Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SÖLUVIRÐI fasteigna í eigu rík- isins á Keflavíkurflugvelli er talið geta orðið um 20 milljarðar króna. Fyrir ári var verðmæti þessara eigna metið um 11 milljarðar. Þeg- ar er búið að selja eignir fyrir 15,8 milljarða og stefnir því í að eignir seljist fyrir nær tvöfalt matsverð þeirra í fyrra að því er kom fram á kynningarfundi Þróunarfélagsins á Keflavíkurflugvelli í gær. Árangur af starfi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar er mun meiri og arðbærari en áætlanir gerðu ráð fyrir við stofnun félagsins 24. októ- ber í fyrra. Það er í eigu íslenska ríkisins og aðalmenn í stjórn eru Magnús Gunnarsson stjórnarfor- maður, Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og Stefán Þórar- insson. Magnús sagði stjórnina hafa verið samhenta og tekið ákvarðanir sínar í sameiningu. Hann taldi mikið af umræðunni um Þróunarfélagið undanfarið hafa byggst á misskilningi og því hefði verið ákveðið að gera þjóðinni grein fyrir starfseminni. Á fundin- um var m.a. lagt fram yfirlit yfir til- boð í fasteignir á flugvallarsvæð- inu. Gjörbreytt staða Magnús rifjaði upp stöðuna í upphafi þessa árs þegar svæðið var í sárum eftir skyndilega brottför varnarliðsins og 900 störf töpuðust. Íslenska ríkið samdi um að taka við svæðinu með fasteignum og skuld- batt sig til að fjarlægja mengun úr jörðu, hreinsa til og laga húsnæðið að íslenskum kröfum auk þess að reka fasteignirnar og viðhalda þeim. Markmið með stofnun Þróunar- félagsins var að koma fasteignun- um sem fyrst í borgaraleg not þannig að jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu sem mest, án þess að hafa neikvæð áhrif á fasteignaverð og atvinnustarfsemi í nærliggjandi byggðum. Þótt búið sé að selja eignir fyrir tæpa 16 milljarða minnti Magnús á að mikill kostnaður væri eftir m.a. við að hreinsa mengun og lagfæra húsin. Eftir tvö og hálft ár á að vera búið að breyta öllu rafmagni sam- kvæmt íslenskum kröfum. Í nokkr- um húsum er asbest sem þarf að fjarlægja. Magnús taldi að fyrstu skrefin í hreinsun svæðisins yrðu boðin út á næsta ári. Árni Sigfússon minnti á að í upp- hafi hefði verið gert ráð fyrir að kostnaður við endurbætur eigna, hreinsun og lagfæringu væri jafn- virði matsvirðis eignanna eða um 11 milljarðar. Nú sæju menn hins vegar að tekjurnar færu yfir tutt- ugu milljarða. Að þróa vísindasamfélag Stjórn Þróunarfélagsins ákvað að byggja upp þróunar- og vísinda- miðstöð á Keflavíkurflugvelli í stað herstöðvarinnar. Magnús sagði að með þessari framtíðarsýn hefði verið hægt að fá á svæðið fólk sem annars hefði ekki komið þangað. Magnús mótmælti því að Þróun- arfélagið hefði ekki kynnt starf- semi sína. Sett var upp vefsíða sem hefur fengið fjölda heimsókna, sendar út fréttatilkynningar, keyptar auglýsingar, haldnir blaðamannafundir auk þess sem stanslaus straumur hefði verið af innlendum og erlendum gestum til að kynna sér starfsemina og mögu- leikana. Varðandi spurningar um hvers vegna ekki hefði verið farið í útboð sagði Magnús að engin skylda væri að efna til útboðs þegar verið væri að selja fasteign, þótt ríkið ætti í hlut. Hins vegar væri skylda að bjóða út aðkeypta vinnu. Fengnir hefðu verið óháðir matsmenn til að starfa með félaginu og viðhald og eftirlit með fasteignum verið boðið út. Hagkvæmasta tilboði var tekið. Með því að beina athyglinni að þjónustu- og vísindasamfélaginu hefði Þróunarfélagið talið sig vera að draga bæði þekkingu og há- launastörf inn á svæðið. Þá rakti Magnús stöðu einstakra verkefna. Keilir – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur gengið vel. Kominn er háskólagarður með tæplega þúsund manns og stefnir í að formlegt háskólanám hefjist næsta haust. Háskólavellir keyptu stóran hluta af fasteignunum og hafa skuldbundið sig til að útvega nemendum Keilis yfir 500 íbúðir. Til greina kemur að enn fleiri nem- endur geti haft þar aðstöðu. Tíu fyrirtæki á svæðinu standa að Tæknivöllum og eru með hug- myndir um uppbyggingu tækni- garða og jafnvel verklegs náms fyrir Keili. Þá hefur þjóðkirkjan keypt Kapellu ljóssins og hefur hug á að taka þátt í starfsemi há- skólans. Búið er að ganga að mestu frá samningum vegna alþjóðlegs kvik- myndavers en Magnús taldi rétt að aðstandendur þess kynntu það nánar. Þróunarfélagið á einnig í viðræðum vegna gagnavers Verne. Þá á Þróunarfélagið í viðræðum við aðila um heilsutengda starfsemi. Þeir hafi lýst áhuga á að kaupa sjúkrahúsið og byggja upp endur- hæfingu og aðra heilsutengda þjónustu. Magnús benti á að auk byggða svæðisins austan við flugvöllinn þyrfti að huga að framtíðarnotkun 35 km2 óbyggðs svæðis hinum meg- in við völlinn. Samkvæmt reynslu erlendis frá væri engin spurning að öflug atvinnustarfsemi tengd flug- vellinum ætti eftir að rísa á þessu svæði í framtíðinni. Hann minnti á að meðan herinn var til staðar hefði ekki verið hægt að þróa neitt í ná- grenni við flugvöllinn. Verðmat á eignum Í umræðunni undanfarið hefur verið rætt um hvað fengist hafi fyr- ir hvern fermetra í fasteignum á Keflavíkurflugvelli. Magnús sagði það hafa verið borið saman við fer- metraverð í nágrannabyggðum þar sem ein og ein íbúð væri seld í senn. Meðaltalsfermetraverð í Reykja- nesbæ hefði verið um 148 þúsund krónur en um 67 þúsund í Vest- mannaeyjum. Verðið færi eftir því hvort íbúðirnar nýttust. Magnús taldi að betra verð hefði fengist fyrir eignir á Keflavíkurflugvelli en nokkur þorði að vona. Árni Sigfússon sagði mikilvægt að leggja tilboðin fram í ljósi um- ræðunnar. Þeir sem buðu yrðu að þola það að nöfn þeirra kæmu fram og hvað þeir buðu. Hann sagði meginástæðu þess að nokkrum hæstu tilboðum í tilteknar eignir hefði verið hafnað hefði verið mun- ur á hugmyndafræði tilboðsgjafa og þeirrar sem Þróunarfélagið hefði byggt á. Dylgjum hafnað Stefán Þórarinsson lagði áherslu á að félaginu hefði ekki einungis verið falin sala eigna heldur einnig þróun svæðis þar sem skapa átti atvinnustarfsemi og byggja upp nýjan tilverugrundvöll á fyrrum varnarsvæði við Keflavíkurflug- völl. Stefán lýsti því yfir að faglega hefði verið unnið að málinu. Hann sagði engan hafa reynt að hafa áhrif á sig eða þrýsta sér til að taka ákvarðanir sem honum væru þvert um geð. Ákvarðanir sem þeir hefðu tekið um framkvæmdir, sölu og móttöku hugmynda aðila sem voru að koma á svæðið hefðu eingöngu verið teknar á faglegum grunni. Hann kvaðst hafna öllum dylgjum um að eitthvað óeðlilegt hefði farið fram, eða spilling, eins og fram hefði komið. Stefán sagði sér þykja það mjög ógeðfellt og kvaðst vera afar reiður yfir því. Vegið hefði verið að mannorði hans, félaga hans og starfsmanna félagsins með dylgjum og óheiðarlegum vinnu- brögðum en engum rökum. Stefán sagði að sér þætti slíkt ekki eiga heima í svona umræðu og síst af öllu af hálfu manna á Alþingi. Þegar verið lagður grunnur að um 300 nýjum störfum Virði eigna á Keflavíkur- flugvelli hefur tvöfaldast Í HNOTSKURN »Þróunarfélag Keflavík-urflugvallar telur mikil verðmæti felast í þekking- aruppbyggingu á flugvall- arsvæðinu og að uppbygging þjónustu við háskóla og fyr- irtæki verði mikil. »Þróunarfélagið telur að ákomandi árum muni tugir milljarða skila sér í þjóðarbúið gegnum erlendar tekjur vegna þeirrar uppbyggingar sem þegar er orðin á flugvall- arsvæðinu. »Fyrrum varnarsvæði áKeflavíkurflugvelli hefur verið gætt lífi og búið er að leggja grunn að 300 nýjum störfum. Talið er að þau muni hafa samfélagsleg áhrif upp á 450 störf. »Þróunarfélag Keflavík-urflugvallar gerði þjón- ustusamning við íslenska ríkið fyrir rúmu ári, 9. desember 2006. Víkurfréttir/Páll Ketilsson F.v.: Árni Sigfússon, Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins, og Magnús Gunnarsson. INFLÚENSUÆFINGUNNI Samábyrgð var hrundið af stað í gær með þátttöku 100 manns og var markmiðið að æfa það ferli sem fer af stað þegar grunur leikur á að heimsfaraldur inflúensu af óþekktum stofni hafi brotist út í Asíu. Æfð voru viðbrögð sem eiga við þegar slíkur faraldur hefur borist til Íslands og er farinn að hafa gríðarleg áhrif á samfélagið. Í áhættumati sóttvarna- læknis vegna slíks faraldurs er gert ráð fyrir að allt að 50% þjóðarinnar veikist á 12 vikna tímabili. Á æfingunni var Samhæfing- armiðstöðin í Skógarhlíð virkjuð og var landinu skipt upp í 15 sóttvarn- arumdæmi sem afmarkast af lögreglu- umdæmum landsins. Að sögn Víðis Reynissonar, deild- arstjóra almannavarnadeildar Ríkislög- reglustjóra, var eitt markmiðanna að reyna á samskipti aðila. Gekk sumt vel en annað síður og gefur æfing sem þessi ákjósanlegt tækifæri til að bæta ákveðna þætti. Heildarskýrsla verður gefin út eftir áramótin. Viðbrögð við inflúensu æfð BANASLYSUM og slysum þar sem alvar- leg meiðsli verða á gangandi vegfar- endum hefur fækkað verulega í Reykja- vík á síðustu áratugum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var af Línuhönnun fyrir Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar. Í skýrslunni segir að heildaráhrif til slysafækkunar séu greinileg og virðast áhrif aðgerða vera meiri eftir því sem al- varleiki slysa, sem eru til skoðunar, er meiri. Þannig dregur úr alvarleika slysa á gangandi vegfarendum. Alvarlegu slys- in sem voru að jafnaði 21% fyrir aðgerð- ir eru 10% eftir innleiðingu 30 km hverfa. Alvarlegum slysum fækkar  Meira á mbl.is/ítarefni HARKALEG aftanákeyrsla varð á Suður- landsvegi við Bollastaði í Árnessýslu í gærmorgun. Tveir voru fluttir á slysadeild en ekki alvarlega slasaðir að sögn lögregl- unnar á Selfossi. Annar bílanna er gjöró- nýtur eftir áreksturinn. Þá stöðvaði lögreglan ökumann á bíl síðar um daginn sem mælst hafði á 133 km hraða. Maðurinn var með 2 punkta í öku- ferilsskrá og fékk tvo til viðbótar auk 70 þúsund kr. sektar. Ökuleyfi hans var aft- urkallað og þarf hann að fara aftur í öku- próf. Árekstur við Bollastaði SAMÞYKKT hafa verið tilboð frá hæstbjóðendum í 96% húsnæðis, mældu í fermetrum, á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Hæsta tilboði var ekki tekið í 4% þessa húsnæðis. Alls er um að ræða 135 byggingar sem eru 193.800 m2 og voru 186.885 m2 seldir hæstbjóð- endum en 6.915 m2 seldir öðrum en hæstbjóðanda. Heildarsöluvirði er um 15,8 milljarðar króna. Um er að ræða 75% af eignum á svæðinu. Einu hæsta tilboði í eignir í verktakahverfi var hafnað vegna þess að tilboðsgjafi fékk ekki fjármögnun í öðru tilviki og þurfti að falla frá til- boði. Öðrum tilboðum var hafnað vegna þess að hugmyndafræði Base ehf. var talin hafa víðtækari áhrif á uppbyggingu svæðisins þegar á heildina var litið. Óseldar eru 342 íbúðareiningar og 36 þjónustu- og skrifstofubyggingar. Þetta má m.a. lesa úr gögnum sem Þróunarfélag Keflavíkurflug- vallar hefur birt og fjalla um fjölda tilboða í eignir á flugvallarsvæðinu. Þar kemur og fram að 34 tilboð bárust frá 23 tilboðsgjöfum í byggingar á svonefndu verktakasvæði. Í aðrar eignir sem búið er að ganga frá sölu á bárust níu tilboð frá sjö tilboðsgjöfum. Í aðrar eignir sem eftir er að ganga frá sölu á bárust 13 tilboð frá tólf tilboðsgjöfum. Hæstu tilboðum tekið í 96% húsnæðis TENGLAR ............................................ www.kadeco.is HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest þá úr- skurði dómsmálaráðuneytisins og Héraðs- dóms Reykjavíkur, að framselja skuli 18 ára gamlan Litháa til heimalands síns, þar sem hann sætir rannsókn vegna aðildar að þjófnuðum. Fimm hæstaréttardómarar fjölluðu um málið og mynduðu þrír meirihluta en tveir dómarar vildu fella úrskurð héraðsdóms úr gildi á þeirri forsendu, að brot manns- ins gæti ekki varðað eins árs fangelsi að ís- lenskum lögum og gæti því ekki orðið grundvöllur framsals. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Hjördís Hákonardóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Páll Hreinsson. Framsal staðfest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.