Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær karlmann í 4 ára fang- elsi fyrir kynferðisbrot gegn dætr- um tveggja systra sinna. Var önnur stúlkan 5 ára þegar brotin voru framin og hin á aldrinum 3 til 11 ára. Jafnframt var maðurinn dæmdur fyrir vörslu barnakláms. Segir dóm- urinn að atferli mannsins sé svívirði- legt og hann eigi sér engar málsbæt- ur. Brotin gegn annarri stúlkunni voru framin á tímabilinu 1994-2001 en maðurinn lét stúlkuna snerta kynfæri sín og hafa við sig munnmök í nokkur hundruð skipti. Hann var einnig fundinn sekur um að klippa andlit stúlkunnar úr mynd og skeyta því við klámmyndir sem hann hafði sótt á netið. Á tveggja ára tímabili bjó stúlkan í sama húsnæði og mað- stúlkuna til munnmaka og annarrar misnotkunar með því að gefa henni spil, sælgæti og síðast peninga og svo með því að leyfa henni afnot af tölvu og sjónvarpi. Maðurinn hóf að brjóta á annarri stúlkunni áður en hann varð 15 ára og var því ekki sakhæfur varðandi öll brotin. Var því litið til þess að mað- urinn var sjálfur ungur að árum er hann framdi brotin og var samvinnu- fús við rannsókn málsins. Það rétt- læti þó ekki verknað hans að hann hefði verið í vímuefnaneyslu eða að hann hefði misst móður sína við upp- haf brotatímabilsins. Maðurinn var dæmdur til að greiða annarri stúlk- unni 1,5 milljónir króna í bætur og hinni 500 þúsund. Þá var hann dæmdur til að greiða sakarkostnað, tæplega 1,2 milljónir króna. urinn og braut hann þá á henni dag- lega. Brotin gegn hinni stúlkunni voru framin á árunum 1993 og 1994. Þegar móðir fyrri stúlkunnar hefði staðið manninn að verki við að mis- nota dóttur sína og haft í hótunum við hann hlýddi hann fyrirmælum hennar en hóf að misnota hina stúlk- una. Voru brotin þá framin á heimili mannsins eða foreldra telpnanna. Dómara þótti það vera til þyngingar á refsingu ákærða að hann fékk aðra Fjögurra ára fangelsi fyrir svívirðileg brot Brotin gegn annarri frænkunni stóðu frá 1994-2001 Í HNOTSKURN » Sjálfur var maðurinn yngrien 15 ára þegar hann hóf brotin. » Guðmundur L. Jóhannessonhéraðsdómari kvað upp dóm- inn. SNJÓÞUNGT hefur verið víða á landinu í vikunni og á Selfossi þurfti að kalla til björgunarsveit- armenn til að moka ofan af húsum með flöt þök sem snjóað hafði svo mikið yfir að hætt var við leka. Frá því á þriðjudagsmorgun hafa Selfyssingar þurft að vaða snjó sem nær meðalmanni upp í hné. Umferð var að komast í eðlilegt horf í gær en enn var illfært í sumum íbúða- hverfum bæjarins. Í Reykjavík er um 20 cm jafnfall- inn snjór og finnist einhverjum Reykvíkingum nóg um snjóinn nú er rétt að minna á að í janúar árið 1937 mældist snjódýptin í bænum 55 cm og hún hefur aldrei mælst meiri – en mælingin sú er reyndar ekki hafin yfir allan vafa. Þeim sem búa norðar á landinu þykir slík snjódýpt líklega ekki sérlega frétt- næm. Flötu þökin ekki hönnuð fyrir snjóinn Björgunarsveitarmenn kallaðir út til að koma í veg fyrir leka Ljósmynd/Guðmundur Karl Að störfum Snjó hefur kyngt niður á Selfossi síðustu daga og næg verkefni fyrir Björgunarfélag Árborgar. MENNIRNIR fimm sem réðust á óeinkennisklædda lögreglumenn að störfum aðfaranótt 10. janúar síðast- liðins voru í gær úrskurðaðir í far- bann til 1. febrúar nk. Gæsluvarðhald yfir mönnunum, litháískum ríkisborgurum, rann út í gær og var óskað eftir því við dóm- ara að þeir yrðu úrskurðaðir í far- bann. Mennirnir hafa allir setið í gæsluvarðhaldi síðan hinn 11. janúar en rannsóknin hefur m.a. beinst að því að upplýsa hvort um skipulagða atlögu að lögreglumönnunum hafi verið að ræða. Hefðbundin úrræði Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- lögregluþjónn hjá lögreglu höfuð- borgarsvæðisins, segir að ekki verði gripið til neinna úrræða til að fram- fylgja farbanninu umfram það sem hefðbundið er. Yfirvöld í Leifsstöð hafi verið látin vita um farbannið og muni mennirnir reyna að komast úr landi verði för þeirra stöðvuð. Úrskurðaðir í farbann Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „AÐALMÁLIÐ verður að koma sál- inni í lag aftur,“ sagði Svandís Svav- arsdóttir borgarfulltrúi í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Svandís varð fyrir óskemmtilegri reynslu um borð í flugvél Flugfélags Íslands á leið til Egilsstaða í gær- morgun, er sæti hennar losnaði frá gólfinu þegar hnykkur kom á vélina. „Það er nú svo sem allt í lagi með mig, en ég hlaut hálstognun við hnykkinn,“ sagði Svandís, sem var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari rannsóknar. Hún sagði sál- rænu hliðina hafa verið öllu verri en þá líkamlegu og að slysið hefði verið henni töluvert áfall. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, sagði vélina hafa lent í ófyrirséðum vindhnút í að- fluginu, en ekki væri ljóst hvers vegna sætið losnaði frá gólfinu. „Þetta er vissulega eitthvað sem við þurfum að athuga, því svona lagað á ekki að geta átt sér stað. Það var haft samband við alla farþega vélarinnar og við vitum ekki til þess að aðrir hafi hlotið teljandi meiðsli, en fólki var eðlilega mjög brugðið,“ sagði Árni. Flugvélin hélt áfram áætlunarflugi í gær eftir að sætið hafði verið lagfært. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var með Svandísi í vélinni þar sem þau voru á leið til fundar á Egilsstöð- um. Hann hlúði að Svandísi eftir at- vikið. „Dagur var vissulega betri en enginn og það var gott að hafa reynd- an lækni sér við hlið við þessar að- stæður,“ sagði Svandís. Talsmaður Rannsóknarnefndar flugslysa sagði í gær að nefndinni hefði borist tilkynning frá Flugfélagi Íslands vegna atviksins og athugað verði hvort ástæða þyki til rannsókn- ar á vegum nefndarinnar. „Svo sem allt í lagi með mig“ Árvakur/Frikki Lausar skrúfur Vél Flugfélags Íslands flaug aftur í gær eftir viðgerðir.  Sæti losnaði frá gólfi flugvélar Flugfélags Íslands í aðflugi til Egilsstaða í gær  Svandís Svavarsdóttir sat í lausa sætinu og borgarstjóri við hlið hennar Svandís Svavarsdóttir Árni Gunnarsson VONSKUVEÐUR var á Norður- landi eystra í gærkvöldi. Víkurskarði var lokað sökum slæms færis og al- mennt einkenndust aðstæður á veg- um af hálku og snjóþekju. Flughált var frá Þórshöfn og áleiðis að Raufarhöfn og óveður á milli Vopnafjarðar og Raufarhafnar. Stórhríð var á Tjörnesi og í kringum Húsavík. Þegar Morgunblaðið hafði samband við björgunarsveitir á Raufarhöfn og Þórshöfn hafði lítið verið um útköll en þó voru björgun- arsveitarmenn við því búnir að þurfa að aðstoða vegfarendur ef einhverjir væru. Einum ökumanni var hjálpað við að losa bíl sinn og vitað var að annar hafði þurft að skilja bíl sinn eftir í vegarkanti en sá hafði fengið far til byggða. Nokkuð hefur verið um útköll björgunarsveita á þessum slóðum í vikunni. Þótt ofankoman væri ekki mikil þá snjóaði töluvert í gærdag og var því nokkuð af lausum snjó sem skerti skyggni í rokinu. Lögreglan á Húsa- vík aðstoðaði vegfarendur innanbæj- ar í gær við að komast leiðar sinnar en þar bundu menn vonir við það í gærkvöldi að fólk hefði vit á að halda sig innandyra. Víkurskarði lokað í vonskuveðri BÓKABÚÐ STEINARS ÚTSALA Opið laugardaginn 19. jan. frá kl. 12.00 - 17.00 Virka daga frá kl. 13.00 - 18.00 Allt að 60% afsl. Bergstaðastræti 7 101 Rvk. sími 551-2030 ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.