Morgunblaðið - 19.10.2007, Qupperneq 24
|föstudagur|19. 10. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Úrval vína í fríhöfninni er athygl-
isvert og þar má fá mörg spenn-
andi vín sem ekki fást í hinum
hefðbundnu vínbúðum. »31
vín
Ferill Þráins Freys Vigfússonar,
sem um síðustu helgi var valinn
matreiðslumaður ársins, byrj-
aði í eldhúsi á Sauðárkróki. »30
matur
UPPFINNINGASEMI manna
virðast stundum enginn tak-
mörk sett er kemur að því
að finna upp nýjar „nauð-
synjavörur“. Konan á mynd-
inni er starfsmaður fyrirtæk-
isins Sidereal Co. Ltd sem
sett hefur á markað björg-
unarjakka fyrir gæludýr og
var búnaðurinn kynntur á
öryggis- og björgunarsýn-
ingu í Tókýó í Japan á dög-
unum.
Björgunarjakkinn er jafnt
ætlaður hundum sem köttum
og geymir björgunarbúnað
og mat sem grípa á til í
hamförum. Verðið á herleg-
heitunum er svo frá 15.000-
26.000 kr.
Björgunar-
hundur
Reuters
UPPSÖFNUÐ streita, sem oft
er fylgifiskur slæmra sam-
banda, getur aukið hættu á
hjartakvillum, að því er ný
rannsókn bendir til. Ömurlegt
hjónaband eða önnur afleit
samskipti við ættingja og
nána vini gæti því í bók-
staflegri merkingu kallað
fram veikindi og lagt fólk í
rúmið, að því er segir nýlega
á vefmiðli NBC.
Rannsókn mun hafa verið
gerð á ríflega níu þúsund
breskum borgurum í hjóna-
bandi og þeim fylgt eftir í tólf
ár. Í ljós kom að þeir ein-
staklingar, sem lifðu við slæm
samskipti við sína nánustu,
voru 34% líklegri en hinir,
sem bjuggu við gott atlæti, til
að fá hjartakvilla af einhverju
tagi.
Rannsókn þessi fylgir í
kjölfar rannsóknar sem
tengdi slæmt heilsufar við
það að vera einhleypur og
eiga fáa vini en að þessu sinni
var athyglinni meira beint að
gæðum samskiptanna við
maka eða mikilvæga vini.
„Almennt séð er gott og
gilt að vera í hjónabandi, en
það þarf fyrir alla muni að
vanda valið vel því gæði sam-
bandanna skipta miklu máli,“
segir Roberto De Vogli, sér-
fræðingur við University Col-
lege í Lundúnum.
Slæm sambönd heilsuspillandi
Morgunblaðið/ÞÖK
Parasambönd Gæði sambands-
ins skipta máli fyrir heilsuna.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Uppskrift að góðri helgi er í faðmifjölskyldunnar. Ég vil fá að vakna ígóðu veðri á laugardegi og eigagóða morgunstund með mínum
nánustu og svo vil ég geta eytt helgunum í eitt-
hvert dundur, sem fjölskyldan getur tekið þátt
í saman. Okkur finnst til dæmis gaman að fara
á sýningar, á skauta, koma við í bakaríinu og
kíkja í heimsóknir og svo er það orðin hefð hjá
okkur stórfjölskyldunni, sem nú telur orðið níu
manns, að borða saman og eiga góða stund á
laugardagskvöldum. Það er voða notalegt,
finnst okkur,“ segir Dagmar Haraldsdóttir,
viðburðastjóri hjá Íslandsmóti, skipuleggj-
anda Hönnunar og heimilis, sem fram fer í
Laugardalshöll um helgina.
Skjótast í Flórídasól á veturna
Þegar Dagmar talar um stórfjölskylduna á
hún auðvitað við sjálfa sig og eiginmanninn,
Pétur Pétursson ljósmyndara, fjögur börn, tvö
tengdabörn og svo barnabarnið Natalíu Marín
sem er alveg að verða eins árs.
„Á sumrin notum við tækifærið til að ferðast
um okkar fallega land þar sem ljósmyndarinn
maðurinn minn er yfirleitt upptekinn við brúð-
kaupsmyndatökur og boltann þess á milli flest-
ar helgar. Það er hins vegar orðinn árlegur
viðburður hjá okkur að skjótast í sólina til
Flórída í tvær til fjórar vikur í janúar eða febr-
úar á meðan hávetur er á Íslandi. Og næst
stefna allir í fjölskyldunni að að koma með.“
Allt það nýjasta á einum stað
Dagmar, sem haldið hefur utan um sýn-
ingahald undanfarin níu ár, er nú að kveðja
þann vettvang og ætlar nú að fara að snúa sér
að afmarkaðri viðburðum og námi. „Óhætt er
að segja að sýningin Hönnun og heimili sé fjöl-
breytt að þessu sinni. Fagfólk sem og almenn-
ingur getur komið og kynnt sér allt það nýj-
asta í vöru og þjónustu fyrir hönnun heimila á
einum stað.“ Sérstakt svæði verður á staðnum
sem er verslun tileinkuð íslenskum hönnuðum,
en þar munu þrjátíu íslenskir hönnuðir kynna
og selja vörur sínar. Á öðru svæði verður sér-
stök áhersla lögð á íslenska og erlenda hönnun
og sýningu frá Listaháskóla Íslands. Einnig
verða kynntar nýjungar í hönnun og tækni fyr-
ir nútímaheimili, eins og stýrikerfi fyrir raf-
kerfi heimila, svo sem ljósa-, hita- og hljóð-
kerfi.“
Þar sem Íslendingar eru mjög áhugasamir
um hönnun heimila spáir Dagmar því að sýn-
ingin eigi án efa eftir að vekja athygli og draga
til sín fjölda gesta, en þegar sýningin var síð-
ast haldin árið 2005 mættu 25 þúsund gestir.
Framboð á hönnunarvörum á Íslandi hafi stór-
aukist á undanförnum árum og eftirspurn eftir
þjónustu fagaðila sjaldan verið jafn mikil og nú
enda séu Íslendingar þekktir fyrir að leggja
sérstaka alúð við hönnun heimila sinna.
Pappír hrífandi
hönnunarefni
Nokkrir erlendir gestir koma til
með að kynna hönnun sína á sýningunni.
Þeirra á meðal er þýski iðnhönnuðurinn
Mareike Gast, sem flytja mun fyrirlestur
á sérstakri fagstefnu í dag og hún verð-
ur einnig með í farteskinu pappírssýn-
inguna Paper Lab, sem hún vann í
samvinnu við Nicola Stattmann fyrir
fyrirtækið Materialworks í tengslum
við The Design Annual.
Unnið er úr pappír í tví- og þrí-
vídd, en við hönnun á vöru hefur
efnisval mikil áhrif á eiginleika,
virkni og framleiðslu. Pappír er
einfalt og jafnframt hrífandi
efni, sem býður upp á fjölda
góðra eiginleika og notk-
unarmöguleika. Pappír er
hagkvæmur, léttur um-
hverfisvænn, sveigjanlegur,
sterkur og fáanlegur í miklu
magni. Öflug þróunar- og rannsóknarvinna
hefur gert pappír að hráefni í hæsta gæða-
flokki, en í fyrirlestri sínum ætlar Mareike að
útskýra eiginleika pappírsins og fara yfir sýn-
inguna Paper Lab, sem veitir góða innsýn í
möguleika hönnuða með pappír, að sögn Dag-
marar, sem bætir við að 100 fermetra rými
verði lagt undir Paper Lab-sýninguna þar sem
Mareiki og aðrir aðstandendur sýningarinnar
verða með leiðsögn um hana.
Fjölskyldustemning í forgangi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sýningin Hönnun + heimili fer fram í Laug-
ardalshöll um helgina og er opin frá 11-18
laugardag og sunnudag. Í dag fer hins vegar
fram fagstefnan „Framsækin hönnun“ fyrir
fagfólk.
Göngutúrinn: Það er yndislegt að labba um Laugardalinn og Laugarnestangann. Það er
mitt svæði.
Sundlaugin: Laugardalslaugin verður oftast fyrir valinu og svo leita ég alltaf uppi nýjar
sundlaugar þegar ég kem á nýja staði.
Besti maturinn: Bara íslenska lambakjötið í allri sinni dýrð er það besta sem ég fæ.
Uppáhaldsveitingastaðurinn: Laugarás eða Madonna verður oftast fyrir valinu þegar
stórfjölskyldan fer saman út að borða.
Fallegasti staðurinn: Mér finnst ósköp vænt um Laugarnesið. Þar er ég uppalin og bý nú
enn eftir nokkurra ára hlé í millitíðinni.
Dagmar mælir með ...
Íslenskt
Ýmissa grasa
kennir á
sýningunni.
Viðburðastjórinn Dagmar Haraldsdóttir nýtur þess að slappa af í sólinni á
Flórída yfir hávetrartímann þegar myrkrið og kuldinn grúfir yfir Íslandi.
PERLURNAR sem hér sjást prýddu eitt sinn
háls Maríu Antoinette síðustu drottningar
Frakklands. Perlurnar sendi hún til Bret-
lands með vinkonu sinni Lafði Sutherland á
tímum frönsku byltingarinnar. Ári síðar var
María Antoinette tekin af lífi og perlurnar,
sem síðar urðu hluti af þessari demants-,
rúbín- og perluhálsfesti, verða seldar á upp-
boði hjá Christie’s-uppboðshúsinu nú í desem-
ber. Búist er við að um 800.000 dalir, eða um
48 milljónir kr., fáist fyrir menið.
Af hálsi Maríu
Antoinette
Reuters