Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 18. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
RÓMANTÍSKIR
RÚSSNESKT GLAMÚRROKK OG
PÍNUPILS Í HERRATÍSKUNNI >> 22
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BORGARRÁÐ styður samhljóða að Sunda-
braut verði lögð í göngum. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
í Reykjavík og formaður samgöngunefndar
Alþingis, er sama sinnis. Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri undrast áherslu Vegagerð-
arinnar á svonefnda eyjalausn, því vafamál
sé hvort hún sé fær, en bæði Dagur og Stein-
unn Valdís segja að ekki sé allt sem sýnist í
sambandi við kostnaðaráætlun þeirrar
lausnar. Beðið er ákvörðunar samgöngu-
ráðherra.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir að mál
Sundabrautar verði tekið fyrir hjá nefndinni
innan skamms. Hugmyndin sé að fá kynn-
ingu á stöðu mála frá Vegagerðinni og sam-
gönguráðuneytinu og kalla á ýmsa hags-
munaaðila. Hins vegar hafi hún ekki legið á
skoðun sinni og afstaða hennar sé skýr: „Ég
tel langskynsamlegustu lausnina, bæði út frá
skipulagi, umferð og umhverfi, að fara
Sundabraut í göngum á ystu leið.“
Í skýrslu starfshóps um Sundabraut kem-
ur fram að heildarkostnaður við svokallaða
eyjalausn sé um 15 milljarðar en tæplega 24
milljarðar við jarðgöng, miðað við verðlag í
október 2007. Samkvæmt samgönguáætlun
2007-2010 eiga 8 milljarðar af söluandvirði
Símans að fara í Sundabraut. Í grein í Morg-
unblaðinu fyrir um tveimur árum sagði
Sturla Böðvarsson, þáverandi samgöngu-
ráðherra, að kostnaðurinn við Sundabraut
lægi ekki fyrir en reikna mætti með 18 til 19
milljörðum hið minnsta og fjármögnun væri
tryggð.
Þjóðvegur á kostnað ríkisins
Dagur og Steinunn Valdís segja að þó að
Vegagerðin leggi yfirleitt til ódýrustu leiðina
hafi hún lent í ágreiningi um legu ýmissa
vega og enn hafi ekki komið til þess að mis-
munurinn væri greiddur af viðkomandi
sveitarfélagi, þó að farin hafi verið önnur leið
en Vegagerðin hafi valið í upphafi, samanber
nýlegar deilur í Garðabæ. Steinunn Valdís
segir réttlætanlegt að fara gangaleiðina þó
að hún sé dýrari en eyjaleiðin, einfaldlega
vegna þess að hún sé svo miklu, miklu betri.
Dagur tekur í sama streng og segist ekki
hafa heyrt að taka ætti upp sérstaka Reykja-
víkurreglu í því sambandi. „Það kæmi mér á
óvart ef menn færu að brydda upp á ein-
hverri slíkri umræðu í fyrsta sinn.“
Sérregla
fyrir
Reykjavík?
Sundabraut í göng sögð
skynsamlegasta lausnin
Kári og Halla >> 48
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík
Sími 551 5600 • Fax 551 5601
www.utilegumadurinn.is
Hjólhýsasýning
Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Polar
hjólhýsum helgina 19.-20. janúar í verslun okkar að
Fosshálsi 5-7. Léttar veitingar í boði!
Lau kl. 10.00-17.00
Sun kl. 12.00-16.00
Í HNOTSKURN
»Bobby Fischer varð heims-meistari í Reykjavík 1972 er
hann tefldi við Sovétmanninn
Borís Spasskí. Einvígið vakti
geysilega athygli um allan heim
og skák varð skyndilega vinsæl í
Bandaríkjunum.
»Titillinn var tekinn af Fisch-er árið 1975 þar sem ekki
tókst að koma á einvígi milli
hans og áskorandans, Anatólís
Karpovs, vegna þess hve Banda-
ríkjamaðurinn setti mörg og
flókin skilyrði.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@ mbl.is
BOBBY Fischer vildi í fyrra tefla einvígi við Vishy
Anand, núverandi heimsmeistara í skák, einnig var
hann fús að tefla við Garrí Kasparov. Helgi Ólafsson
stórmeistari hafði milligöngu í málinu og tók Anand
vel í að tefla við Fischer sem vildi að notast væri við
tilhögun sem hann fann upp, Fischerrandom en þá er
mönnunum raðað upp að hluta til af handahófi í byrj-
un skákar til að gera taflið erfiðara.
Að sögn Helga nýtur Fischerrandom, öðru nafni
Chess 960, vaxandi hylli, einkum í Þýskalandi, og
mun Anand oft hafa teflt á skákmótum með þessari
uppröðun. Fram kemur í tölvuskeytum frá því í fyrra
milli Helga og Anands að Fischer var með vel mót-
aðar hugmyndir um einvígið. Hann setti fram í sam-
ráði við Helga 18 tillögur um tilhögun þess, teflt yrði í
Indlandi og atburðurinn fjármagnaður af þarlendum
fjármálamönnum. En einvígið yrði sýnt á netinu og
hægt að kaupa þar aðgang að skákunum.
Helgi segir að ekki hafi verið gerlegt fyrir Kasp-
arov að taka boðinu. Hann hafi þegar haft öðrum
hnöppum að hneppa enda orðinn umsvifamikill
stjórnmálamaður í Rússlandi. „Anand bar fyrir sig
tímaleysi vegna þátttöku í mótum en segir í einu
skeytinu að það myndi vera heiður fyrir sig að tefla
við Fischer en hann gæti ekki tryggt að öllum skil-
yrðunum yrði fullnægt.“
Fischer og Anand þekktust og var hinn fyrrnefndi
óánægður með að ekki skyldi þokast í málinu. Hann
sagði við Helga: „Ég verð að ná einni keppni í viðbót.“
Bobby Fischer sóttist
eftir einvígi við Anand
Hugðist fá að reyna sig við ríkjandi heimsmeistara sem tók vel í hugmyndina
Árvakur/RAX
Skákmeistari Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, lést í Reykjavík í fyrrakvöld, 17. janúar.
Bobby Fischer | 26, 27 og miðopna
GREININGARFYRIRTÆKIÐ Credit Sights seg-
ir barnalegt að ætla að Gnúpur verði eina íslenska
fjárfestingarfélagið sem lendi í vandræðum í kjöl-
far lækkunar á gengi hlutabréfa. Í nýlegri skýrslu
fyrirtækisins segir að lánardrottnar Gnúps, sem
ekki hafi haft veð fyrir lánum til félagsins, muni
væntanlega fá 60% af lánunum endurgreidd. Bank-
arnir fá sín lán að mestu eða fullu leyti endurgreidd
og jafnframt telji þeir sig vera í góðri stöðu hvað
varðar lán, og tryggingar þeirra vegna, til fjárfest-
ingarfélaga.
Þá segir fyrirtækið að framtíðarhorfur í íslensku efnahagslífi séu
ekki bjartar. | 14
Líklegt að fleiri
lendi í vanda
„Hann var vissulega mjög umdeild-
ur maður en framlag hans til skák-
listarinnar var einstakt, það er það
sem við minnumst núna.“
Garrí Kasparov
„Það er slæmt að hann skyldi ekki
halda áfram að auðga skákheiminn
með óviðjafnanlegum skilningi sín-
um eftir 1972.“
Jan Timman
„Skáksnillingur er látinn, þetta er
missir fyrir allt mannkynið.“
Viktor Kortsnoj
„Mikið áfall, besti skákmaður sög-
unnar er horfinn á braut.“
Lajos Portisch
„Hann klauf ekki vestrið frá austr-
inu, fólk sameinaðist á aðdáun á
honum.“
Ljubomir Ljubojevic
„Hann var á móti þessari klassísku
skák sem hann taldi tölvurnar hafa
eyðilagt.“
Friðrik Ólafsson
Snillingur
kvaddur