Morgunblaðið - 19.10.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 47
BANDARÍSKA leitarvélin Google
er langvinsælasta leitarvél heims ef
marka má niðurstöður gagnaöfl-
unarfyrirtækisins ComScore. Sam-
kvæmt niðurstöðunum voru 37 millj-
arðar leitaraðgerða framkvæmdar
hjá Google í ágúst síðastliðnum, sem
er meira en helmingur allra leit-
araðgerða í heiminum í sama mán-
uði. Leitarvélin Yahoo hafnaði í öðru
sæti með 8,5 milljarða aðgerða og
hin kínverska Baidu í því þriðja með
3,2 milljarða.
Reuters
Sáttur Larry Page, annar stofn-
enda Google, má vel við una.
37 milljarð-
ar „googla“
í ágúst
Vinsælustu leitarvélar heims og
fjöldi leitaraðgerða í milljörðum:
Google 37
Yahoo 8,5
Baidu 3,2
Microsoft 2,1
NHN 2
eBay 1,3
Time Warner 1,2
Ask 0,743
Fox 0,638
Lycos 0,441
GEORGE Clooney er nú orðinn fyr-
irmynd Davids Beckhams í hárlit.
Fótboltakappinn, sem er frægur
fyrir síbreytilegt útlit, hefur við-
urkennt að hann finni orðið grá hár
meðal sinna ljósu lokka. „Ég hef
fundið nokkur grá hár en á meðan
þetta er George Clooney-grátt er
mér sama. George er einn mynd-
arlegasti maður í heimi,“ var haft
eftir Beckham á dögunum.
Beckham hefur löngum haft
áhrif á hártísku karlmanna en hann
hefur m.a. skartað nettum hana-
kambi, broddaklippingu og hár-
bandi.
Reuters
Beckham Með ljósa brodda.
Orðinn
gráhærður
LISTAHÁTÍÐIN Sequences –
Real time art festival hófst síðast-
liðið föstudagskvöld með gjörn-
ingnum „Óður“ sem var framinn
við rætur tilvonandi tónlistarhúss
við Reykjavíkurhöfn og var hluti
af þríleik Haralds Jónsson á hátíð-
inni. Fyrir gjörninginn hafði Har-
aldur leitað aðstoðar hjá Ólöfu
Björnsdóttur sem hefur notað ým-
is hliðarsjálf sín í gjörninga og í
myrkvum húsgrunni tilvonandi
tónlistarhússins tók hún lagið á
meðan Haraldur beindi að henni
ljóskastara og lýsti upp dívu-
kjólinn með litrófinu. Það er vissu-
lega eitthvað fallegt við að fjalla
um það sem er að verða, eða er
enn einhvers staðar ófætt í
myrkrinu og fannst mér Haraldur
skila þeirri ætlun sinni vel. Fyrst
með því að gefa tóninn í tímaritinu
Sjónauka með myndverkinu
„Myrkur“ sem sýnir kolsvart form
á hvítum fleti sem myndar grunn-
mynd tónlistarhússins og síðan að
vinna þennan gjörning sem eins-
konar spegilmynd framtíðar.
Verkið hafði þar með alla burði til
að snerta mann djúpt og þess
vegna átti ég afar erfitt með fífla-
lætin í Ólöfu þegar spunasöngur
hennar stóð yfir. Og fyrir mitt
leyti missti fagurfræðilegur
grunnurinn, sem sjálfur gjörning-
urinn var reistur á, marks vegna
þessara misheppnuðu tilrauna til
fyndni.
Þriðja framlag Haraldar til Se-
quences-hátíðarinnar er að finna í
bakgarði verslunarinnar Tólf tóna
við Skólavörðustíg. Þar á bak við
kjallaraglugga gellur barnsrödd
sem telur frá einum upp í eitt
hundrað. Aftur virðist listamað-
urinn vera að vinna með eitthvað
sem er að verða. Þ.e. að barnið
vex og verður að manni og taln-
ingin fer hækkandi og fer upp í
hundrað, en á sama tíma er barnið
barn á meðan það er barn og tala
er sú tala sem hún er á meðan
hún er. Haraldur beinir okkur
þannig að millibilsástandi sem
raunverulegu ástandi. Ég hrífst
jafnan mest af verkum Haraldar
þegar þau eru aðstæður frekar en
ímyndir, og sú er raunin með
„Talningu“ í Tólf tónum. Einfalt
en hrífandi.
Er og verður
Myndlist
Sequences –
Real time art festival
„Óður“, gjörningur í samvinnu við Ólöfu
Björnsdóttur við Reykjavíkurhöfn föstu-
daginn 12. október.
„Talning“ í bakgarði Tólf tóna. Lokadagur
er 21. október.
Haraldur Jónsson
Myrkur (grunnmynd). Í tímaritinu Sjónauki
Jón B.K. Ransu