Morgunblaðið - 27.09.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.09.2007, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LÍKUR á, að Gordon Brown, for- sætisráðherra Bretlands, boði til kosninga á næstu vikum þykja hafa aukist en ný skoðanakönnun sýnir, að Verkamannaflokkurinn hefur nú 11 prósentustiga forskot á Íhaldsflokkinn. Á flokksþingi Verkamanna- flokksins, sem er að ljúka í Bourne- mouth, hafa ráðherrarnir talað um nýja tíma undir forystu Browns og lagt áherslu á, að flokkurinn verði að draga réttar ályktanir af mis- tökum fyrirrennara hans, Tony Blairs. Athygli vakti þó á þinginu hvað lítið var minnst á Blair, sem lét af embætti í júlí sl. og leiddi flokkinn til sigurs í þrennum kosn- ingum. Raunar var hann fjarver- andi, í New York vegna síns nýja starfs sem friðflytjandi í Mið- Austurlöndum, en Brown minntist hans næstum í framhjáhlaupi og David Mili- band utanríkis- ráðherra talaði um „örin“, sem flokkurinn bæri eftir 10 ára valdaskeið Blairs. Ný skoðana- könnun sýnir, að Verkamanna- flokkurinn hefur 11 prósentustig umfram Íhaldsflokkinn, 44% á móti 33%, og hefur það kynt undir vangaveltum um nýjar kosningar. Geta sumir sér til, að Brown hygg- ist stela senunni frá íhaldsmönnum og greina frá nýjum kosningum um næstu helgi þegar þeir verða með sinn landsfund. Líkur á nýjum kosningum í Bretlandi sagðar hafa aukist Gordon Brown er brosmildur um þessar mundir. OFNÆMI hvers konar er að verða faraldur í vestrænum ríkjum. Í Bretlandi er talið að um þriðjungur landsmanna, um 20 milljónir manna, muni þjást af því ein- hvern tíma á lífs- leiðinni. Kemur þetta fram í áliti einn- ar nefndar bresku lávarða- deildarinnar en þar segir að Bretar séu veru- legir eftirbátar annarra Evrópu- ríkja í stríðinu við þennan sjúkdóm. Veldur hann þeim, sem af honum þjást, miklum erfiðleikum og frá- töfum frá vinnu og skóla og getur verið lífshættulegur. Í Bretlandi hafa ofnæmistilfelli þrefaldast á síðastliðnum 20 árum án þess að ástæðan fyrir því sé fylli- lega ljós. Líklegt er talið að um sé að ræða flókið samspil erfða og um- hverfis. Í fyrrnefndu áliti er vikið að því að oft sé fólk varað við jarð- hnetum sem ofnæmisvaldi en trú- lega sé það á misskilningi byggt. Reynslan víða um lönd bendi ekki til að þær valdi fremur ofnæmi en aðrar matjurtir. Þó er talið hugs- anlegt að sé þeim haldið frá ungu fólki geti þær framkallað ofnæm- isviðbrögð síðar á ævinni. Ofnæmisfár Ofnæmi Birkifrjó hrella suma. SPILLING er minnst í Danmörku, Finnlandi og Nýja-Sjálandi sam- kvæmt nýjum lista frá stofnuninni Transparency International. Fá þau einkunnina 9,4, Singapore og Svíþjóð 9,3 og Ísland 9,2. Bretland er 12. sæti og Bandaríkin í 20. Óspilltir Danir AÐ MINNSTA kosti 160 talibanar hafa fallið í átökum við hersveitir Bandaríkjamanna í suðurhluta Afg- anistans sl. tvo daga, að því er Bandaríkjamenn fullyrða. Harðir bardagar hafa geisað í Afganistan á þessu ári og a.m.k. 3.000 fallið. Barist við talibana HAUSTIÐ er tími uppskerunnar og margar hefðir, sem tengjast þeim tíma. Það er að segja, þannig var það. Nú hafa nefnilega töðugjöldin í ítölsku vínræktarhéruðunum flust fram um heilan mánuð og er lofts- lagsbreytingum um kennt. Snemmsprottið STJÓRNVÖLD á Ítalíu stefna að því að gera það refsivert að skipta við vændiskonur. Kom það fram hjá Giulio Amato innanríkisráðherra, sem sagði, að til að valda vændis- kaupendum sem mestri skömm, væri fyrirhugað að birta þeim stefnuna á þeirra eigin heimili. Atlaga að vændi SAMTÖK bandarískra slökkviliðsmanna hafa sakað Rudy Giuliani, fyrrverandi borgar- stjóra í New York, um að nota hryðjuverkin 11. sept. 2001 sjálfum sér til framdráttar. Til- efnið er, að á fjáröflunarsamkomu fyrir Giul- iani, sem keppir eftir því að verða forsetaefni repúblikana, var „9.11 dollarar fyrir Rudy“ aðalslagorðið. Slökkviliðsmenn segja þetta óvirðingu við alla þá, sem misstu lífið í hryðjuverkunum, en í herbúðum Giulianis bendir hver á annan og vill enginn kannast við ábyrgðina. Eru fréttaskýrendur sammála um, að þetta geti dregið dilk á eftir sér fyrir Giuliani. Slökkviliðsmenn gagnrýna Giuliani Umdeildur Vill verða næsti forseti Bandaríkjanna. BÚDDAMUNKAR í Búrma sögðust í gær ætla að halda áfram mótmælum gegn herforingjastjórninni eftir að öryggissveitir hennar beittu byssum, bareflum og táragasi til að reyna að hindra mótmælagöngu í Rangoon. Að minnsta kosti fjórir menn lágu í valn- um, þeirra á meðal þrír munkar. Samtök útlægra Búrmamanna sögðu að allt að átta manns hefðu beðið bana. Allt að 100.000 manns virtu að vett- ugi viðvaranir herforingjastjórnar- innar og söfnuðust saman á götum Rangoon, stærstu borgar landsins, að sögn fréttastofunnar AFP. Hún hafði eftir tveimur hátt settum embættis- mönnum í Búrma að tveir munkar hefðu verið barðir til bana en sá þriðji hefði orðið fyrir skoti eftir að hafa reynt að hrifsa byssu af hermanni. Heimildarmaður AFP á sjúkrahúsi í Rangoon sagði að fjórði maðurinn sem lét lífið væri ekki munkur. Þetta er í fyrsta skipti sem herinn í Búrma beitir ofbeldi til að reyna að kveða niður mótmælin sem hófust 19. ágúst. Sérfræðingur í málefnum landsins sögðu að þetta gæti verið upphafið að enn blóðugri aðgerðum herforingjastjórnarinnar á næstu dögum. Talið er að 3.000 manns hafi legið í valnum árið 1988 þegar örygg- issveitir herforingjastjórnarinnar brutu á bak aftur svipuð mótmæli. Fréttaritari breska ríkisútvarps- ins, BBC, lýsti atburðunum sem nokkurs konar keppni í viljastyrk milli tveggja öflugustu stofnana Búrma, hersins og munkaklaustr- anna, og sagði að niðurstaða rimm- unnar væri enn óljós. Her- og lögreglumenn skutu fyrst viðvörunarskotum upp í loftið og réð- ust á göngumennina með kylfum þeg- ar munkarnir og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman við Shwed- ago-pagóðuna, helgasta musteri búddatrúarmanna í Búrma. Um 1.000 munkar söfnuðust saman að nýju skömmu síðar og gengu um göt- urnar. Þúsundir borgarbúa fylgdust með göngunni og hrópuðu hvatning- arorð til munkanna. Her- og lögreglumennirnir skutu þá aftur viðvörunarskotum og beittu táragasi til að reyna að stöðva göngu- mennina. Það er til marks um seiglu og staðfestu þeirra að tugir þúsunda munka og stuðningsmanna þeirra gengu um stærsta útimarkað borg- arinnar og héldu mótmælunum áfram fram undir kvöld. A.m.k. hundrað manns særðust og um 200 voru handteknir, þar af um helming- urinn munkar. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kvaðst í gær ætla að senda sérlegan erindreka sinn, Ibrahim Gambari, til að ræða við herforingjastjórnina í Búrma. Ör- yggisráð SÞ ræddi málið á fundi í gærkvöldi og skoraði á herforingja- stjórnina að heimila Gambari að fara til Búrma. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins og stjórn Bandaríkjanna gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem öryggisráð SÞ er hvatt til að íhuga refsiaðgerðir gegn herforingja- stjórninni. Rússar og Kínverjar hafa lagst gegn slíkum aðgerðum og segj- ast ekki vilja hafa afskipti af innan- ríkismálum Búrma. Þeir beittu neit- unarvaldi sínu í öryggisráðinu í janúar þegar atkvæði voru greidd um ályktunardrög þar sem herforingja- stjórnin var hvött til að láta alla póli- tíska fanga lausa. Segjast hvergi hvika þrátt fyrir mannfall A.m.k. fjórir menn lágu í valnum eftir að öryggissveitir í Búrma beittu byssum og bareflum gegn búddamunkum Reuters Ofbeldi Búddamunkar setjast á götuna fyrir framan hermenn sem stöðvuðu þá í Rangoon í gær. Öryggissveitir herforingjastjórnarinnar í Búrma beittu í fyrsta skipti ofbeldi til að reyna að kveða niður mótmæli munkanna.                                               ! "#$%&' ( )*%)+,-./                      0 - 1 $ $ -               2 0  " " # "3 45  !   "#"  $  % '   " $ # !  "    )&' + () "    "    *"  )" +   $ ,   -$ $$ !    . /& /  .  /       -   "  " " -     "0 " 45  ,   " & '    ""  " $$" &&&1&111    / !  Í HNOTSKURN » Líklegt er að mótmælun-um í Búrma ljúki með blóðsúthellingum ef ríki heims taka ekki höndum saman til að koma í veg fyrir að herfor- ingjastjórnin herði aðgerðir sínar, að sögn Paulo Sergio Pinheiro, sérfræðings Samein- uðu þjóðanna í mannréttinda- málum í Búrma. » Pinheiro gagnrýndiMannréttindaráð SÞ í Genf fyrir að hafa ekki tekið nógu hart á mannréttinda- brotum í Búrma. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is FRANCISCO Chimoio, erkibiskup og yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í Mósambík, segist viss um, að sumar verjur, sem framleiddar eru í Evr- ópu, hafi vísvitandi verið smitaðar með alnæmisveirunni. Kom þetta fram í viðtali, sem BBC, Breska ríkisútvarpið, átti við Chimoio en hann trúir því líka, að sum lyf hafi verið smituð með sama hætti „til að útrýma Afríkumönnum sem fyrst“. Kaþólska kirkjan er andvíg getn- aðarverjum eins og smokkum og hafa baráttumenn og -samtök gegn alnæmi í Mósambík harðlega gagn- rýnt biskupinn fyrir ummælin. Segja þeir, að smokkurinn sé besta vopnið í því stríði og ráðleggingar kirkjunnar um kynlífsbindindi séu út í hött og komi að engu haldi. Afríkumönnum útrýmt á einni öld? Í viðtalinu kvaðst Chimoio vita, að verjur væru smitaðar með alnæm- isveirunni í tveimur Evrópulöndum og með það fyrir augum að afmá Afr- íkumenn. Sagði hann, að það kynni líka að takast á einni öld ef þeir væru ekki vel á verði. Mestu skipti þó, að þeir tækju sjálfum sér tak, sýndu hjónabandinu meiri virðingu og legðu af siðlaust fjöllyndið. Verjur alnæmissmitaðar til að útrýma Afríkubúum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.