Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Hættir með námskeiðahald
á Íslandi
Frá Guðjóni Bergmann:
„ÞEGAR að ég söðlaði um og lok-
aði Jógamiðstöðinni um mitt ár 2006
til að hefja fyrirlestra- og nám-
skeiðahald undir fyrirsögninni „Þú
ert það sem þú hugsar“ þá var konan
mín þegar farin að huga að fram-
haldsnámi í Bandaríkjunum að
loknu viðskiptanámi í HR. Því má
segja að námskeiðahaldi mínu undir
þessum formerkjum á Íslandi hafi
ekki verið ætlað lengra líf en tvö ár
frá upphafi.
Ofangreind námskeið hafa fengið
frábærar viðtökur, sömuleiðis sam-
nefnd bók, afleiddir fyrirlestrar og
önnur námskeið. Fyrir það er ég
mjög þakklátur. En við hjónin ætl-
um að standa við áður nefndar áætl-
anir og munum því fara af landi
brott í haust þar sem konan mín, Jó-
hanna Bóel, mun hefja framhalds-
nám í Bandaríkjunum. Við eigum að
auki von á okkar öðru barni í júní og
því mun ég bregða mér í hlutverk
heimavinnandi föður fyrstu eitt til
tvö árin á erlendri grund og hlakka
mikið til að sinna börnunum mínum
og styðja konuna mína til dáða í
námi.
Þessi umskipti hafa þá merkingu
að ég mun hætta öllu nám-
skeiðahaldi hér á landi í júní á þessu
ári. Þeir sem hafa haft hug á að nýta
sér námskeiðið „Þú ert það sem þú
hugsar“ hafa til þess þrjá möguleika
í Reykjavík, í febrúar, apríl og maí,
auk þess sem ég verð með námskeið
á Ísafirði, Egilsstöðum og í Vest-
mannaeyjum í mars og apríl. Á vef-
síðunni www.gbergmann.is er kom-
inn listi yfir námkvæmar
dagssetningar og önnur námskeið
sem verða í boði fram til 7. júní.
Í Bandaríkjunum mun ég vænt-
anlega halda áfram einhverjum rit-
störfum þegar hægist á bleiu-
skiptum og mun að sjálfsögðu halda
sambandi við Íslendinga í gegnum
fréttabréfin mín, bloggsíðu og jafn-
vel einhver önnur fjölmiðlatengsl.“
Ég veiti nánari upplýsingar í síma
690-1818 og í gegnum tölvupóst gud-
jon@gbergmann.is.
Óvirðing við landann
VIÐ erum fjölmörg sem rjúkum
ekki út og sprengjum rakettur rétt
fyrir miðnætti á gamlárskvöld, held-
ur njótum þess að sitja í ró og næði
fyrir framan sjónvarpið og njótum
hátíðlegrar stundar er nýja árið
gengur í garð. Ekki spillir þá að hafa
gott menningarlegt efni í sjónvarp-
inu eins og hefur verið undanfarin
ár, og þá sérstaklega meðan Markús
Örn var við stjórnvölinn. En í ár var
þetta til skammar og sýndar gamlar
lummur sem voru látnar rúlla við-
stöðulaust, öllum til ama er á horfðu.
Ég skora á Pál útvarpsstjóra að
kippa þessu í liðinn.
Guðrún.
NÓGU erfitt er að hlaupa á eftir strætó – töskulaus. Hvað þá ef maður er
hlaðinn pinklum, eða töskum eins og þessi unga hressa kona á myndinni.
Hún lætur ekki snjóinn trufla sig og skeiðar einbeitt í átt að strætó.
Morgunblaðið/Ómar
Hlaupið eftir strætó í Vonarstræti
Húsanaust sími 530 7200
kynnir í einkasölu:Glæsilegt,
einnar hæðar einbýlishús á ein-
um eftirsóttasta stað borgarinnar, Fossvogsdal (neðsta gata): Sunnan
hússins er óbyggt svæði, útsýni yfir dalinn er því óhindrað. Húsinu hefur
verið vel við haldið og er ástand þess ytra sem innra mjög gott.
GRUNDARLAND - FOSSVOGI
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
PASSAÐU
ÞIG!
EKKI VERA
HRÆDDUR... ÞÚ
ÁTT EFTIR AÐ
EIGNAST MARGA
VINI HÉR
ÉG BÝÐ ÖLL LAUFIN
VELKOMIN!
LAUFIN ÞURFA Á MÉR AÐ
HALDA! ÉG HJÁLPA ÞEIM Í
GEGNUM ERFIÐAN TÍMA Í
ÞEIRRA LÍFI
ÞEGAR LAUFIÐ FELLUR ÚR
TRÉNU ER ÞAÐ EITT... EINS
OG MANNESKJA SEM ER
NÝFLUTT Í NÝJA BORG
HOBBES,
HVAÐ ERTU
AÐ GERA?
EKKERT
ALLS
EKKI
NEITT?
NEIBB
VILTU
HJÁLP?
ÞAÐ
VÆRI
FÍNT
PABBI,
SKIPTA
BORÐSIÐIR
MIKLU MÁLI?
JÁ, MAÐUR VEIT
ALDREI HVENÆR MANNI
VERÐUR BOÐIÐ Í MAT HJÁ
ENGLANDSDROTTNINGU
ERTU SEM SAGT AÐ
SEGJA AÐ ÞEIR
SKIPTI MJÖG
LITLU MÁLI?
KANNSKI... EN
EKKI SEGJA MÖMMU
ÞINNI FRÁ ÞVÍ
SLÖKKTU Á
FARSÍMANUM
ÞÍNUM! AFSAKIÐ
ÉG VEIT AÐ VIÐ
ÆTLUÐUM EKKI AÐ EYÐA
PENING Í AÐ KAUPA HLUT
Í HÓTELINU. SÉRSTAKLEGA
EKKI SVONA MIKLU...
EN NÚNA ÞEGAR VIÐ
ERUM BÚIN AÐ ÞVÍ ÞÁ
HELD ÉG AÐ ÞETTA VERÐI
ALVEG FRÁBÆRT!
Í ALVÖRUNNI!
Í SMÁA LETRINU
STENDUR AÐ VIÐ GETUM
HÆTT VIÐ KAUPIN
INNAN ÞRIGGJA DAGA!
ÉG ER ALLS EKKI
HRIFIN AF MARY
JANE PARKER... EN
ÉG MUNDI ALDREI
GERA HENNI ILLT
EF ÞÚ
GERÐIR ÞAÐ
EKKI, HVER
GERÐI ÞAÐ ÞÁ?
HNHH! ÞAÐ VAR
ÉG, LITLA
PADDAN
ÞÍN!
HÚGÓ!
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is