Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 29
Fréttir
í tölvupósti
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 29
Á UNDANFÖRNUM árum hafa í
æ ríkari mæli borist fréttir frá ýms-
um stofnunum almannaþjónust-
unnar þar sem fram kemur að það
vanti fólk til starfa. Þær stéttir sem
oftast hafa verið nefndar í þessu
sambandi eru sjúkraliðar og hjúkr-
unarfræðingar þótt einnig eigi þetta
við um fjölmargar aðrar stéttir og
starfshópa. Fréttir af manneklu hafa
borist af sjúkrahúsum, stofnunum
fyrir aldraða, stofnunum fyrir fatl-
aða og nú í sumar einnig frá löggæsl-
unni. Þessar staðreyndir allar ættu
að vera yfirvöldum og þar með við-
semjendum launafólks innan al-
mannaþjónustunnar sem blikkandi
viðvörunarljós.
Vandinn vindur upp á sig
Í ályktun sem nýafstaðinn aðal-
fundur BSRB sendi frá sér er bein-
línis talað um að víða stefni í hreint
neyðarástand. Þar segir m.a.: „Ljóst
er að gera þarf stórátak til þess að
efla grunnþjónustu samfélagsins ef
ekki á illa að fara. Mjög alvarlegar
blikur eru nú á lofti. Sums staðar er
manneklan slík að horfir beinlínis til
landauðnar. Á sjúkrahúsum og dval-
arheimilum fyrir aldraða, á stofn-
unum fyrir fatlaða, innan löggæsl-
unnar og víðar í grunnþjónustu
samfélagsins verður sífellt erfiðara
að ráða fólk til starfa á þeim kjörum
og við þau skilyrði sem starfsfólki
eru búin. Manneklan veldur síðan
enn meira álagi á starfsfólkið og
vinda erfiðleikarnir þannig upp á
sig. Samfélagið þarf að horfast í
augu við þá staðreynd að ef lengur
verður látið reka á reiðanum stefnir
í óefni, ef ekki neyðarástand.“
Enda þótt manneklan í sjúkra- og
aðhlynningarstörfum hafi í för með
sér alvarlegustu afleiðingarnar og
geti hreinlega leitt til neyðarástands
fyrir skjólstæðinga velferðarþjón-
ustunnar verður einnig að skoða af
miklu raunsæi hvað gerist ef erf-
iðleikum er háð að manna almenn
skrifstofustörf. Án skipulagningar
starfseminnar, bókhalds og annars
utanumhalds um rekstur skapast
fljótlega ringulreið. Fjármálastofn-
anir sem á undanförnum árum hafa
vaxið og dafnað sem aldrei fyrr soga
nú til sín starfsfólk og oftast á mun
betri launakjörum en ríki og sveit-
arfélög bjóða upp á. Ef launakjörin á
þessum sviðum opinberrar stjórn-
sýslu verða ekki löguð í komandi
kjarasamningum er ljóst að ríki og
sveitarfélög geta ekki keppt við
einkamarkaðinn. Þessa er t.a.m. tví-
mælalaust farið að gæta hjá Reykja-
víkurborg og er það á ábyrgð kjör-
inna forsvarsmanna borgarinnar að
gæta hagsmuna hennar sem at-
vinnurekanda.
BSRB hvetur
til framfarasóknar
Það sem hér hefur verið nefnt er
fyrst og fremst til varnar starfsemi á
vegum hins opinbera. Varað er við
því að ef ekki er tekið markvisst á
kjaramálum starfsfólks innan sam-
félagsþjónustunnar muni það hafa
alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Í rauninni er það frá-
leitt að við skulum nú í
byrjun 21. aldarinnar –
þegar ríkidæmi þjóð-
arinnar hefur aldrei
verið meira – þurfa að
leggjast í vörn fyrir
velferðarkerfið. Í
reynd ættum við að
vera í stórfelldri sókn á
öllum sviðum velferð-
arþjónustunnar því
þegar allt kemur til alls
nýtur samfélagið sem
heild góðs af. Því öfl-
ugra velferðarkerfi sem við byggjum
upp þeim mun betra verður þjóð-
félag okkar. Það er til hagsbóta fyrir
alla, einstaklinginn, fjölskylduna og
fyrirtækin að hafa góð sjúkrahús,
dvalarheimili fyrir aldraða, góða
skóla, góðar almenningssamgöngur,
löggæslu, brunavarnir, raforku- og
vatnsveitur og annað sem telst til
grunnþjónustu í nútímasamfélagi.
Í þessum anda ályktaði fyrr-
nefndur aðalfundur BSRB. Þar
sagði að brýnt væri að gervöll vel-
ferðarþjónustan væri „í stöðugri
framför og veiti samfélaginu öllu þá
bestu þjónustu sem völ er á“. Til að
þetta megi takast verður að búa bet-
ur að starfsfólki innan almannaþjón-
ustunnar en nú er gert, bæði varð-
andi launakjör og starfsskilyrði
almennt.
Stórbæta þarf kjör innan almannaþjónustunnar
Garðar Hilmarsson og Kristín
Á. Guðmundsdóttir skrifa um
laun og kjör starfsmanna vel-
ferðarþjónustunnar
» Í reynd ættum við aðvera í sókn á öllum
sviðum velferðarþjón-
ustunnar því þegar allt
kemur til alls nýtur
samfélagið sem heild
góðs af.
Garðar
Hilmarsson Garðar er formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar og gjald-
keri BSRB. Kristín er formaður
Sjúkraliðafélags Íslands. Bæði eru í
stjórn BSRB.
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Fyrir veiðimanninn
í fjölskyldunni þinni
Krókhálsi 5 - Sími 517 8050
- Sportbudin.is -
Síðumúla 8 - Sími 568 8410
- Veidihornid.is -
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760
- Veidimadurinn.is -
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
Ron Thompson
Aquasafe vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 28.990. Jólatilboð aðeins 19.995
Simms Classic Guide
Gore-tex veiðijakki.
Fullt verð 35.900. Jólatilboð aðeins 29.900.
Simms Freestone veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Verð aðeins 19.900
Ron Thompson veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Fullt verð 12.900. Jólatilboð aðeins 9.995.
Nýtt – NRS flotveiðivesti.
Sérhönnuð flotvesti fyrir veiðimenn.
Örugg vesti í alla veiði.
Verð aðeins 12.980.
Sage fluguveiðipakki. Fli og Launch
4ra hluta stöng í hólk. Gott LA hjól og RIO flugulína.
Lífstíðarábyrgð frá framleiðanda á stöng. Frábært
verð á alvöru fluguveiðipakka. Aðeins frá 34.900.
Veiðiflugur Íslands.
Biblía fluguhnýtarans. Bók sem allir
áhugamenn um fluguveiði verða að eiga.
Verð aðeins 3.995.
The Scandinavian Speycast.
Nýjasta myndin frá íslandsvininum Henrik
Mortensen. Jólamynd veiðimannsins í ár.
Eigum allar eldri myndirnar á DVD.
Verð aðeins 3.990.
Ron Thompson vöðlutaska.
Nauðsynleg taska fyrir alla veiðimenn
sem eiga vöðlur. Vatnsheldur botn.
Motta til að standa á þegar farið er í og úr.
Verð aðeins 3.995.
Scierra Explorer veiðitaska.
Afar vönduð og sterk veiðitaska undir
allan veiðibúnaðinn. Vatnsheldur botn.
Verð aðeins 6.995.
Infac byssuskápar.
Öruggir og traustir byssuskápar
í mörgum stærðum. Rúmgóður og
fallegur skápur fyrir 7 byssur.
Aðeins 35.900.
Atlas snjóþrúgur.
Sterkbyggðar þrúgur sem henta vel
íslenskum aðstæðum.
2 stillanlegir göngustafir og góð taska fylgir.
Verð aðeins 19.980.
Gerviandasett.
12 stokkendur; sofandi, vakandi og kafandi.
Góður bakpoki, bönd og blýsökkur fylgja.
Frábært verð. Aðeins 8.995 fyrir allt þetta.
ProLogic skotveiðijakki.
Vatnsheldur og hlýr jakki með útöndun.
Áralöng góð reynsla á Íslandi.
Verð aðeins 23.900
ProLogic
skotveiðibuxur.
Vatnsheldar og hlýjar smekkbuxur.
Áralöng góð reynsla á Íslandi.
Verð aðeins 17.900.
ProLogic Thermo
skotveiðihanskar.
Vatnsheldir og hlýir. Verð aðeins 2.995.
Einnig úr neopren. Verð aðeins 2.295.
ProLogic skór.
Vatnsheldir og hlýir skór með góðri útöndun.
3 gerðir. Bæjarins besta verð.
Aðeins frá 9.995.
Ameristep rúllubaggi.
Vinsælasta felubirgið á markaðnum.
Hvergi betra verð. Aðeins 16.880.
Vandað hreinsisett
fyrir haglabyssur.
Burstar, stöng, olía og fleira í góðum kassa.
Verð aðeins 4.880.
Simms Freestone vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 32.800. Jólatilboð aðeins 25.900