Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 27
Fjalakötturinn er staðsettur
í nýju húsi við Aðalstræti
sem byggt var að fyrirmynd
Fjalakattarhússins sögufræga.
Gestir upplifa alvöru
Reykjavíkurstemningu
og fyrsta flokks veitingar.
Borðapantanir
í síma 514 6060
Vínlisti Fjalakattarins
hefur hlotið
„Award of Excellence“
viðurkenningu Wine Spectator
Veitingastaður
í gömlu Reykjavík
Þar sem bær
Ingólfs stóð
Gleðjum kallinn á bóndadaginn*
(ef’ann á það skilið)
Forréttur: Reykt önd á ávaxta
-seljusalati með appelsínumauki
Milliréttur: Grilluð hörpuskel,
tígrisrækja og kryddhjúpaður
saltfiskur með Pernodsósu
Aðalréttur: Lambalund
og nautalund með grilluðum humar
og rótargrænmeti
Eftirréttur: Heit súkkulaðikaka
og frosið Cappucchino
Bóndadagsmatseðill: Þessi fjögurra rétta máltíð:
5.700 kr.
á mann
WineSpectator*Bóndadagsseðillinn er í boði 24.–27. janúar.
Flaska af Rosemount
Traditional 2002:
www. fjalakotturinn.is
með bóndadagsseðli
3.500 kr.
næ
st
FJALLAÐ var um andlát Bobbys
Fischers hjá helstu fréttastofum og
fjölmiðlum um allan heim, ferill hans
rakinn, lýst síðustu árunum á Íslandi
og vitnað í ummæli þekktra skák-
manna um snilld meistarans. Hann
hafi snemma á ferlinum verið kall-
aður „Mozart skáklistarinnar“. The
New York Times birti grein á vef-
síðu sinni þar sem honum var lýst
sem umdeildum snillingi er ekki fór
troðnar slóðir og „var einn af mestu
skákmönnum sögunnar“.
Fischer hefði með því að sigra
Borís Spasskí með einstaklega
glæsilegum hætti árið 1972 í Reykja-
vík heppnast að sýna Bandaríkja-
mönnum fram á að skák gæti verið
æsispennandi, eins og einvígi þar
sem barist væri upp á líf og dauða.
Blaðið bætti við að Fischer hefði
hins vegar ekki þolað að vera lengi í
sviðsljósinu og dregið sig inn í skel
og undir lokin hefði hann hatað
Bandaríkin.
Margir fjölmiðlar minntu á erfiða
æsku hans, móðir hans hefði verið
gyðingur en sonurinn fyllst gyðinga-
hatri, þrátt fyrir upprunann. Mæðg-
inin hefðu þó haldið sambandi þar til
móðirin lést 1997.
Herald Sun, víðlesnasta blað Ástr-
alíu, segir á vefsíðu sinni að Fischer
hafi verið afar umdeildur og rifjar
m.a. upp hatursfull ummæli hans um
Bandaríkin og gyðinga. Einnig er
minnt á þá skoðun hans að fjölmiðlar
gerðu í því að sverta hann og draga
upp ranga mynd af honum. Hann
hafi kvartað undan þessu í útvarps-
viðtali á Filippseyjum en þar mun
Fischer hafa eignast dóttur með fil-
ippseyskri konu.
„Þeir stagast alltaf á orðunum
furðulegur, furðulegur, furðulegur,
undarlegur. Ég er leiðinlegur, leið-
inlegur!“ sagði Fischer.
„Brjálaður skáksnillingur látinn“
var fyrirsögnin á vefsíðu Politiken í
Danmörku. Þar segir að Fischer hafi
oft verið talinn meðal bestu skák-
manna allra tíma en erfið lund hans
og hegðun hafi oft hindrað frama
hans. Rifjað er upp að hann hafi búið
í Kaliforníu í lok sjöunda áratugarins
og þar hafi áhugi hans á ritum um
gyðingahatur vaxið. Hann hafi lesið
Mein Kampf Hitlers og jafnvel haft
mynd af nasistaleiðtoganum yfir
rúminu sínu. Blaðið segir að þegar
stórmeistarinn Larry Evans spurði
hann af hverju hann dáði Hitler hefði
svarið verið: „Af því að hann þröngv-
aði vilja sínum upp á heiminn.“
Á vefsíðu breska blaðsins The
Guardian var ítarleg grein um Fisch-
er eftir þekktan, breskan skákmann,
Leonard Barden, sem þekkti meist-
arann allvel. Hann segir frá því að
faðir Fischers, eðlisfræðingurinn
Hans-Gerhardt Fischer, hafi verið af
þýskum uppruna og móðirin, Regina
Fischer, var af þýsk-bandarískum
ættum. Hún var afar vinstrisinnuð
og mikill friðarsinni en sjálfur studdi
Fischer Richard Nixon í forseta-
kosningunum 1972. En Barden segir
vísbendingar fyrir hendi um að Fisc-
her hafi verið rangfeðraður, raun-
verulegi faðirinn hafi verið Ungverj-
inn Paul Nemenyi sem móðirin hitti
eftir að hún var skilin við Hans-Ger-
hardt-Fischer. Nemenyi var einnig
eðlisfræðingur og vann að smíði
kveikjubúnaðar fyrstu kjarnorku-
sprengjunnar sem sprengd var 1945.
Barden lýsir því er Fischer var
gestur á heimili Bardens í Bretlandi
1960. Hann hafi haft feiknarlega
matarlyst og klárað allt ætilegt úr ís-
skáp móður Bardens. „Við tefldum
fimm mínútna hraðskák og þó að ég
væri þá breskur meistari í hraðskák
slátraði hann mér gersamlega. „Þú
ert bara breskur aumingi,“ sagði
hann stríðnislega. Augu Fischers,
sem sátu djúpt, stórar hendurnar og
fingur sem minntu á klær, höfðu
mikil áhrif á mann, jafnvel dáleið-
andi áhrif,“ segir Barden.
„Mozart skáklistarinnar“
Mikið fjallað um
lát Bobbys Fisch-
ers í erlendum
fjölmiðlum
Yfirburðamaður Bobby Fischer virðir fyrir sér taflborðið, íhugull á svip,
er hann var á hátindi skákferilsins á áttunda áratugnum.
Taka tvö Spasskí og Fischer tefla í Sveti Stefan árið 1992.
Yfirburðir Hæfileikar Bobbys Fischers við taflborðið fóru ekki á milli mála.
Hér er mynd af honum er hann var á hátindinum á áttunda áratugnum.
Skák og mát Fischer ræðir við íslenska blómarós á miklu balli sem slegið var upp að loknu einvíginu 1972.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100