða meira. Þið eruð ekkert búin að borða“ þannig að maður kom afvelta heim frá þér. Það var enginn kvöld- matur það kvöldið frekar en vanalega eftir heimsókn í Aflagrandann. Mér þykir svo gaman að hugsa til baka þegar ég var lítil og kom til þín í heimsókn og var með þér heila daga. Þá byrjuðum við á að fara í sund og svo á leiðinni heim komum við við í bakaríi og keyptum snúð. Þegar heim var komið horfðum við á teiknimynd- ir og spiluðum lúdó, þar sem keppn- isskapið kom upp. Harðsnúnari lúdó- spilara hef ég aldrei kynnst. Önnur minning sem ég á um þig sem fær mig alltaf til að brosa er þegar þú varst að steikja kleinur, nýkomin úr lagningu og það mátti ekki koma steikingarlykt í hárið. Þú varst nú ekki lengi að redda því, skelltir bara á þig sundhettunni og málinu reddað. Ég gæti haldið endalaust áfram að skrifa niður góðar minningar um þig, elsku amma mín, því þær eru svo margar. Ég sagði við hann Steina minn eftir að pabbi var búinn að hringja og láta mig vita að þú værir farin frá okkur að ég væri svo ánægð með hvað við náðum að hittast oft á meðan við vor- um stödd á landinu í síðasta mánuði og hversu glöð ég er að þú fékkst að- eins að kynnast langömmubarninu þínu, honum Matthíasi Braga. Við náðum svo góðum myndum af þér með honum og ég er svo ánægð með það. Elsku besta amma mín, ég veit að þér líður vel þar sem þú ert nú . Meg- ir þú hvíla í friði og takk fyrir að vera svona góð og yndisleg amma. Þín nafna og sonardóttir, Margrét Hrefna Ríkharðsdóttir. Elsku Magga mín. Engin orð geta tjáð tilfinningar mínar á þessari stundu. Það er svo margt að minnast á, margar fagrar stundir sem við nutum saman. Þú varst góð fyrirmynd fyrir mig. Ég þakka oft Guði fyrir allt sem okkur var gefið. – Mömmu, pabba og bræð- urna sex – allt var gott. Guð er góður, við eigum eftir að vera saman aftur. Guð blessi þig. Þín systir. Hún Magga föðursystir er farin frá okkur, og verður hennar sárt saknað. Við minnumst hennar fyrst þegar við Dolladrengirnir fengum að fara í kaupstað til höfuðborgarinnar um 7-8 ára aldurinn, ýmist til stuttrar dvalar eða á leið í Vatnaskóg. Okkar sama- staður var þá hjá Möggu og Óskari á Skólavörðustíg 36, en þar bjó líka föð- urafi okkar, Hallgrímur Guðmunds- son járnsmiður, auk Guðmundar, föð- urbróður okkar, og hans fjölskyldu. Vistin hjá Möggu var ógleymanleg, hún sá til þess að við hefðum nóg til alls og leiðbeindi okkur á alla lund. Og ekki veitti af þegar púkar frá Patró reyndu að fóta sig í borginni stóru. Á þeim árum var vinsælt að fara í Tívolí í Vatnsmýrinni. Þá var stefnan tekin fyrst á Leifsstyttuna á Skólavörðu- holti og þá sá maður eftir Njarðargöt- unni alla leið að Tívolí. Fyrir unga landsbyggðardrengi var ekki álitlegt að týnast í þessari stórborg, en þarna var leiðin auðveld og greiðfær. Magga var okkur ákaflega góð og þolinmóð með eindæmum, ákveðin og blíðlynd í senn. Hún annaðist afa okk- ar alla tíð af stakri prýði eftir að amma Halldóra lést 1937, og flutti með honum til Reykjavíkur 1941, en hann lést 1973 í hárri elli. Síðustu árin var hann blindur, svo það var áreið- anlega ekki auðvelt að annast hann svo vel færi. Óskar var lengst af sjómaður, og sá Magga um heimilið að mestu, eins og sjómannskonur hafa jafnan gert um aldir. Á Skólavörðustígnum var alltaf mjög gestkvæmt, þangað leitaði fólk utan af landi, og eins úr úthverfum Reykjavíkur, sem lengst af þóttu í töluverðri fjarlægð frá miðbænum, en þykir ekki langt í dag. Þau byggðu sér hús í Álfheimum upp úr 1960 og bjuggu þar í mörg ár. Eftir að þau voru orðin tvö á heimilinu og flutt á Aflagranda 40, höfðu þau meiri tíma saman, og stunduðu m.a. dans með eldri borgurum. Og Magga, þessi hrausta og glaðlynda kona, stundaði sund af krafti fram á síðasta dag, 88 ára gömul. Reyndar notaði hún síð- ustu árin svokallaða rafskutlu til að komast í sund og verslanir. Geri aðrir betur! Það var ógleymanlegt að heim- sækja Möggu og Óskar og njóta þess að drekka með þeim kaffi með heima- bökuðum kökum, pönnukökum og tertum. Magga sá til þess að ekki vantaði bakkelsið. Síðast heimsóttum við þau seinni hluta ágúst, ásamt mági okkar, Lou Dixon. Sá kunni líka að meta þessar kræsingar. Didda frænka í Ameríku sér nú á eftir systur sinni, en þær voru mjög nánar og héldu góðu sambandi sín á milli, þó fjarlægðin væri mikil. Hún er ein eftirlifandi úr hópi átta systkina. Nú, þegar komið er að leiðarlokum, viljum við þakka elsku frænku okkar fyrir samfylgdina, og vottum Óskari og börnum þeirra, Ríkharði, Hrefnu og Hallgrími, mökum þeirra og börn- um, innilega samúð. Hilmar og Gylfi. Í dag kveðjum við Margréti föður- systur okkar, eða Möggu frænku eins og við kölluðum hana alltaf. Magga var önnur tveggja systra í hópi átta systkina, bræðurnir eru allir látnir en Kristbjörg yngst systkinanna er bú- sett í Bandaríkjunum. Ég var alltaf mjög stolt af að eiga Möggu að föðursystur, hún var svo sjálfstæð, lét fátt aftra sér og fann alltaf leið til að ná markmiðum sínum. Magga var alla tíð mikið fyrir að rækta bæði líkama og sál. Ég man eftir því að á miðjum aldri fór Magga Margrét Hallgrímsdóttir ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku- legrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU BJÖRNSDÓTTUR, Núpalind 6, Kópavogi, áður Vorsabæ 9, Reykjavík. Gylfi Einarsson, Einar Gylfason, Sigríður Magnúsdóttir, Margrét Gylfadóttir, Peter Stegemann, Björgvin Gylfason, Guðný Inga Þórisdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Þökkum af alhug alla vinsemd og hlýhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEFANÍU MAGNÚSDÓTTUR frá Breiðdalsvík. Jóhanna Meyer Birgisdóttir, Leif Meyer, Aðalheiður Birgisdóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Ágúst Guðjónsson, Karl Th. Birgisson, Katrín Ösp Bjarnadóttir, Bára Ólafsdóttir, Valur Mörk Einarsson, Anna Dögg Einarsdóttir, Rafn Stefán Rafnsson, Helga Kristjánsdóttir, Victor Jóhann Pálsson, Birgir Thorberg Ágústsson, Auður Ágústsdóttir, Jón Einar Ágústsson, Stefán Thorberg Karlsson, Magnea María Karlsdóttir, Steinunn Jenný Karlsdóttir og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA INGIMUNDARDÓTTIR, áður Árskógum 6, andaðist á hjúkurunarheimilinu Skógarbæ sunnu- daginn 23. september. Jarðaförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 1. október kl.15.00. Magnús Guðnason, Jón Steinar Snorrason og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hjallaseli 55, Seljahlíð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Seljahlíðar fyrir ein- stakan hlýhug og góða umönnun. Ragnhildur Nordgulen, Árni Einarsson, Áslaug Kristjánsdóttir, Árni Geir Snæþórsson, Fanney Kristjánsdóttir og langömmubörn. ✝ Móðir mín, SOLVEIG ÁSGERÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Guðlaugsstöðum, Blöndudal, sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi mánudaginn 17. september verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 29. september kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Guðmundsdóttir. Við kveðjum Margréti með söknuði og þakklæti fyrir góðar stundir á liðnum árum. Óskari og fjölskyldu vott- um við okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði. Anna og Eva Georgsdætur. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.