Morgunblaðið - 19.10.2007, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björn Andrés-son fæddist á
Snotrunesi á Borg-
arfirði eystra 3.
mars 1919. Hann
lést á Sjúkrahúsinu
á Egilsstöðum 10.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Andrés Bjarni
Björnsson, bóndi á
Snotrunesi, f. 10.9.
1893, d. 20.4 1974,
og Valgerður Jóns-
dóttir, f. 26.9. 1890,
d. 18.6. 1967. Björn
var elstur af sex systkinum. Hin
eru Elín Björgheiður, f. 16.2. 1920,
d. 6.3. 1998, Jón, f. 4.12. 1921, d.
13.7. 2003, Vilborg Ingibjörg, f.
4.9. 1924, Skúli, f. 26.5. 1928, og
Anna Þuríður, f. 15.6. 1930, d. 8.7.
1943. Auk þess ólst upp með þeim
Halldór Vilmundur Andrésson, f.
5.7. 1938.
Björn kvæntist 1949 Guðrúnu
Ásthildi Pétursdóttur, f. 1.7. 1924.
Foreldar hennar voru Pétur Pét-
ursson, póstur í Njarðvík, f. 6.8.
1878, d. 21.11. 1968, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 23.3. 1883, d. 7.7.
1959. Björn og Ásta eignuðust tvo
syni, þeir eru: 1) Pétur Reynir, f.
kona Anna María Guðmunds-
dóttir. Björn og Guðrún Ásthildur
ólu einnig upp Hrefnu Hrund
Eronsdóttir f. 1. 7. 1968.
Björn og Ásta hófu búskap í
Njarðvík 1948 og bjuggu þar til
1974 þegar þau fluttust til Egils-
staða. Árið 1976 fluttust þau að
Ullartanga 6 í Fellabæ og áttu þar
heima þar til þau fluttu á Dvalar-
heimili aldraðra, Lagarási 17,
Egilsstöðum.
Björn ólst upp á Snotrunesi við
hefðbundin bústörf og sjó-
mennsku. Hann gekk í skóla á
Borgarfirði eystra og fór svo í Al-
þýðuskólann á Eiðum haustið
1939, þar sem hann var tvo vetur.
Björn stundaði íþróttir á yngri ár-
um og vann til verðlauna í víða-
vangshlaupum. Á seinni árum
stundaði hann bridds og vann þar
til verðlauna. Auk búskaparins í
Njarðvík var Björn póstur milli
Héraðs og Borgarfjarðar og sá
seinna um áætlunarferðir á sömu
leið. Eftir að Björn fluttist upp á
Hérað sá hann um skólaakstur í
Fellahreppi og Fljótsdal auk hóp-
ferðaaksturs. Eftir að Björn hætti
akstrinum sá hann um golfvöllinn
á Ekkjufelli og bar út póst í Fella-
bæ, auk annarra starfa.
Útför Björns fer fram frá Egils-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14. Jarðsett verður í
Fellabæ.
17.5. 1948. Fyrsta
sambýliskona hans
var Maggý Stella
Sigurðardóttir. Dæt-
ur þeirra eru: a) Ást-
hildur Magnea, f.
26.8. 1969, gift Jó-
hanni Nikulási Bóas-
syni, börn þeirra eru
Maggý Rut, f. 27.3.
1996, Sandra Dröfn,
f. 12.1. 1998, og
Reynir Þór, f. 2.7.
2006. b) Anna Sig-
fríður, f. 29.7. 1972,
gift Helga Ólafi Jak-
obssyni, börn þeirra eru Anton
Logi, f. 14.8. 1993, og Sóldís Ninja,
f. 6.1. 2003. Fyrir átti hún soninn
Elvar Má Sigurðsson, f. 8.12. 1989.
Önnur kona Péturs Reynis var
Anna Stefanía Guðmundsdóttir.
Dóttir þeirra er Birna Björk Reyn-
isdóttir, f. 15.10. 1979, sambýlis-
maður Haraldur Geir Eðvaldsson,
sonur þeirra er Viktor Óli, f. 10.7.
2006. Eiginkona Péturs Reynis er
Anna Sigríður Gústafsdóttir, f.
7.8. 1943. 2) Andrés Valgarð, f.
14.7. 1951, sambýliskona Kolbrún
Pétursdóttir, f. 14.7. 1952. Börn
þeirra eru Sigrún, f. 26.11. 1974,
og Björn, f. 14.4. 1976, sambýlis-
Elskulegur afi minn.
Sem barn man ég eftir þér sem
dásamlegum afa. Afa sem alltaf gaf
sér tíma í að leika við mig og taka þátt
í þeim leikjum sem ég og aðrir krakk-
ar vorum í. Ég man eftir því að þú
sast stundum með mér og litaðir með
mér í litabækurnar mínar og mér
fannst svo merkileg litatæknin þín.
Þú litaðir nefnilega alltaf í pínulitla
hringi sem gerði mjög skemmtilega
áferð. Ég man að ég fékk alltaf að
brasa í rútunum meðan þú varst að
gera við og örugglega hef ég oftar en
ekki þvælst fyrir þér en aldrei rakstu
mig samt frá. Ég man að þegar Fljót-
ið var ísilagt kannaðirðu fyrir mig
hvort ísinn væri nægilega traustur til
að skauta á og röltir svo með mér á
ísnum á meðan ég staulaðist um á
skautunum. Það voru ófáar stundirn-
ar sem ég sat á gólfinu á skrifstofunni
þinni og hlustaði á Emil í Kattholti og
oftar en ekki hlustaðirðu með mér og
laumaðir saltpillum upp í mig við og
við. Ég man líka hversu mikið þú
lagðir þig fram við að kenna mér að
borða skyrhræring en án nokkurs ár-
angurs.
Sem fullorðinn einstaklingur mun
ég muna hversu hlýr þú varst, glettn-
ina í augum þínum og prakkaralegt
bros þitt. Ég mun muna hversu lang-
afabörn þín glöddu ávallt hjarta þitt
og hvernig andlit þitt ljómaði í hvert
sinn sem þú sást stutta fætur. Ég
mun muna hvað þú varðst glaður þeg-
ar ég sagði þér frá því að Viktor Óli
væri væntanlegur og hversu montinn
þú varst þegar þú sast með Viktor Óla
og Reyni Þór báða í fanginu á skírn-
ardag Viktors. Ég mun muna allar
skemmtilegu sögurnar sem runnu
upp úr þér í hverri heimsókn og aldrei
kom sama sagan. Oft voru það sögur
þar sem þú sagðir rogginn frá glæst-
um íþróttaferli. Jafnvel þessa síðustu
daga sem þú lifðir komu fleiri sögur
sem ég mun geyma með mér.
Elsku afi, ég kveð þig nú með sökn-
uð í hjarta og mikilli eftirsjá. Ég veit
þó að þú ert kominn á betri stað, ef-
laust búinn að hnýta á þig hlaupas-
kóna og hleypur yfir fjöll og firnindi.
Ég þakka þér fyrir að gefa mér allar
þessar ljúfu minningar um þig.
Birna Björk.
Okkur minnir að það hafi verið
veturinn sem alla tíð síðan hefur verið
nefndur ,,Snjóaveturinn mikli“ hér
fyrir austan að Björn Andrésson hóf
fyrstur manna að aka skólabörnum úr
Fellasveit austur í Egilsstaðaskóla.
Þessu starfi sinnti Björn í mörg ár
þar á eftir. Alla skólatíð okkar sá
hann um að aka okkur og öðrum
börnum úr Fellum í skólann að
morgni og heim aftur undir kvöld.
Ekki vitum við annað en að Birni
hafi farið þetta ábyrgðarmikla starf
vel úr hendi. Reyndar má segja að
hendur hans hafi komið mikið við
sögu í skólaakstrinum. Ekki var nóg
með að styrkar hendur hans héldu
um stýri rútunnar og skiptu um gír
með gírstöng sem okkur fannst ná
lengst aftur í rútu! Nei, Björn þurfti
líka í ófá skipti að taka fram rekuna
og moka sig í gegnum einn og einn
snjóskafl sem á vegi hans varð. Sam-
göngur voru á þeim árum ekki jafn
greiðar og nú. Það var heldur ekki
verið að moka vegina á hverjum degi
eins og fólk gerir kröfur um nú til
dags. En Björn gafst ekki upp þótt
það hríðaði svolítið og færðin væri
ekki sem best. Hann fór sína leið
hvern dag sem fært var og reyndar
stundum þegar ýmsir hefðu talið
næstum því ófært!
Stundum fannst okkur krökkunum
sem hann hefði nú alveg mátt sleppa
því að fara inn Fell svo við hefðum
getað kúrað heima á meðan það hríð-
aði úti! Birni var á hinn bóginn mikið í
mun að halda sínu striki. Fyrir hon-
um skipti öllu að skila sínu verki sam-
viskusamlega og hann siðlaði af stað á
rútunni sinni ef nokkur kostur var.
Einstöku sinnum var reyndar komið
eitthvað fram á morguninn þegar
hann skilaði okkur Fellakrökkunum á
Egilsstaði! En það skipti engu því
Björn var búinn að skila sínu. Hann
var einn þeirra sem komust þótt hægt
færu.
Við systkinin frá Krossi minnumst
með þökkum þessa trausta og góða
karls sem skilaði okkur og hinum
Fellakrökkunum í skólann og heim
aftur öll þessi ár.
Systkinin frá Krossi,
Sigfús, Einar, Þorbjörg Jóna
og Hugi.
Í dag kveðjum við heiðursmanninn
Björn Andrésson frá Snotrunesi í
Borgarfirði eystra. Kynni mín af
Birni og Ástu konu hans hófust árið
1980 er ég var í sölumennsku á Aust-
fjörðum og efnisleit um sögu síðari
heimsstyrjaldar þar um slóðir. Þá um
sumarið fór Björn m.a. með mér í
langa gönguferð á Selvogsnes við
Héraðsflóa og sýndi mér hvar tveir
Íslendingar og einn Þjóðverji höfðu
verið settir leynilega í land af þýskum
kafbáti árið 1944. Fylgdum við síðan
nákvæmlega þeirri slóð er menn
þessir höfðu farið af Selvogsnesinu og
yfir fjöllin til Njarðvíkur þar sem þeir
voru eltir uppi og handteknir af amer-
ískum hermönnum sem bækistöðvar
höfðu á Seyðisfirði. Betri leiðsögu-
mann um þessar slóðir heldur en
Björn Andrésson var vart hægt að
hugsa sér. Þau Ásta bjuggu um árabil
í Njarðvíkinni þar sem hún var uppal-
in og var Björn þá póstur milli Borg-
arfjarðar og Héraðs enda gjörkunn-
ugur öllu þessu svæði. Eftir að þau
Ásta hættu búskap í Njarðvík fluttust
þau í Lagarás í Fellabæ og starfaði
Björn þar lengi við akstur skóla-
barna. Gisti ég oft í Fellabænum að
sumarlagi á heimili þeirra hjóna og á
þaðan margar ánægjulegar minning-
ar. Spiluðum við þá oft „manna“ og
hafði Björn þá oftast betur enda ann-
álaður spilamaður. Við eldhúsborðið í
Lagarásnum leið stundin jafnan of
fljótt við spésögur og spilamennsku.
Fyrir allar þær góðu stundir og gest-
risni færi ég nú mínar alúðarþakkir.
Með Birni Andréssyni er genginn
minn tryggasti og besti vinur á Aust-
fjörðum um áratuga skeið. Í meðför-
um hans varð Borgfirsk saga bráðlif-
andi og áhugaverð. Björn var
ótæmandi brunnur af fróðleik og
gamansögum um málefni og sérstætt
fólk síns héraðs. Með skemmtilegum
frásögnum og léttri lund skapaði
hann glaðværð og auðgaði mannlífið í
kringum sig. Hann stundaði íþróttir á
yngri árum og vann til verðlauna í
hlaupum. Sextugur að aldri var hann
svo kvikur og frár á fæti að ég ungur
maðurinn átti fullt í fangi með að
fylgja honum eftir á gönguferðum
okkar fyrir austan. Meðan ég bjó í
Hveragerði heimsótti hann mig og
mína fjölskyldu. Þá sem jafnan varð
fagnaðarfundur er við hittumst. Að
endingu vil færa þakkir fyrir þá ein-
lægu vináttu sem ég naut hjá Birni og
Ástu konu hans.
Með þessu fáu orðum kveð ég nú
góðvin minn Björn Andrésson frá
Snotrunesi. Óska ég honum blessun-
ar guðs og farsældar á óravíddum ei-
lífðarinnar. Vonast ég eftir að fá tæki-
færi til að hitta hann þar síðar. Þá
verður gott að fá á ný að njóta leið-
sagnar hans um ókunnar fjallaleiðir.
Ég votta Ástu eiginkonu hans og
afkomendum þeirra mína dýpstu
samúð.
Helgi Theódór Hauksson.
Björn Andrésson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGA STRAUMLAND,
lést sunnudaginn 14. október á Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Hún verður jarðsungin frá Garðakirkju, Garðaholti
á Áftanesi, föstudaginn 19. október kl. 15.00.
Svala Sigurleifsdóttir,
Bjarney J. Sigurleifsdóttir, Vilmundur Þorsteinsson,
Kristín S. Sigurleifsdóttir, Kristján Sveinbjörnsson,
og barnabörn.
✝
MARGRÉT SIGÞÓRSDÓTTIR
kennari,
Víðihvammi 8,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 11. október.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
hennar ósk.
Sigþór Magnússon, Hrund Magnúsdóttir,
Eyrún Magnúsdóttir, Gunnar Þór Finnbjörnsson
og barnabörn.
✝
Útför systur minnar,
ÞÓRDÍSAR PÁLSDÓTTUR
frá Hjálmsstöðum,
sem lést 10. október sl., fer fram frá Skálholtskirkju
laugardaginn 20. október og hefst athöfnin
kl. 13.00.
Jarðsett verður í Miðdalskirkjugarði í Laugardal.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásgeir Pálsson.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir,
móðurbróðir, tengdafaðir, afi og langafi,
REGINN VALTÝSSON
rafeindavirkjameistari,
Álfhólsvegi 101,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
16. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 24. október
kl. 13.00.
Svanhildur Árney Ásgeirsdóttir,
Kolbrún Valtýsdóttir Rodeman, Robert Rodeman,
Jón Pétursson, Kathy Pétursson,
Theodóra Á. Sveinbjörnsdóttir, Sigmar Guðbjörnsson,
Aðalheiður Svanhildardóttir, Snorri Arnarsson,
Tómas Á. Sveinbjörnsson, Guðborg Kolbeins,
Valtýr Reginsson, Ingibjörg Pétursdóttir
Kolbeinn Reginsson, Ingveldur M. Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
LILLÝJAR KRISTJÁNSSON,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki á deild
3B á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Karl Harrý Sigurðsson, Hrönn Helgadóttir,
Ari Guðmundsson, Fríður Sigurðardóttir,
Kristjana Guðmundsdóttir, Jonathan Motzfeldt,
Guðrún Guðmundsdóttir, Guðmundur Hallsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR
frá Húsagarði
í Landsveit,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
16. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Garðar Ágústsson, Ingimunda Loftsdóttir,
Sigrún Ágústsdóttir, Bessi Aðalsteinsson,
Svava Ágústsdóttir, Kristinn Gunnarsson,
Hörður Gunnar Ágústsson, Hanna Larsen,
Steingerður Ágústsdóttir, Þórður St. Guðmundsson,
Áslaug Ágústsdóttir, Svanur Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.