Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 21

Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 21
hugsað upphátt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 21 Vér Íslendingar eigum þvíláni að fagna að við höfummörg tækifæri til aðkoma skoðunum okkar á framfæri. Vér Íslendingar. Mér finnst eitt- hvað hátíðlegt við þessi orð og finnst eins og ég sé að ávarpa alla þjóðina en ekki bara lesendur Morgunblaðsins. Maður þarf eig- inlega að vera á sjakket til að mega segja Vér Íslendingar. En þetta var útúrdúr. Við getum semsagt látið móðan mása á bloggsíðum, gjammað á opnum rásum útvarpsstöðva, vaðið elginn í aðsendum greinum og mas- að og skrafað í nánast beinni út- sendingu um það sem er efst á baugi í hinni svokölluðu opinberu umræðu hverju sinni. Nú eða skrif- að pistil eins og þennan. Þegar allir taka til máls í einu um sama málefnið minnir fjölmiðlaflór- an og netumhverfið á stóran sal þar sem allir tala hástöfum hver upp í annan svo úr verður ærandi síbylja. Svo dettur allt í dúnalogn þangað til næsta mál skellur á og allir byrja aftur að æpa hver á annan um sápukúlu vikunnar. Í síðustu viku risu flestir sem vettlingi gátu valdið upp á skott- leggina og tjáðu skoðanir sínar á ís- lensku máli og því hvort það væri ekki alveg örugglega skýlaus frum- burðarréttur sannra Íslendinga að þeir væru ávarpaðir á íslensku í bakaríinu. Að rísa upp á skottleggina þýðir að rísa öndverður og mætti halda að hér væri átt við einhvern sem risi upp á afturfæturna en væri alla jafna vanur að ganga á fjórum fót- um. En orðabók Menningarsjóðs segir að skottleggur sé lærleggur sels sem afturhreifinn er festur við svo myndin sem birtist í huganum af hundi sem stendur á afturfót- unum verður að vera af kóp sem verður ekki um sel þegar hann les eitthvað í blaði sem ofbýður honum og skrifar í snatri langa blogg- færslu um málið. Neistinn sem kveikti í tundrinu var smáfrétt Fréttablaðsins um að snúðugir viðskiptavinir í bakaríum sneru iðulega frá góðum við- skiptum vegna tungumálaörð- ugleika. Það blandaðist svo saman við vitnisburð um að starfsmenn banka og fjármálafyrirtækja töluðu iðulega ensku í vinnunni við sam- starfsmenn sína í erlendum útibú- um. Í orrahríðinni var margt meitlað og hjartnæmt sagt til varnar ís- lensku máli sem um stund virtist vera í útrýmingarhættu og menn sviptu sig klæðum á síðum blað- anna og lögðu nakið sverð sér á hjartastað til varnar þessu tungu- máli geirfuglsins. Auðvitað myndum við öll steypa fram af Þúfubjargi þjóðrækni og eldmóðs fyrr en við leyfðum ein- hverjum að selja okkur kleinur á ensku eða pólsku eða hvaða mál það nú er sem er talað í margá- minnstum bakaríum. Nú er aftur hljótt í fuglabjarginu og situr hver á sinni syllu og hugs- ar sitt. Ég er ekki frá því að þetta moldvirði hafi borið í sér einhvern vott af því sem er kallað Nimbyismi á ensku. NIMBY eru upphafsstafir setn- ingarinnar Not in My Back Yard og er notað um þá sem amast ekki við hlutum eða fyrirbærum í orði en brjálast ef til stendur að reisa eða koma sama fyrirbæri á fót í þeirra eigin nágrenni. Nærtækt dæmi er hávær og vel skipulögð andstaða íbúa við Njálsgötu þegar til stóð að veita útigangsmönnum hæli eða at- hvarf í húsi þar. Allt það góða fólk sem þar gekk af göflunum er án efa í orði hlynnt því að okkur beri að hlúa að þeim sem utangarðs eru í allsnægtasamfélaginu og við skul- um styðja okkar minnstu bræður sem hafa hrasað og reyna að koma þeim aftur á fætur. En aldrei skal það verða í götunni hérna hjá mér. Þess vegna mætti sem best kalla Nimbyisma Njálsgötuheilkenni á ylhýrri íslensku því sannarlega er það sama fyrirbærið. Flestir sem brugðu brandi til varnar íslenskunni eru víðsýnt og veraldarvant menntafólk sem á góðum degi er eðlilega hlynnt fjöl- þjóðlegu samfélagi og dreymir um margbrotið og litríkt samfélag þar sem allir gefa og þiggja og verða ríkari af. Þessu fólki má vel vera kunnugt að pólska og litháenska hefur í nokkur ár verið helsta tungumálið í frystihúsum, á elliheimilum og sjúkrahúsum og á bygging- arstöðum. Við því var ekkert að segja fyrr en víglínan liggur þvert yfir skenkinn í bakaríinu. Fjöl- þjóðasamfélag og skítódýrt erlent vinnuafl er fínt en ég vil ekki sjá það í bakaríinu mínu. Þannig er Njálsgötuheilkenni málhreins- unarmanna og hreintunguvíkinga. Páll Ásgeir Ásgeirsson Njálsgötuheilkennið Borgartúni 29 + Höfðabakka 3 Smiðjuvegi 5 + Glerárgötu Akureyri Sími 515 5100 + www.a4.is Línan fyrir næsta ár er komin í hús Dagbækurnar 2008 eru komnar í verslanir okkar. Mikið úrval af öllum stærðum og gerðum. Komdu við hjá okkur og búðu í haginn fyrir framtíðina. F í t o n / S Í A F I 0 2 3 3 2 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.