Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 22

Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 22
|þriðjudagur|11. 12. 2007| mbl.is Fagmannlegur Töddi kælir heita sykurbráðina í langri bunu. S terk lakkríslykt tekur á móti gestum þegar gengið er niður stigann í kjallara Bústaðakirkju þennan dag. Þar í neðra, nánar til- tekið í eldhúsi félagsmiðstöðvarinnar Bústaða, sitja tveir unglingspiltar sælir á svip og eru að pota eit- urgrænum molum í sinn plastpokann hvor. Þetta er afrakstur undangeng- inna mínútna, sem það tók að móta og klippa niður seigfljótandi sykur af bestu sort. Þeirra er með jarð- arberjabragði, þrátt fyrir litinn. „Þau biðu sex á hurðinni þegar ég opnaði og þegar við erum með yngri hóp er röð út á götu,“ útskýrir Andri Ómarsson verkefnastjóri. Undan- farnar vikur hefur hann staðið fyrir brjóstsykursgerð í Bústöðum á fimmtudögum og föstudögum. Brjóstsykursgerðin hefur slegið í gegn svo um munar því bókað er í alla hópa fram að áramótum en Andri og kollegi hans úr Tónabæ, Þröstur „Töddi“ Sigurðsson segjast sjá til að sömu krakkarnir komi ekki aftur og aftur. „Við erum búnir að gera þetta í sex vikur og það hefur alltaf verið nýr hópur í hvert sinn,“ útskýrir Þröstur en hann stýrir líka brjóstsykursgerð í Tónabæ. Brjóstsykursgerðina lærði Andri í Danmörku þar sem hann var við nám í tómstundafræði síðastliðinn vetur. „Í sjálfu sér er aðferðin og upp- skriftin einföld,“ segir hann þar sem hann veltir sykurbráðinni milli tveggja spaða. „Hins vegar getur þetta verið svolítið hættulegt því efn- ið sem við erum að vinna með er svakalega heitt.“ Finna hitann frá sykrinum Efnið sem hann talar um er blanda af sykri, þrúgusykri og vatni sem hit- að er upp í 165 gráður áður en því er hellt á hitaþolinn dúk. Þar er því velt milli spaðanna og sett í sítrónusýra, bragðefni og litarefni. Bráðin er svo kæld með því að láta hana renna í langri bunu milli spaðanna á dúkinn á ný. Þegar hún hefur kólnað svo mikið að hún er farin að stífna og hægt er að snerta hana með góðu móti fá krakk- arnir hana í hendur til að móta og klippa niður í hæfilega mola. Eins og vera ber er dálítill gaura- Fjörug Hlynur, Hallgrímur, Tómas og Ágústa skemmta sér konunglega við brjóstsykursframleiðsluna. Kátur Tómas hampar góssinu. Góður á litinn – súr á bragðið Í félagsmiðstöðinni Bústöðum bíða ungling- arnir í röðum eftir því að handleika litríkan syk- ur og móta úr honum mola. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir komst að því að heimagerður brjóstsykur hentar vel til stríðni. Skæri Einfaldast er að klippa niður sykurinn þegar hann fer að harðna. Morgunblaðið/Ómar Marglitur Ólafur, Andri og Kormákur önnum kafnir við sykurinn. daglegtlíf Desember er tími uppgjöra og þá sjá nemendur í mörgum skólum hvort erfiði haustsins hefur skilað árangri. Til skamms tíma í Vest- mannaeyjum var það Framhalds- skólinn sem sat einn að því að út- skrifa nemendur í desember en með fjölbreyttara námsframboði, ekki síst í gegnum fjarnám, fjölgar útskriftarnemum í Eyjum.    Á fimmtudaginn útskrifaði útibú Háskólans á Bifröst í Vestmanna- eyjum átta nemendur af námskeiði í upplýsingatækni og bókhaldi í fjarnámi. Námið tók tvo mánuði og lauk með prófum sem tekin voru í Eyjum. Gátu nemendur halað niður fyrirlestra eftir þörfum heima hjá sér og nýtt þá þegar þeim hentaði. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, útskrifaði nemendurna sem eru þeir fyrstu sem ljúka námi frá útibúinu í Eyjum sem var stofn- að í haust. „Það er í gegnum mennt- un og menningu sem við höldum jafnvægi í byggð landsins, því með menntun koma störfin og með menningu hin félagslega umgjörð sem við viljum búa í. Þetta eru lyk- ilhugtökin, menntun og menning, en ekki atvinnumál með úreltri sýn og skilgreiningum,“ sagði Ágúst við þetta tækifæri. Á laugardaginn útskrifaði Fram- haldsskólinn svo 28 manns, 27 karla og eina konu af svokölluðu pungaprófi sem gefur réttinda til að stjórna 30 tonna bátum. Þetta er samtals 106 stunda nám auk prófa sem nemendur tóku sama dag. Það athyglisverða er að helm- ingur nemenda er frá Dalvík þar sem þeir stunduðu sitt nám en kennt var frá Eyjum. Mættu þeir allir á laugardaginn og tóku við skírteinum sínum eins og nemend- urnir í Eyjum. Morgunblaðið/Ómar Garðarson Pungapróf Nemendur frá Dalvík mættu til Eyja og tóku við prófskírteinum. VESTMANNAEYJAR Ómar Garðarsson blaðamaður úr bæjarlífinu 91, 105 og 130 hö. ÓDÝRIR OG GÓÐIR DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 568 6411 WWW.RAFVORUR.IS · RAFVORUR@RAFVORUR.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.