Morgunblaðið - 27.09.2007, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Hólmavík | „Þetta hefur gengið
ótrúlega vel og lesendur eru þakk-
látir,“ segir Kristín Sigurrós Einars-
dóttir sem gefur út blaðið Gagnveg á
Ströndum. Kristín stofnaði blaðið
fyrir mánuði og var í gær að ganga
frá sínu fjórða blaði.
Kristín Sigurrós er kennari við
Grunnskólann á Hólmavík en hefur
jafnframt komið við fjölmiðlun þar
sem hún er fréttaritari Morgun-
blaðsins og skrifar fréttir í Bænda-
blaðið og pistla fyrir svæðisútvarp
Vestfjarða. „Áður en ég kom hingað,
fyrir sjö árum, vann ég aðeins fyrir
Skessuhorn á Vesturlandi og hef
sennilega fengið áhugann þar,“ segir
Kristín.
Fjölmiðlun í fjölskyldunni
Á Ströndum er öflugur fréttavef-
ur, strandir.is, en þar hefur ekkert
blað verið gefið út. „Mér fannst alltaf
vanta hér héraðsfréttablað, vettvang
fyrir auglýsingar og sjónvarpsdag-
skrá. Af því að svæðið er svo lítið
fannst mér spennandi að sameina
þetta þrennt í eitt blað,“ segir hún.
Hvatningin til að ráðast í verkefn-
ið kom þegar Kristín fór á námskeið-
ið Brautargengi ásamt sjö konum á
Ströndum og konum úr öðrum lands-
hlutum. Á námskeiðinu fékk hún inn-
sýn í rekstrarhliðina, þróaði hug-
myndina og gerði viðskiptaáætlun.
„Að þetta væri ekki mjög vitlaust,“
segir Kristín þegar hún er spurð um
niðurstöðuna. En hún ákvað að láta
slag standa og fyrsta blaðið kom út í
byrjun mánaðarins. „Það er ekki al-
veg komin reynsla á það hver launin
verða,“ segir hún en bætir því við að
blaðið hafi fengið góðar viðtökur.
Kristín er systir Gísla Einarsson-
ar sjónvarpsmanns í Borgarnesi,
þannig að fjölmiðlabakterían virðist
vera í fjölskyldunni. Hún segir að
fjölskylda þeirra sé almennt menn-
ingar- og íslenskusinnuð. Nefnir í því
sambandi ömmu sína í Lundar-
reykjadalnum í Borgarfirði. Hún
hafi skrifað endurminningar í hand-
skrifuð blöð sem gengu á milli bæja.
Það hafi verið fjölmiðill þess tíma.
Gagnvegur kemur út vikulega og
er dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á Ströndum. Kristín vinnur
blaðið alveg sjálf. Segist þó eiga vel-
unnara sem hjálpi henni með
ákveðna þætti og svo sest fjölskyld-
an niður á miðvikudögum til að
brjóta blaðið og hefta.
Alltaf eitthvað um að vera
Þótt útbreiðslusvæðið sé ekki fjöl-
mennt segir Kristín að vel hafi geng-
ið að afla efnis. „Það er alltaf eitt-
hvað um að vera hérna. Það teljast
kannski ekki stórfréttir en það má
finna skemmtilegar fréttir úr hvers-
dagslífinu og svo er alltaf mikið að
gerast í menningarlífinu,“ segir
Kristín Sigurrós.
Ákvað að sameina
þrjár hugmyndir í eina
Ljósmynd/Alfreð Símonarson
Gagnvegur Kristín Sigurrós Einarsdóttir stofnaði héraðsfréttablaðið
Gagnveg eftir að hafa tekið þátt í nýsköpunarnámskeiði.
Eftir Örn Þórarinsson
Patreksfjörður | Á þessu ári eru
sextíu ár liðin síðan vega-
vinnumenn reistu minnisvarðann
á Kleifaheiði milli Barðastrand-
arhrepps og Rauðasandshrepps
hinna fornu. Varðan sem er hlaðin
úr grjóti hefur gengið undirnafn-
inu Kleifabúi eða Kleifakall.
Þetta er ein stærsta varða sem
reist hefur verið hérlendis. Hún
hefur staðið óhögguð öll þessi ár
en lítillega þurfti að laga höfuðið
fyrir nokkrum árum.
Það var vinnuflokkur undir
stjórn Kristleifs Jónssonar frá
Höfða í Þverárhlíð sem vann við
vegalagningu yfir heiðina. Þegar
þeir nálguðust háheiðina þótti
þeim viðeigandi að reisa mynd-
arlega vörðu. Einar Einarsson og
Guðjón Jóhannesson hlóðu vörð-
una og Kristján Jóhannesson
gerði höfuðið. Vinnuflokkurinn sá
svo um efnisöflun en gnægð er af
grjóti á þessum slóðum.
Eiður Thoroddsen hjá Vega-
gerðinni á Patreksfirði segir að
fjöldi fólks stoppi við Kleifabúann
á hverju sumri og langflestir sem
þar fari um í fyrsta skipti stansi
og skoði hana. Við vörðuna er
rúmgott plan og þaðan er víðsýnt.
Þrátt fyrir að lagður væri nýr
vegur yfir heiðina á árunum 2003
til 2005 er Kleifabúi enn ör-
skammt frá vegi. Tilkomumikill
minnir hann á handtök vegagerð-
armanna liðins tíma sem lögðu
fyrsta akfæra veg yfir heiðina, að
mestu með handverkfærum. Vísa
sem Kristleifur verkstjóri gerði
og er á skilti við vörðuna hljóðar
svo:
Hátt á bergi búi stendur.
Býður sína traustu mund.
Horfir yfir heiðarlendur.
Hár og þögull alla stund.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Varða Kleifarbúinn hefur staðið vörð við veginn til Patreksfjarðar í 60 ár.
Hár og þögull alla stund
FULLTRÚAR frá Donegal-fylki á Írlandi,
Vesterålen í Norður-Noregi og af Austur-
landi funda þessa dagana í Letterkenny á
Norðvestur-Írlandi og er tilgangurinn að
hefja þriggja landa samstarf á sviði menn-
ingarmála. Menningarráðin í Vesterålen
og á Austurlandi hafa átt í þriggja ára
menningarsamstarfi og hafa nú ákveðið
að fá þriðja landið í samstarf. Fyrir valinu
varð Norðvestur-Írland, sem einnig telst
vera jaðarsvæði með öfluga uppbyggingu
á sviði menningarmála, en vill gera enn
betur. Signý Ormarsdóttir, menningar-
fulltrúi Austurlands, segir mikinn áhuga
hjá þessum þremur löndum á að byggja
upp menningarsamstarf þar sem Golf-
straumurinn verður tengingin og hug-
myndabankinn.
Jaðarinn er hin nýja miðja
Samhliða vinna nú sex listamenn frá
svæðunum saman í tíu daga við sýninguna
Edge Centring, sem gæti útlagst sem Jað-
arinn er hin nýja miðja. Sýningin og list-
vinnustofa eru í gamla virkinu og herstöð-
inni Forth Dundee í Donegal. Austfirsku
listamennirnir eru Ólöf Björk Bragadóttir
og Sandra Mjöll Jónsdóttir.
Ljósmynd/SO
Menningarvirki Ólöf Björk Bragadóttir
og Sandra Mjöll Jónsdóttir sýna á Írlandi.
Donegal
í samstarf
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
BANDARÍSKI djasstónlistarmað-
urinn og tónskáldið Bob Ackerman
hefur ásamt konu sinni Pam Purvis
dvalið á Egilsstöðum undanfarna
daga. Þau hjónin hafa boðið tón-
skólanemendum upp á námskeið í
spuna og héldu í gærkvöld hörku-
tónleika í Valaskjálf, þar sem með
þeim komu fram Matti Saarinen,
Joaquim de la Cuesta og Javier
Najera del Pino. Pam er þekkt
djasssöngkona og píanóleikari, en
Bob tekur í altsaxófón, þverflautu,
klarinett og píanóið jöfnum hönd-
um, þó tenórsaxófónninn sé hans
helsta hljóðfæri. Þau verða með
aðra tónleika í Kirkju- og menning-
armiðstöðinni á Eskifirði kl. 20.30 í
kvöld.
Samleik Bobs og Pam, sem bæði
eru á sjötugsaldri, hefur stundum
verið líkt við Lester Young og
Billie Holiday, þar sem rödd Pam
fylgir innlifuðum blæstri Bobs í
sterkum samhljómi og útkoman
verður oft töfrum líkust.
Þau hafa unnið saman í 25 ár og
komið fram á fjölmörgum djasshá-
tíðum í Bandaríkjunum og Evrópu
og spilað með þekktum djassleik-
urum gegnum tíðina. Gefnar hafa
verið út fjölmargar upptökur með
þeim, bæði saman og sitt í hvoru
lagi.
Djass og klassík samofin
„Vera okkar á Egilsstöðum kom
til vegna samstarfs okkar Pam við
Tristen Willems vin okkar sem er
búsettur á Fljótsdalshéraði,“ segir
Bob um dvölina á Austurlandi. „Ég
hef spilað og samið tónlist frá því
ég var ungur. Smám saman hafa
tónlistarskrifin orðið umfangs-
meiri, en jafnframt æ færri tæki-
færi til að fá verkin mín flutt.
Þannig eru Bandaríkin í dag, fót-
boltinn fær endalaus fjárframlög
en ekki listirnar. Einu sinni átti
hver einasta borg vandaða sinfón-
íuhljómsveit. Þær eru að mestu
horfnar og þær fáu sem eftir eru á
nástrái og störfum hlaðnar og þ.a.l.
mjög dýrt að nota þær. Þið hér á
Íslandi eruð eins og Ameríka á
fimmta áratugnum, meðan enn var
borin virðing fyrir skapandi list
þar.“
Bob hefur verið þekktastur sem
djassari en segist í mörg ár hafa
átt sér leynt líf sem klassískt tón-
skáld sem varð stöðugt að berjast
við að finna leiðir til að láta spila
verkin sín. 56 ára gamall hafi hann
fyrst hitt Tristen Willems sem
samstundis hafi lagt hald á verkin
hans og komið þeim í spilun hjá
evrópskum sinfóníuhljómsveitum,
m.a. í Slóvakíu. Í framhaldinu voru
þau langflest tekin upp og gefin út
og hann nú að hasla sér völl sem
klassískt tónskáld. Síðan hafa hlut-
irnir þróast hratt og næst er stefn-
an sett á upptökur á Hawaii. „Ég
vil hafa verkin mín, bæði í djassi og
klassík, fremur stutt, fögur og
ómstríð. Þó að ég sé ekki mínimal-
isti nota ég abstraktið og einfald-
leikann til að draga upp tónmyndir
þar sem ég blanda djassinum og
klassíkinni saman.“
Bob á og rekur fyrirtækið Pro-
gressive Winds, sem sérhæfir sig í
söfnun og sölu afburðagóðra saxó-
fóna og fylgihluta í þá. Bob er sér-
fræðingur í viðgerðum á þeim og
munnstykkjasmíði. Hann hefur um
langa hríð haft einlægan áhuga á
handsmíðuðum gæðahljóðfærum,
sem hann segir of lítið af nú á dög-
um þar sem magnframleiðsla stór-
framleiðenda ráði ríkjum.
Djassað gegnum áratugina
Pam Purvis og Bob Ackerman ná djúpum samhljómi í djassinum og hafa
spilað á helstu hátíðum og klúbbum heimsins við glimrandi undirtektir
Samhljómur Bandarísku tónlistarmennirnir Bob Ackerman og Pam Purvis taka lagið í Tónlistarskóla
Fljótsdalshéraðs, þar sem þau héldu spunanámskeið í vikunni. Þau halda djasstónleika á Eskifirði í kvöld.
LANDIÐ