Morgunblaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 11
FRÉTTIR
„VIÐ verðum að brjótast út
úr áratuga stöðnun í launa-
málum kynjanna og treysta
grundvöll velferðarkerfisins,
með endurmati þeirra mikil-
vægu starfa sem þar eru unn-
in. Komandi kjarasamningar
geta orðið fyrsta stóra varðan
á þeirri vegferð,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra í ávarpi við
setningu ársfundar ASÍ í gær.
Jóhanna vék að fjölmörgum
viðfangsefnum félagsmála-
ráðuneytisins og sagðist m.a.
óska eftir samráði við verka-
lýðshreyfinguna og sveitar-
félögin um leiðir til þess að
sporna gegn fátækt hér á
landi. „Við verðum að horfast
í augu við þá staðreynd að
samanburðarrannsóknir, sem
byggjast á sömu viðmiðum og
notuð eru innan Evrópusam-
bandsins, benda til þess að ár-
ið 2004 hafi 9,7%, eða 27.600
manns hér á landi, 16 ára og
eldri, verið undir fátæktar-
mörkum,“ sagði hún.
Hún sagðist vilja sjá starfs-
endurhæfingarmálin fá stór-
aukið vægi á næstu árum. Vék
hún einnig að viðræðum ASÍ
og Samtaka atvinnulífsins um
nýtt kerfi veikinda-, slysa- og
örorkuréttinda. Margt í þess-
um tillögum stuðlaði að aukn-
um lífsgæðum fólks og yki
möguleika þess á að vera virk-
ir þátttakendur á vinnumark-
aði í kjölfar slysa og veikinda.
„Hitt er svo annað mál að það
þarf að skoða miklu betur
hvort rétt sé að ábyrgð á ör-
orkumati og eftirlit með þjón-
ustunni verði í höndum aðila
vinnumarkaðarins. Við hljót-
um að ígrunda vel kosti þess
og galla ef grunnþjónusta og
framfærslukerfi fólks með
skerta starfsgetu verður á
ábyrgð annarra en opinberra
aðila,“ sagði hún en tók fram
að hún væri ekki að hafna
þessu áfallatryggingakerfi.
Fram kom í máli hennar að
af þeim sem væru á biðlistum
eftir félagslegu húsnæði hjá
sveitarfélögum og Öryrkja-
bandalaginu hefðu rúm 70%
heildartekjur undir 150.000
krónum á mánuði. Algengt
væri að fólk greiddi 110–
130.000 kr. fyrir þriggja her-
bergja íbúð á almennum
leigumarkaði. Greindi Jó-
hanna einnig frá því að í nýrri
greinargerð sem unnin hefði
verið fyrir hana kæmi fram að
vaxtagjöld heimilanna jukust
um 125,3% að raungildi frá
1994 til 2005 en vaxtabætur
heimilanna jukust á sama
tíma aðeins um 4,7%. Í lok
ávarpsins risu fulltrúar á árs-
fundinum úr sætum og þökk-
uðu ráðherra með kröftugu
lófataki. Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, fundarstjóri og
varaforseti ASÍ, sagði að allir
verkalýðsforingjar hefðu get-
að verið stoltir af svona ræðu.
„Ég man ekki eftir að hafa
upplifað þetta fyrr og ég er
bara hrærð,“ sagði hún.
Morgunblaðið/Frikki
Ávarpar ASÍ-fund „Við-
fangsefnin eru óþrjótandi.“
Jóhanna Sigurðardóttir.
Brjótast úr áratuga stöðnun
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„EFTIR tímabil græðgi og sérhyggju sem hef-
ur verið ofan á undanfarin ár er að verða
ákveðin viðhorfsbreyting í samfélaginu,“ sagði
Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands
Íslands, í setningarræðu sinni á tveggja daga
ársfundi ASÍ í gær. „Við merkjum hana á vett-
vangi stjórnmálanna, hjá atvinnurekendum og
í samfélaginu öllu. Og eins og ég hef nefnt er að
finna ýmis jákvæð teikn í stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar. Ég er því þeirrar skoð-
unar að nú sé ákveðið tækifæri til að mynda
hér breiða samstöðu um nauðsynlegar breyt-
ingar á velferðarkerfinu og umfram allt eflingu
þess,“ sagði Grétar.
Góður samhljómur í hreyfingunni
Nálægt 300 fulltrúar frá 64 aðildarfélögum
sitja ársfundinn og eru undirbúningur kjara-
samninga og velferðarmál helstu viðfangsefni
fundarins. Grétar vék að undirbúningi kjara-
viðræðnanna og sagðist ekki fá betur séð en að
mikill og góður samhljómur væri innan laun-
þegahreyfingarinnar varðandi þær áherslur
sem menn vildu tefla fram. „Þar virðist mér
einkum tvennt standa upp úr að því er varðar
launamálin sjálf. Fyrir utan réttmæta kröfu
um hækkun kaupmáttar er greinilega eindreg-
inn vilji til að hækka lægstu launin umtalsvert.
Það hefur verið mikið launaskrið að undan-
förnu en þeir sem sitja helst eftir við þær að-
stæður er fólkið á strípuðu töxtunum, fólkið á
lægstu laununum.
Hitt verkefnið sem samhljómur er um er
krafan um að færa taxta að greiddu kaupi. Það
felur í sér að fá tryggingu fyrir því að þær
kjarabætur og ávinningar sem launafólk hefur
fengið til viðbótar við það sem samið er um í
kjarasamningum, verði ekki tekið af aftur,
þegar dregur úr þenslu,“ sagði Grétar. Hann
sagði það blasa við að verkalýðshreyfingin
mundi setja fram mjög skýra kröfu um að gerð
verði hörð atlaga að launamun kynjanna.
Mikil umræða fer fram á ársfundinum um
menntun launafólks og sagði Grétar að krafa
ASÍ væri sú að sett verði lög um fullorðins-
fræðslu þar sem réttindi og möguleikar fólks
með litla formlega menntun verða tryggðir.
Grétar sagði einnig að allmargar fjölskyldur
væru í miklum húsnæðisvanda og fjölgað hefði
á biðlistum sveitarfélaganna eftir leiguhús-
næði á hagkvæmum kjörum. Talið væri að
meira en 2.700 fjölskyldur væru á biðlistum
eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Skýlaus krafa um réttláta hlutdeild
Umræður fóru fram í gær um efnahags- og
kjaramál á ársfundinum. Fram kom í máli for-
ystumanna verkalýðsfélaga og landssambanda
að félögin eru flest langt komin við undirbún-
ing kröfugerðar og hefjast kjaraviðræður
væntanlega á næstu vikum. Í drögum að álykt-
un ársfundarins um kjaramál er gerð skýlaus
krafa til þess að launafólk fái réttláta hlutdeild
í aukningu þjóðarverðmæta. „Í komandi kjara-
samningum verði því samið um launahækkanir
sem tryggi aukinn kaupmátt,“ segir þar. „Gerð
kjarasamninga er viðfangsefni einstakra fé-
laga og landssambanda. Ársfundurinn telur þó
að það sé sameiginlegt verkefni okkar allra að
vinna að launajafnrétti og sérstakri hækkun
lægstu launa. Fundurinn telur jafnframt að í
komandi kjarasamningum verði ekki undan því
vikist að styrkja öryggisnet samninganna. Það
verði m.a. gert með því að færa taxta að
greiddu kaupi og með því að tryggja að faglegt
starfsréttindi launafólks verði virt. Þannig
verði tryggt að launafólk fái eðlileg og sann-
gjörn laun fyrir sína vinnu. Ásfundur ASÍ telur
mikilvægt að stjórnvöld komi sérstaklega til
móts við lág- og millitekjufólk með aðgerðum í
skatta-, velferðar- og menntamálum. Mikil-
vægt er að sameiginlega verði unnið að út-
færslu tillagna þar sem áhersla verði lögð á að
skattalækkunum verði beint til þeirra tekju-
lægri. Sérstakt átak verði gert í málefnum
barnafjölskyldna og í húsnæðismálum. Fund-
urinn leggur einnig áherslu á að bæta mögu-
leika launafólks til frekari menntunar með því
að allir eigi kost á öðru tækifæri til náms.“
Lægstu laun hækki sérstaklega
Í HNOTSKURN
» Um 300 fulltrúar eru á tveggja dagaársfundi ASÍ.
»Áhersla er lögð á skattalækkanirfyrir þá tekjulægri í drögum að kja-
raályktun fundarins.
»Mikil umræða er á ársfundinum umtillögur miðstjórnar að stefnu um
velferðarmál og norræna vinnumark-
aðsmódelið.
»Kosningar í embætti ASÍ og fulltrúaí miðstjórn fara fram í dag.
Forseti ASÍ sagði á ársfundi að
samhljómur væri um kröfur um
aukinn kaupmátt, umtalsverða
hækkun lægstu launa og að færa
taxta að greiddu kaupi.
Ánægðir með ráðherra Þingfulltrúar á ársfundi ASÍ risu úr sætum sínum þegar Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hafði lokið ávarpi sínu og þökkuðu henni með kröftugu lófataki.
Kjarabætur „Fyrir utan réttmæta kröfu um hækkun kaupmáttar er greinilega eindreginn vilji
til að hækka lægstu launin umtalsvert,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Ís-
lands, í ræðu við setningu ársfundar sambandsins sem hófst á Nordica hótelinu í gærmorgun.
Ljósmynd/Róbert
FORMENN landssambanda ASÍ gerðu sér-
staka grein fyrir undirbúningi stéttarfélag-
anna og áherslum fyrir komandi kjara-
viðræður á ársfundinum í gær. Kristján G.
Gunnarsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, sagði að gengið hefði verið frá
viðræðuáætlun með Samtökum atvinnulífs-
ins. Viðræður um launalið hæfust vænt-
anlega eftir næstu mánaðamót og stefnt væri
að því að ljúka samningsgerðinni í desember.
„Áherslan er á svipaðan samning og síðast
var gerður, með sérstakri hækkun launataxt-
anna. Það eru hlutfallslega mun fleiri utan
höfuðborgarsvæðisins sem eru á launatöxt-
um,“ sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
formaður Landssambands verslunarmanna,
um umræðuna í verslunarmannafélögunum.
Allar deildir í iðnnámi yfirfullar
Finnbjörn Hermannsson, formaður Sam-
iðnar, sagði samhljóm um að krefjast kaup-
máttaraukningar og mikla áherslu á hækkun
lægstu launa. Krafist verður viðurkenningar
á starfsréttindum erlendra starfsmanna.
Finnbjörn sagði líka að í dag væru allar
deildir í iðnnámi yfirfullar og önnuðu ekki
eftirspurn vinnumarkaðarins. Hann sagði
Samiðn tilbúna að taka undir þá kröfu að hin-
ir lægst launuðu fengju sérstakar hækkanir.
Þótt lækkun skattprósentu kæmi flestum fé-
lagsmönnum í Samiðn best, þar sem þeir til-
heyrðu svonefndum millitekjuhópum, þá
væru þeir tilbúnir til að taka undir að skatt-
leysismörkin yrðu hækkuð sérstaklega vegna
lægst launaða fólksins.
Fram kom í máli Guðmundar Gunn-
arssonar, formanns Rafiðnaðarsambandsins,
að um helmingur félagsmanna RSÍ væri á
samningum hjá ríkinu. Vék Guðmundur að
umræðu um laun útvarpsstjóra í því sam-
bandi. „Við fengum ágætis innlegg í þá um-
ræðu í gær þegar útvarpsstjóri tilkynnti að
hann vildi miða laun við það sem gengur og
gerist á vinnumarkaði. Við erum búnir að
senda honum tilkynningu um að við séum til-
búnir að fallast á það og þurfi í sjálfu sér ekk-
ert að standa í því að endurnýja kjarasamn-
inginn. Hann er búinn að gefa tóninn um það
hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig.“
„Útvarpsstjóri
er búinn að
gefa tóninn“