Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum
könnunarprófum í 4. og 7. bekk 2007.
Skilyrði eru að viðkomandi hafi kennt þessum
árgöngum stærðfræði eða íslensku.
Nánari upplýsingar eru veittar á
Námsmatsstofnun í síma 550 2400 milli klukk-
an 13 og 16 alla virka daga til 5. október nk.
Hægt er að sækja um á netinu, slóðin er
www.namsmat.is
Atvinnuauglýsingar
Hverahlíðarvirkjun
allt að 90 MW jarðvarmavirkjun
Mat á umhverfisáhrifum -
athugun Skipulagsstofnunar
Orkuveita Reykjavíkur hefur tilkynnt til athug-
unar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um
Hverahlíðarvirkjun, allt að 90 MW jarðvarma-
virkjun í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 27. september til 9.
nóvember á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Sveitarfélagsins Ölfuss, á bóka-
safninu í Þorlákshöfn, í Þjóðarbókhlöðunni og
hjá Skipulagsstofnun.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á heima-
síðum Orkuveitu Reykjavíkur: www.or.is og
VSÓ ráðgjafar: www.vso.is
Orkuveita Reykjavíkur mun kynna frummats-
skýrslu virkjunarinnar með opnu húsi á eftir-
farandi stöðum:
Í húsi Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1
miðvikudaginn 3. október kl. 17.00.
Í Hellisheiðarvirkjun fimmtudaginn 4. október
kl. 17.30.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast
eigi síðar en 9. nóvember 2007 til Skipulags-
stofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar
fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000 m.s.br.
Skipulagsstofnun.
Tæknimaður
óskast á ÍNN 3x10
Vetrardagskrá ÍNN fer senn í loftið á Digital
Ísland rás 19. Vegna umfangsmikillar inn-
lendrar dagskrárgerðar leitum við eftir alhliða
tæknimanni, sem hefur gott vald á myndatöku,
hljóðupptöku, klippingu (Final Cut) og
konverteringu. Æskilegt væri að viðkomandi
hefði gott vald á After Effects og Photoshop.
Frábær vinnuaðstaða á Fiskislóð 14 í glaðværu
umhverfi.
Áhugasamir sendið póst fyrir 01.10. 2007 á
box@mbl.is merkt ,, Tækni - 20650.”
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
HAFNARFJARÐARBÆR, Metan
hf. og N1 hf. hafa gert með sér sam-
komulag sem er fyrsta skrefið í átt
að metanafgreiðslustöð í bænum.
Samkvæmt samkomulaginu mun
Metan hf., fyrir hönd Hafnarfjarðar-
bæjar og Metan, láta vinna hag-
kvæmnis- og kostnaðaráætlun fyrir
mögulegar aðferðir við flutning á
metani til Hafnarfjarðar. Verði
niðurstöður jákvæðar varðandi
rekstrarlegar forsendur hefur N1
skuldbundið sig, með samkomulag-
inu, til að setja upp afgreiðslustöð
fyrir metan í Hafnarfirði. Niðurstaða
áætlunarinnar á að liggja fyrir í lok
árs 2007 og ákvarðanir um næstu
skref verða teknar í framhaldi af því.
Gefi könnunin jákvæða niðurstöðu
mun Hafnarfjarðarbær í kjölfarið
setja sér áætlun um að skipta dísil-
og bensínbílum í flota sínum út fyrir
metanbíla. Sú vinna gæti hafist strax
og stöðin tekur til starfa og mögu-
lega væru allir bílar bæjarins metan-
bílar strax árið 2010. Hagvagnar og
Hópbílar hafa einnig uppi áform um
að taka metanvagna í gagnið strax
og afgreiðslustöð væri tekin í notk-
un, segir í fréttatilkynningu.
Samið Undir samninginn skrifuðu Björn H. Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Metan, Ingunn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri neytendasviðs N1, og
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Samið um könnun
á flutningi á metani
ÁRLEGUR fyrirlestur Bókasafns
Dagsbrúnar verður haldinn laugar-
daginn 29. september kl. 14, í húsa-
kynnum ReykjavíkurAkademíunn-
ar að Hringbraut 121, 4. hæð.
Þar mun Þorleifur Friðriksson
sagnfræðingur tala út frá riti sínu
Við brún nýs dags. Saga Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar 1906–
1930. Nefnir Þorleifur fyrirlestur
sinn „Um og fyrir. Að skrifa sögu
um fortíð fyrir samtíð“ og fjallar
hann um tilurð ritsins, efnistök og
baráttu við heimildir. Að fyrirlestr-
inum loknum munu sagnfræðing-
arnir Margrét Guðmundsdóttir og
Árni Daníel Júlíusson hvort um sig
gagnrýna rit Þorleifs.
Að fyrirlestrinum standa, auk
Bókasafns Dagsbrúnar, Efling-
stéttarfélag og Reykjavíkur-
Akademían.
Fyrirlestur um
sögu Dagsbrúnar
STJÓRN Landsnets ákvað fyrir
nokkru að styrkja Kolviðarsjóð um
3 milljónir króna, sem koma til
greiðslu á næstu þremur árum.
Mun styrkurinn fara til uppgræðslu
skógræktarlands að Geitasandi á
Rangárvöllum á Suðurlandi. Um er
að ræða 8 hektara lands og verður
fjöldi gróðursettra trjáa um 20.000
á 3ja ára tímabili.
Markmið verkefnisins er að
skapa varanlega gróðurþekju á
svæðinu, stöðva sandfok og aðra
jarðvegseyðingu og styrkja rýr
gróðurlendi sem átt hafa í vök að
verjast fyrir eyðingaröflunum, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Landsnet styrkir
Kolviðarsjóð
STJÓRNVÖLD sem bera ábyrgð á
eftirliti með réttindum neytenda á
Norðurlöndum og umboðsmenn
neytenda á Norðurlöndum hafa sam-
mælst um að auka samstarf sitt. Á
næstu árum er að því stefnt að auka
virkt eftirlit með vandamálum sem
tengjast viðskiptum milli landa og
yfir landamæri ríkjanna.
Samstarfið milli stjórnvalda sem
fara með neytendamál, þ.e. umboðs-
manna neytenda í Svíþjóð, Noregi,
Danmörku og Finnlandi, hófst form-
lega fyrir 15 árum, fyrst með þátt-
töku Samkeppnisstofnunar af Ís-
lands hálfu en frá 1. júlí 2005 með
þátttöku Neytendastofu og tals-
manns neytenda með það að mark-
miði að geta gripið til aðgerða gagn-
vart vandamálum sem neytendur
standa sameiginlega frammi fyrir á
Norðurlöndum.
Þörf fyrir náið samstarf hefur
aldrei verið meiri vegna sölu á þjón-
ustu og starfsemi fyrirtækja yfir
landamærin svo og sífellt aukinna
rafrænna viðskipta og þýðingar
þeirra fyrir neytendur.
Á fundi sem fram fór í Karlstad í
Svíþjóð 11.-12. september sl. var
samþykkt sameiginleg aðgerðar-
áætlun um samstarf á sviði neyt-
endamála og teknar ákvarðanir um
að styrkja starf að neytendamálum
m.a. í viðskiptum á Netinu. Fyrir-
hugað er að vinna að samnorrænu
verkefni á því sviði þar sem fleiri en
eitt ríki tekur þátt í verkefninu.
Auk þess er fyrirhugað á vett-
vangi þessa samstarfs að setja í for-
gang umhverfis- og siðferðileg mál,
rafræn samskipti við neytendur og
fjármálaþjónustu, segir í fréttatil-
kynningu.
Aukið eftirlit á sviði
neytendaverndar
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um mann-
réttindi fatlaðra verður haldin í Há-
skólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, í
dag og á morgun. Tilefni ráðstefn-
unnar er „Samningur Sameinuðu
þjóðanna um mannréttindi fólks
með fatlanir“, en hann er fyrsti al-
þjóðlegi mannréttindasáttmáli 21.
aldarinnar. Þessi ráðstefna er hluti
af „Evrópuári jafnra tækifæra 2007“
Fjöldi þekktra fyrirlesara flytur
erindi á þessari ráðstefnu, jafnt inn-
lendir sem erlendir. Umfjöllunarefni
ráðstefnunnar eru af mörgum toga.
Á meðal fyrirlesara ráðstefnunn-
ar má nefna: Michael Stein, prófess-
or við Harvard háskóla og William &
Mary háskóla í Bandaríkjunum,
Davíð Þór Björgvinsson, dómara
við Mannréttindadómstól Evrópu,
Holger Kallehauge, fyrrum lands-
réttardómara í Danmörku og for-
mann landssamtaka lömunarveiki-
sjúklinga í Danmörku. Hann er einn
af þeim sem komu að samningu
þessa nýja mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Fleiri en 10
aðrir fyrirlesarar flytja erindi á ráð-
stefnunni, frá Norður-Ameríku og
Evrópu.
Mannréttindi fatlaðra