Morgunblaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SJÁLFSTÆÐISFÓLK lítur nú á
samstarfsslitin í borgarstjórn sem út-
rætt mál eftir fund stjórna sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík í Valhöll í
gærkvöld. Um 200 manns mættu á
fundinn sem haldinn var fyrir luktum
dyrum og hélt Geir H. Haarde, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ræðu og
kynnti sjónarmið sín þar. Fundurinn
stóð milli kl. 17.30 og 19.15. Geir
kvaddi fundarmenn eftir sína ræðu
og sagði að því loknu, aðspurður af
Morgunblaðinu, hví hann hefði komið
á fundinn, að hann hefði talið sér
skylt að beita sér fyrir því að fólk
sneri nú bökum saman og reyndi að
loka því máli sem upp kom, þ.e. sam-
starfsslitin við Framsókn, og að
flokksmenn allir, stjórnir sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík ásamt kjörn-
um fulltrúum, horfðu fram á veginn
og endurskipulegðu sig með tilliti til
þeirra nýju hlutverka sem flokkurinn
hefði nú tekið að sér.
„Þetta þarf auðvitað ekki að segja
fólki, það gera sér allir grein fyrir
þessu, en ég vildi koma mínum sjón-
armiðum að,“ sagði Geir. „Ég tel rétt
að hætta núna að takast á við fortíð-
ina, heldur horfa fram á veginn og
mér heyrist að það sé mikil stemning
fyrir því.“
Telur Geir nú brýnast að Sjálf-
stæðisflokkurinn takist á við það að
flokkurinn sé kominn í minnihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur. „Ég sé
það strax að borgarfulltrúarnir eru
ákveðnir í því að halda uppi öflugri
og málefnalegri stjórnarandstöðu og
það er þá verkefnið. Fyrir flokksfólk
í Reykjavík er mikilvægt að standa
vel að baki þessum kjörnu fulltrú-
um.
Mönnum hafa verið mislagðar
hendur á vissan hátt í þessu REI-
máli, það hafa menn viðurkennt. Það
hefur haft örlagaríkar afleiðingar
m.a. vegna þess að ekki var hægt að
treysta á að borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins stæði við orð sín
gagnvart borgarstjóranum. Nú þurfa
menn að vinna úr þeirri stöðu sem
upp er komin.“ Aðspurður hvort hann
felli sig alfarið við þau sjónarmið sem
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa tjáð vegna samstarfsslitanna,
sagðist Geir ekki hafa forsendur til
annars. „Auðvitað treysti ég mínu
fólki í borgarstjórn, það segir sig
sjálft.“
Gísli Marteinn formaður
borgarstjórnarflokksins
Marta Guðjónsdóttir formaður
Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, sagði eftir fundinn
að Gísli Marteinn Baldursson yrði
formaður borgarstjórnarflokksins og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti
flokksins. Sagði hún borgarstjórn-
arflokkinn njóta algjörlega óskoraðs
trausts sjálfstæðisfélaganna. „Menn
ætluðu aldrei að hætta að klappa fyr-
ir oddvitanum og þeim borg-
arfulltrúum sem stóðu upp og tjáðu
sig,“ sagði hún. „Þetta er útrætt mál.
Við misstum óvænt meirihlutann, það
voru framsóknarmenn en ekki við
sem tókum þá ákvörðun og auðvitað
þurfum við að ræða saman við trún-
aðarmenn flokksins þegar slíkt kem-
ur upp á. Þetta er í fyrsta sinn í sög-
unni sem það gerist að það slitnar
upp úr meirihlutasamstarfi í borg-
astjórn á miðju kjörtímabili. “
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna, sagði fundarmenn
hafa talað opinskátt um málið allt.
„Þetta var mjög hreinskilin og góð
umræða,“ sagði hann. „Borgarstjórn-
arflokkurinn og ég fengum fullan
stuðning og það var enginn sem var
að krefjast afsagnar minnar eða ein-
hverra borgarfulltrúa. Þetta var gríð-
arlega sterkur fundur og hér ríkti
mikil ákveðni í því að nú stæðu menn
þétt saman.“ Sagðist Vilhjálmur hafa
fengið hlýjar móttökur á fundinum.
Vilhjálmur sagði sms-málið svo-
nefnda hafa verið rætt á fundinum og
enginn hefði sýnt sér neinar sannanir
fyrir því að borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks hefðu sent öðrum flokk-
um sms-skilaboð áður en meirihlut-
inn sprakk. „Þetta er greinilega
eitthvert útspil af hálfu okkar and-
stæðinga til að tortryggja okkur og
það hefur enginn gefið sig fram með
svona sms. Borgarfulltrúar, allir sem
einn fullyrtu að þeir hefðu ekki sent
nein sms.“ Vilhjálmur sagði menn
hafa verið að senda sms seinnipart
fimmtudags, er fyrir lá að meirihlut-
inn væri fallinn, „en að borg-
arfulltrúar hafi verið að makka eitt-
hvað á bak við mig er tilbúningur
andstæðinga okkar til að sá fræjum
tortryggni.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fundur Þótt umræður á fundi sjálfstæðismanna væru alvarlegar tókust
menn brosandi í hendur að honum loknum, enda lögð áhersla á samstöðu.
„Hætta að takast á við fortíðina“
Í HNOTSKURN
»Geir Haarde lýsti þeirriskoðun á fundinum, í sam-
hengi við annað sem hann
sagði, að slíta ætti fundi að
lokinni sinni ræðu. Andri Ótt-
arsson fundarstjóri bar upp
þessa hugmynd og heyrðist þá
úr sal að fólk léti ekki bjóða
sér slíkt.
»Marta Guðjónsdóttir segiraldrei hafa staðið til að
slíta fundi eftir ræðu Geirs
heldur hafi viðbrögð salar
markast af ákveðnum mis-
skilningi. Alltaf hafi staðið til
að Vilhjálmur Þ. flytti tölu og
fundurinn héldi áfram eftir
ræðu Geirs.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við sjálfstæðismenn um endalok meirihluta-
samstarfsins í borginni Hann lagði áhersla á samstöðu og að menn sneru sér að nýjum verkefnum
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
MEIRIHLUTI borgarráðs vísaði í gær tillögu
minnihlutans um stuðning við bókun Svandísar
Svavarsdóttur, borgarfulltrúa VG, á eigendafundi
Orkuveitunnar 3. október sl. um lögmæti fund-
arins til nýs stýrihóps sem skipaður verður til að
kanna allar hliðar samruna Reykjavík Energy
Invest og Geysir Green Energy. Minnihlutinn
var ósáttur við það og sagði Gísli Marteinn Bald-
ursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, að stýri-
hópurinn væri þegar farinn að breytast í „stórt
teppi sem sópa á öllum málum undir“.
Stofnun stýrihópsins var samþykkt í gær af öll-
um flokkum en borgarfulltúar Sjálfstæðisflokks
létu þó bóka, að þrátt fyrir að hann væri að störf-
um ætti hlutverk stjórnar OR ekki að breytast.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks og stjórnarmaður í OR, hefur þá
óskað eftir að þegar í stað verði haldinn stjórn-
arfundur í OR þar sem þessi mál verði skýrð.
„Því fylgir ákveðin skylda að starfa í stjórn fyr-
irtækis og ég vil takast á við þær skyldur og
sinna þeim verkefnum sem mér ber samkvæmt
lögum og venjum í fyrirtækjarekstri. Nú hins
vegar hefur verið skipaður stýrihópur stjórn-
málamanna og honum falið að fara yfir rekstur
Orkuveitunnar, fara ofan í alla rekstrarþætti og
kalla til óháða ráðgjafa,“ segir Júlíus sem telur að
stýrihópurinn sé í raun að taka yfir störf stjórnar
OR.
Helstu verkefni stýrihópsins verða m.a. að
kanna lagalegan grundvöll samruna REI og
GGE, kanna með hvaða hætti hagsmuna almenn-
ings var gætt í aðdraganda samrunaferilsins og
kanna aðkomu einstakra fjárfesta að REI, m.a.
með hliðsjón af jafnræðisreglu. Einnig á hóp-
urinn að gera tillögu að breytingum á samþykkt-
um og eftir atvikum nýju skipuriti Orkuveitunnar
og gera drög að orkustefnu Reykjavíkur, sem
tryggja á gagnsæi í öllum ákvörðunum, sjálfbæra
nýtingu orkulinda í sátt við umhverfið og íbúa og
örugga afhendingu raforku.
Í stýrihópnum sitja ásamt Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra Sigrún Elsa Smáradóttir Samfylk-
ingunni, Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæð-
isflokki, Svandís Svavarsdóttir Vinstri grænum,
Margrét Sverrisdóttir Frjálslyndum og óháðum
og Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki.
Gísli Marteinn benti á það á borgarráðsfundi í
gær að einkennilegt væri að Björn Ingi sæti í
stýrihópnum, enda var hann einn þeirra manna
sem mest unnu að samruna REI og GGE. „Við
gerðum athugasemdir við það í bókun að meiri-
hlutinn skuli skipa Björn Inga inn í þennan stýri-
hóp sem á að rannsaka hvernig staðið var að mál-
um – allir vita að Björn Ingi var drifkrafturinn í
þessu máli,“ segir Gísli Marteinn.
Hópur settur yfir stjórn OR
Stýrihópurinn „stórt teppi
sem sópa á öllum málum
undir“, segir minnihlutinn
Í HNOTSKURN
»Stýrihópurinn nýstofnaði mun kannaallar hliðar samruna REI og GGE með
það að markmiði að almannahagsmunum
verði haldið til haga, löglega verði að verki
staðið og öllum spurningum svarað sem
þegar hafa komið upp og kunna að koma
upp.
»Hópurinn skilar af sér í áföngum, enlokaskil eru eigi síðar en 1. júní 2008.
FÍKNIEFNIN sem fundust um
borð í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn
vógu alls um 40 kíló en ekki 60 eins
og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
greindi frá í upphafi.
Misræmið felst í því að töskur sem
fíkniefnin fundust í höfðu verið
þyngdar, a.m.k. sumar þeirra.
Þyngd fíkniefnanna með umbúðum
og töskum var um 60 kíló en efnin
sjálf voru 20 kílóum léttari. Að sögn
Friðriks Smára Björgvinssonar yf-
irlögregluþjóns voru 24 kíló af am-
fetamíni í skútunni, 14 kíló af e-töflu-
dufti og um 1.800 e-töflur.
Friðrik Smári sagði að fljótlega
eftir að málið kom upp hefði legið
fyrir að magn fíkniefnanna var 40
kíló en ekki 60. Aðspurður hvers
vegna magntalan hefði ekki verið
leiðrétt strax, sagði hann að ástæðan
væri að hluta til rannsóknarhags-
munir og auk þess hefðu menn haft
um margt annað að hugsa.
Gæsluvarðhald yfir fimm þeirra
sem eru í haldi rann út í gær. Fram-
lengt var hjá fjórum, þar af einum til
1. nóvember, tveimur til 8. nóvember
og þeim fjórða til 29. nóvember.
Fíkniefnin vógu
40 kíló en ekki 60
Morgunblaðið/Júlíus
Mikið magn Í skútunni voru 24
kíló af amfetamíni, 14 kíló af
e-töfludufti og um 1.800 e-töflur.
FORSTJÓRA Samkeppniseftirlits-
ins, Páli Gunnari Pálssyni, er skylt
að víkja sæti við meðferð stjórn-
sýslumáls sem hófst með húsleit
Samkeppniseftirlitsins hjá Mjólk-
ursamsölunni ehf., Auðhumlu svf. og
Osta- og smjörsölunni sf., 5. júní
2007. Þetta er samkvæmt dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur frá í gær.
Samkeppniseftirlitinu höfðu bor-
ist kvartanir og ábendingar frá
Mjólku ehf. og viðskiptavinum henn-
ar vegna ætlaðra brota fyrirtækj-
anna þriggja á samkeppnislögum.
Þetta varð til þess Samkeppniseft-
irlitið framkvæmdi húsleit hjá félög-
unum þremur 5. júní sl.
Lögmaður stefnenda (félaganna
þriggja) krafðist þess að allir starfs-
menn Samkeppniseftirlitsins vikju
sæti við meðferð málsins og að óháð-
um og óhlutdrægum aðilum yrði
fengin meðferð þess. Í bréfi hans
kom fram að ýmis ummæli forstjóra
Samkeppniseftirlitsins í tengslum
við stefnendur og starfsemi þeirra
væru þess eðlis að hann væri van-
hæfur til meðferðar málsins og þar
með aðrir starfsmenn hans.
Í niðurstöðu héraðsdóms í gær
kemur fram að Páll Gunnar hafi látið
í ljósi neikvæð viðhorf til stefnenda
sem séu til þess fallin að draga megi
óhlutdrægni hans með réttu í efa.
Dómurinn fagnaðarefni
Mjólkursamsalan sendi frá sér í
gær yfirlýsingu þar sem dómi hér-
aðsdóms er fagnað. Þar segir m.a. að
fyrirtækin þrjú hafi byggt kröfu sína
á því að Samkeppniseftirlitið væri
vanhæft til rannsóknar og annarrar
meðferðar málsins, þar sem op-
inberlega hefðu komið fram skoð-
anir starfsmanna Samkeppniseft-
irlitsins á starfsemi stefnenda og
meintu broti þeirra.
For-
stjórinn
víki sæti
MS fagnar dómi
héraðsdóms
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ís-
lenska ríkið til þess að greiða pilti
rúmar 26 milljónir króna í skaða-
bætur vegna súrefnisskorts sem
hann varð fyrir við fæðingu. Héraðs-
dómur hafði áður dæmt piltinum
rúmar 12 milljónir króna í bætur og
voru þær hækkaðar í Hæstarétti.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram
að þegar móðir piltsins hafði gengið
með hann í 41 viku árið 1994 kom í
ljós við mæðraskoðun að nær ekkert
legvatn var til staðar, fóstrið sýndi
smávægileg vaxtarfrávik og móðirin
var með of háan blóðþrýsting. Var
hún lögð inn og átti að framkalla
fæðingu tveimur dögum síðar.
Í aðdraganda fæðingar varð
drengurinn fyrir fósturköfnun.
Á fyrstu æviárum sínum fékk
hann ítrekað flogaköst og fljótlega
fór að bera á heilsufarsvandamálum
og þroskafrávikum. Var varanlegur
miski hans metinn 90 stig en var-
anleg örorka 100%.
Taldi Hæstiréttur að mistök
hefðu orðið í aðdraganda fæðingar
drengsins og að íslenska ríkið bæri
fébótaábyrgð á þeim afleiðingum
sem taldar væru stafa af fósturköfn-
un.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason, Hjördís Hákonardóttir,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Páll
Hreinsson. Karl Axelsson hrl. flutti
málið fyrir drenginn og Guðrún M.
Árnadóttir hrl. fyrir ríkið.
Dæmdar 26
milljónir í bætur
Ríkið bótaskylt vegna mistaka í fæðingu