Morgunblaðið - 19.10.2007, Page 8

Morgunblaðið - 19.10.2007, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FORSETI Íslands Ólafur Ragnar Grímsson tók í fyrrakvöld við við- urkenningu fyrir forystu um sam- starf og sjálfbæra þróun á norð- urslóðum. Þessi umhverfisverðlaun norðurslóða voru veitt við hátíð- lega athöfn í Anchorage í Alaska að viðstöddum fjölmörgum þátttak- endum á alþjóðlegri ráðstefnu um orkumál á norðurslóðum og for- ystumönnum Alaskaríkis. Verðlaunin bera heitið The Ro- bert O. Anderson Sustainable Arc- tic Award og eru veitt af Norð- urstofnuninni (Institute of the North) sem hefur aðalstöðvar í Anchorage. Stofnandi hennar er Walter J. Hickel fyrrum ríkisstjóri í Alaska og innanríkisráðherra í ríkisstjórn Nixons Bandaríkjaforseta. Hann afhenti forseta Íslands verðlaunin og sagði að þau væru veitt fyrir ötula framgöngu um málefni norðurslóða á und- anförnum árum og baráttu fyrir aukinni samvinnu íbúa á norð- urslóðum, sjálfbærri þróun og verndun náttúrunnar. Forseti hefði gegnt lykilhlutverki við að móta Hið nýja norður, en það væri samheiti yfir breyttar áherslur í samstarfi fólks á norð- urslóðum. Ljósmynd/Clark James Mishler Afhending Ólafur Ragnar Grímsson tekur við verðlaunun úr hendi Walter J. Hickel, stofnanda þeirra. Hickel er fyrrum innanríkisráðherra Nixons. Forsetinn verðlaunaður HVÍTFÁLKI sást í Arnardal í Skut- ulsfirði í vikunni en þeir ku vera sjaldgæfir gestir á Vestfjörðum. Hvítfálki er litarafbrigði fálka. Hann verpir á Grænlandi og er sjaldgæft að þeir sjáist á Íslandi, segir á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði. Talið er að allt að fjórð- ungur af Evrópustofni fálka verpi á Íslandi. Fálkar eru alfriðaðir hér- lendis. Til gamans má geta þess að af sjaldséðum gestum við Reykjavík- urtjörn árið 2006 má nefna að hvít- fálki sást 29. mars. Hvítfálki Grænlands-Íslandsfálki með rjúpu. Af vefnum veidi.is. Hvítfálki í Arnardal KIRKJUÞING 2007 hefst laugardaginn 20. október nk. kl. 9 árdegis með helgistund í Grensáskirkju. Síðan flytja ávörp biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, og Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra. Fyrir þinginu liggja 19 mál að þessu sinni. Meðal þeirra má nefna tvær tillögur er lúta að aðkomu kirkj- unnar að staðfestri samvist. Þá liggur fyrir þinginu til- laga um að stofnuð verði þjóðmálanefnd kirkjunnar sem hafi frumkvæði að og efli opinbera umræðu um sam- félagsmál út frá kristnum grunngildum sem styrki fag- legan grunn fyrir þá umræðu. Einnig er lögð fram til- laga um að skipaður verði starfshópur um mótun umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar. Loks liggur fyrir tillaga um skipun nefndar til að endur- skoða og efla upplýsinga- og almannatengsl á vegum Þjóðkirkjunnar. Hægt er að skoða málaskrá kirkjuþings á vef kirkjunnar www.thjodkirkj- an.is/kirkjuthing. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 fulltrúar. Kirkjuþing hefst á morgun Grensáskirkja. ÁRNI Mathiesen fjármálaráðherra hefur skipað Hönnu Björnsdóttur til að gegna embætti skattstjóra á skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra frá 1. desember 2007 til fimm ára. Hanna lauk B.Sc.-prófi í við- skiptafræði frá Háskólanum á Ak- ureyri árið 2006. Hún hefur starfað á skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra, með hléum, frá 1992. Frá 2005 hefur Hanna sinnt starfi deild- arstjóra og staðgengils skattstjóra. Umsóknir um starfið voru þrjár. Nýr skattstjóri BROT 433 ökumanna voru mynduð á Sæbraut sl. mánudag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæ- brautar og Langholtsvegar. Um- rædd vöktun stóð yfir í u.þ.b. sjö klukkustundir en á tímabilinu fóru 5.153 ökutæki þessa akstursleið. 8% ökumanna óku því of hratt eða yfir afskiptahraða en við vöktun á sama stað í síðustu viku var hlutfallið 6%. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst sem er sama niðurstaða og fékkst við síðustu mælingu. 433 brotlegir Á DAG, föstudag, verður haldinn stofnfundur Ákærendafélags Ís- lands í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn hefst kl. 15 og munu Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra og Bogi Nilsson rík- issaksóknari halda tölu í upphafi fundarins. Félaginu er meðal annars ætlað að vera málsvari ákærenda gagn- vart fjölmiðlum og almenningi, segir í tilkynningu fundarboðenda. Félag ákærenda Eftir Andra Karl andri@mbl.is FULLTRÚAR þeirra fimmtán borga sem taka þátt í evrópska for- varnarverkefninu Youth in Europe – A Drug Prevention Programme taka nú þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem hófst í Laugardalshöll í gærdag – og lýkur í dag. Markmið ráðstefn- unnar er fyrst og fremst að styrkja tengslanet milli borganna en einnig að miðla upplýsingum til og frá. Verkefnið hófst árið 2005 að frum- kvæði ECAD, Evrópskra borga gegn eiturlyfjum. Verkefninu er stýrt frá Íslandi og byggist það að nokkru leyti á verkefninu Ísland án eiturlyfja. „Íslendingar þykja mjög öfundsverðir, þar sem allt landið er tekið með í mælingum okkar, en gögnum hefur verið safnað hjá 8. og 10. bekk grunnskóla. Þá eigum við gögn langt aftur í tímann og út frá niðurstöðum okkar útbúum við svo forvarnarstefnu – sem hefur tekist vel hingað til,“ segir Sigríður Kr. Hrafnkelsdóttir, starfsmaður hjá Rannsóknum & greiningu, en í verk- efninu er m.a. öðrum borgum hjálp- að við að setja upp sambærilegan gagnabanka. „Verkefninu lýkur svo árið 2010 og þá verða niðurstöður teknar saman, púslað saman hvað er að gerast í hverri borg og hvernig best er að takast á við vandann.“ Annað verkefni tekur við Sigríður segir að spurningalistar hafi einu sinni verið lagðir fyrir í borgunum og á næsta ári verður hið sama gert öðru sinni. „Svo árið 2010 verðum við komin með einhverja vitneskju sem við höfum ekki í dag, og þó svo að ekki hafi verið gefið út hvað verður gert eftir 2010 er afar líklegt að annað verkefni muni spretta úr þessu.“ Um fjörutíu fulltrúar borganna sátu ráðstefnuna í gær, auk þess sem fræðimenn frá Bandaríkjunum voru þar einnig. Fræðimennirnir voru fengnir af hálfu Johns Alle- grante, sitjandi forseta kennslu- fræða- og lýðheilsudeildar Háskól- ans í Reykjavík. John hefur komið töluvert að vinnu við forvarnarstarf hér á landi, ekki síst í tengslum við Youth in Europe-verkefnið. Hann segist ekki í vafa um að verkefnið hafi afar mikla þýðingu fyrir Ísland. „Ísland leiðir verkefnið og það er afar stórt fyrir landið. Ef við berum saman niðurstöður frá Ís- landi við niðurstöður úr öðrum borg- um í verkefninu eru niðurstöðurnar héðan miklu mun betri,“ segir David og bætir við að hér hafi verið tekið á málunum af mikilli skynsemi. „Ár- angurinn sem náðst hefur hér á landi er ekki síst tilkominn vegna samstillts og þrepaskipts átaks hjá stjórnvöldum, sem aftur hefur áttað sig á mikilvægi þess að virkja sam- félagið í baráttunni gegn eitur- lyfjanotkun ungmenna.“ John segir einnig afar mikilvægt að halda ráðstefnu sem þessa, s.s. til að bera saman bækur og finna sam- eiginlega betri leiðir í forvarn- armálum. Mikilvægt að bera sam- an bækur í forvörnum Morgunblaðið/Kristinn Ráðstefna Fjörutíu fulltrúar frá fimmtán evrópskum borgum taka þátt í ráðstefnu um forvarnarverkefni ECAD, sem leitt er af Reykjavíkurborg. Í HNOTSKURN »Forvarnarverkefnið Youthin Europe – A Drug Pre- vention Programme hófst árið 2005 og stendur til ársins 2010. Þá verður gögnum safn- að saman frá öllum samstarfs- borgunum. »Óvíst er hvað tekur við eft-ir 2010 en talið líklegt að annað verkefni spretti upp af hinu fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.