Morgunblaðið - 26.10.2007, Síða 56
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2007
Nú færðu Heimilisost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!
20%
Afsláttur HEIMILISOSTUR
á tilboði
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Gallaðar fasteignir
Gallamálum rignir inn til Húseig-
endafélagsins um þessar mundir.
Álíta sumir að tvöföldun hafi orðið á
gallamálum vegna fasteignakaupa á
undanförnum árum. »Forsíða
Heim frá Svíþjóð
Í næsta mánuði koma um 800
merkilegir fornmunir til Íslands sem
hafa verið í geymslu í Svíþjóð í yfir
120 ár. » Miðopna
Vilja staðfesta samvist
Kirkjuþing samþykkti í dag að
lýsa yfir stuðningi við að trúfélög fái
heimild til að staðfesta samvist sam-
kynhneigðra. » Miðopna
Ljósvakinn: Stundin lokkar
Staksteinar: Forsætisráðherraefni?
Forystugreinar: Hverjir fóru með
kvótann? | Sókn í þágu neytenda
UMRÆÐAN»
Er guð á Kirkjuþingi?
Sjúkraflutningur á Íslandi
Ef þér er kalt á tám, settu á þig húfu
Er þörf á norrænu samstarfi?
Harðjaxl frá Volvo frumsýndur
Bíllinn bilar eftir fjögur ár í notkun
Kia kemur enn á óvart
Loksins meira afl í Lotus
BÍLAR»
4 4 4
4 4 4
4
4
4
5 " 6#% . #+
7 ##$#!
(. #
4
4 4 4 4 4
4 4
4
- 8)1 % 4
4
4 4 4 4 4 9:;;<=>
%?@=;>A7%BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA%8#8=EA<
A:=%8#8=EA<
%FA%8#8=EA<
%2>%%A$#G=<A8>
H<B<A%8?#H@A
%9=
@2=<
7@A7>%2+%>?<;<
Heitast 6 °C | Kaldast 0 °C
Suðvestanátt, víða 13–
18 m/s en 18–25 m/s
suðvestantil síðdegis.
Skúrir eða él en bjart
norðaustantil. » 10
Að mati Sæbjörns
Valdimarssonar er
nýjasta kvikmynd
Davids Cronenberg,
Eastern Promises,
mjög góð. » 47
KVIKMYNDIR»
Mjög góður
Cronenberg
TÓNLIST»
Rúnar Júlíusson er
óhemju duglegur. » 52
Fríða Björk Ingv-
arsdóttir fjallar um
sýningu kólumbíska
listamannsins Doris
Salcedo í Tate Mod-
ern í London. » 50
MYNDLIST»
Gjá á milli
heima
FÓLK»
Simon Cowell er
viðkvæmur. » 53
FÓLK»
David Beckham er mjög
rómantískur. » 51
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Icelandair skildi golfsett eftir
2. Sekt fyrir að kremja bjórdósir
3. Lík konu fannst í sjónum
4. Dómsmál dýrt f. Ekstra-Bladet
THE First Crusade, fyrsta plata
hafnfirsku hljómsveitarinnar Jak-
obínarínu, fær fullt hús stiga, eða
fimm stjörnur, í Morgunblaðinu í
dag. Helga Þórey Jónsdóttir tónlist-
argagnrýnandi segir meðal annars
að hljómsveitinni takist að halda sér-
stöðu sinni með því að ganga skrefi
lengra í töffaraskap og frumleika en
samtímasveitir hennar gera. „The
First Crusade er vel unnin að öllu
leyti. Lögin eru góð, textarnir
skemmtilegir og tæknivinnsla öll til
fyrirmyndar,“ segir Helga Þórey í
umsögn sinni. | 51
Jakobínarína
fær fullt hús
INGIBJÖRG Þorbergs, tónskáld og
textahöfundur, fagnaði áttatíu ára
afmæli sínu í gær, 25. október. Í til-
efni af því bauð hún vinum og vanda-
mönnum til veislu í Iðnó í gærkvöldi,
og var margt um manninn.
Ingibjörg hefur samið fjölda laga í
gegnum tíðina sem hafa hrifið unga
sem aldna. Aravísur og Grýlukvæði
eru þjóðkunn lög sem nokkrar kyn-
slóðir hafa alist upp við og sungið
eða raulað fram á fullorðinsár.
Margar fleiri söngperlur úr ranni
Ingibjargar mætti nefna, þar á með-
al hið gullfallega jólalag Hin fyrstu
jól og ástarljóðin Á morgun og
Hjarta mitt átt þú einn. Ein þeirra
sem heiðraði Ingibjörgu með nær-
veru sinni var nafna hennar og vin-
kona, Ingibjörg Brynja Björnsdóttir.
Eins og sjá má fór vel á með þeim.
Góðar
vinkonur
Blásið til veislu í tilefni af áttræðisafmæli Ingibjargar Þorbergs
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„UNDIRTEKTIR hafa í einu orði
sagt verið frábærar,“ segir Jóhann
Páll Valdimarsson, útgáfustjóri JPV
útgáfu, um Biblíuna sem í síðustu
viku kom út á vegum útgáfunnar.
Bókin rataði að sögn Þórunnar Ingu
Sigurðardóttur, verslunarstjóra Ey-
mundsson í Austurstræti, strax inn á
metsölulista og trónir rauð útgáfa
Biblíunnar þar í efsta sæti listans.
„Vörustjóri Eymundsson tjáir mér
að það sé himinn og haf á milli Bibl-
íunnar og næstu bókar á metsölulist-
anum,“ segir Jóhann Páll.
Líkt og fram fram hefur komið var
Biblían prentuð í samtals 20 þúsund
eintökum. „Það kæmi mér ekki á
óvart að þessi fyrsta prentun myndi
klárast þegar á þessu ári og við þyrft-
um að endurprenta Biblíuna strax á
næsta ári,“ segir Jóhann Páll og
bendir á að framundan séu miklir
bóksölumánuðir. Segist hann sann-
færður um að Biblían verði jólabókin í
ár enda varla hægt að hugsa sér betri
gjöf til handa ástvinum.
Spurður hvort hann kunni skýring-
ar á hinum góðu viðtökum svarar Jó-
hann Páll því til að ljóst megi vera að
útgáfan sé einhver stærstu tímamót í
útgáfu Biblíunnar á íslensku síðan
Guðbrands-Biblía kom út árið 1584.
„Síðan held ég að það spilli ekki fyrir
að fólki líkar vel útlitið.“
Hjá Eysteini Traustasyni, inn-
kaupastjóra Iðu, og Þórunni fengust
þær upplýsingar að viðtökur við Bibl-
íuútgáfunni væru afar góðar og fólk á
öllum aldri sýndi henni áhuga. „Við
erum búin að selja töluvert af henni.
Og í raun meira en búist var við. Það
kemur skemmtilega á óvart að rauða
bókin skuli seljast mest en fyrirfram
hefði maður haldið að sú svarta yrði
vinsælust,“ segir hún. „Flestir eru
mjög jákvæðir í garð nýju Biblíunnar
og finnst hún líta rosalega vel út. Fólk
hristir bara höfuðið yfir umræðunni
sem orðið hefur um þýðinguna og
finnst það ekki skaða bókina á neinn
hátt að hún skuli hafa verið endur-
þýdd,“ segir Eysteinn.
Biblían vinsæl í búðum
Biblían í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson Rauða
útgáfan vinsælust Fyrsta prentun gæti klárast á þessu ári
Biblían Nýrri útgáfu er vel tekið.
SKOÐANIR»