Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 45 Krossgáta Lárétt | 1 glymja, 4 veita ráðningu, 7 tíu, 8 óbeit, 9 hamingjusöm, 11 keipur, 13 fræull, 14 tæla, 15 þekking, 17 málmur, 20 bókstafur, 22 talaði um, 23 íshúð, 24 veslast upp, 25 sjúga. Lóðrétt | 1 stúfur, 2 slátr- að, 3 forar, 4 mas, 5 dóna, 6 ágóði, 10 óskar eftir, 12 reið, 13 hryggur, 15 dreng, 16 súrefnið, 18 byggt, 19 malda í móinn, 20 gufusjóða, 21 auðugt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fjandmenn, 8 fátíð, 9 liðið, 10 ill, 11 skips, 13 aumur, 15 lafði, 18 alger, 21 lof, 23 skell, 23 tíndi, 24 kinn- ungur. Lóðrétt: 2 jötni, 3 næðis, 4 molla, 5 náðum, 6 ofns, 7 æður, 12 peð, 14 ull, 15 last, 16 freri, 17 illan, 18 aftan, 19 gengu, 20 reit. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þeim sem þekkja þig ekki mjög vel gæti þótt ofurhressleiki þinn ógnandi. Það mun samt ekki aftra þér frá því að taka áskorunum í góðu stuði. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nám er ein leið til að þróa hugann, en maður lærir mest af reynslunni. Þorðu að vera byrjandi og sá sem spyr allra spurninganna. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert fullur af smitandi spenn- ingi. Fólk er glaðara þegar það kemur frá þér, en þegar það kom til þín. Finndu af- sökun í kvöld til að dansa. Bara dansa. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú kannt aldeilis að spjalla! – og sérstaklega um peninga. Stífar samræður eru þér sem ljúf standferð og léttúðin færir þér alla bestu samningana. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú veist hvað þú vilt fá, en þú kannt ekki hagnýtu aðferðirnar til að eignast það. Gerðu lista, rannsakaðu, gerðu plön. Með herkænsku kemur þetta auðveld- lega. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Metnaður þinn er fallegur. Af hverju finnst þér skrítið að segja öðrum frá honum? Hlustaðu á varnaðarradd- irnar. Það eiga ekki allir að vita fyrirætl- anir þínar. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Eitthvað letur þig frá að biðja um það sem þú vilt. Kannski er það trúin að þú sért að biðja um of mikið, eða að þú megir bara frá takmarkað magn af ánægju. Þorðu samt að spyrja. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú veist hver þú ert. Fólk skynjar þig öðruvísi en þú ert, og það fær þig til að efast. Ekki gera það. Vertu fast- ur fyrir í sjálfsþekkingu þinni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þrjóski ástvinur þinn er jafn óbreytanlegur og morgunsólin. Hún kem- ur upp á hverjum morgni, og það gera ágreiningar ykkar líka. Í dag skaltu fyr- irgefa og samþykkja. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur persónulega heim- speki. Það fallega við hana er að þú getur hafnað henni hvenær sem er. Það er allt í lagi ef þú færð betri hugmynd. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Allir geta reiðst, en í dag ger- irðu nokkuð ótrúlegt. Þú verður reiður við réttu manneskjuna af réttum þunga og það mun skila sér í réttum breytingum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú vinnur mikið svo vertu viss um að það sé af réttri ástæðu. Þú elskar að hafa eitthvað fram að færa. Ekki hafa áhyggjur af hvað þú átt og átt ekki skilið. stjörnuspá Holiday Mathis Staðan kom upp á minningarmóti Torres sem lauk fyrir skömmu í Merida í Mexíkó. Alþjóðlegi meist- arinn Emilio Cordova (2493) hafði hvítt gegn stórmeistaranum Alonso Zapata (2495) frá Kólumbíu. 36. Hd8+! Ke7 37. He8+! Kxe8 38. Rd6+ Kd7 39. Rxe4 hvítur hefur nú léttunnið tafl. Framhaldið varð: 39…a4 40. Kf1 f5 41. gxf5 gxf5 42. Rg3 Ke6 43. Ke2 a3 44. bxa3 Bxc3 45. a4 Bf6 46. Kd3 Bh4 47. Re2 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Öðruvísi yfirfærsla. Norður ♠K32 ♥K5 ♦ÁD ♣D109542 Vestur Austur ♠87 ♠654 ♥D1073 ♥82 ♦10962 ♦KG753 ♣K73 ♣G86 Suður ♠ÁDG109 ♥ÁG964 ♦84 ♣Á Suður spilar 6♠. Vestur spilar út tígultíu gegn slemmunni. Hvernig er best að spila? Miði er möguleiki og fljótt á litið virðist sjálfsagt að svína tíguldrottn- ingu, enda hugsanlegt að útspilið sé frá kóngnum. En verkefni sagnhafa er fyrst og fremst að fría hjartað og það skapar sveigjanleika í þeim efnum að fara upp með tígulás. Lítum á: Sagn- hafi stingur upp tígulás, tekur tvo efstu í hjarta og trompar það þriðja með kóngnum. Fer heim á laufás, spilar hjarta og hendir ♦D. Tapslagurinn í tígli er yfirfærður á hjartað, en með því móti verður hægt að trompa tígul með hundi í borði án hættu á yfirtrompun. Ef tígli er svínað í upphafi, fær aust- ur á ♦K og annan slag á tromp síðar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Tomas Svensson, markvörður Svía, reyndist Íslend-ingum erfiður í handboltalandsleiknum í fyrrakvöld. Hversu gamall er hann? 2 Hannes Jón Jónsson, landsliðsmaður í handknatt-leik, kann að vera að færa sig um set. Hvert gæti hann verið að fara? 3 Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa verið að æfameð áhöfn dansks varðskips. Hvað kallast það? 4 Hvað fer mikið af vannýttum lyfijum til eyðingar á 10mánuðum í gegnum apótekin? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Hvaða bókstafi bera þeir tveir stofnar inflú- ensu sem orðið hefur vart við hér á landi upp á síðkastið? Svar: A og B. 2. Hvernig auðgaðist fjár- festirinn Morten Lund sem nú hefur eignast meirihlutann í Nyhedsav- isen? Svar: Á Skype- samskiptahugbún- aðinum. 3. Hvað á veitingastaðurinn í gamla Eimskipafélagshús- inu, sem áður hét Salt, að heita eftirleiðis? Svar: Gullfoss. 4. Hver söng Rückert-söngvana með Sinfóníuhljómsveitinni í gær- kvöldi? Svar: Ranneig Fríða Bragadóttir. Spurter… ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR VINNUEFTIRLITIÐ hefur upp- lýsingar um að persónuhlífar sem ekki eru CE-merktar séu á mark- aðnum og í notkun á vinnustöðum. Með orðinu persónuhlíf er átt við hverskonar búnað eða tæki sem einstaklingar klæðast eða halda á, sér til verndar við vinnu, t.d. end- urskins- og hlífðarfatnað öryggis- hjálma, heyrnarhlífar, öryggisskó, hlífðarhanska, fallvarnarbúnað og öndunarfærahlífar. „Óheimilt er að setja á markað persónuhlífar og taka í notkun sem ekki eru CE-merktar, sbr. 1. mgr. 48. gr. laga. nr. 46/1980 um aðbún- að, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og 4. tölulið 4. gr. reglna nr. 501/1994 um gerð per- sónuhlífa. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er hægt að treysta því að per- sónuhlíf sem ekki er CE-merkt uppfylli þær lágmarkskröfur um gæði og öryggi sem til hennar eru gerðar í reglum um gerð persónu- hlífa. Atvinnurekendur og starfsmenn eru hvattir til að gæta að því að þær persónuhlífar sem eru í notk- un á vinnustað séu CE-merktar. Þeim persónuhlífum sem eru ekki CE-merktar skal skila til þess fyr- irtækis sem varan var keypt frá. Jafnframt skal hafa samband við Vinnueftirlitið og upplýsa málið,“ segir í frétt frá Vinnueftirlitinu. Á heimasíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is, er upplýs- ingasíða um persónuhlífar. Mark- miðið með síðunni er að framleið- endur, seljendur og kaupendur geti greiðlega fengið upplýsingar um þær kröfur sem gilda um fram- leiðslu, merkingar og markaðs- setningu persónuhlífa. Tryggja verður rétt val á persónuhlífum Á FUNDI Íbúasamtaka um lág- reista byggð í Bygggörðum, austan Gróttu, fimmtudaginn 17. janúar 2008 var eftirfarandi ályktun sam- þykkt: „Íbúasamtökin telja að skipulags- mál Seltjarnarness hafi þróast í rétta átt með ákvörðun bæjar- stjórnar í gær um að auglýsa ekki fram komna deiliskipulagstillögu Þyrpingar hf. fyrir Bygggarða og óbyggt landsvæði austan við Gróttu. Tillagan gerir ráð fyrir tíu þriggja til fjögurra hæða blokkum og einni tveggja hæða blokk, sam- tals yfir 180 íbúðum, sem myndi fjölga íbúum sveitarfélagsins um meira en 10% með tilheyrandi aukningu á umferð. Bygggarða- svæðið og það viðbótarlandsvæði sem fyrirhugað er að leggja undir byggð í tillögunni er mikilvægur hluti af vestursvæði Seltjarnarness sem er ómetanleg náttúru- og úti- vistaperla og því eru miklir framtíð- arhagsmunir í húfi. Íbúasamtökin telja mikilvægt að lagðar verði fram tvær eða fleiri til- lögur um svæðið og þær kynntar fyrir íbúum. Skoðaður verði sá möguleiki að efna til íbúakosningar um tillögurnar á síðari stigum eins og áður hefur verið gert í bæj- arfélaginu með góðum árangri. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti í gær að samráð yrði haft við íbúa á mótunarstigi tillagna. Til þess að tryggja sem best að nýjar skipu- lagstillögur taki í hvívetna mið af aðalskipulagi Seltjarnarness og vilja íbúa þá óska Íbúasamtökin eft- ir því að fá virka aðild að þeirri skipulags- og þróunarvinnu sem framundan er um framangreint svæði og eru reiðubúin að tilnefna fulltrúa í þá vinnu nú þegar.“ Íbúasamtök vilja aðild að gerð deiliskipulags
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.