Morgunblaðið - 19.10.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 285. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Má bjóða þér sæti?
>> 48
Leikhúsin í landinu
TÍSKAOGFÖRÐUN
40 SÍÐNA SÉRBLAÐ FYLGIR
MORGUNBLAÐINU Í DAG
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UM 80 kjarasamningar renna út 31. des-
ember næstkomandi og um 200 kjarasamn-
ingar eru lausir á næsta
ári. Ársfundur Alþýðu-
sambands Íslands var
settur í gær og við það
tækifæri sagði Grétar
Þorsteinsson, forseti
ASÍ, að stærsta einstaka
verkefnið á allra næstu
mánuðum væri und-
irbúningur og gerð
kjarasamninga, en í máli
hans kom jafnframt fram
að félög og landssambönd hefðu haldið þing
og kjaramálaráðstefnur að undanförnu.
Margir lausir endar
Kjarasamningar ASÍ-félaga á almennum
vinnumarkaði og samningar við Starfs-
greinasambandið og Flóabandalagið svo-
nefnda renna út um næstu áramót. Þá verða
meðal annars lausir samningar við Flug-
freyjufélag Íslands, Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna, Félag flugumsjónarmanna og
Flugvirkjafélag Íslands. Einnig má nefna
samninga við félagsmenn í Farmanna- og
fiskimannasambandinu og samninga við fólk
í fiskvinnslu. Ennfremur samninga við Félag
vélstjóra og málmtæknimanna, Póstmanna-
félag Íslands og Íslandspóst.
Á næsta ári eru margir samningar ASÍ
lausir við aðra en Samtök atvinnulífsins, þ.e.
við ríki, Reykjavíkurborg og sjálfseign-
arstofnanir. Flestir samningar eru lausir í
lok mars og lok apríl.
31. mars 2008 eru ýmsir samningar lausir
við samninganefnd ríkisins. Þar má nefna
samning Samiðnar og SNR, Eflingar, og
ýmsa samninga verkalýðsfélaga. 30. apríl eru
einnig margir samningar lausir. Þar má nefna
samning Kennarasambands Íslands og SNR,
samning Félags íslenskra náttúrufræðinga og
SNR, samning Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og Reykjavíkurborgar og ýmsa
samninga SFR-stéttarfélags í almennri þjón-
ustu. Samningur grunnskólakennara rennur
út í lok maí sem og samningar við sjómenn á
fiskiskipum. Samningur leikskólakennara og
tónlistarskólakennara er laus 30. nóvember
2008.
Í aðdraganda samninga er gerð viðræðu-
áætlun. Þar er meðal annars tekið fram hve-
nær stefnt sé að því að ljúka hinum ýmsu
áföngum í undirbúningi að samningsgerðinni
og samningnum sjálfum. Þar geta verið
ákvæði um það hvenær gert sé ráð fyrir að
vísa málinu til ríkissaksóknara, miði ekki til
samkomulags eða viðræður gangi ekki sem
skyldi. Undanfarin ár hafa viðsemjendur
gjarnan haldið fundi í húsakynnum rík-
issáttasemjara til að vera á hlutlausum stað
og gerir Ásmundur Stefánsson rík-
issáttasemjari ráð fyrir að þessir fundir
verði vart áberandi fyrr en um miðjan nóv-
ember. Hann segir að framvinda viðræðn-
anna ráði því fyrst og fremst hvenær málum
verði svo vísað til sín og gera megi því skóna
að mikið verði umleikis í húsinu um áramót
og næstu vikur þar á eftir.
Um 80 samn-
ingar lausir
um áramót
Um 200 kjarasamningar
renna út á næsta ári
Ásmundur
Stefánsson
AÐ MINNSTA kosti 126 manns létu lífið og um 370
særðust í sjálfsmorðsárás nálægt bíl sem flutti Ben-
azir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakist-
ans, um götur Karachi í gær þegar hún sneri heim úr
átta ára útlegð. Bhutto slapp naumlega og særðist
ekki, að sögn pakistanskra yfirvalda.
Innanríkisráðherra Pakistans, Aftab Sherpao,
sagði að hryðjuverkamenn hefðu verið að verki og
reynt að ráða Bhutto af dögum til að hindra fyr-
irhugaðar þingkosningar í landinu. Fyrir heimför
Bhutto höfðu hryðjuverkasamtökin al-Qaeda lýst því yfir að þau hygð-
ust myrða Bhutto.
Eiginmaður Bhutto, Asif Ali Zardari, fullyrti þó í gærkvöldi að pak-
istanska leyniþjónustan hefði staðið fyrir tilræðinu. | 18
Á annað hundrað
beið bana í árás
Benazir Bhutto
MINNINGARSÝNING um Magn-
ús heitinn Kjartansson myndlist-
armann verður opnuð í Graf-
arvogskirkju á sunnudaginn
kemur við guðsþjónustu kl. 11.
Þar verða sýnd listaverk eftir
Magnús, þeirra á meðal þrjú mál-
verk sem flutt voru úr vinnustofu
hans í Álafosshúsinu fyrr í þess-
um mánuði.
Séra Vigfús Þór Árnason, sókn-
arprestur í Grafarvogskirkju,
sagði að dr. Gunnar Kristjánsson
prófastur mundi predika um list í
kirkjunni á sunnudag. Að lokinni
guðsþjónustunni mun Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur fjalla um
líf og myndlist Magnúsar Kjart-
anssonar.
Vigfús sagði að meðal mynd-
anna væri mjög áhrifaríkt mál-
verk Magnúsar sem sýnir Krist
bera krossinn á Kirkjusandi.
Hægt verður að skoða sýninguna
í Grafarvogskirkju en kirkjan er
opin flesta daga frá 9-18.
Morgunblaðið/Ómar
Málverk Kogga, ekkja Magnúsar heitins Kjartanssonar myndlistarmanns, og Aðalsteinn Ingólfsson unnu að
uppsetningu minningarsýningarinnar á verkum Magnúsar í gær, en sýningin verður opnuð á sunnudag.
Minningar-
sýning
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að kaupmáttur launa-
fólks hafi vaxið mikið að meðaltali á
umliðnum áratug kemur í ljós ef
rýnt er á bak við meðaltölin að
kaupmáttur margra er að rýrna. Á
árunum 2006 til 2007 fékk um það
bil helmingur launafólks enga
kaupmáttaraukningu vegna verð-
bólgunnar. Þetta kom fram í máli
Ólafs Darra Andrasonar, hagfræð-
ings ASÍ, er hann fjallaði um efna-
hagsspá ASÍ í haustskýrslu hag-
deildar sambandsins á ársfundi
ASÍ í gær. Ólafur Darri kynnti nýj-
ar athuganir sem styðjast m.a. við
gögn Hagstofunnar. Kemur í ljós
þegar launaþróunin frá 2004 til
2007 er skoðuð að frá 2004 til 2005
jókst kaupmáttur 81% launþega en
kaupmáttur 19% hópsins sem
kannaður var rýrnaði á sama tíma.
Laun eins af hverjum fimm
héldu ekki í við verðbólguna
„Þrátt fyrir að okkur vegni svona
vel á þessum tíma, þá heldur einn
af hverjum fimm ekki í við verð-
bólguna, einfaldlega vegna þess að
verðbólgan var allt of mikil,“ sagði
hann. Á tímabilinu 2005-2006 nutu
um 60% launþega kaupmáttar-
aukningar en um 40% urðu fyrir
kaupmáttarskerðingu vegna hraða
verðbólgunnar á þessum tíma. Á
árunum 2006-2007 mátti enn
stærra hlutfall launafólks eða 45%
þola kaupmáttarrýrnun en 55%
bjuggu við kaupmáttaraukningu al-
mennra launa sinna.
„Að meðaltali er góð kaupmátt-
araukning öll árin og að meðaltali
er blússandi kaupmáttaraukning
frá 2004 til 2007. En þegar við skoð-
um tölur á bak við meðaltölin kem-
ur í ljós að verðbólgan fer mjög
misjafnlega með einstaklingana.
Stórir hópar hafa mátt
þola rýrnun kaupmáttar
Í HNOTSKURN
»Draga mun úr ójafnvægiog þótt hagvöxtur minnki
verður hann viðunandi, skv.
hagspá ASÍ.
»Spáð er 4,7% verðbólgu ánæsta ári og 2,6% 2009.
»Lágmarkslaun hafa hækk-að úr 55 þús. kr. 1996 í 130
þús kr. í dag eða um 138%.
Kaupmáttur þeirra jókst um
84% á tímabilinu en hlutfall
þeirra af meðallaunum hefur
ekkert hækkað á sl. 10 árum.
Lægstu laun hafa ekkert nálgast meðallaun í landinu á síðustu tíu árum
Lægstu laun | 11