Morgunblaðið - 19.10.2007, Qupperneq 25
Þegar Víkverji varungur drengur var
hans mynd af himnaríki
langstærsta bókasafnið;
svo mörgum sinnum
stærra en safnið í
heimabæ Víkverja og ef
út í það er farið núna, þá
miklu stærra en Þjóðar-
bókhlaðan, eiginlega hver
Þjóðarbókhlaðan af ann-
arri út í það óendanlega.
Englar Víkverja sátu
aldrei og sitja ekki á
skýjum og spila á hörpu;
þeir eru allir með bók í
höndunum; Lykla-Pétur
er náttúrlega með Lífsins bók og í
slíkum önnum við hana, að hann
kemst vart til að lesa nokkuð ann-
að af viti. En hinir englarnir lesa
allt það sem hugur þeirra girnist.
Og þeir hafa eilífðina fyrir sér.
x x x
Nýjar bækur eru farnar að ber-ast og Víkverji hugsar sér
gott til glóðarinnar á bökkum
Bókafljóts.
Víkverji á sérýmsa uppá-
haldsstaði í
Reykjavík, en fáir
eru honum kærari
en Þjóðarbók-
hlaðan. Að koma
inn í slíka bók-
hlöðu er upplífg-
andi og dvölin
betrunarvist. Vík-
verji leitar oft í
Þjóðarbókhlöðuna
starfs síns vegna,
en þess utan gerir
hann sér ferðir
þangað, þegar sá
gállinn er á honum. Það er engu
líkt að standa þarna innan um all-
ar bækurnar, láta kylfu ráða kasti
hvar borið er niður og halda svo
afsíðis með fenginn og njóta hans.
Einn daginn er það ljóðabók, ann-
an skáldsaga, þriðja ævisaga,
fjórða þjóðlegur fróðleikur og svo
framvegis og svo framvegis. Vík-
verji sér aldrei fyrir endann á
bókakostinum og er alltaf að upp-
götva eitthvað nýtt.
Víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
mælt með
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 25
Hákon Aðalsteinssonskógarbóndi orti kveðjukvæði
til Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar
borgarstjóra:
Situr Villi sár og hryggur,
sefur illa um nætur.
Framsókn enn í leyni liggur,
litla barnið grætur.
Bakherbergja bráður vandi,
bræðralagið klýfur.
Glöggt má sjá að Alfreðs andi,
yfir vötnum svífur.
Grétar Hallur Þórisson segist
hafa frétt af niðurstöðu leynifundar
sjálfstæðismanna á dögunum og
skilaboðum þeirra til Vilhjálms:
Að Villa baki þrjótar þinga
þeir una ekki sínum hag:
Hættu að bjóða Birni Inga
blessaðan og góðan Dag.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Í greiningarferli góðra siða getur
stundum margt kyndugt skeð:
Ég skrifaði vísu á minnismiða,
sem ég man ekki eftir að hafa séð!
Þegar fréttist af væntanlegri
ævisögu Guðna Ágústssonar,
formanns Framsóknar, varð Má
Högnasyni að orði á bloggi sínu:
Mikið er þetta merkilegt rit
manninum lýsir í þaula
af fögnuði með sitt flokksbundna vit
framsóknarkýrnar baula.
VÍSNAHORNIÐ
Af kúm og
minnismiða
pebl@mbl.is
Út í kuldann
Nú þegar rúm vika er í fyrsta
vetrardag mega Frónbúar búast við
alls konar veðratilbrigðum í nátt-
úrunni. Vonandi eru allir búnir að
taka fram kuldagallana, húfurnar og
vettlingana því það getur bara verið
hressandi að bjóða vetur konung í
allri sinni dýrð velkominn með
hressandi útiveru.
Jól í skókassa
Hafi menn lokið öllum haustverk-
um, má nota kalda daga til að nostra
við föndur með krílunum, til dæmis
heimagerð jólakort eða jólagjafir
fyrir þurfandi börn í útlöndum því
ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Það
er til dæmis verðugt að taka þátt í
verkefninu „Jól í skókassa“, sem tíu
ungmenni innan KFUM og KFUK
standa að nú í fjórða sinn og felst í
því að fá börn jafnt sem fullorðna til
að setja nokkrar gjafir í skókassa.
Kössum þessum er síðan útdeilt til
þurfandi barna í Úkraínu.
Tekið er á móti skókössum í aðal-
stöðvum KFUK og K alla virka daga
og er síðasti skiladagur 3. nóvember.
Eftir að gjöfin er komin í kassann
þarf að pakka skókassanum inn í
jólagjafapappír og merkja fyrir
hvaða aldurshóp og kyn gjöfin á að
vera.
Æskan á Hvammstanga
Þrjú hundruð unglingar ætla að
koma saman á Hvammstanga um
helgina og njóta samveru í leik og
starfi því Æskulýðssamband þjóð-
kirkjunnar stendur fyrir landsmóti
fyrir öll æskulýðsfélög kirkjunnar.
Mótið ber yfirskriftina „Ljós á veg-
um mínum“ og hefst í dag. Þema
mótsins að þessu sinni er Biblían,
tónlist og trúartákn. Ungdómurinn
ætlar m.a. að spreyta sig á að breyta
Biblíuversum í sms-skilaboð. Trúar-
tákn verða búin til úr ýmsum efni-
viði. Hljómsveit verður búin til á
staðnum auk þess sem starfandi
verða kvikmynda- og stutt-
myndahópar, fréttahópar og haldnar
kvöldvökur.
Skák og mát
Skákáhugamenn geta kæst um
helgina því Íslandsmótið í atskák
2007 fer nú fram í húsnæði Tafl-
félags Reykjavíkur við Faxafen.
Öllum er heimil þátttaka og er
teflt með útsláttarfyrirkomulagi.
Meðal keppenda er Íslandmeist-
arinn í skák Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Íslandsmeistarinn í at-
skák Arnar E. Gunnarsson.
Stelpuskákmót Olís og Hellis fer
svo líka fram í höfuðstöðvum Olís við
Sundagarða á morgun og hefst mót-
ið kl. 13. Öllum stelpum á grunn-
skólaaldri er heimil þátttaka, en
mótið verður aldursskipt og verð-
laun eru í boði. Þetta er í þriðja sinn
sem mótið fer fram. Í fyrra sigraði
Tinna Kristín Finnbogadóttir og þar
áður fór Jóhanna Björg Jóhanns-
dóttir með sigur af hólmi.
Vetrarhátíð í Vesturhlíð
Frístundaheimilið Vesturhlíð hef-
ur ákveðið að blása til vetrarhátíðar
á morgun þar sem starfsfólk, börn
og fjölskyldur ætla að skemmta sér
saman. Heimilið er fyrir börn og
unglinga úr Öskjuhlíðarskóla og því
sérsniðið að börnum með fötlun.
Ætlunin er að sýna gestum og gang-
andi starfsemi heimilisins í vinnu- og
leiksmiðjum, m.a. til að gefa fólki já-
kvæða sýn á starfið, sem þar fer
fram.
Framlag Íslands
til umheimsins
Fyrir vísindaáhugamenn má svo
að lokum geta þess að Leó Krist-
jánsson, vísindamaður við Raunvís-
indastofnun HÍ, ætlar að flytja fyr-
irlestur um það sem hann kallar
„merkasta framlag Íslands til mann-
kynssögunnar“. Fyrirlesturinn, sem
er hluti af fyrirlestraröð í tilefni árs
jarðarinnar 2008, verður haldinn í
Öskju, Náttúrufræðahúsi HÍ, sal
132, kl. 14 á morgun. Í erindi sínu
ræðir Leó um hið fjölbreytta og oft
ómissandi hlutverk silfurbergsins í
merkum vísindauppgötvunum, sem
sumar hverjar urðu tilefni Nóbels-
verðlauna. Hann segir að lítil náma
við Helgustaði í Reyðarfirði hafi haft
mikil áhrif á mannkynssöguna því
silfurbergskristallar þaðan hafi ver-
ið ómissandi við rannsóknir á ýms-
um sviðum raunvísinda og á þeim
grunni hafi ótal tækniframfarir
byggt á.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Eyþór
Morgunblaðið/Kristján
Fréttir
í tölvupósti