Morgunblaðið - 11.12.2007, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kjarabætur til öryrkja
Jæja, loksins tilkynnti ríkisstjórnin
verulegar kjarabætur til öryrkja en
aðallega aldraðra. Afnám tekjuteng-
ingar maka við bætur öryrkja er gríð-
arlega stórt skref og að öryrkjar og
aldraðir megi hafa 100 þúsund á mán-
uði án þess að bætur skerðist er alveg
meiriháttar búbót. Ég sé ástæðu til
að þakka ríkisstjórninni fyrir þessar
aðgerðir og óska þeim sem fá þessar
kjarabætur til hamingju. Hins vegar
verð ég að benda á og mótmæla
harkalega ýmsu. Fyrst ber að nefna
að þegar öryrkjar fá nú tækifæri til
að hafa 100 þúsund á mánuði án þess
að bætur skerðist verður kominn upp
sú staða að heildarlaun öryrkjans
verða orðin meiri en fyrir orkutap og
þar af leiðandi taka lífeyrissjóðirnir
til sinna ráða og skerða lífeyrissjóðs-
tekjur. Ég hélt líka að ríkisstjórnin
og Öryrkjabandalagið myndu fyrst
beita sér fyrir því að bæta hag þeirra
öryrkja sem minnt mega sín. Ég vil
benda á að sennilega eru 6-7 þúsund
öryrkjar sem eru einhleypir sem fá
ekki eina einustu krónu út úr aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar. Enn stærri
hópur öryrkja er það mikið fatlaður
bæði líkamlega og andlega að hann
getur alls ekkert unnið. Hvaða gagn
hafa þessir gríðarlega stóru hópar ör-
yrkja af því að það verði 100 þúsund
króna frítekjumark launatekna? Ekki
hefur sá gríðarlega stóri hópur ein-
hleypra öryrkja neitt gagn af afnámi
tekjutengingar maka. Ég ætla nú að
fara þess á leit við ríkisstjórnina og
Öryrkjabandalagið að þau beiti sér
fyrir því að þeir sem eru skildir út-
undan í þessum aðgerðum fái alveg
jafnmiklar kjarabætur og áðurnefnd-
ir hópar og það ekki seinna en á
næsta ári. Það má gera með því að
þær mörgu þúsundir einhleypra ör-
yrkja og þeirra sem geta ekki unnið
fái helmingshækkun á grunnlífeyri
Tryggingastofnunar eða úr 25 þús-
undum í 50 þúsund á mánuði. Auk
þess með því að til dæmis 80-100 þús-
und krónur lífeyrissjóðstekna verði
ekki til að skerða bætur Trygg-
ingastofnunar. Ef þetta réttlætismál
yrði framkvæmt þá yrðum ég og þús-
undir annarra öryrkja afskaplega
glöð. En ef ekkert verður gert fyrir
þennan stóra hóp öryrkja þá eru þeir
öryrkjar sem minnst mega sín eina
ferðina enn skildir útundan í ískulda
velferðarkerfis ríkasta og „besta ríkis
heims“ samkvæmt rannsóknum.
Lífeyrisþegi
Þessi unga snót er að búa til eitthvað úr snjónum og er niðursokkin í vinnu
sína. Gleymir stund og stað, algjörlega einbeitt í augnablikinu, ósnortin af
fegurð umhverfisins, skarkala, ys og þys umhverfisins.
Morgunblaðið/Frikki
Leikið viðTjörnina í Reykjavík
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER BÚINN AÐ SAFNA
HELLING AF ORKU...
OG ÉG LÉT HANA Í KASSA
HÉRNA EINHVERS STAÐAR
ÞÚ
MISSKILUR
ÞETTA KALLI
*SNÖKT*
ÉG GET EKKERT GERT AÐ ÞVÍ
ÞÓ AÐ SYSTIR ÞÍN ELTI MIG
ÚT UM ALLT. VILTU AÐ ÉG
SEGI HENNI AÐ FARA?
ÉG VIL EKKI AÐ HÚN
SÉ AÐ ELTA MIG! ÉG ÞOLI
EKKI LITLAR STELPUR
ÞETTA Á EFTIR AÐ
VERA LÖNG NÓTT
HJARTAÐ Í MÉR TEKUR KIPP
Í HVERT SKIPTI SEM ÉG
HEYRI EITTHVAÐ HLJÓÐ.
ÉG GET EKKI SOFNAÐ
ÞEGAR EINHVER BRÝST INN
TIL ÞÍN ÞÁ HVERFUR ÖLL
ÖRYGGISKENND. EF MANNI
FINNST MAÐUR EKKI VERA
ÖRUGGUR HEIMA HJÁ SÉR...
HVAR GETUR MAÐUR ÞÁ VERIÐ
ÖRUGGUR?
KANNSKI ÆTTUM VIÐ
AÐ FLYTJA EITTHVERT
ÚT Í ÓBYGGÐIR...
VÍKINGAR
VELKOMNIR
HANN HLÝTUR
AÐ VERA NÝR
Í BÆNUM
ATLI...
NÁÐU
MÚSINNI!
ÞAÐ ER EKKI NÓG AÐ
MÉR VEGNI VEL...
KÖTTUM VERÐUR AÐ
VEGNA ILLA
JÁ, HANN ER AÐ
SPILA FÓTBOLTA...
OG HANN
ER BROSANDI
ÚT AÐ EYRUM
Á ÞESSARI
MYND
ÞÁ HEF
ÉG EKKI
ÁHYGGJUR AF
ÞVÍ AÐ HANN
SÉ EKKI AÐ
SKEMMTA SÉR EINS GOTT AÐ
INTERNETIÐ VAR
EKKI KOMIÐ ÞEGAR
ÉG VAR LÍTILL
LALLI, ÞAÐ ER KOMIN MYND AF
KALLA Á VEFSÍÐUNA ÞEIRRA!
EN ÉG HEF SAMT ÁHYGGJUR AF
HREINLÆTINU ÞARNA... ÞETTA ER
FJÓRÐI DAGURINN Í RÖÐ SEM ÉG
SÉ HANN Í SAMA BOLNUM
GÓÐAN DAGINN ELSKAN!
*GEISP*
HVAR HEFUR
ÞÚ VERIÐ,
PETER?
ÉG HEF
VERIÐ TÝNDUR
Í LOS
ANGELES
EN ÉG RATAÐI
SAMT AFTUR
TIL ÞÍN
HETJAN
MÍN
HÚN MÁ EKKI VITA
AÐ ÉG HAFI NÆSTUM
VERIÐ SKOTINN
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is