Morgunblaðið - 11.12.2007, Page 40

Morgunblaðið - 11.12.2007, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SAMSTARFSSAMNINGUR til þriggja ára milli Íslands, Færeyja og Grænlands um mennta-, menningar- og vísindamál var undirritaður í Hafnarborg nýlega. Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra, Jógvan á Lækjuni, mennta- málaráðherra Færeyja, og Tommy Marø, menntamálaráðherra Græn- lands, undirrituðu samninginn. Markmiðið með samningnum er að styrkja og þróa menningarsam- skipti milli landanna þriggja í út- norðri. Árið 2008 verður helgað verkefn- um á sviði handverks og hönnunar. Árið 2009 verður áherslan á óform- legar menntunarleiðir í sjálfbærri þróun. Nýting auðlinda verður að byggjast á sjálfbærum grundvelli, bæði með tilliti til þjóða og alþjóða- samfélagsins, segir í fréttatilkynn- ingu. Árið 2010 verður efnt til sum- arnámskeiða fyrir ungt fólk í útnorðri. Með verkefninu verður ungmennum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum gert kleift að kynnast hvert öðru og öðlast meiri þekkingu á löndum hvert annars. Samstarfssamningur milli Fær- eyja, Grænlands og Íslands á þessu sviði hefur verið í gildi allt frá árinu 1996 og á þeim tíma hefur verið ýtt úr vör verkefnum á borð við samstarf tónlistarskóla, markaðssetningu list- sköpunar, samstarf háskóla, stjórn- endamenntun í frjálsu félagsstarfi, rithöfundanámskeið og ritun nú- tímasögu Vestur-Norðurlanda. Að þessum verkefnum hefur komið fjöldi fólks og með þessu móti hefur samvinna og samstarf Færeyja, Grænlands og Íslands eflst til muna. Samstarf þjóðanna í útnorðri Nafn misritaðist Í inngangi minningargreina um Guðmund Braga í Morgunblaðinu 7. desember sl. misritaðist nafn dóttur hans og var hún sögð heita Árný Rósa en rétt er Árný Rós. LEIÐRÉTT PAKKAJÓL Bylgjunnar hafa verið haldin í desember á hverju ári frá árinu 2000. Yfirskrift verkefnisins er „Gefum eina aukagjöf“ og er áskorun til allra sem eru að kaupa jólagjafir í desember um að kaupa eina gjöf í viðbót og koma henni fyrir undir jólatrénu á neðri hæð Smáralindar. Allir pakkar sem eru settir þar eru sendir til Hjálparstarfs kirkj- unnar, Fjölskylduhjálpar Íslands. Pakkajól Bylgjunnar TEKIÐ verður á móti umsóknum hjá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs Fannborg 5, jarðhæð – sem hér seg- ir: Þriðjudaginn 11. desember kl. 16-18, fimmtudaginn 13. desember kl. 17-19 og föstudaginn 14. desem- ber kl. 16-18. Einnig má sækja um hjá Rauða krossi Íslands Kópavogsdeild, Hamraborg 11, II. hæð, á skrif- stofutíma. Úthlutun fer fram mið- vikudaginn 19. desember að Fann- borg 5 kl. 18-20. Nefndin hvetur skjólstæðinga sína sem lögheimili eiga í Kópavogi að sækja um á ofanskráðum tímum. Nefndin þakkar stuðningsaðilum sínum fyrir dygga aðstoð á liðnum árum, segir í tilkynningu frá nefnd- inni. Úthlutun Mæðrastyrks- nefndar Kópavogs AÐALSTJÓRN Öryrkjabandalags Íslands hefur sent frá sér eftirfar- andi ályktun: „Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir og lýsir eindreg- inni andstöðu við yfirstandandi að- gerðir lífeyrissjóða gegn öryrkj- um. Með aðgerðum sínum hafa stjórnir lífeyrissjóðanna sett kjör og réttindi öryrkja aftast í for- gangsröðina og vegið harkalega að því samtryggingarhlutverki sem lífeyrissjóðunum er ætlað og er grundvöllur skylduaðildar lands- manna að lífeyrissjóðum. Fleiri líf- eyrissjóðir hafa tilkynnt aðgerðir og að óbreyttu munu aðgerðir sjóðanna rústa afkomu þúsunda Íslendinga á næstu 2-3 árum. ÖBÍ skorar á Alþingi og rík- isstjórn að tryggja þeim sjúkum og fötluðum, sem verða fyrir skerðingum og niðurfellingum af hálfu lífeyrissjóða, þegar í stað fullan lífeyri á móti. ÖBÍ skorar jafnframt á aðild- arfélög Alþýðusambands Íslands, sem eiga fulltrúa í stjórnum lífeyr- issjóðanna að beita sér nú af heil- indum og réttsýni í þágu þeirra fé- lagsmanna sinna sem mest þurfa á stuðningi heildarsamtaka launa- fólks að halda nú fyrir jólin.“ Lýsa and- stöðu við aðgerðir lífeyrissjóða ♦♦♦ FIMM einstaklingar voru heiðr- aðir fyrir að hafa markað djúp spor í sögu barnaverndar á hátíð í tilefni 75 ára afmælis fyrstu barnaverndarlaga á Íslandi sem haldin var í Hátíðarsal Háskóla Íslands nýlega. Þessir einstaklingar eru dr. Sigurjón Björnsson prófessor, dr. Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi, Kristján Sigurðsson, fv. for- stöðumaður, dr. Björn Björnsson prófessor og Sveinn Ragnarsson, fv. félagsmálastjóri í Reykjavík. Félagsmálaráðherra afhenti þeim sem heiðraðir voru af þessu tilefni listaverk, sem hönnuð voru af Sigrúnu O. Einarsdóttur, gler- listamanni í Bergvík. Í máli Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, kom m.a. fram að framlag dr. Sig- urjóns Björnssonar m.a. til rann- sókna á sálarlífi barna á Reykja- vík og athuganir hans á börnum, sem dvalið höfðu á vöggustofum í frumbernsku, hafi haft mikil áhrif á breytt viðhorf til stofnanavist- unar barna. Dr. Guðrún Jóns- dóttir hafi átt verulegan þátt í því að skapa samfélagsvitund um út- breiðslu kynferðisofbeldis gegn börnum á Íslandi. Þá eigi Kristján Sigurðsson langan og farsælan starfaldur að baki og leitt Ung- lingaheimili ríkisins í gegnum mikilvægar breytingar, einkum á áttunda áratugnum. Dr. Björn Björnsson var m.a. fram- kvæmdastjóri barnavernd- arnefndar Reykjavíkur og form. nefndarinnar og beitti sér ásamt Sveini Ragnarssyni félagsmála- stjóra fyrir breyttum viðhorfum til vistunar barna utan foreldra- húsa og fagvæðing félagsþjónust- unnar í höfuðborginni í lok sjö- unda áratugarins. Þá hafi farsæl störf Sveins Ragnarssonar sem fé- lagsmálastjóri Reykjavíkurborgar spannað rúm 30 ár og að framlag hans til að miðla af reynslu sinni til stjórnenda sem og starfsmanna í félagsþjónustu og barnavernd á Íslandi hafi verið ómetanlegt. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra flutti ávarp við opnun hátíðarinnar og þá flutti Bragi Guðbrandsson ítarlegt er- indi um sögu barnaverndar á Ís- landi, einkum m.t.t. stofnanadvala barna á ólíkum tímaskeiðum. Þá var sýnd leikin heimildarmynd frá árinu 1963, Úr dagbók lífsins, en hún fjallar m.a. um þær aðstæður sem þá kölluðu á afskipti barna- verndaryfirvalda. Heiðruð fyrir störf að barnavernd Ljómynd/Jón Svavarsson Afhending Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, Guðrún Jónsdóttir, Sigurjón Björnsson, Sveinn Ragn- arsson, Kristján Sigurðsson, Björn Björnsson og Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.